Alþýðublaðið - 15.12.1990, Page 20
J
20
Laugardagur 15. desember 1990
RAÐAUGLÝSINGAR
HÁSKÓLI íslands
Lausar stöður
Lausar stöður eru til umsóknar eftirtaldar hluta-
stöður við læknadeild Háskóla íslands, sbr. 10. gr.
laga nr. 77/1979, um Háskóla íslands.
Hlutastaða dósents í húð- og kynsjúkdómum.
Hlutastaða dósents í handlæknisfræði.
Hlutastaða dósents í bæklunarlækningum innan
handlæknisfræði.
Hlutastaða dósents í svæfingalæknisfræði.
Hlutastaða dósents í taugasjúkdómafræði. Staðan
sé bundin rannsóknaraðstöðu á taugalækninga-
deild Landspítalans.
Hlutastaða dósents í hjartasjúkdómafræði innan
lyflæknisfræði.
Hlutastaða dósents í meltingarsjúkdómum innan
lyflæknisfræði.
Hlutastaða dósents í fæðinga- og kvensjúkdóma-
fræði.
Hlutastaða dósents í geðlækningum, viðtalstækni
og sállækningum.
Hlutastaða lektors í heimilislæknisfræði.
Hlutastaða lektors í eiturefnafræði. Staðan er ætluð
sérfræðingi í eiturefnafræði og skal hann jafnframt
sinna eiturefnafræðilegum rannsóknum, þ.á m.
réttarefnafræðilegum rannsóknum á rannsókna-
stofu í lyfjafræði.
Hlutastaða lektors í klínískri lyfjafræði. Staðan er
ætluð sérfræðingi í lyflæknisfræði er starfi á lyf-
læknisdeild spítala í Reykjavík og er æskilegt að
hann sinni jafnframt tilraunum í klínískri lyfjafræði á
vegum rannsóknastofu"í lyfjafræði.
Hlutastaða lektors í lyfjafræði. Umsækjandi skal
hafa læknismenntun eða sambærilega menntun.
Hann skal annast kennslu í grunnlyfjafræði (sér-
hæfðri eða samhæfðri lyfjafræði) og jafnframt ann-
ast nokkra rannsóknavinnu í rannsóknastofu í lyfja-
fræði.
Gert er ráð fyrir að ráðið verði í ofangreindar stöður
frá 1. júlí 1991.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15.
janúar nk.
Menntamálaráðuneytið, 13. desember 1990.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Verkfræðingar, tæknifræðingar
Skólinn óskar að ráða til kennslu verkfræðinga,
tæknifræðinga eða iðnfræðinga með þekkingu og
reynslu í málmiðnum, rafiðnum og tölvugreinum.
£
m
Utboð
Leigubílaakstur
Tilboð óskast í leigubílaakstur á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir Stjórnarráð íslands og ýmsar ríkisstofnanir.
Tilboðseyðublöð eru afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað 8. janúar 1991 kl.
11.00.
IIMNKAUPASTOHuUiO RÍKISIIMS
________iiQi- .ArrruM • ! > n__
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síöumúla 39 — 108 Reykjavík — Simi 678500
Á hverfaskrifstofu okkar í Álfabakka 12 eru lausar
stöður bæði í móttöku- og meðferðarhópi.
Við leitum nú að áhugasömum samstarfsmönnum.
Félagsráðgjafar og fólk með menntun svo sem í fé-
lagsfræði, uppeldisfræði, sálarfræði, hjúkrun og
kennara, kemur sterklega til greina.
Það kostar lítið að kynna sér hvað við bjóðum/ósk-.
um eftir. Komdu í Alfabakka 12 á miðvikúdag nk.
kl. 15.00 og spjallaðu við okkur.
ATH. í boði eru stöður til frambúðar. Einnig er hægt
að hringja í síma 74544 og ræða við Auði Matthías-
dóttur yfirfélagsráðgjafa.
Stöðupróf í framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum á vorönn 1991 eru
haldin sem hér segir:
Mánudaginn 7. jan. kl. 18.00 Enska
Þriðjudaginn 8. jan. kl. 18.00 Þýska
Miðvikudaginn 9. jan. kl. 18.00 Danska, norska, sænska
Rmmtudaginn 10. jan. kl. 18.00 Franska, spænska, stærðfræði
Prófin eru haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
og eru opin nemendum úr öllum framhaldsskólum.
Þeir sem ætla að gangast undir þessi próf eru beðn-
ir um að tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Mennta-
skólans við Hamrahlíð.
Skráning er hafin.
Útboð
Grenivíkurvegur, Gljúfurá — Grenivík
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk.
Lengd kafla 2,8 km, fylling 37.500 m3 og burðarlag
11.500 m3.
Verki skal lokið 1. október 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
18. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 14. janúar 1991.
Vegamálastjóri.
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
JÓLAGLÖGG ... verður að Goðatúni 2 kl. 20.30
laugardaginn 15. desember.
Allir flokksmenn velkomnir.
Stjórnin.
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna
FUNDARBOÐ
Kosningastefnuskrá prófkjörsmál í Reykjavík
FFJ boðartilfundarnæstkomandi mánudagskvöld,
17. desember, klukkan 20.30 stundvíslega í Rósinni,
félagsmiðstöð jafnaðarmanna að Hverfisgötu
8—10.
Dagskrá er sem hér segir:
1) Forysta til framtíðar: drög að kosningastefnu-
skrá Alþýðuflokksins, Guðmundur Einarsson
kynnir drögin sem eru í mótun þessa dagana. Að
því loku verða umræður.
2) Prófkjörsmál og framboð í Reykjavík. Meðal
annars verður sagt frá niðurstöðum aðalfundar
fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík.
Umræður.
Mætum öll á fróðlegan fund og höfum áhrif.
Tökum gesti með okkur.
Stjórnin.
■ oiayoi i iiwoiuu jauiauai iiiaiina
Hverfisgötu 8—10
Sími 15020
Rósin
Opið verður laugar-
daginn 15. desember
kl. 14—01.
Úp'íiiiVj^
Komið og fáið ykkur i,U[
kók, og kaffi, öl eða
jólaglögg, einnig
vöfflur með rjóma.
Jólasveinninn kemur
kl. 16—17,
HÓKUS PÓKUS
Pétur Gísli Finn-
björnsson sjón-
hverfingamaður
kemur í heimsókn kl.
16.