Alþýðublaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 17

Alþýðublaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 17
Laugardagur 15. desember 1990 17 (bzrutar w vandaðar bækur. Heidur Baldurs- dóttir hlaut einmitt þessi verðlaun 1989 fyrir Álagadalinn. Nú er kom- ið sjálfstætt framhald þeirrar bókar, Leitin að demantinum eina. EMIL, SKUNDI OG GÚSTI Guðmundur Ólafsson leikari er ekki við eina fjölina felldur — hann er líka afbragðs barnabókahöfund- ur og bækur hans um Emil og Skunda (nú bætist við nýr vinur, Gústi) falla sannarlega vel í geð krakkanna sem þær lesa eða þær eru lesnar fyrir. Fyrir bókina um Emil og Skunda fékk Guðmundur barnabókaverðlaunin 1986 og nú kemur sjálfstætt framhald, Emil fluttur í hálfkarað húsið, með hund- inn Skunda og kynnist nýjum og skemmtilegum vini, Gústa. Satt að segja bráðskemmtileg bók fyrir full- orðinn sem les fyrir ungan son á kvöldin. lögum hans. Knattspyrnan er aldrei fjarri, en strákarnir lenda líka í spennandi ævintýrum. HALTU MÉR - SLEPPTU MÉR Eðvarð Ingólfsson er ungur guð- fræðingur og landsþekktur fyrir bækur sínar. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann nú skrifað átta unglinga- bækur á tíu árum, sem notið hafa gífurlegra vinsælda. Æskan gefur út að þessu sinni bókina Haltu mér — slepptu mér. Á síðasta hausti kom ekki út bók eftir Eðvarð, þá hellti hann sér út í grísku, og hebresku- nám en nú hefur hann tekið upp þráðinn að nýju á tíu ára rithöfund- arafmælinu — án efa til mikiilar gleði fyrir lesendur hans. KÁRABÆKURNAR KOMNAR AFTUR Æskan hefur endurútgefið Kára- bœkurnar eftir Stefán Júlíusson rit- höfund í tilefni 75 ára afmælis hans og 60 ára afmælis útgáfunnar. Kára- bækurnar eru þrjár saman í öskju eða stakar, Kári litli og Lappi, Kári litli í skólanum og Kári litli í sveit. Fyrstnefnda bókin kom fyrst út 1938. Það þarf varla að geta þess að Kárabækurnar hafa alla tíð verið geysivinsælar hjá ungu kynslóðinni og hafa verið prentaðar aftur og aft- ur, sú fyrsta gefin út átta sinnum, hinar aðeins sjaldnar. Það má full- yrða að bækur Stefáns um Kára litla eru sígildar perlur í bókmenntum okkar. KÓBRAÁRÁSIN Þýdd af Þórdísi Guðjónsdóttur og Sigurði Arasyni. Höfundurinn er Anders Bodelsen. Þetta er fjörleg spennusaga sem gerist í Danmörku. Undarlegir hlutir fara að gerast í smábæ í grennd við Kaupmanna- höfn þegar heimsókn utanríkisráð- herra Bandaríkjanna stendur yfir. Þessi bók hefur verið notuð hér við dönskukennslu. TJÚLLI - LÁN í ÓLÁNI Hér er á ferðinni íslensk barna- bók um heimilisköttinn Tjúlla og ævintýri hans. Höfundar eru Ingi Hans Jónsson og Haraldur Sigurðs- son (teikningar). Plakat af söguhetj- unni fylgir og í bókabúðum fá börn- in ókeypis límmiða af Tjúlla. í VÍKINGAHÖNDUM Norsk unglingabók eftir verð- launahöfund, Torill Thorstad Haug- er. Bókin fjallar um systkini sem al- ast upp á írlandi á 10. öld en eru tek- in höndum af víkingum og flutt til Noregs. Þar bíður þeirra þrældómur og ill vist í landi heiðinna víkinga. Sólveig Brynja Grétarsdóttir þýddi bókina. MUNDU MIG, ÉG MAN ÞIG Andrés Indriðason, margrómaður höfundur bóka fyrir börn og ung- linga, er höfundur þessarar bókar, sem ber nafn sem allir þekkja úr minningabókinni úr framhaldsskól- anum, Mundu mig, ég man þig. í þessari bók eru sex smásögur, sem allar fjalla um 12 ára krakka, við- fangsefni þeirra og áhugamál. Hér er tekið á gamansaman hátt á ýms- um málum sem koma öllum við. Bók fyrir hressa krakka, stráka sem stelpur. ÞEGAR STÓRT ER SPURT Þessi bók er sjálfstætt framhald af bók Gunnhildar Hrólfsdóttur, sem út kom fyrir siðustu jól, Þið hefðuð átt að trúa mér! Þessi heitir Þegar stórt er spurt. Ævintýri borgarbarn- anna Tomma og Árna í sveitinni. Bók fyrir 9—12 ára krakka. AXLABÖND OG BLÁBERJASAFT Geimveran Bétveir, sem Sigrún Eldjárn skóp um árið og hlaut að launum Barnabókaverðlaun Reykja- víkurborgar fyrir, varð óhemjuvin- sæl meðal barnanna og er enn. Nú hefur Forlagið sent frá sér nýja bók um vinina tvo, Áka og Bétvo. Bókin heitir fjörlegu nafni, Axlabönd og bláberjasaft. Sigrún býr yfir stór- skemmtilegri frásögn að ekki sé tal- að um myndir hennar. HEIÐA — sígild barnasaga Pabbi og mamma þekkja Heiðu, líka afi og amma. Nú er Vaka-Helga- fell með Heiðu á bók, sígilda og vin- sæla barnasögu sem er orðin meira en hundrað ára gömul. Hér er sagan endursögð á þann hátt að hún verð- ur auðskiljanlegri nútímalesendum. Litmyndir prýða hverja síðu bókar- innar. Þroskandi og skemmtilegur lestur. TÁR, HOS 0G TAKKASKÓR Þorgrímur Þráinsson er ekki bara liðteekur á hnattspyrntweHinum með Val og landsliðinu. Hann skrif- ar liprar og shemmtílegar unglinga- bœkur. Þorgrímur sendir nú frá sér aðra bók sína — á síðasta ári átti hann metsölubók, Með fiðring í tán- um. Békin sem Fróði sendir frá sér nú heitir Tár, bros og takkaskór, og er hún sjálfstætt framhaid af fyrstu bók Þorgríms, segir frá Kidda og fé- NYTT SIMAKERFI MEÐ BEINUM INNVALSNÚMERUM BÆTIR ENN ÞJÓNUSTU OKKAR.- Nú verður enn fljótlegi'a en áður að ná í okkur og með beinu innvali getur þú hringt beint í þann sem þú þarft að tala við, án viðkomu á skiptiborði. Hér til hliðar eru nokkur hinna beinu innvalsnúmera sem líklegast er að þú þurfír á að halda og ef þú hringir beint í þau nærð þú milliliðalaust í þann sem þú þarft að tala við. Beinu innvalsnúmerin eru reyndar miklu fleiri. Þau eru kynnt á sérstökum seðli sem liggur frammi í afgreiðslu okkar á Suðurlandsbraut 34. Eftir sem áður er starfsmaður á skiptiborði til þjónustu reiðubúinn og um skiptiborðið má sem fyrr ná sambandi við allar deildir Rafmagnsveitunnar. Við vonum að þetta nýja sfmakerfí verði til þess að bæta enn þjónustu okkar og samskipti við viðslaptavini. Beint innval frá kl. 820 til 1615: Upplýsingar um rafmagnsreikninga 60 46 10 Innheimta og lokanir 60 46 20 til kl. 1800 Flutningar 60 46 30 Gjaldskrá 60 46 77 Heimtaugar, afgreiðsla 60 46 86 Rafmagnseftirlit 60 46 80 Mælastöð 60 48 50 Eftir klukkan 16:15 Verkstjórar 60 48 26 Verktakaeftirlit 60 47 47 Bilanavakt allan sólarhringinn: 68 62 30 * RAfMAGKSVEITA REYKJAVtKUR íétti/t jí&i Ccfcð SUÐURLANÐSBRAUT 34 108 REYKJAVlK SÍMI 60 46 00 ARGUS/SÍA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.