Alþýðublaðið - 30.01.1991, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 30. janúar 1991
MMÐUBIMÐ
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskrifarsími er 681866
Áskriftargjald 1100 kr. á mánuði.
í lausasölu 75 kr. eintakið
PERSAFLÓASTRÍÐIÐ
DREGST Á LANGINN
Gagnsókn bandamanna í Persaflóastríðinu hefur nú
staðið í hálfan mánuð. Það sem í fyrstu virtist auð-
veldur sigur, er nú að breytast í langvarandi stríðs-
átök. Þrátt fyrir veikan varnarmátt íraka í lofti og
greiða leið árásarvéla bandamanna að skotmörkum í
Kúveit og írak, virðist lítið hafa áunnist í öllum loft-
árásunum.
A sama tíma og bandamenn kljást við raunveruleg
skotmörk og ímynduð, senda írakar Scud-flaugar á
Israel og Saúdí-Arabíu. Þessar flaugar hafa hingað til
ekki verið hlaðnar efnavopnum eða kjarnaoddum. En
nú hefur Saddam Hussein íraksforseti tilkynnt um-
heiminum í fréttaviðtali við bandarísku fréttasjón-
varpsstöðina CNN, að hann geti hæglega skotið efna-
vopnum með flugskeytum til ísraels og Saúdí-Arabíu.
Scud-flaugar Iraka hafa reynt mjög á þol ísraela og er
það aðdáunarvert, að þrátt fyrir eldflaugaárásirnar
sem valdið hafa dauða manna og fjölda særðra, hafa
Israelsmenn ekki gengið í gildru Saddams og tekið
beinan þátt í Persaflóastríðinu. Hins vegar er það
spuming, hve lengi sú staða helst óbreytt, einkum
eftir yfirlýsingar Saddams Husseins um efnavopna-
árásir.
rlin mikla olíumengun í Persaflóa, er um 11 milljón
tunnum af olíu var hleypt í hafið frá dælustöðvum í
Kúveit, er annað dæmi um skelfilegar afleiðingar sem
hlotist hafa af stríðinu. írakar segja, að olíumengunin
sé tilkomin vegna sprengjuárása bandamanna en
bandamenn segja að olíumengunin sé hreint vist-
fræðilegt hermdarverk af hendi íraka. Þar sem fréttir
eru ritskoðaðar á báða bóga, er oft erfitt að átta sig á
sannleikanum í málinu. Flest bendir þó til að írakar
hafi hleypt olíunni í sjóinn til að eyðileggja eimingar-
stöðvar Saúdí-Araba í því skyni að eyðileggja vatns-
framleiðslu þeirra. Fréttaritskoðunin hefur gert það
að verkum að fréttir frá Persaflóastríðinu eru óná-
kvæmar, fáar og fela í sér sífellda endurtekningu. En
gegnum fréttaþokuna grillir þó í þá markverðu stað-
reynd, að bandamönnum virðist lítið hafa þokað
áleiðis í að brjóta íraka á bak aftur.
Búist er við að bardagar á landi hefjist brátt er
bandamenn hefja sókn á innrásarlið íraka í Kúveit. Þá
kemur að þáttaskilum í Persaflóastríðinu. Banda-
mönnum verður mætt af þaulvönum hermönnum ír-
aka; úrvalsliði Saddams, sem hefur mikla stríðs-
reynslu að baki. Það verður blóðug styrjöld og erfið.
Mannfall er áætlað miklu meira en í loftárásunum þar
sem loftþardagar hafa vart farið fram. Bardagar á
landi munu skera úr um hvort bandamönnum takist
að frelsa Kúveit.
Mhrif Persaflóastríðsins eru geysileg um heim allan.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu og flugfélög hafa lent í mikl-
um hremmingum vegna afpantana. Almenningur
skelfist hótanir íraka um hermdaverk um allar jarðir
og forðast flugvelli og ferðalög í lofti. Olíuverð hefur
enn haldist tiltölulega stöðugt en óvíst er hvernig sú
þróun verður í framtíðinni. Hækkandi verð á olíuvör-
um mun hafa gífurlegar afleiðingar fyrir allar þjóðir
heims. Hérlendis hefur þegar verið hugað að undir-
búningi til að varast slíkar verðsveiflur og olíuhráefn-
isþurrð. Olíufélögin hafa hvatt til sparnaðar og ríkis-
stjórnin hyggst grípa til aðgerða til að draga úr olíu-
neyslu innanlands.
Því lengur sem stríðið dregst á langinn, þeim mun
meiri, alvarlegri og meira langvarandi verða afleiðing-
ar Persaflóastríðsins. Það hvílir mikil ábyrgð á Banda-
ríkjaforseta þessa dagana að enda stríðið sem fyrst.
Hinar óljósu fregnir frá Persaflóa virðast þenda til
þess, að sigur þandamanna verði erfiðari en virtist í
fyrstu. Bush Bandaríkjaforseti hét löndum sínum og
öllum heiminum því, að Peraflóastríð myndi ekki
verða nýtt Víetnamstríð. Vonandi hefur Bandaríkja-
forseti rétt fyrir sér.
■■ UMRÆÐA
Fyrir hvað á Alþýðu-
flokkurinn að standa?
eru fullnýttir. Erlendar skuldir
þjóðarinnar eru óhóflega miklar.
Það er helst að von sé í nýju átaki
í uppbyggingu orkufrekrar stór-
iðju. Hagvöxt á íslandi á komandi
árum verður því að sækja með
öðrum hætti en leitast hefur verið
við hingað til fyrst og fremst með
því að fara betur með auðlindir
landsmanna og fjármuni og með
því að nýta betur tækifæri sem
bjóðast.
Hlutverk stjórnvalda í þessari
hagvaxtarsókn verður stórt og ríð-
ur því á miklu að fyrir þeim fari
rnenn og flokkar með ákveðin
markmið og skýra stefnu. Alþýðu-
flokkurinn hefur til þess betri for-
sendur en aðrir íslenskir stjórn-
málaflokkar að marka sér slíka
stefnu þar sem hann hefur löngum
byggt starf sitt og stefnu á skyn-
semishyggju og verið laus við þær
kreddur og þá sérhagsmunagæslu
sem tröllríða öðrum flokkum.
Pví fer fjarri að Alþýðuflokkur-
inn geti nokkurn tíma gert öllum
til hæfis og hann á ekki að reyna
það. Hann á að nýta sér sérstöðu
sína í íslenskum stjórnmálum til
að berjast fyrir framgangi þeirra
mála sem helst geta bætt lífskjör-
í landinu og stuðlað að varðveislu
sjálfstæðisins á komandi tíð.
Ég velkist ekki í vafa um það
hver þessi mál eru: Veiðileyfasala
við stjórn fiskveiðanna til að ná
fram hagræðingu í útgerð, heil-
brigð samkeppni í landbúnaði og
innflutningur búvara til að lækka
matvælaverð, aðild að Evrópu-
bandalaginu fyrir aldamót til að ís-
lensk fyrirtæki standi jafnfætis er-
„Þvi fer fjarri að Alþýðuflokkurinn geti nokkurn tíma gert öllum til hæfis og hann á ekki að reyna það. Hann á að
nýta sér sérstöðu sína í íslenskum stjórnmálum til að berjast fyrir fram gangi þeirra mála sem helst geta bætt
lífskjörin í landinu og stuðlað að varöveislu sjálfstæöisins á komandi tíð," segir Birgir Árnason m.a. í umræðugrein
sinni.
lendum keppinautum, samstarf
við erlenda aðila um uppbyggingu
í íslensku atvinnulífi, stórum
minni afskipti hins opinbera af
fjármálalífi þjóðarinnar og öflugur
opinber stuðningur við menntun
og menningu. En það verður ekki
síður að fara vel með ávinninginn
sem gæti hlotist af stefnu sem
þessari og þá á ég sérstaklega við
að þaö nái ekki nokkurri átt að
verja honum öllum jafnóðum til
að halda uppi árangurslausri
byggðastefnu.
Birgir Árnason
hagfrædingur
skrifar
Enginn vafi leikur á þvi að meginverkefnið á
næsta kjörtimabili verður að hleypa nýju lifi i is-
lenskt efnahagslif. Við horfum nú fram á f jórða sam-
dráttarárið i röð og hefur ekki jafnlöng efnahags-
lægð gengið yfir þjóðarbúskapinn i f jóra áratugi. En
það er hægara um að tala en i að komast að snúa
þessari jtróun við.
Áttundi áratugurinn var mesta arárin síðari. Það voru um margt
hagvaxtarskeið lýðveldistímans sérstakar aðstæður sem lágu að
og raunar allrar íslandssögunnar baki örum hagvexti á árunum á
ef undan eru skilin heimsstyrjald- milli 1970 og 1980. Fyrst ber að
telja útfærslu fiskveiðilögsögunn-
ar og full yfirráð yfir fiskimiðum.
Næst koma miklar framkvæmdir
á sviði orkumála og stóriðju. Loks
má nefna að af verulegum sjóðum
var að taka í upphafi áratugarins
og hægt var að taka mikil erlend
lán á þeim síðari. Margt lagðist
þannig á eitt til að ýta undir hag-
vöxt á áttunda áratugnum.
Áttundi áratugurinn verður
ekki endurtekinn og liggur í aug-
um uppi af hverju. Fiskstofnarnir