Alþýðublaðið - 04.05.1990, Page 1
FÖSTUDAGUR
4. MAÍ 1990
ALÞINGI: Óvíst er hvort
tekst að ljúka þingstörfum
á morgun, laugardag, eins
og ráðgert var. Til greina
kemur að þingmenn sitji í
nokkra daga til viðbótar
eða þá að slíta þinginu á
iaugardaginn og kalla síð-
an saman þing í júní í sum-
ar. Ástæðan er sú að lítið
gengur að ná samkomulagi
um lög um Umhverfismála-
ráðuneyti.
AKUREYRI: Nokkrir íbúar í Lundarhverfi á Akureyri
urðu fyrir miklu eignatjóni í töluverðum leysingum þar í
bæ í fyrradag. Tjón eins húseigenda er t.d. metið hátt á
fjórðu milljón króna. Viðlagatrygging bætir ekki þetta tjón
en þolendur flóðanna hafa átt viðræður við bæjaryfirvöld
þar i bæ um skaðabætur.
HÆSTIRETTUR: Sérstakur saksóknari í Hafskipsmál-
inu, Jónatan Þórmundsson, heldur þvi fram að tap Utvegs-
bankans vegna gjaldþrots skipafélagsins nálgist einn millj-
arð króna á núverandi verðlagi. Saksóknari hefur flutt
ræðu sína undanfarna sjö daga en búist er við að hann ljúki
sókninni síðar í dag. Þá gefst verjendum loksins tækifæri
til að koma skoðunum sínum á framfæri.
DÆMDIR : Sex lögreglumenn voru dæmdir af herrétti í
Prag í gær fyrir að hafa barið námsmenn í mótmælunum
sem leiddu til falls kommúnistastjórnariannar í Tékkóslóv-
akíu. Lögreglumennirnir voru dæmdir skilorðisbundið í
sex til sextán mánuða fangelsisvist.
JARÐÐGONG: Ef breytingatillögur meirihluta fjárveit-
ingarnefndar að vegaáætlun ná fram að ganga verður allt
að 47 milljónum króna varið til undirbúnings að jarða-
gangagerð á Vestfjörðum á þessu ári. í ráði er að bora
göng sem tengja saman Þingeyri, Suðureyri og ísafjarðar-
kaupstað. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta
ári.
HITTI BUSH: Forsætisráðherra Litháen, Kazimiera
Prunnskiene, hitti Bush Bandaríkjaforseta að máli í 45
mínútur í Washington í gær. Forsætisráðherrann sagðist
vona að hafa áhrif á stefnu Bandaríkjastjórnar varðandi
frelsisbaráttu Litháa gegn Moskvu. ,,Það fer eftir þróun at-
burða, hvort ég er ánægð með samræðurnar. Ég vil ekki
vera of bjartsýn," sagði forsætisráðherrann eftir fundinn
með Bush. Þetta er fyrsti fundur fulltrúa nýrrar ríkisstjórn-
ar Litháens með Bush Bandaríkjaforseta.
PÁFINN TIL RÚMENÍU:
Jóhannes Páll páfi mun
heimsækja Rúmeníu innan
þriggja ára, sagði utanríkis-
ráðherra páfagarðs í gær.
Fyrir íjórum dögum til-
kynnti Vatíkanið að páfa-
garður myndi taka upp aft-
ur sambandið við Rúmeníu
en það lagðist niður eftir að
kommúnistastjórnin tók
við völdum 1950. Hinar 23
milljónir íbúa Rúmeníu eru
allflestir í rúmensku rétt-
trúnaðarkirkjunni en að sögn embættismanna páfagarðs
eru um 2.8 milljónir Rúmena rómversk-kaþólskir eða
grísk-kaþólskir.
LEIÐARINN í DAG
Leiðari Alþýðublaðsins í dag fjallar um skýrslu
OECD um íslensk efnahagsmál. Alþýðublaðið er
þeirrar skoðunar að skýrslan sé þungur áfellis-
dómur á fjármálastjórn Þorsteins Pálssonar í ríkis-
stjórn Steingríms Hermannssonar 1985—87.
Blaðið telur ennfremur að skýrslan sé í reynd
dauðadómur yfir ríkisumsvifum í atvinnumálum
og peninga- og fjármagnskerfi á íslandi. Það er
niðurstaða Alþýðublaðsins að aðeins einn stjórn-
málaflokkur, Alþýðuflokkurinn, hafi á stefnuskrá
sinni sömu lausnir og skýrsluhöfundar
OECD-skýrslunnar benda á sem farsælustu leiðir
út úr efnahagsvanda íslendinga.
SJÁ LEIÐARA Á BLS 4: DAUÐADÓMUR YFIR RÍKIS-
UMSVIFUM
Atvinnulaus — Heimsmynd Snarpur
öðru sinni 4 hagsmunavörslu 7 skriffinnur
Einn þeirra mörgu „stjóra"
sem ber nafnið Jón Sigurös-
son, er kenndur við Miklagarð
og Stöð 2. — „Enginn já-mað-
ur," segir Jón Óttar um nafna
sinn, sem Verslunarbankinn
sendi í raun honum til eftirlits
um árið.
Sjálfstæðismenn eru meö
undarlegan málflutning í kvóta-
málinu og opinbera margt um
flokk sinn. — Guðmundur Ein-
arsson skrifar um þessa
heimsmynd hagsmunavörslu
sem birtist þjóðinni i málflutn-
ingi Sjálfstæðismanna.
Dagfinnur heitir sá snarpi
skriffinnur sem lesa má á 7.
síðu blaðsins daglega. Dag-
finnur er maður með skoðanir,
staðfastar skoðanir. Hann er
maðurinn með línuna, sem þú
hefur ekki efni á að vera án i
þínu daglega lífi.
Fundur utanríkisrádherra Atlantshafsbandalagsins
Vopnin kvödd
(BRUSSEL, Reuler) Fundur utanríkisráðherra
rikja Atlanlshafsbandalagsins samþykkti i
gær að hætta við viðamiklar áætlanir um að
endurnýja skammdrægar kjarnaflaugar i
Evrópu. Fundur Atlantshafsbandalagsins
staðfesti ennfremur fyrri yfirlýsingar um að
sameinað Þýskaland ætti að vera i Atlants-
hafsbandalaginu. Niðurstöður fundarins eru
taldar hafa eflt einingu innan Atlantshafs-
bandalagsins og skjóta enn frekari stoðum
undir þá kenningu að kalda stríðinu só lokið.
Eftir fund utanríkisráð-
herra Atlantshafsbandalags-
ríkja í Brussel í gær, kynntu
Manfred Wörner fram-
kvæmdastjóri NATO og Jam-
es Baker utanríkisráðherra
Bandaríkjanna niðurstöður
fundarins á fréttamanna-
fundi. Wörner sagði m.a. að
leiðtogar Atlantshafsbanda-
lagsins myndu hittast til fund-
ar í London í júnímánuði eða
í byrjun júlí þar sem drög
yrðu lögð að hinni stjórn-
málalegu og hernaðarlegu
framtíð Atlantshafsbanda-
lagsins. Wörner sagði enn-
fremur á fréttamannafundin-
um að ákvörðun NATO-fund-
arins að hætta við endurnýj-
un skammdrægra kjarna-
vopna myndi auðvelda lausn
á vandamálum samfara fyrir-
hugaðri sameiningu Þýska-
lands.
Bush Bandaríkjaforseti
sagði í Washington í gær, að
Bandaríkin myndu hætta við
að þróa svonefnda
Lance-áætlun (kjarnaflugar)
og leggja á hilluna allar áætl-
anir um endurnýjun á banda-
rískum kjarnavopnum í Evr-
ópu. Flestallar hinna 88
Lance-flauga eru staðsettar í
Vestur-Þýskalandi.
Heimildir innan Atlants-
hafsbandalagsins hafa bent á,
að endurnýjun skamm-
drægra kjarnavopna í V-Evr-
ópu hefðu enga þýðingu
lengur þar er drægi þeirra
(500 km) væri svo stutt að
þær myndu aðeins hitta ríki í
A-Evrópu sem nú eru að
verða lýðræðisríki.
Ákvörðun NATO-fundarins
í Brussei í gær hefur dregið
mjög úr ágreiningi ríkja Atl-
antshafsbandalagsins um
stefnuna gagnvart Sovétríkj-
unum. Bandaríkin og Bret-
land lögðu á það mikla
áherslu í fyrra að endurnýja
kjarnorkuvopn Atlantshafs-
bandalagsins en önnur
NATO-ríki lögðust eindregið
gegn þeirri stefnu og vildu
frekari samningaviðræður
við Sovétríkin um eyðingu
kjarnorkuvopna. Talið er
ennfremur að ákvörðun
NATO-rikjanna um að hætta
við endurnýjun kjarnavopna
muni hraða eyðingu kjarna-
vopna i Austur-Evrópu.
James Baker utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna hittir
Wörner: Ákvörðun NATO-
fundarins auöveldar samein-
ingu Þýskalands.
Eduard Shevardnadze í
Bonn, V-Þýskalandi nk. föstu-
dag á undan svonefndum
„tveir plús fjórir" — samn-
ingaviðræðum um öryggis-
mál varðandi sameiningu
Þýskalands. Engin viðbrögð
höfðu komið frá Moskvu þeg-
ar blaðið fór í prentun.
Pravda, málgagn Kommún-
istaflokksins í Sovétríkjunum
varaði hins vegar í gær við
þvi, að sameinað Þýskaland
yrði aðili að NATO og sagði
það yrði mesti ósigur Sovét-
ríkjanna frá lokum heims-
styrjaldarinnar.
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra sat NATO-
fundinn í Brússel fyrir hönd
íslands.
Sumarið er komið
Sumariö gekk i garö i gær með blíðviðri og blömum sem ríma viö æsku landsins sem á eftir aö
auðgast og blömgast í þeirri sól og því góða sumri sem vonandi er framundan.
A-mynd: E.ÓI.
BREYTT ALÞYÐUBLAÐ
Alþýðublaðið kemur út í breyttri mynd í dag. Breytingarnar eru í
anda þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á Alþýðublaðinu á
undanförnum misserum og miða að því að gera blaðið aðgengi-
legra, efnismeira og læsilegra fyrir lesendur. Auk styttri og yfir-
gripsmeiri frétta hefur lesefni verið aukið og erlendar fréttir feng-
ið meira vægi. Með þessum breytingum viljum við færa Alþýðu-
blaðið nær nútíma blaðamennsku og þörfum lesenda nútímans.
Ritstjórn Alþýðublaðsins vonar að lesendur kunni þessum breyt-
ingum vel.