Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 4
srr fc Fimmtudagur 3. janúar 1991 Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36 Prentun: Oddi hf. Áskrifarsími er 681866 Áskriftargjald 1100 kr. á mánuði. í lausasölu 75 kr. eintakið ÚRSTLITAÁRIÐ 1991 George Bush Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi ræddust við i sima á fyrsta degi hins nýja árs og skiptust á nýársóskum. Fréttastofan Tass segir að leiðtogar stórveldanna hafi verið sammála um að árið 1991 myndi verða úrslitaár hvað varðar þróun innanrík- ismála Sovétrikjanna, heimsmála og varðveislu friðar. Leiðtogarnir ræddu meðal annars ástandið við Persaflóa og voru sammála um að aukin samskipti og samvinna stórveldanna tveggja myndi bæta hið pólitíska ástand í heiminum í dag. Tass fréttastofan segir að hinn jákvæði tónn og gagnkvæmi skilningur leiðtoga stórveldanna gæfu vonir um bætt samskipti Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna. Gorbatsjov og Bush ráðgera leiðtogafund í Moskvu i næsta mánuði. Á fundinum verður aðallega á dagskrá að skrifa undir START samkomulag um fækkun á kjarn- orkuflaugum stórveldanna. Sovéska þingið hefur enn- fremur tilkynnt að utanrikisstefna Sovétríkjanna verði óbreytt þrátt fyrir óvænta afsögn Shevardnadzes utan- ríkisráðherra sem varað hefur Sovétmenn við aukinni einræðishættu í Sovétríkjunum. essar fréttir styrkja vonir manna um allan heim um að afsögn Shevardnadzes og aukin einræðisvöld Gorbat- sjovs verði ekki til þess að draga úr samskiptum austurs og vesturs eða eyðileggja það mikilvæga verk sem unn- ið hefur verið til að draga úr spennunni á milli stórveld- anna og ljúka kalda stríðinu. Ráðamenn Bandaríkjanna og Sovétríkjanna virðast leggja á það mikla áherslu að halda áfram á braut samstarfs og þíðu. Slík samvinna er grundvöllur þess að stórveldin haldi alþjóðlegri sam- stöðu um lausn svæðisbundinna átaka, eins og um styrj- aldarhættuna við Persaflóa. róun innanríkismála í Sovétríkjunum er lykillinn að alþjóðlegu samstarfi stórveldanna og tryggingu heims- friðar. Þess vegna er það rétt hjá leiðtogum stórveld- anna þegar þeir segja að árið 1991 sé úrslitaár og nefna þróun innanríkismála í Sovétríkjunum sérstaklega. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kemur inn á sömu hugsun í áramótagrein sinni í Alþýðublaðinu þann 29. des. sl. Utanríkisráðherra skrifar: „Perestroika er orðin að katastroiku. Gorbatsjov safnar óformlegum völdum og gefur út tilskipanir sem lýðveldin virða að vettugi. Lýðveldin taka ákvarðanir sem miðstjórnar- valdið hindrar í framkvæmd. Efnahagslífið stjórnast hvorki af hinni ósýnilegu hönd markaðarins, né heldur af tilskipunum Gosplans. Stjórnleysið er algert. Þrátt fyr- ir metuppskeru eru hillurnar tómar og hungursneyð yf- irvofandi. Spurningin er: Er það á nokkurs færi að halda þvi saman með samkomulagi, sem aðeins hefur hangið saman með valdbeitingu? Hver fyllir tómarúmið? — Herinn, KGB eða fer hvert sambandslýðveldið sína leið, í kjölfar Stóra-Rússlands, með Yeltsín í fararbroddi? Þess- um spurningum verður ekki svarað nú. En þjóðir Evr- ópu og heimsbyggðin öll á mikið undir þvi hver svörin verða. Verði aftur komið á „röð og reglu" með hervaldi eru Glasnost og Perestroika fyrir bí. Samstarf risaveld- anna sömuleiðis. Vonir mannkyns um nýtt tímabil friðar og framfara hafa þá beðið mikinn hnekki. Hver verða þá örlög Eystrasaltsþjóðanna, sem gerðu sér vonir um að losna úr prísundinni og hugðu gott til glóðarinnar um samstarf við Norðurlandaþjóðir, á braut frelsis, friðar og framfara? Við biðum milli vonar og ótta.“ Heimurinn bíður milli vonar og ótta hver framvinda mála verður í Sovétríkjunum. Það ræðst væntanlega á þessu ári; úrslitaárinu 1991. * Aramótaskaup Siónvarpsins: Sum skot hittu i mark Hið óumflýjanlega óramótaskaup Sjónvarpsins brast ó samkvœmt venju á gamlórskvöld. Sjaldan gerir þjóðin meiri kröfur en eimmitt þó að henni sé skemmt. Helst vill fólk liggja i hlóturskrampa þann tima sem skaupið tekur, sópa burt eigin mistökum liðins árs og gleyma vandamálum framtiðar. Það er þvi ekki til litils œtlast þegar skaupið er annars veg- ar og ógerlegt að gera svo öllum liki. Svo fer það ef- laust eftir þvi hvort fólk er i stuði eða ekki þegar það fylgist með skaupinu. Á fimmta glasi hlœja sumir að öllu. Sæmundur Guðvinsson skrifar Áramótaskaupið í þetta sinn bar yfirskriftina Nýöldin og má segja að nýaldarspekin hafi fengið sitt í þættinum og vel það. Þar komu mjög við sögu nýaldarþættir sem sýndir voru á Stöð 2 á árinu og þau atriði fóru nokkuð fyrir ofan garð og neðan hjá öllum þeim sem ekki hafa afruglara og fylgjast þar af leiðandi ekki með dagskrá Stöðv- ar 2. Hins vegar voru sum þessara atriða meinfyndin og vissulega við hæfi að gera grín að þeim til- boðum til líkams- og sálarheilla sem hafa hellst yfir mörlandann á liðnu ári. Eilíft líf og sæla til sölu jafnt á flöskum í kjörbúðum sem á íhugunarnámskeiðum. Stjórnmálamenn fengu sitt að venju en þau atriði voru heidur bragðdauf og hið margendur- tekna minnisleysi Steingríms hætti brátt að vera fyndið. Þá er Laddi í hlutverki Bjarna Fel orðinn alltof gömul lumma til að bera hana enn einu sinni á borð og það hvað eftir annað. En sífelldar end- urtekningar voru kannski veikasti hlekkur skaupsins. Ég giska á að í skaupinu hafi verið hátt í 50 atriði, en sum voru alltof keimlík. Hins vegar brá fyrir bráðskemmtileg- um senum og sú besta var „Þreytt lag enn“ þar sem þau Guðrún Stephensen og Erlingur Gíslason fóru á kostum. Reyndar var það skaupinu mikill styrkur að margir okkar bestu leikara voru þarna í aðalhlutverkum og bættu oft upp texta sem var heldur þunnur á köflum. Auðvitað á að gera grín að öllu milli himins og jarðar í áramóta- skaupinu. Skotið var föstu skoti að fjármálasukki Stöðvar 2. Hins veg- ar saknaði ég þess að ekki var minnst á hið gráthlægilega fisk- eldisævintýri, borgarstjórnar- kosningarnar og hina rómuðu þjóðarsátt, svo nefnd séu nokkur atriði sem virðast vel til þess fallin að fjalla um af nauðsynlegri gam- ansemi. Hvað sem því líður þá get ég sagt fyrir sjálfan mig að stundum hló ég, brosti inn í milli og þar á milli var mér lítið skemmt. En húmor fólks er misjafn og eflaust hafa ein- hverjir aðrir rekið upp hlátursrok- ur þegar mér stökk ekki bros og svo öfugt. En áramótaskaupið er fastur liður sem ekki má láta niður falla þó menn skemmti sér misvel. Höfundar skaupsins að þessu sinni voru þeir Gísli Rúnar Jóns- son og Randver Þorláksson en leikstjóri Andrés Sigurvinsson. Öll tæknivinna var vel af hendi leyst og Björn Emilsson «tió.naði upp- töku af sínu venjuie ryggi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.