Alþýðublaðið - 05.05.1990, Side 11
Laugardagur 5. maí 1990
11
NÆSTAFTASTA SÍÐAN
Systkinin Linda og Jerry Lee, áður en samvinnu þeirra iauk.
Valt er
veraldar
gengið
Á ýmsu hefur gengið í lífi
Lindu Gail Lewis. Hún er syst-
ir hins fræga rokkara Jerry
Lee Lewis (og var einmitt í
hljómsveit bróður síns og
söng með honum þegar hann
hélt hljómleika hér á landi
fyrir nokkrum árum.)
Sjöundi eiginmaður Lindu
er sjúklingur og Linda ku
vinna fyrir þeim með því að
selja hálfgerðar nektarmynd-
ir af sjálfri sér.
Ekki hefur gengið minna á
í lífi bróður hennar ,,Killer‘
Lewis, bifreiðaslys, torráðin
dauðsföll, eiturlyfjahneiksli
o.s.frv. Hann er sagður skulda
milljónir dollara í opinberum
gjöldum þrátt fyrir geysilegar
tekjur annað slagið.
Jerry segist ekkert skilja í
litlu systur sinni. Hún hafi
fengið þunglyndisköst annað
slagið frá því móðir þeirra
lést. „Bobby eiginmaður
hennar er skemmtikraftur, og
ég hélt að þeim liði vel,“
sagði ,,the Killer".
DAGFINNUR
Litla Pravda með bláan haus
Nú er mér öllum lokið. Al-
þýðublaðið kom út í gær
með bláan haus. Hvar end-
ar þetta eiginlega? Áður
fyrr var Alþýðublaðiö alltaf
svo flokkshuggulegt; birti
ræður leiðtoganna og
fylgdi línunni út í ystu æsar.
Var ekki með neinar auka-
skoðanir. Var að vísu kallaö
Litla Pravda. Nú er blaðið
fullt af einhverjum óþekkt-
um skoðunum.
Og Litla Pravda kominn
með bláan haus.
*
Eg hef þegar lýst von-
brigðum mínum með rit-
stjórnarstefnu ritstjórans.
Hiö nýja Alþýðublað finnst
mér í öllum meginatriðum
misheppnað en þó sérstak-
lega að ég skuli hafa verið
fluttur af leiðarasíðunni og
yfir á einhverja ruslakistu-
síðu.
Og styttur þar aö auki.
En það var þetta meö
hausinn. Aö setja bláan
haus á Alþýðublaðið er
álíka og að afhenda Inga
Birni leiðaraskrifin. Al-
þýðublaðið og Alþýöu-
flokkurinn er samofið,
hvort tveggja sprottin úr
verkalýðshreyfingunni.
Og það þýðir rauðan lit.
Byltingin er rauð.
Alþýðublaðið á að sjálf-
sögðu að vera með rauðan
haus.
Eg hringdi að sjálfsögðu í
ritstjórann og spurði hvort
hann væri genginn af göfl-
unum.
— Hvað áttu við? spurði
hann.
Ég tjáði honum tilfinn-
ingar mínar um bláa haus-
inn.
— Petta er ágætislitur.
Við erum að búa til frískt
blað, svaraði hann.
— En blár litur þýður
íhald, afturhald, Sjálfstæð-
isflokkur og lengst til
hægri! hrópaði ég í'tólið.
— Er það? Þýðir ekki blár
líka haf, himinn, blóm og
vafasamar kvikmyndir?
spurði ritstjórinn á móti.
— Þetta eru útúrsnúning-
ar, sagði ég fastur fyrir.
— Á þá ekki að nota rautt
letur í leiðarana? spurði rit-
stjórinn.
Eg svara náttúrlega ekki
svona dellu. Ég myndi
segja upp blaðinu sam-
stundis ef ég fengi það ekki
ókeypis. Og ég myndi nátt-
úrlega hætta að skrifa í það
ef ég væri ekki svona
blankur.
Eina vonin er að þessi rit-
stjóri fari bráðum að hætta
og einhver almennilegur
komi í staðinn; einhver sem
setur rauðan lit í hausinn.
Og sem setur mig aftur á
leiðarasíöuna.
Lijang í Kína
Andblær fortíðar
87 ára er Bob Hope enn ungur i anda.
Bob Hope
grínast
,,Ég ætlaði mér einu sinni
að fara út í pólitík. Áttaði mig
þó á því sem betur fer að til
þess er ég ekki nægilega góð-
ur leikari."
Hope er mikill aðdáandi
golf og segist skilja manninn
sem ætlaði að kvænast en:
„Brúðurinn í brúðarkjólnum
og með slörið, stóð við skál-
ann og grét. Eiginmaðurinn
tilvonandi sagði við hana eft-
ir nokkur æfingahögg: Ég
sagði þér að athöfnin yrði að-
eins ef það yrði rigning."
I litlum dal í suðvestur-
hluta Kína klúkir smábær-
inn Lijiang, og lokkar til
sín vestræna ferðamenn
með því að bjóða þeim
annarsvegar upp á andblæ
hins forna Kína — og hins-
vegar auðveldan aðgang
að fíknilyfjum. Kaffihúsin
sem standa við þröngar
bugðóttar göturnar bjóða
reyndar upp á hamborg-
ara og pizzur og státa
sömuleiðis af mat eins og
mamma gamla eldaði fyrir
mörgum árum.
Viðskiptavinirnir eru mest-
anpart vestrænir flakkarar og
förumenn sem eru enn á
höttunum eftir einhverjum af
leyndardómum Katmandu,
sem var vinsæll áfangastaður
hippanna á 7da áratugnum
og í upphafi þess 8da.
Það er einkum maríúana
sem hinir vestrænu feröa-
langar sækjast eftir, en
kannabisplöntur vaxa villtar í
nágrenni þorpsins. lnnfæddir
nota það sem krydd í matinn
sinn og sem áburð á akrana
en þeim er vel kunnugt um
að það er hægt að nota plönt-
urnar til annars.
Lífið í Lijiang er friðsælt,
ber keim af fornri tíð og sam-
félagiö silast áfram ósnortið
af klukkukapphlaupinu sem
afgangurinn af heiminum há-
ir á hverjum degi.
Skyndilega er þögnin rofin
í Lijiang, þegar lögreglubif-
reiðir með æpandi sírenur
koma í gegnum bæinn. Á
palli eins bílsins stendur saka-
maður — á baki hans er
spjald sem greinir frá nafni
hans og afbroti sem er morð.
Þetta er dæmdur morðingi
og leið hans liggur þangað
sem enginn fær snúiö aftur. í
aftökuna. Bílarnir silast að af-
tökustaönum. Þeir snúa aftur
þegar kvölda tekur. Það hef-
ur fækkaö um einn.
Þrátt fyrir þetta er Lijiang,
bæði fyrir þá sem þar búa
sem og þá fáu sem þangaö
koma, í raun ekki hluti hins
ytra heims. Ekki einu sinni
hluti af Kína eöa Peking. „Við
vitum í raun ekki svo mikið
um Peking," segir ung stúlka.
„Þetta er svo langt í burtu."
DAGSKRAiN
Sjónvarpið
13.00 Evrópumeistaramót
kvenna í fimleikum 15.10
Enska knattspyrnan 16.00
EM í fimleikum frh. 17.10
Meistaragolf 18.00 Skytturn-
ar þrjár 18.25 Táknmálsfréttir
18.30 Fréttir og veður 19.00
Sönglagakeppni sjónvarps-
stöðva Evrópu 1990 22.05
Lottó 22.10 Gömlu brýnin
22.40 Demantsránið 00.25
Útvarpsfréttir í dagskrárlok
SUNNUDAGUR 14.00 Evr-
ópumeistaramót í fimleikum
kvenna 16.30 Bygging, jafn-
vægi, litur 17.00 Jarðfræði
Reykjavíkur 27.40 Sunnu-
dagshugvekja 17.50 Bauga-
lina 18.00 Ungmennafélagið
18.30 Dáðadrengur 18.50
Táknmálsfréttir 18.55 Vista-
skipti 20.35 Fréttastofan
21.30 íslendingar i Portúgal
22.15 Heimsóknartimi 23.66
Listaalmanakið — maí
Stöð 2
09.00 Morgunstund 10.30
’Túni og Tella 10.35 Glóálfarn-
ir Glofriends 10.45 Júlli og
töfraljósið 10.55 Perla Jem
11.20 Svarta Stjarnan 11.45
Klemens og Klementína
12.00 Popp og kók 12.35 Hlé-
barðinn 13.25 Fréttaágrip
vikunnar 13.45 Háskólinn fyr-
ir þig 14.15 Veröld — Sagan í
sjónvarpi 14.45 Fullnægja
16.15 Falcon Crest 17.00 Em í
kraftlyftingum 19.19 19.19
20.00 Séra Dowling 20.55
Kvikmynd vikunnar— Dáða-
drengur 22.25 Elvis rokkari
22.55 Spillt vald 00.30 Undir-
heimar Miami 01.15 Sam-
búðarraunir 03.00 Dagskrár-
lok SUNNUDAGUR 09.00
Paw, Paws 09.20 Selurinn
Snorri 09.35 Popparnir 09.45
Tao Tao 10.10 Vélmennin
10.20 Krakkasport 10.35
Þrumukettir 11.00 Töfraferðin
11.20 Skipbrotsbörn 12.00
Fótafimi 13.40 Popp og kók
14.00 íþróttir 17.50 Menning
og listir 18.45 Viðskipti í Evr-
ópu 19.19 19.19 20.00 Kenn-
edy-fjölskyldan grætur ekki
21.40 Ógnarárin 23.10 Jayne
Mansfield 00.40 Dagskrárlok
Stjarnan
09—12 Arnar Albertsson
12—12.35 Popp og kók
12.35—17 Kristófer Helga-
son 17—19 íslenski listinn
19—22 Björn Sigurðsson
22—04 Darri Ólafsson 04—
10 Seinni hluti næturvaktar
SUNNUDAGUR 10—11 Arn
ar Albertsson 14—18 Á hvíta
tjaldinu 18—22 Darri Ólafs-
son 22—01 Ólöf Marin Úlf-
arsdóttir 01—07 Lifandi næt-
urvakt með Birni Sigurðssyni
Bylgjan
08.00 Þorsteinn Ásgeirsson
og húsbændur dagsins 12.00
Einn, tveir og þrír 14.00 Bjarni
Ólafur Guðmundsson 15.30
íþróttaþáttur 16.00 Bjarni Ól-
afsson 19.00 Haraldur Gísla-
son 23.00 Á næturvakt 03.00
Freymóður T. Sigurðsson
SUNNUDAGUR 09.00 í biíið
13.00 Á sunnudegi til sælu
17.00 Ólafur Már Björnsson
20.00 Heimir Karlsson 24.00
Freymóður T. Sigurðsson.
Rás 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn
07.00 Fréttir 07.03 „Góðan
dag, góðir hlustendur" 09.00
Fréttir 09.03 Litli barnatíminn
á laugardegi 09.20 „Grand
duo concertante", opus 85 í
A-dúr, eftir Mauro Giullani
09.40 Þingmál 10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir 10.30 Vor-
verkin í garðinum 11.00 Viku-
lok 12.00 Auglýsingar 12.10 Á
dagskrá 12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir 13.00 Hér
og nú 14.00 Sinna 15.00 Tón-
elfur 16.00 Fréttir 16.15 Veð-
urfregnir 16.30 Leikrit mán-
aðarins: „Að loknum mið-
degisblundi" eftir Marguerite
Duras 17.40 Stríðsáraslagar-
ar 18.00 Sagan: „Momo" eftir
Michael Ende 18.35 Tónlist.
Dánarfregnir 18.45 Veður-
fregnir 19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar 19.32
Ábætir 20.15 Vísur og þjóð-
lög 21.00 Gestastofan 22.00
Fréttir. Orð kvöldsins 22.15
Veðurfregnir 22.30 Dansað
með harmoníkuunnendum
23.00 „Seint á laugardags-
kvöldi" 24.00 Fréttir 00.10
Um lágnættið 01.00 Veður-
fregnir 01.10 Næturútvarp
SUNNUDAGUR 08.00 Fréttir
08.07 Morgunvakt 08.15 Veð-
urfregnir 08.30 Á sunnudags-
morgni 10.00 Fréttir 10.03 Á
dagskrá 10.10 Veðurfregnir
10.25 Skáldskaparmál 11.00
Messa í Hallgrímskirkju 12.10
Á dagskrá 12.20 Hádegis-
fréttir 12.45 Veðurfregnir
13.00 Hádegisstund í Út-
varpshúsinu 14.00 Hernám
(slands í síðari heimsstyrjöld-
inni 14.50 Með sunnudags-
kaffinu 15.10 í góðu tómi
16.00 Fréttir 16.05 Á dagskrá
16.15 Veðurfregnir 16.20
„Leyndarmál ropdrekanna"
eftir Dennis Júrgensen 17.00
Frá erlendum útvarpsstöðv-
um 18.00 Sagan: „Momo"
eftir Michael Ende 18.30 Tón-
list. Dánarfregnir 18.45 Veð-
urfregnir 19.00 Kvöldfréttir
19.31 Ábætir 20.00 Eitthvað
fyrir þig 20.15 Islensk tónlist
21.00 Kíkt út um kýraugað
21.30 Útvarpssagan 22.00
Fréttir. Orð kvöldsins 22.15
Veðurfregnir 22.30 (slenskir
einsöngvarar og kórar syngja
23.00 Frá norrænum djass-
dögum í Reykjavik 24.00
Fréttir 00.07 Samhljómur
01.00 Veðurfregnir
Rás 2
08.05 Nú er lag 10.00 Helgar-
útgáfan 15.00 ístoppurinn
16.04 Sngur villiandarinnar
17.00 íþróttafréttir 17.03
Fyrirmyndarfólk 19.00
Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva í Evrópu 22.07
Gramm á fóninn 00.10 Bitk
aftan hægra 02.00 Fréttir
02.05 Kaldur og klár 03.00
Rokksmiðjan 04.00 Fréttir
04.05 Undir værðarvoð 05.00
Fréttir 05.01 Tengja 06.00
Fréttir 06.01 Af gömlum list-
um 07.00 Áfram ísland 08.05
Söngur villiandarinnar
SUNNUDAGUR 09.03
Sunnudagsmorgunn með
Svavari Gests 11.00 Helgar-
útgáfan 12.20 Hadegisfréttir
14.00 Með hækkandi sól
16.05 Raymond Douglas
Davis og hljómsveit hans
17.00 Tengja 19.00 Kvöld-
fréttir 19.31 Zikk-Zakk 20.30
Gullskífan, að þessu sinni
„Kielgasten" með Kim Lar-
sen og Bellami 21.00 Ekki
bjúgu! 22.07 Blitt og létt
23.10 Fyrirmyndarfólk 00.10 í
háttinn 01.00 Áfram ísland
02.00 Fréttir 02.05 Djassþátt-
ur 03.00 Blítt og létt 04.00
Fréttir 04.03 Sumaraftan
04.30 Veðurfregnir 05.01
Harmoníkuþáttur 06.00
Fréttir 06.01 Suður um höfin
KROSSGÁTAN
■ 1 2 3 □ 4
5 □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12
13 L □
28
Lárétt: 1 fönn, 5 högg, 6
þráöur, 7 samstæðir, 8 eðli,
10 átt, 11 spýja, 12 þýtur, 13
tóman.
Lóðrétt: 1 fága, 2 þreif, 3
silfur, 4 þvær, 5 hlífðarfat, 7
álitin, 9 kvendýr, 12 pípa.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 fleyg, 5 slór, 6 kóð,
7 ha, 8raskar, 10 ær, 11 agn,
12 auga, 13 auðna.
Lóðrétt: 1 flóar, 2 lóðs, 3 er,
4 gjarna, 5 skræfa, 7 hagga,
9 kaun, 12 að.