Alþýðublaðið - 30.01.1991, Blaðsíða 8
UÖryi^inaíar
lll
ALÞJÓt)A
LfFTRYGGINGARFELAGIÐ HF.
LACMÚLI5 - RFYKJAVtK
681644
MMMIBLOU)
GEVAUA
Það er kaffið 687510
• • • • • • • •
• • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • •
• • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • •
IRAKAR INN I SAÚDI-ARABIUl TóK írakskir hermenn læddust
inn fyrir landamæri Saúdi-Arabíu i fyrrinótt i skjóli myrkurs. Til bar-
daga kom og særðust þrír landamæravarðanna, en einn írakski inn-
rásarmaðurinn, foringi að tign, lést fyrir mistök eigin manna. Irak-
arnir komust um 2 km inn í landið þegar skothríð hófst.
LANDHERNAÐUR BÍÐUR: Breskir embættismenn drógu í gær
úr hugmyndum um landhernað bandamanna við íraksher á allra
næstu dögum. Þeir sögðu að Saddam Hussein mundi ekki takast að
mana þá til ótímabærs landhernaðar.
HIHUST í FYRSTA SINN í 28 ÁR: Pólitiskir andstæðingar,
Nelson Mandela, og Mangosuthu Buthelezi hittust í gær í Durban
í S-Afríku í fyrsta sinn í 28 ár. Saman hvöttu þeir fylgismenn sína til
að binda enda á blóðuga borgarastyrjöld og sameinast um að efla
veldi svarts meirihluta í stjórnmálum landsins.
BARRE ENN I SOMALIU: Siad Barre, Sómalíuforseti, sem nú
hefur hrökklast frá völdum, er sagður enn í landinu eftir að honum
hafði tekist að telja byltingarmönnum, sem nú ráöa yfir nær öllu
landinu, trú um að hann hefði flúiö til Kenía. Ali Mahdi Mohamed,
forseti til bráðabirgða, sagði við embættistökuathöfnina að Siad
Barre myndi verða náð og dreginn fyrir rétt.
2600 ÁRÁSARFERÐIR Á EINUM SÓLARHRING: Talsmað-
ur breska flotans sagði að þyrlur bandamanna hefðu lagt til atlögu
gegn 17 varðbátum íraka i norðurhluta Persaflóa. Bandariskur her-
foringi skýrði frá því að á einum sólarhring hefðu flugvélar banda-
manna farið 2600 árásarferðir; að enn ein MiG-22 orrustuþota íraka
hefði veriö skotin niöur og aö ráöist heföi veriö á tvo Silkiorms-eld-
flaugapalla og þeir eyðilagir. Alls hefðu nú milli 80 og 90 flugvélar
íraka nú flogið í örruggt skjól í íran.
ÍRAKAR SEGJA STRÍÐSFANGA HAFA FARIST: Einn fiug-
mannanna sem er í haldi hjá Irökum er sagður hafa farist í loftárás
bandamanna á Bagdad. Flugmaðurinn á að hafa verið í byggingu
iðnaðarráðuneytis Iraks sem varð fyrir sprengjum. Ekki er vitaö
hverrar þjóðar maðurinn var. írakar hafa áður skýrt frá því að nokkr-
ir vestrænir flugmenn heföu særst í loftárásum bandamanna á
„íbúðahverfi" í Bagdad.
SOVÉTMENN SÆRA UNGAN LITHÁA: Frá Vilnius kom sú
frétt í gærkvöldi að sovéskir hermenn viö v,.. ðstöð hefðu skotið sært
lífshættulega tvítugan Litháa . Ungi maðurinn var grunaður af
hermönnum um að reyna að komast hjá herskyldu.
Varnarmálarádherra Frakklands segir af sér:
Ágreiningur
um Flónstrið
„Jean-Pierre Chevenement
sagði af sér embætti varnar-
málaráðherra í morgun og við
tók Pierre Joxe,“ segir í fréttatil-
kynningu sem Alþýðublaðinu
barst frá franska sendiráðinu í
gær. Pierre Joxe var áður innan-
ríkisráðherra í stjórn Francois
Mitterrands.
Astæða afsagnarinnar er sögð
vera sú að Chevenement hefur ekki
stutt þátttöku Frakka í hernaðinum
gegn írökum nema með semingi og
hefur legið undir ámæli fyrir það.
Hann var róttækur á sínum yngri ár-
um, gagnrýndi harðlega „banda-
ríska heimsvaldastefnu" og var
meðal stofnenda Fransk-íraska vin-
áttufélagsins. Hann er leiðtogi þess
liluta franska sósíalistaflokksins
sem var á móti því að senda herlið
til Persaflóasvæðisins í upphafi.
Chevenement var þó áfram í emb-
ætti þótt hann væri greinilega milli
steins og sleggju þegar ákveðið var
að Frakkar tækju þátt í aðgeröum
bandamanna og fór meira að segja
til Saúdí-Arabíu til að heilsa upp á
hermenn Frakka þar. En hann lagði
áherslu á að tilgangur hernaðarins
væri eingöngu að frelsa Kúveit en
ekki alls ekki að eyða hernaðar-
mætti íraka eða koma Saddam frá
völdum. Þess vegna lýsti hann yfir
að Frakkar myndu einvörðungu
ráðast gegn skotmörkum í Kúveit
og sagðist algjörlega andvígur hin-
um stórfelldu loftárásum banda-
manna á írak. Mitterrand forseti sá
sig þá tilneyddan til að kalla saman
fund með fréttamönnum og tók þar
skýrt fram að Frakkar myndu senda
flugvélar sínar til íraks, hvað þeir og
gerðu.
Pierre Joxe, sem tekur viö emb-
ættinu, er maður mjög ólíkur Che-
venement. Hann er af efnuðu milli-
stéttarfólki, gekk í ýmsa heldri-
mannaskóla. Faðir hans var sendi-
herra og ráðherra í hægristjórn de
Gaulles, en sonurinn gerðist ein-
dreginn stuðningsmaður jafnaðar-
mannsins Francois Mitterrands þeg-
ar hann var aðeins 18 ára að aldri og
liefur fylgt honum að málum alla tíð
síðan.
Þjóðverjar reka af sér slydruordiö
300 MILUARÐAR
TIL BANDAMANNA
Þýska ríkisstjórnin tilkynnti í
gær og að hún myndi leggja fram
5.5 milljarða dollara (um 300
milljarða ísl.kr.) til stríðsrekst-
ursins við Persaflóa og hefur
þannig viljað reka af sér slyðru-
orðið fyrir slælegan stuðning
við bandamenn í Fióastríðinu.
Áður höfðu þeir gefið eða heitið
3.6 milljarða dollara framlagi til
samherjaþjóðanna og annarra sem
verða hart úti af völdum aðgerð-
anna, svo sem Jórdana, Egypta,
Tyrkja og ísraelsmanna.
Talsmaður stjórnarinnar, Dieter
Vogel, sagði að þessar 5,5 milljónir
dollara væru framlag fyrir fyrstu
þrjá mánuði ársins 1991. „Þetta fjár-
framlag sýnir glögglega samstöðu
Þjóðverja með Bandaríkjamönn-
um, en það eru hermenn þeirra
bera þyngsta byrði við að framfylgja
samþykktum Sameinuðu þjóðanna
um frelsun Kúveits," sagði í tilkynn-
ingunni.
Stjórnin hafði einnig ákveðið að
senda þegar í stað Roland og Hawk
loftvarnaeldflaugar til Tyrklands
ásamt 600 flugliöum til að manna
tækin.
Vogel sagði ennfremur að Israels-
menn myndu fá hergögn til varnar
landinu en nánari upplýsingar
lágu ekki fyrir.
„Loftvarnaeldlaugarnar verða
notaðar til aö verja Tyrkland og
NATO-hersveitirnar sem þangað
voru sendar af Þjóðverjum, Belgum
og ítölum til að draga úr hættunni á
árás íraka. Þjóðverjar eru allir af
vilja gerðir að rækja skyldur sínar
samkvæmt sáttmála Átlantshafs-
bandalagsins og gagnvart aðildar-
þjóðinni Tyrkjum," sagði Vogel.
Leiðréttingar á
vaxtabótum vegna
skattframtals 1990
Alþingi hefur samþykkt lög sem heimila einstakl-
ingum að sækja um leiðréttingu á stofni til útreikn- s
ings vaxtabóta í skattframtali 1990 vegna lána á °
árinu 1989 þegar um er að ræða:
•Uppsafnaðar verðbætur af lánum sem fylgdu
íbúð við sölu.
•Greiddar, uppsafnaðar og áfallnar verðbætur á
lán umfram ákvæði skuldabréfa vegna lána til
kaupa eða byggingar á eigin húsnæði.
Sækja þarf um leiðréttingu til skattstjóra og fást
umsóknareyðublöðin þar. Umsókn verður að
berast skattstjóra eigi síðar en með skattframtali
1991.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI