Alþýðublaðið - 12.01.1991, Side 4
4
Laugardagur 12. janúar 1991
MHDUBLMÐ
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskrifarsími er 681866
Áskriftargjald 1100 kr. á mánuði..
í lausasölu 75 kr. eintakið
VERKIN TALA
<Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins, hefur boðað til opins fundar
í Valaskjálf, Egilsstöðum, í dag undir yfirskriftinni
„Verkin tala." Alþýðublaðið birti mjög ítarlegt viðtal
við formann Alþýðuflokksins þ. 12. október sl. í tilefni
45. flokksþings Alþýðuflokksins. í viðtalinu leit Jón
Baldvin yfirfarinn veg. Hann svaraði spurningum um
fyrirheit Alþýðuflokksins fyrir þingkosningarnar 1987
og efndir, ræddi helstu viðfangsefni íslenskra stjórn-
mála á næsta kjörtímabili og sóknarfæri jafnaðar-
manna í framtíðinni. Fyrirsögn viðtalsins var „Við lát-
um verkin tala." Það eru orð að sönnu. Meðan flestallir
stjórnmálaflokkar reka pólitík með mismunandi
glæsilegum hætti í fjölmiðlum, hafa verkin alltaf verið
sterkasta vopn Alþýðuflokksins. Þegar upp er staðið
er spurt um árangurinn. í söguritun framtíðarinnar
verða slagorðin, loforðin og hin fögru fyrirheit ekki
fest á spjöld sögunnar, heldur verkin sjálf. Hverju kom
flokkurinn til leiðar? Hver eru verk hans? Fyrir hverju
barðist hann og hverju áorkaði hann?
Þegar spurt verður um verk Alþýðuflokksins í ríkis-
stjórnunum á yfirstandandi kjörtímabili og þau borin
saman við fyrirheit flokksins fyrir kosningar 1987,
verður útkoman flokknum afar hagstæð. Alþýðu-
flokkurinn hefur látið verkin tala. Alþýðuflokkurinn
hefur farið með eftirtalda málaflokka í ríkisstjórnum á
kjörtímabilinu: ríkisfjármál (fyrsta árið), félagsmálin,
viðskiptamálin, dóms- og kirkjumál (í eitt ár), iðnaðar-
mál og utanríkismál og utanríkisverslun. Þetta eru
þeir málaflokkar þar sem jafnaðarmenn hafa getað
haft frumkvæði að stefnumótun um og löggjöf, fyrir
utan almenna efnahagsstjórn þar sem formenn
stjórnarflokkanna hafa náið samstarf við forsætisráð-
herra.
Hver eru fyrirheit Alþýðuflokksins 1987 og efndir?
Jafnaðarmenn boðuðu nútíma-jafnvægisstefnu með
höfuðáherslu á lækkun verðbólgu og vaxta og aukinn
stöðugleika í hagstjórn. Við það hefur verið staðið,
ekki síst með efnahagsaðgerðum núverandi ríkis-
stjórnar sem lagði grunninn að þjóðarsáttinni. Al-
þýðuflokkurinn boðaði einföldun skattkerfisins og
staðgreiðslukerfi. Við það hefur verið staðið. Alþýðu-
flokkurinn boðaði einföldun tollakerfis. Við það hefur
verið staðið. Jafnaðarmenn boðuðu valfrelsi í hús-
næðismálum. Við það hefur verið staðið með tilkomu
kaupleigukerfis, löggjöf um félagslega íbúðakerfið og
húsbréfakerfið. Flokkurinn boðaði átak til að leysa
húsnæðisvanda aldraðra og öryrkja. Við það hefur
verið staðið. Alþýðuflokkurinn boðaði breytta verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Við það er staðið með
nýrri löggjöf. Boðuð var félagsleg aðstoð sveitarfé-
laga og aukna starfsmenntun í atvinnulífinu. Þetta
hefur verið framkvæmt með löggjöf.
Skráin er hvergi tæmd. Aiþýðuflokkurinn boðaði að-
skilnað dómástarfa og framkvæmdavaldsstarfa og
aðtryggja þyrfti skjótari afgreiðslu dómsmála. Dóms-
málaráðherra Alþýðuflokksins kom fram lögum um
aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds. Alþýðu-
flokkurinn stóð einnig við að sett yrði löggjöf um fjár-
magnsmarkaðinn utan bankakerfis og breytingu á
lánskjaravísitölu. Jafnaðarmenn boðuðu fækkun og
stækkun viðskiptabanka. Við það hefur verið staðið.
Önnur stórmál sem Alþýðuflokkurinn boðaði og hef-
ur staðið við: Frelsi í gjaldeyrisviðskiptum, undirbún-
ingur að byggingu nýs álvers og aukin nýting orku-
linda, aukið viðskiptafrelsi í utanríkis- og innflutnings-
viðskiptum, svo sem afnám hafta og einokunarversl-
unar, sjálfstætt frumkvæði í utanríkismálum, meiri-
hlutaeign íslenska ríkisins í Aðalverktökum og aukið
frelsi í viðskiptum og verslun.
Formaður Alþýðuflokksins sagði eftirfarandi í fyrr-
greindu viðtali við Alþýðublaðið í október sl.: „Ég býð
mönnum að gera samanburð við verk og árangur fyrri
ríkisstjórna, sem Alþýðuflokkurinn hefur tekið þátt í.
Ég býð mönnum að gera samanburð á störfum og ár-
angri þessarar ríkisstjórnar og svokallaðra „helminga-
skiptaríkisstjórna" Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks. Ég býð mönnum að gera samanburð á störfum
Alþýðuflokksins og ráðherra hans í þessari ríkisstjórn
og störfum og verkum annarra flokka innan ríkis-
stjórnarinnar. Eg kvíði í engu þeim samanburði. Við
Alþýðuflokksmenn þurfum ekki að kvíða því að leggja
verk okkar í dóm kjósenda." Alþýðublaðið tekur undir
þessi orð formanns Alþýðuflokksins. Verkin tala.
Dr. Össur Skarphéöinsson.
LEIÐRÉTTING
Tvær millifyrirsagnir misrituöust í
grein Dr. Össurar Skarphéðinssonar
sem birtist í Alþýðublaðinu í gær.
Rétt orðalag var „Stóriðja — meng-
unarvamir" og „Nýjar tillögur." Auk
þess féll niður Ijósmynd af greinar-
höfundi. Alþýðublaðið biður grein-
arhöfund og lesendur velvirðingar
á þessum mistökum.
Þá telur Alþýðublaðið rétt að geta
þess, að í frétt blaðsins sl. miðviku-
dag um áttræðisafmæli Baldvins
Jónssonar hrl. var sagt að hann ætti
afmæli „í dag,“ þ.e.a.s. miðvikudag-
inn 9. janúar sl. en átti að standa „á
morgun," þ.e. fimmtudaginn 10.
janúar. Afmælisbarnið og aðrir við-
komandi eru beðnir velvirðingar
vegna þessa.
Ritstj.
Nýju fötin kuldaboltms
— Sjáðu mamma, borgarstjór-
inn er í fötum!
— Já, það er vegna þess að
hann er að fara að vígja veit-
ingahöll Hitaveitunnar!