Alþýðublaðið - 28.02.1991, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 28. febrúar 1991
FRÉTTASKÝRING ■HmHHBBMBi
Atvinnuleysi í janúar 2,5%:
Samdráttur í
f iskvinnslu —
aukning
í þjónustu
Meöan glæsihaliir rísa i höfuðborginni þar sem skortur er é bygginga-
mönnum, blasir við samdráttur og atvinnuleysi í byggingariðnaðinum á
landsbyggðinni.
Eini kvenfanginn
Stúlkan á myndinni, bandaríski
hermaðurinn Rathbun-Nealy, er
eini kvenmaöurinn sem írakar
hafa í haldi sem stríðsfanga um
þessar mundir. Hún gekk í
Bandaríkjaher af ævintýraþrá.
Faðir stúlkunnar var staddur á
bjórkrá þegar sjónvarpið sagði
frá handtöku bandarísks her-
manns af veikara kyninu. Sagði
hann þá að ef það væri dóttir sín,
þá vildi hann fremur að hún
væri fallin en að lenda í klónum
á Saddam. Hér reyndist um að
ræða dótturina — sem væntan-
lega losnar senn úr prísundinni.
Loðnan og sfaða
hennar i vistkerfinu
Loðnan, sá örsmái fiskur, skiptir
okkur miklu máli á síðari árum.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur, mætir á rabbfundi
Náttúrufræðistofu Kópavogs og
Náttúruverndarfélags Suður-
Iands í kvöld kl. 21 i Náttúru-
fræðistofunni að Digranesvegi
12 í Kópavogi, og fjallar um loðn-
una sem tegund ogstöðu hennar
í vistkerfinu. Þá mun Hjálmar
ræða um loðnuveiðar og sögu
þeirra hér við land. Á laugardag-
inn kl. 13.30 verður heimsótt
fyrirtæki sem starfar við loðnu-
vinnsiu.
Sænsk bókakynning
Á laugardaginn fer fram kynn-
ing á sænskum bókum í Nor-
ræna húsinu. Gunnel Persson,
sendikennari við Háskóla Is-
lands, kynnir bókaútgáfuna í
Svíþjóð í fyrra. Gestur á kynn-
ingunni verður sænska Ijóð-
skáldið Bodil Malmsten, 46 ára,
þekkt í sínu heimalandi fyrir
ljóð, leikritagerð í sjónvarpi og
sjónvarpsþætti fyrir börn.
Malmsten þykir draga upp góða
samtímamynd af landi sínu og
þjóð í Ijóðunum. Oft fjallar hún
um sorg, tómleika og söknuð,
sem hún lýsir af mikilli alvöru,
en í allri alvörunni örlar oft
óvænt á góðlátlegri glettni.
Evrópumót í
körfubolta hér
Um helgina verður haldin hér í
Reykjavík Evrópukeppni karla-
landsliða í körfubolta og því mik-
ið um að vera hjá hinum há-
vöxnu íþróttamönnum. Torfi
Magnússon landsliðsþjálfari hef-
ur valið 17 manna hóp og er þar
öllu því besta tjaldað. Auk þess
hefur Torfi fengið aðstoðarþjálf-
ara, Glenn Thomas, Bandaríkja-
mann sem þjálfar Hauka.
Jakob sýnir í
Stöðlakoti
Á laugardaginn kl. 12 opnar Jak-
ob Jónsson listmálari sýningu á
verkum sínum í Stöðlakoti að
Bókhlöðustíg 6 í Reykjavík. Hér
er um að ræða 14 verk, unnin
með olíupastel og álímingum á
pappír. Þetta er sjötta einkasýn-
ing Jakobs. Hún er opin daglega
frá 12—18 og lýkur sunnudaginn
17. mars.
Í könnun sem Þjóðhogsstofnun
hefur gert kemur i Ijós að atvinnu-
rekendur vilja fækka störfum i fisk-
iðnaði um 220, og i byggingariðnaði
um 150. Þessi niðurstaða á fyrst og
fremst við um landsbyggðina. Á
sama tima eru rúmlega 1000 útlend-
ingar starfandi hér ó landi, þar af
400 i fiskiðnaði. Viða er ústandið
þannig að allt að helmingur starfs-
manna er útlendingar; um 125 i heil-
brigðiskerf inu og 120 i iðnaði. í þess-
um tölum eru Norðurlandabúar ekki
taldir með, en úrlega kemur nokkur
fjöldi þeirra hingað til lands gagn-
gert til þess að vinna við fiskvinnslu.
Á sama tima eru laus 60 störf i versl-
un og veitingastarfsemi ú höfuð-
borgarsvæðinu, og i sjúkrahús-
rekstri vildu stjórnendur fjölga um
120 störf.
BJÖRN HAFBERG SKRIFAR
Þessar niðurstöður koma m.a.
fram í könnun sem Þjóðhagsstofn-
un hefur gert við athugun á at-
vinnuástandi og horfum á vinnu-
markaði í janúar 1991. Kannanir
af þessu tagi eru nú gerðar þrisvar
á ári, í janúar, apríl og september.
Könnunum þessum er ætlað að ná
til um 75% af allri atvinnustarf-
semi í landinu. Fyrirtækin sem
leitað er til eru þau sömu aftur og
aftur og er þannig talið að betur
takist að draga fram traustvekj-
andi niðurstöður og fá fram mark-
tækar breytingar á atvinnuástand-
inu á milli kannana.
í síðustu könnun var spurt um
fjölda starfsmanna í fullu starfi hjá
fyrirtækjunum í nóvember 1990
og janúar 1991. Spurt var hvort
einhverjar breytingar á starfs-
mannahaldi hafi verið æskilegar í
janúar miðað við umsvif. Einnig
var spurt um æskilegan fjölda
starfsmanna í apríl og september
1991.
Helstu niðurstöður___________
Þegar á heildina er litið benda
niðurstöður könnunarinnar til að
viðunandi jafnvægi sé á vinnu-
markaði um þessar mundir. At-
vinnurekendur á öllu landinu vilja
fækka um 120 störf, þ.e. mismunur
á þeim greinum sem fjölga þarf í
og þeim greinum sem fækkun er
talin æskileg, og er hér litið á land-
ið í heild. Þetta er töluverð breyt-
ing frá því í síðustu könnun sem
gerð var í september síðastliðn-
um, þegar atvinnurekendur vildu
fækka um 370 störf.
Atvinnuleysi_________________
í janúar voru 3200 skráðir at-
vinnulausir, eða 2,5% af heildar-
mannafla. Þetta er nokkru minna
en spár Þjóðhagsstofnunar höfðu
gert ráð fyrir. Á sama tíma í fyrra
var atvinnuleysi 3,1%.
Þetta er ekki talin vísbending um
minnkandi atvinnuleysi, heldur
aðeins að um breytingu á árstíða-
mynstri atvinnuleysis sé að ræða.
Atvinnuleysi var að meðaltali
1,7% árið 1990, en Þjóðhagsstofn-
un spáir því að atvinnuleysi verði
nokkru meira 1991, eða 1,9%.
Atvinnuleysi er jafnan minnst
yfir sumarmánuðina en hefur auk-
ist jafnt og þétt og náð hámarki í
janúar.
Fiskvinnsla
Af einstökum atvinnug;einum
vilja atvinnurekendur fækka mest
í fiskiðnaði, eða um 220 störf.
Þetta ástand er nær eingöngu
bundið við landsbyggðina. Á höf-
uðborgarsvæðinu ríkir jafnvægi í
vinnuaflseftirspurn í fiskiðnaði.
Frá því Þjóðhagsstofnun fór að
kanna ástand á vinnumarkaði
með skipulögðum hætti hefur
aldrei áður mælst fækkun í fisk-
iðnaði. Þessar niðurstöður lágu
fyriráðuren leyftvarað veiða 175
þúsund tonn af loðnu svo ástandið
er nokkuð betra en tölurnar gefa
til kynna.
Almennur iðnaður
I almennum iðnaði ríkir jafn-
vægi í vinnuaflseftirspurn. At-
vinnurekendur vildu fjölga lítil-
lega störfum í janúar, en á sama
tíma í fyrra vildu þeir fremur
fækka störfum. Eftirspurnin nú
skiptist jafnt á milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Ef litið er á stóriðju sérstaklega
ríkir þar jafnvægi eins og verið
hefur.
Byggingastarfsemi___________
í byggingarstarfsemi vildu at-
vinnurekendur fækka um 180
störf í janúar. Skiptingin er þannig
að á höfuðborgarsvæðinu vilja
menn bæta við 30 störfum en á
landsbyggðinni vilja menn fækka
um 210 og munurinn er því 180
störf. Mikil óvissa er almennt í
greininni, m.a. vegna þess að
ákvörðun um byggingu álvers hef-
ur seinkað.
Verslun og
veitingastarfsemi
Atvinnurekendur í verslun og
veitingastarfsemi vildu fjölga um
60 störf í janúar. Það er mikil
breyting frá því í september en þá
vildu þeir fækka um 200 störf. í
janúar 1990 vildu stjórnendur í
þessum greinum fækka störfum
um 70. Eftirspurnin nú er ein-
göngu á höfuðborgarsvæðinu, en
jafnvægi ríkir á landsbyggðinni.
Samgöngur_________________
í samgöngum vildu atvinnurek-
endur fjölga um 70 störf í janúar. Á
sama tíma í fyrra vildu þeir hins
vegar fækka störfum um 170. Eft-
irspurnin nú er fyrst og fremst
bundin við höfuðborgarsvæðið.
Heilbrigðiskerfið__________
í sjúkrahúsarekstri vai í janúar
talin þörf á að fjölga störfum um
150. Á sama tíma í fyrra vildu
stjórnendur sjúkrahúsanna hins
vegar fækka störfum um 60.
Skortur á vinnuafli á sjúkrahúsum
er mun meiri á höfuðborgarsvæð-
inu en á landsbyggðinni, eða 119
störf. I öðrum þjónustugreinum
var hins vegar talin þörf á fækkun
sem nemur 20 störfum, sem er
mun minni fækkun en talin var
æskileg á sama tíma í fyrra. Á höf-
uðborgarsvæðinu vildu atvinnu-
rekendur fækka um 70 í ýmsum
þjónustugreinum en á lands-
byggðinni vildu þeir fjölga um 50
störf.
Höfuðborgarsvæðið
i heild
Á höfuðborgarsvæðinu var í
janúar nokkur eftirspurn eftir
vinnuafli, í heild er um 200 störf
að ræða, sem er um 0,4% af heild-
armannafla. Á sama tíma í fyrra
vildu atvinnurekendur fækka
störfum um 290. Eftirspurnin var
mest í sjúkrahúsarekstri eða 110
störf, í ýmiss konar þjónustu vildu
atvinnurekendur fækka um 70
störf. í öðrum atvinnugreinum var
eftirspurn að jafnaði meiri en áð-
ur.
Landsbyggðin_______________
í janúar var atvinnuástandið á
landsbyggðinni mun verra en á
höfuðborgarsvæðinu. Þar vildu at-
vinnurekendur fækka störfum um
320 í heild. Á sama tíma í fyrra
vildu þeir hins vegar fjölga störf-
um um 80. í september vildu at-
vinnurekendur á landsbyggðinni
hins vegar fjölga störfum um 365.
Af einstökum atvinnugreinum var
ástandið hvað verst í fiskiðnaði og
byggingarstarfsemi. Nú vilja at-
vinnurekendur fækka um 220
störf í fiskiðnaði sem er nýjung,
líklega má rekja hluta þessa sam-
dráttar til óvissunnar sem ríkti um
loðnuveiðar. I byggingariðnaði
vildu atvinnurekendur fækka um
210 störf á landsbyggðinni.
Lokaorð
Það sem vekur líklega mesta at-
hygli í þessari samantekt er að um
200 fleiri útlendingar hafa verið
ráðnir til fiskvinnslu en atvinnu-
rekendur telja þörf fyrir. f almenn-
um iðnaði ríkir jaínvægi, í bygg-
ingariðnaði er samdráttur, en þörf
er á auknum mannafla í margs
konar þjónustu.