Alþýðublaðið - 15.12.1990, Page 2
2
Laugardagur 15. desember 1990
Fold listmunasala
Þar sem áður var Gallerí Borg í
Austurstræti 3 (í gamla daga Ca-
fé Höll), heitir nú Fold listmuna.
Þar hefur Þór Hinriksson keypt
þennan anga af Gallerí Borg
ásamt eiginkonu sinni, Elísabetu
Önnu Grytuik. Nýju eigendurnir
ætla að hafa opið á sama tíma og
aðrar verslanir, um helgina er
opið, laugardag 6g sunnudag
meira að segja til kl. 18. Bjóða
eigendurnir viðskiptavinum
sem vilja upp á jólaglögg og létt-
ar veitingar. Myndin er af Þór
Hinrikssyni.
Davíð óheppinn enn
á ný
Oft hefur það verið sagt að borg-
arstjórinn í Reykjavík sé fæddur
undir heillastjörnu. En nú hefur
ólánið leikið við hann, — fyrst
þegar hann fór að föndra við
landsmálapólitíkina, og síðan
þegar nýja mannvirkið að Nesja-
völlum tók að dæla jarðvegi inn
á ofnana hjá krötum í Hafnar-
firði. Nú eru menn að fá í póstin-
um glæsilegt jólakort borgarinn-
ar, — en viti menn, myndin á
kortinu er af Nesjavallavirkjun,
„sökudólginum." Sagt er að
reynt hafi verið að skipta um
mynd, en það hafi verið orðið
um seinan. Við vonum hins veg-
ar að Nesjavallavirkjun eigi eftir
að verða okkur öllum til blessun-
ar og að þetta séu aðeins byrjun-
arerfiðleikar.
Gunnar Bjarnason
sjötugur og hressari
en nokkru sinni
Það voru margir sem lögðu leið
sína í Fáksheimilið í fyrradag,
þegar „Gunnar hross“, eins og
margir hestamenn kalla hann og
það alls ekki í niðrandi merk-
ingu, hélt upp á sjötugsafmælið.
Gunnar sýndi og sannaði hvern-
ig sjötugur íslendingur á að líta
út í dag, unglegur og bráðhress
að vanda. Gunnar var frum-
kvöðull að útflutningi íslenska
hestsins, en það er aðeins eitt af-
rekið á löngum afrekalista hans.
Gunnar sagði í samkvæminu að
markaðurinn hefði verið dauf-
legur eftir stríðið, en þjóðverjar
tóku vel við sér þegar hann
reyndi að selja þeim „gamla,
germanska hestinn". Núna eru
jafnmargir íslenskir hestar í
Þýskalandi og hér í heimalandi
hans. Myndina tók Guðlaugur
Tryggvi Karlsson í Fáksheimil-
inu þar sem félagar héldu kapp-
anum hóf. Eggert Haukdal al-
þingismaður óskar Gunnari til
hamingju með daginn.
Launakjör danskra stjórnmálamanna:
Ráðherra með eina
milljón danskra i laun
Frá Þorláki Helgasyni, Kaupmannahöfn:
Stjórnmálamenn eru betur
launaðir í Danrnörku en á ís-
landi. Ráðherra er með eina
milljón danskra króna (um 10
milljónir ísl.) á ári, ef hann er
einnig þingmaður. Ymis fríðindi
koma að auki ofan á laun hans.
Danskur þingmaður hefur í mán-
aðarlaun um 260 þúsund ísl. krónur
og bein laun ráðherra eru 540 þús-
und ísl. krónur á mánuði. Auk þessa
fylgja störfunum ýmiss konar fríð-
indi, allt frá ókeypis flugmiðum nið-
ur í boðsmiða í dýragarðinn.
Forsætisráðherra hefur 70.200
danskar krónur á ári í risnu og utan-
ríkisráðherra 94.200 d.kr. Ráðherra
má ekki gegna öðrum störfum,
hvorki launuðum né ólaunuðum.
Kirkjumálaráðherra spurðist eitt
sinn fyrir umyþað hvort honum væri
leyfilegt að fá að gegna gamla
ólaunaða starfinu sínu áfram, en var
synjað. Kresten Damsgárd hafði
verið umsjónarmaður kirkjugarðs!
Milli !4 og Vi hluti þingmanna
dettur út af þingi við hverjar kosn-
ingar. Biðlaun fá þeir í hálft til eitt ár.
Hafi þeir setið a.m.k. 12 ár á þingi fá
þeir frítt með járnbrautunum til
æviloka. Kannski væri ráð að bjóða
þingmönnum á íslandi sömu kjör,
strætókort?
legri en hjá íslenskum kollega hans.
Gunnlaugur Scheving.
Suauar og Gunnlaugur bodnir upp:
Islendingar
i hæsta verði
Það var mestur áhugi á Gunn-
laugi Blöndal og Svavari Guðna-
syni á uppboði Brauch Rasmussens
hér í Kaupmannahöfn í gær. Mest
var boðið í myndir Blöndals, „Bátur
við bryggju" og „íslenskt landslag".
Fyrri myndin fór á 55 þúsund dansk-
ar krónur en hin síðári á 40 þúsund.
Báðar voru metnar á 25 þúsund
krónur dahskar. „Hagavatn" Svav-
ars Guðnasonar fór á matsverði, 60
þúsund krónur, en önnur mynd
Svavars fór á nærri þreföldu mats-
verði.
Svavar Guðnason.
Stjórnarmyndunaruiðrœdur í Danmörku:
Auken
Schluter forsætisráðherra
Danmerkur og utanríkisráð-
herrann héldu í gær til Rómar á
fund oddvita Evrópubandalags-
ins. Fram undan er umræða um
einn gjaldmiðil og sameiginleg-
an seðlabanka EB-landanna.
Tekist verður á um hversu sam-
einað bandaiagið á að vera á pól-
itíska sviðinu.
Eftir situr Svend Auken, formaður
jafnaðarmanna. Tilraunir hans til
þess að fá borgaraflokka til liðs við
reynir
sig bera ekki árangur. I gær nefndi
hann mögulega meirihlutastjórn
jafnaðarmanna, þriggja borgara-
flokka og fulltrúa frá Færeyjum.
L^mglíklegast er að Venstre og
Ihaldsflokkurinn fari saman í stjórn.
Flokkarnir tveir hafa á að skipa 59
þingmönnum, en frá jafnaðarmönn-
um einum sitja 69 á þjóðþinginu.
Stjórnin mun því verða að eiga góða
samvinnu við jafnaðarmenn. Eng-
inn hefur trú á því að svo veik
minnihlutastjórn sitji lengi.
Pelsar falla i verði
Á fyrsta skinnauppboðinu í
Glostrup í gær féllu verð um 5%. Að-
eins 165 kaupendur voru mættir og
talar það sínu máli. Áhugi er tak-
markaður og framkvæmdastjóri
uppboðsmarkaðarins sagði í gær að
nóg væri af skinnum í öll þau föt
sem seljast núna. Miklum hitum í
Tókíó er meðal annars kennt um að
eftirspurn er svo takmörkuð sem
raun ber vitni. í Japan var 23 stiga
hiti um mánaðamótin.
Loffaði hvölum
Undarlegasti frambjóðandinn í
dönsku þingkosningunum var Jak-
ob Haugárd í Árósum. Hann bauð
sig fram utan flokka og lofaði meðal
annars að Árósabúar skyldu fá hvali
í fiskasafn bæjarins. Þá vildi hann
senda gamalt víkingaskip niður í
Persaflóa. Jakob þessi sló öll met og
fékk 8.605 atkvæði, en komst samt
ekki á þing.
Getraunaspc fjölmiðlanna I.Arsenal-Wimbledon | 1 | 1 1 > D 1 c c E 1= 1 c c ‘> •o 'O 2T 1 p7 Dagur [-* Ríkisútvarpið c .<0 '55 > CQ 1 (M ■O :0 55 1 Lukkulínan *o o ra n 3 §. < 1 SA 10 MT 0 M-S 0
2. Coventry-Manc. United 2 1 2 1 2 X 1 2 1 X X 4 3 3
3. Derby County-Chelsea 3 1 1 X 2 2 2 1 X X X 3 4 3
4. Manch. City-Tottenham , 4 X X 2 X X 1 X X X X 1 8 1
5. Q.P.R.-Notth. Forest 5 1 2 2 2 1 2 1 1 X 1 5 1 4
6. Southampton-Aston Villa 6 1 1 2 1 1 1 1 1 1 1 9 0 1
7. Sunderland-Norwic City 7 1 X X X 1 X 2 1 X X 3 6 1
8. Blackburn-Bristol City 8 1 1 2 1 2 X X X 1 1 5 3 2
9. Brighton-Barnsley 9 1 1 X X X 1 1 1 1 2 6 3 1
10. Oldham-Wolves 10 1 1 X 1 1 1 2 2 1 1 7 1 2
11. Sheff. Wed-lpswich Town 11 1 1 X 1 1 1 2 2 1 1 7 1 2
12. West Ham-Middlesbro 12 1 1 X 1 1 1 1 !1 1 1 9 1 0
13. Ekki í gangi að sinni 13
Drögum til baka
Við hér á Alþýðublaðinu játuðum okkur sigraða í fjölmiðlakeppninni fyrir
síðustu helgi. Við drögum þá yfirlýsingu hér með til baka. Við náðum lang-
bestum árangri fjölmiðla í tippinu um síðustu helgi, vorum með átta rétta
meðan aðrir voru með þetta 2—5 rétta. Fjölmiðlarnir sem eru efstir í keppn-
inni voru með 4 rétta um síðustu helgi. Það eru RÚV og Morgunblaðið, sem
nú hafa 94 rétta meðan við á Alþýðublaðinu erum með 93 rétta. Nú þegar
aðeins síðasta umferðin er eftir í fjölmiðlakeppninni erum við því aðeins
stigi á eftir umræddum fjölmiðlun en vorum fyrir síðustu helgi 5 stigum á
eftir þeim.
Sjónvarpsleikurinn í dag verður á milli Manchester City og Tottenham.
Við, eins og reyndar flestir fjölmiðlar, spáum jafntefli enda hefur Manchester
City verið afar iðið við að gera jafntefli í vetur. Kæmi mér þó síst á óvart þótt
City muni rúlla yfir Tottenham þrátt fyrir að maður megi ekki láta tilfinning-
ar sínar í ljós í frjálsu og óháðu blaði eins og Alþýðublaðinu. En við berjumst
til sigurs og spáum því að úrslit leikja verði sem hér segir:
1XX/X11/X12/111