Alþýðublaðið - 28.02.1991, Side 1
FIMMTUDAGUR
28. FEBRÚAR 1991
Utvarpsstjórinn, Árni Einar Birgisson, við hljóðnemann í
gærdag.
NY UTVARPSSTOÐ: Æfinga- og tilraunaskóli Kenn-
araháskóla íslands hefur sett á laggirnar nýja ótvarpsstöð.
v Stöðin er á bylgjulengd FM 105,9 og næst líklega um gjör-
valla Reykjavík. Var fyrsti útsendingardagur á mánudag-
inn og mun verða útvarpað fram til föstudags. Er þetta lið-
ur í svokallaðri starfskynningu sem er í gangi hjá 10. bekk
þessa skóla, eins og talsmaður stöðvarinnar, hinn frækni
íslenskukennari Páll Olafsson, sagði okkur. Þess má þó
geta að það eru nemendur sem sjá algerlega um alla dag-
skrána.
HEIMASTJÓRNARSAMTÖKIN BJÓÐA FRAM:
Heimastjómarsamtökin vilja, vegna frétta um samstarf
Borgaraflokks og Samtaka jafnréttis og félagshyggju í
Norðurlandi eystra fyrir næstu alþingiskosningar, taka
fram að Heimastjórnarsamtökin stefna enn sem fyrr að
framboði í öllum kjördæmum. Meðal baráttumála samtak-
anna er að dreifa valdi frá miðstýrðu kerfi til fólksins, að
koma í veg fyrir aðild íslands að Evrópubandalaginu og að
auka jöfnuð fólks með lögfestingu lágmarkslauna.
RÍKIÐÁINNIHJÁSEÐLABANKA: Rekstrarhalli rík-
issjóðs árið 1990 varð 4,4 milljarðar króna, eða 1,3% af
landsframleiðslu. Hallinn varð minni en fjárlög gerðu ráð
fyrirogíárslok 1990 átti ríkissjóður inni 327 milljónir á að-
alviðskiptareikningi Seðlabanka. Hvort tveggja telst til
merkari tíðinda. Um langt árabil hefur ríkið skuldað Seðla-
banka um áramót og erfitt hefur reynst fyrir fjármálaráð-
herra að halda sig innan marka fjárlaga.
EURONEWS INN A ÍSLENSK HEIMILI: Evrópu-
samband útvarps- og sjónvarpsstöðva, sem RÚV er aöili
að, mun láta senda sjónvarpshnött út í himingeiminn á
næsta ári. Hnötturinn mun senda út Evrópufréttir,
Euronews. Þessi stöð mun að sjálfsögðu nást hingað til
lands þegar þar að kemur. Á stöðinni verður níu klukku-
tíma dagskrá daglega, frá kl. 16 á daginn til kl. 01 að nóttu.
Síðar er stöðinni ætlað að starfa allan sólarhringinn.
LEIÐARINN Í DAG
Fyrri leiðari Alþýðublaðsins fjallar um stöðuna í
Persaflóastríðinu. Blaðið segir að fjölþjóðaher
bandamanna verði að tryggja endalok valda Sadd-
ams Husseins og einnig verður að tryggja stöðug-
leika og frið til lengri tíma í löndunum við Persaflóa
og í arabaheiminum. Síðari leiðari blaðsins fjallar um
forréttindi Sjálfstæðisflokksins í sjónvarpsfréttum.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: TRYGGJA VERÐUR ENDA-
LOK VALDA SADDAMS HUSSEINS og FORRÉTT-
INDI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í SJÓNVARPS-
FRÉTTUM.
33. TÖLUBLAÐ 72. ÁRGANGUR
Bílastæða-
vandamál?
Gott
atvinnuástand
Nýr háskólarektor
Talað er um bílastæða-
vandamál í miðborg Reykja-
víkur. Annað kom í Ijós þegar
Alþýðublaðið kannaði í gær
„vandamálið". Nýting bíla-
stæðanna er ótrúlega lítil.
IHér á landi ríkir ekki atvinnu-
leysi, að minnsta kosti þarf út-
lendinga til að vinna að frumat-
vinnugreininni, fiskvinnslunni.
Við rennum augum yfir blóm-
lega atvinnustarfsemi.
IVið segjum frá forvali eða
prófkjöri sem fram fer í Háskól-
anum í dag. Vinsæll háskóla-
rektor mun senn láta af störf-
um. En hverjir eru tilnefndir
sem arftakar hans?
BHMR-málið dómtekið sl. mánudag:
Borgardómur í
næstu viku?
Mál BHMR gegn ríkinu
var dómtekið í Borgar-
dómi Reykjavíkur síð-
astliðinn mánudag og er
jafnvel búist við dómi í
næstu viku. Talið er ör-
uggt að málinu verði
áfrýjað til Hæstaréttar,
hver svo sem dómsnið-
urstaða verður.
Málið sækir einn félaga í
Bandalagi háskólamanna.
Ekki er hægt að höfða sér-
stakt mál gegn ríkinu fyrir
brot á stjórnarskránni, en í
raun snýst málið um það
hvort ákvæði stjórnarskrár
hafi verið brotin.
BHMR telur að ákvæði
stjórnarskrár um þrískipt-
ingu valds hafi verið brotið,
þegar ríkisvaldið tók að sér
að hnekkja dómsniður-
stöðu og launasamningar
BHMR-félaga voru felldir
að hinni svokölluðu þjóðar-
sátt. Þá fjallar málið um
heimild ríkisstjórnar til að
gefa út bráðabirgðalög.
BHMR telur að Alþingi hafi
verið fullkunnugt um að
hverju dró. Þingmönnum
hafi því verið í lófa lagið að
setja lög meðan þing sat.
Karl Steinar Guðnason,
þingmaður Alþýðuflokks,
hafi meira að segja ýjað að
því í þingsölum.
Þá er fyrir borgardómi
látið á reyna hvort eigna-
réttarákvæði stjórnarskrár-
innar hafi verið brotin.
BHMR telur að ríkið hafi
tekið ófrjálsri hendi lög-
mæt laun starfsmannsins
sem sækir málið gegn rík-
inu. Honum hafi borið að fá
umsamda4,5% kauphækk-
un — og að því hafi félags-
dómur komist — en ekki þá
hækkun sem þjóðarsátt
sagði til um.
Að síðustu eru ákvæði
um félagafrelsi, sem BHMR
segir afnumið með setn-
ingu bráðabirgðalaganna.
Mál þetta þykir hafa for-
dæmisgildi. Er því talið full-
víst að ekki verði fallist á
niðurstöðu Borgardóms og
því verði áfrýjað til Hæsta-
réttar. Það væri einsdæmi,
ef niðurstaða Borgardóms
Reykjavíkur yrði á þá lund
að ákvæði stjórnarskrár-
innar væru í raun brotin. Þá
yrði núverandi ríkisstjórn
að bíða dóms Hæstaréttar
— og dómur félli ekki fyrr
en ný stjórn hefði tekið við
í landinu.
Stuðningsmerm Davíðs hafa opnað kosningaskrifstofu:
„Besti dagur Þorsteins
var i fyrradag"
Formannsslagurinn í
Sjálfstæðisflokknum er að
taka á sig afdráttarlausari
mynd. í gær opnuðu stuðn-
ingsmenn Davíðs Odds-
sonar kosningaskrifstofu í
Reykjavík. Tveir verða á
launum til að byrja með og
„eru allavega ekki á laun-
um hjá fjármálaráðuneyt-
inu,“ að sögn talsmanns
skrifstofunnar. Friðrik
Friðriksson, einn úr frjáls-
hyggjuarmi Sjálfstæðis-
flokksins, veitir skrifstof-
unni forstöðu.
I gær tóku stuðningsyfirlýs-
ingar að berast heim á hlað
hjá þeim í Hekluhúsinu við
Laugaveg, þar sem kosninga-
skrifstofan er til húsa. Til
dæmis sendu allir fulltrúar af
Djúpavogi sem tilnefndir eru
á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins skeyti, þar sem þeir
lýstu yfir fyllsta stuðningi við
Davíð. Talsmaður skrifstofu
Davíðs segir fylgi Davíðs
vaxa, en ef kosið yrði í dag,
hefði Þorsteinn það líklega.
„Besti dagur Þorsteins var í
fyrradag," sagði hann i sam-
tali við Alþýðublaðið í gær. ins verður kosinn á lands-
Formaður Sjálfstæðisflokks- fundi flokksins eftir tíu daga.