Alþýðublaðið - 15.12.1990, Side 1
LAUGARDAGUR
15. DESEMBER 1990
LOGBROT? Lögfróðir menn benda Alþýðublaðinu á að
bannað er að auglýsa áfengi á íslandi. Engu að siður finna
margir ölframleiðenda og innflytjenda smugu til að kom-
ast framhjá slíku auglýsingabanni. Hér er ölbíll á ferð og
auglýsir sterklega áfengt öl. Lögbrot? Við þorum ekki að
fullyrða að myndskreytingin á bílnum frá Agli Skallagríms-
syni ögri löggjafarsamkomunni sem sést i bakgrunninn. A-
mynd E. Ól.
RÚNTAÐ EFTIR JÓLASTEIK: Þeir forsjálu munu lík-
lega sjá sér hag í að rúnta svolítið um borgina eftir jóla-
steikunum í ár. Verðlagsstofnun kannaði verðin. í ljós kom
að úrbeinað hangikjötslæri kostar 979 kr. kílóið í Breið-
holtskjöri; þar sem það er ódýrast; svínahamborgara-
hryggur kostar 1449 krónur i Kjötbúðinni Borg við
Laugaveg; Bayonneskinkan er svo hagstæðust í Júllabúð
í Álfheimum. Munurinn milli hagstæðasta og óhagstæð-
asta verðs var verulegur, en mestur á síðastnefndu steik-
inni, 85%. Ekkert er hægt að fullyrða um gæðin.
ASTMA HJÁTÍU AF HUNDRAÐI: Vart hefur orðið
astmaeinkenna hjá 10% þeirra 150 mannasem starfa í ker-
skála ísals í Straumsvík. Hættan virðist aukast með auknu
flúormagni í andrúmsloftinu. Reykingamenn í starfs-
mannahópnum virðast vera í sérstakri hættu hvað þetta
varðar, og þvi lengur sem menn starfa, þeim mun meiri
hætta. í Noregi og í Svíþjóð hefur tíðni astmasjúkdóms ver-
ið meiri, 16—18%. Það var norski lungnasérfræðingurinn
Johnny Kongerud, sem gerði könnunina á 2000 starfs-
mönnum í kerskálum sjö álvera í Noregi og einu í Svíþjóð.
e
dagar
til jóla
HVERS ÓSKAR ÞÚ ÞÉR Í JOLAGJÖF?
Sigurður Pálsson, ljóðskáld, höfundur
nýútkominnar ljóðabókar, Ljóö námu völd:
„Ég óska þess að menn njóti friðsældar um jólin og
friðar og sælu til frambúðar. Reyni að minnsta kosti
að stefna að því.“
LEIÐARINN í DAG
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn lítið annað en
hrakiðflak á rúmsjó. Hann ersundurlyndurog ósam-
stiga og því ekki treystandi fyrir stýri þjóðarskútunn-
ar. Forysta flokksins hefur mátt þola opinbera fleng-
ingu vegna pólitískra afglapa í sambandi við af-
greiðslu bráðabirgðalaganna á Alþingi. Samþykktir
flokksins standa ekki í hinum mikilvægustu málum.
SJÁ LEIÐARA BLS. 4: KJÖLFESTAN SEM HRAKIÐ
FLAK.
Ráðherrar með
ráðherralaun
Ráðherralaun er orð sem
notað er yfir það þegar menn
fá almennilega greitt fyrir
vinnu sína. I Danmörku er
hægt að nota þetta orð, — Þor-
lákur Helgason segir okkur
nánar frá því.
Strandamenn
kvarta sáran
Strandamenn'eru frægir fyr-
ir að bera ekki sorgir sínar á
torg. Nú hefur flætt út úr, því
Strandamenn hafa sent for-
mönnum þingflokkanna kvört-
unarbréf mikið. Það er greini-
lega fyrir sterka menn að búa á
Ströndum.
Velkomin í
heiminn
Vinsæll fastur dálkur, viku-
lega í Alþýðublaðinu. Börnin
sem komu í heiminn í síðustu
viku eru kynnt fyrir lesendum.
Við segjum: Velkomin,. jóla-
börn!
Þeir eru kaldir
hiá Hitaveitunni
Hitaveita Reykjavíkur
hefur byggingu húss án
þess að hafa gert nokkra
samþykkt í þá veru, án
þess að fjárveiting til
þess sé samþykkt af
borgarráði eða borgar-
stjórn, án þess að hafa
byggingarleyfi og án
þess að gert sé ráð fyrir
því í skipulagi. Þetta
kemur meðal annars
fram í greinargerð með
kæru borgarfulltrúa Nýs
vettvangs til félagsmála-
ráðherra vegna málsins.
Embættismönnum og
sumum nefndarmönnum
borgarinnar virðist þó hafa
verið fullkunnugt um málið
frá upphafi. Hönnuður
hússins er Ingimundur
Sveinsson, arkitekt og
varaformaður skipulags-
nefndar Reykjavíkur. Emb-
ætti byggingarfulltrúa gef-
ur leyfi til framkvæmdanna
þrátt fyrir að ekkert liggi
fyrir um samþykkt bygg-
ingarnefndar og í raun
fékkst málið ekki afgreitt til
að byrja með vegna þess að
aðeins tveir af fimm fulltrú-
um hennar treystu sér til að
veita umbeðið leyfi.
Þá kom í Ijós að engin út-
tekt á byggingunni hafði
verið skráð hjá byggingar-
fulltrúa og ekkert mæli-
eða hæðarblað, sem skal
segja til um staðsetningu
hússins, lá fyrir. Það má því
segja að þeir séu ansi kaldir
hjá Hitaveitunni.
Sjá nánar á bls. 4
ÍIHlllllilf lllll 24 sidur “iSÍSS
RITSTJÖRN <? 681866 — 83320 - FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR / 681866