Alþýðublaðið - 11.05.1990, Page 1
MÞYÐUBUfiD)
FÖSTUDAGUR
11. MAÍ 1990
FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAÐIÐ -
hefur fengið heimild nærri allra aðildarfélaga sinna til að
boða verkfall. Sjómannasambandið fyrirhugar að kalla
saman formannafund efir rúma viku til að fá samskonar
heimild frá sínum aðildarfélögum.
JÚLÍUS SÓLNES -
umhverfisráðherra hug-
leiðir að fara til Tævan sem
formaður sendinefndar en
ekki í opinbera heimsókn.
Hann segist þó ekki fara
leggist utanríkisráðherra
gegn því.Talið er að ferð ís-
lensks ráðherra til Tævan
geti spillt fyrir stjórnmála-
sambandi Islands og Kin-
verska Alþýðulýðveldisins.
ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR - teiur það ekki sæma
borgarstjóra sem embættismanni allra borgarbúa að ráð-
ast gegn ákveðnum framboðsflokkum í Reykjavik þegar
hann svarar fyrir hagsmuni Reykjavíkurborgar og nota
þannig aðstöðu sína fyrir kosningaáróður.
MENGUN I SJO — Rannsóknir hér við land á geisla-
mengun í þangi gefa til kynna að mun minni geislameng-
un sé í hafinu hér við land en víðast hvar annars staðar t.d
við Færeyjar.
AÐSTÖÐUGJALD AF-
LEGGIST - Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráð-
herra og starfandi forsætis-
ráðherra telur nauðsynlegt
að leggja niður aðstöðu-
gjöld á fyrirtæki sem eru
verulegur hluti tekna sveit-
arfélaga. Það sé nauðsyn-
legt vegna samræmingar
við skattalög nágranna-
landanna og forsenda þess
að Islendingar geti tekið
þátt í sameiginlegu efna-
hagssvæði Evrópu.
FÆÐINGARHEIMILIÐ REYKJAVÍK — Yfirlæknir
Fæðingarheimilisins í Reykjavík segist ekki sjá ástæðu til
að loka heimilinu vegna starfsmannaskorts. Þaö hefur ver-
iö haft eftir yfirljósmóður heimilisins aö öryggi sængur-
kvenna og barna þeirra sé hætt vegna þess ástands sem nú
sé á Fæðingarheimilinu.
FUNDURMEÐ ARAFAT — Talsmaður ísraelsstjórnar
hefur sagt að fyrirhugaöur fundur Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra með Arafat muni spilla fyrir friðar-
liorfum fyrir botni Miðjarðarhafs. Steingrímur vísaði því
algjölega á bug.
MIKLIGARÐUR — hefur tekið við rekstri Garðakaupa
í Garðabæ af Sanitas hf. Jens Olafsson i Grundarkjöri rak
verslunina áður.
LEIÐARINN Í DAG
Á meðan Davíð eyðir skattpeningum borgar-
búa í prjálbyggingar og fjárfestingar sem eru
óskyldar hlutverki sveitarfélaga lengjast stöð-
ugt biðraðirnar fyrir framan dagvistaheimilin
og stofnanir fyrir aldraða. Á sama tíma er ekk-
ert gert til að sporna gegn mengun í lofti og við
strandlengjuna umhverfis Reykjavíkurborg.
SJÁ LEIÐARA BLS. 4
MENGUNIN OG VASAPENINGAR DAVÍÐS
4
Galdrakarlinn
í Kvos
IGuömundur Einarsson
fjallar í föstudagsspjalli sínu
um Davíðssukk og Framsókn-
arsukk. Davið skyldi þó aldrei
vera Frammari inni við beinið.
2
Harðskeytt
Ijúfmenni
Gunnar Flóvenz hefur ver-
ið framkvæmdastjóri Sildarút-
vegsnefndar í 30 ár. Hann þykir
harður samningamaður þegar
kemur að því að selja síld. Lítið
á nærmynd af Gunnari á bls. 2.
Kosningarnar
Norðurl. eystra
Sér?takt fylgiblað um
we'tarstjórnarkosningarnar í
Norðurlandskjördæmi eystra
fylgir Alþýðublaðinu í dag.
M.a. er rætt við Gísla Braga
Hjartarson sem skipar efsta
sæti fista Alþýðuflokksins á
Akureyri.
Verösveiflur í fiskmörkudum:
Soðningin lœkkar þó ekki
Margir hugðu að verð á
soðningunni Iækkaði í
kjölfar verðlækkunar á
fiskmörkuðum í vikunni.
Svo er hins vegar ekki og
kílóið af ýsuflökum selt á
430—440 krónur eins og
að undanförnu. Fisksalar
hafa keypt af línubátum og
nú netabátum og er verð
til þeirra svo til fast eða
88—90 krónur af ýsunni
hvort heldur hún er slægð
eða óslægð.
Þeir hjá fiskbúðum Sæ-
bjargar sögðu okkur að verð-
lækkun ýsunnar á fiskméirk-
uðum skýrðist af |)ví að hér
væri um að ræöa smáýsu sem
togbátarnir hefðu verið að
veiöa út af Garðskaga.
Fram til þessa hefði veriö
hægt að senda flökin af þess-
um kóðum flugleiðis til Am-
eríku og fengist gott verö fyr-
ir. Nú hefði tekiö fyrir þá eftir-
spurn og þá hryndi verðið.
Samt væri þetta rusl ekki enn
komiö niöur í raunverð,
sfigðu þeir hjá Sæbjörgu og
voru lítt hrifnir af þessu siná-
fiskadrápi.
I febrúar og mars var al-
gengt að selja kílóið af ýsu-
flökum út úr búð á um eða yf-
ir 500 krónur og þótti að von-
um óheyrilega hátt. Veröiö
he,fur síðan veriö að síga fram
til þessa, en búist er við að
það haidist í núverandi verði
á næstunni. Fisksalar segjast
merkja aukna sölu á ferskum
laxi eftir aö farið var að bjóða
hann á svipuöu verði eða iviö
lægra en er á ýsunni.
Bær hins mikla byggingaævintýris
I Kopavogi fór fram einhver mesta uppbygging bæjar sem um getur hér á landi. Sumarbústaöa-
og landbúnaöarlandi var umbylt á tiltólulega stuttum tíma. Þar fengu lóöalausir Reykvikingar
heimili fyrir fjölskyldur sinar. A stuttum tíma varö Kópavogur annar stærsti bær landsins. í dag
er bærinn 35 ára. Þessir voru i Hliðargaröi í gærdag aö leika sér i vorgolunni. Meira um Kópavog
á bls. 2. A-mynd: E.ÓI.
Evrópsk flugfélög í eina stóra og flókna fléttu:
fíugleiðir vekja
áhuga innan SAS
(Frá Guðbjörgu Arnardótt-
ur Kaupmannahöfn) „Enn
eru mörg flugfélög sem
áhugavert er að semja
við,“ segir Mikael Mörk,
forstjóri SAS ■ Danmörku í
viðtali við Berlingske Ti-
dende. Meðal þeirra segir
hann að sé lcelandair, þ.e.
Flugleiðir.
Sameiningarmál og sam-
flétting flugfélaga er mjög á
dagskrá hér í Danmörku sem
og annars staðar i Evrópu.
Hér er um að ræöa talsvert
flóknar viöskiptafléttur.
Þannig samdi SAS á fimmtu-
daginn var við Austrian Air-
lines um samstarf og eignar-
aðild, áður hafði SAS samiö
um 3% eignaraðild aö Finna-
ir. Swissair og SAS munu
eignast 7,5% hvort í öðru, en
Swissair á fyrir 10% í Austri-
an Airlines þannig að SAS
tengist austurríska félaginu á
þann hátt einnig.
Mörk segir að samningar
milli flugfélaga í líkingu við
þessa muni færast í aukana.
aðalatriðin í gjörningum sem
þessum séu nú meira á hreinu
en áður. Þá nefnir Mörk að
brydda megi upp á mun
meira samstarfi flugfélag-
anna en áður hefur tíðkast.
Nefnir hann þar flotaskipu-
lagningu félaganna, viðhald
á flugflota og rekstur flug-
hafnaverslana. SAS vilji fyrir
alla muni eignast sem flesta
og besta viðskiptafélaga á
sínu sviði.
Elda sallfísk láfr
lausl I hundrað líma
UNGFRÚ SALFISKUR
verður kjörin á disk-
óteki í Barcelona á
næstunni, — ennfrem-
ur HERRA SALTFISK-
UR. Þetta þætti víst
ekki mikið sæmdar-
heiti hér á landi — en
sinn er siður í hverju
v landi. Þetta er gert að
undirlagi SÍF,
spænskra kaupmanna,
borgaryfirvalda, hús-
mæðrafélaga og fleiri
aðila í Barcelona.
Er þetta einn margra
liða í átaki SIF í að auka
enn sölu saltfisks á Spáni,
sem er þó talsverð fyrir.
10 þúsund tonn á háu
veröi, — 2,2* milljarða
gáfu spánskir fyrir góð-.. J|j-^
gætið.
Saltfiskvikan fer víða
fram, m.a. á skyndibita-
stöðum og á torgi einu
þar sem mannfjöldi mikill
er á ferli. Þar stendur til
aö elda saltfisk viðstöðu-
laust í 100 klukkutíma og
komast þannig í Heims-
metabók Guinnes.