Alþýðublaðið - 28.02.1991, Qupperneq 3
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
j HNOTSKURN
LEYFISGJALD AF FERÐAGJALDEYRI FELLT
NIÐUR ! Viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, hefur ver-
ið iðinn við að koma á frelsi í viðskiptum manna á milli. I
Reglugerð Viðskiptaráðuneytis um gjaldeyris- og við-
skiptamál gerir það að verkum að Samstarfsnefnd um
gjaldeyrismál hefur samþykkt að greiðslukortafyrirtækin
þurfi ekki lengur að innheimta leyfisgjöld af venjulegum
úttektum korthafa á ferðalögum utanlands. Viðskipti
ferðafólks á erlendri grund verða þar með 1% ódýrari en
áður.
VESTFJARÐAGÖNG - AUSTFJARÐAGÖNG: tu
stendur að bora í fjöll landsins svo um munar á næstu ár-
um. Lokaútboð fer nú fram i jarðgöng sem boruð verða á
Vestfjörðum, undir Breiðadals- og Botnsheiði, og mun
verkið hefjast í sumar en ljúka 1995. Kostnaður áætlaður
3 milljarðar króna. Þá er rætt um að í framhaldi af þessari
borun verði farið í samskonar framkvæmdir á Austfjörð-
um. Þar vilja menn losna við tvo illyrmislega fjallvegi,
Oddsskarð yfir til Neskaupstaðar og Fjarðarheiði til Seyð-
isfjarðar. Aætlaður kostnaður eystra er 6—7 milljarðar
króna.
STYTTIÐ LEIT AÐ UPPLÝSINGUM: Stjórnunarfé- I
lagið efnir til námskeiðs 4.-6. mars í skjalastjórnun. Al-
kunna er að með auknu skjalamagni í fyrirtækjum og
stofnunum eru gerðar auknar kröfur til starfsmanna um
skjótan aðgang að upplýsingum. Ástandið í þessum mál-
um er víða afar bágborið — víða finnast umbeðin gögn
seint og illa. Á námskeiðinu munu bókasafnsfræðingarnir
Kristín Ólafsdóttir og Jóhanna Gunnlaugsdóttir leið-
beina um það hvernig fara má með upplýsingar í ýmsu
formi, þannig að stytta megi leitina, þegar á skjölum þarf
að halda.
HUGLEIÐSLA OG JÓGA: sh Chinmoy-setrið mun
halda námskeið í jóga og hugleiðslu dagana 1.—3.mars.
Verða þar kenndar ýmiss konar slökunar- og einbeitingar-
æfingar. Verður sýnd kvikmynd um hlutverk iþrótta í and-
legri þjálfun. Einnig mun margt annað fróðlegt og
skemmtilegt verða á boðstólum. Er námskeiðið ókeypis og
opið almenningi.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN FRUMFLYTUR
RACHMANINOFF: Næstkomandi laugardag kl. 14.30
verða frumflutt tvö verk eftir Rachmaninoff í Háskólabíói.
Bandaríski píanóleikarinn William Black verður einleikari
á tónleikunum. Einnig tekur kór íslensku óperunnar þátt
í flutningnum og þekktir einsöngvarar. Kórstjóri er Peter
Locke.
BÍLSTJÓRASTRÍÐ Á AKUREYRI: Dagursegirfráþví
að stríð hafi blossað upp milli bílstjóra á Bifreiðastöð
Oddeyrar og Giæsibíla. BSO-menn töldu að bílstjóri
Glæsibíla hefði ,,stolið“ frá sér farþega. Stöðvuðu þeir fyrr-
nefndu bílstjóra Glæsibíla við steypustöðina Möl og sand
hf., og urðu þarna hávær orðaskipti milli fylkinganna og
skarst lögregla í leikinn. Farþeginn sem þarna var ,,rænt“
er Bandaríkjamaður og mun hafa orðið nokkuð skrítinn á
svipinn, þegar hann lenti í uppákomu þessari.
TANNLÆKNASTOFA HÆNGS VANN: Fyrirtækja-
keppni Badmintonsambands Islands fór fram í TBR-húsinu
í fyrradag. í fyrsta sæti í aðalflokki sigraði Tannlæknastofa
Hængs 'Þorsteinssonar. I aukaflokki sigruðu leikmenn
Austurbakka hf. og í trimmaraflokki sigraði Samvinnu-
bankinn. Úra- og skartgripaverslunin Jón & Óskar gaf
verðlaunin.
TÍSKUSÝNING HJÁ
MÓDELSAMTÖKUN-
UM: Annað kvöld verður
tískusýning á Dansbarn-
um.. Eru það Módelsamtök-
in og Unnur Arngrímsdótt-
ir sem sjá um sýninguna.
Mun verða kynntur fatnað-
ur og nýjasta línan í hár- og
andlitstísku. Er áætlað að
svona sýningar muni verða
einnig næstkomandi
fimmtiidagskvöld. Hefst þetta klukkan 21.30 annað kvöld.
Nýr rektor tekur viö Háskólanum:
Prófkjör fer
fram á morgun
Nokkurs konar forval
eöa prófkjör fyrir rekt-
orskjör við Háskólann
fer fram á morgun, föstu-
dag. Sigmundur Guð-
bjarnason hefur gengt
embætti rektors í tvö
kjörtímabil, eða í sex ár,
en gefur ekki kost á sér
nú. Aliir prófessorar við
Háskólann eru í kjöri, en
endanleg kosning fer
fram þann 5. april þegar
kosið verður milli þeirra
sem fá flest atkvæði í
prófkjöri.
Þó svo að allir prófessor-
ar skólans séu kjörgengir
við rektorskjör er það eins
og jafnan áður að sumir eru
taldir líklegri en aðrir. Þeir
sem helst eru taldir koma
til greina núna eru eftirtald-
ir: Sveinbjörn Björnsson,
prófessor við raunvísinda-
deild, Tómas Helgason,
prófessor í geðlækningum,
Valdimar K. Jónsson, frá-
farandi deildarforseti verk-
fræðideildar, Þórir Ein-
arsson, prófessor við við-
skipta- og hagfræðideild,
og Þórólfur Þórbndsson,
fyrrverandi deildarforseti
félagsvísindadeildar.
Það eru stúdentar við Há-
skólann og kennarar sem
hafa atkvæðisrétt við rekt-
orskjör. Hins vegar vega at-
kvæði stúdenta 'h en at-
kvæði kennara %. Lítið hef-
ur farið fyrir kosningabar-
áttu kandídata, að minnsta
kosti hefur hún ekki farið
hátt.
Hækkun tekjuskatts skilaði
2,5 milljörðum í ríkissjóð
Tekjuskattshækkun í
kjölfar upptöku virðis-
aukaskattsins skilaði rík-
issjóði óvænt 2,5 milljörð-
um króna í fyrra. Atvinna
jókst í landinu í fyrra um
1% og það skilaði um 1,5
milljörðum króna í tekju-
skatti. Þrátt fyrir samdrátt
í neyslu í fyrra er hagur
ríkissjóðs góður, m.a.
vegna þess að tekjuskatt-
ur var hækkaður við upp-
töku virðisaukaskatts.
Innheimtur tekjuskattur
einstakiinga jókst um
fjórðung í fyrra að mati
fjármálaráðuneytisins.
I fyrra urðu tekjur af óbein-
um sköttum — eins og virðis-
aukaskatti — minni en árið
áður. Fjármálaráðuneytið
segir að það eigi fyrst og
fremst rætur að rekja til þeirr-
ar ákvörðunar að lækka hlut-
fall nýja virðisaukaskattsins í
nýja skattkerfinu. Hlutfall
tekjuskatts var þá hækkað á
móti og það er ein af ástæð-
um þess að staða ríkissjóðs
var betri i árslok 1990, að
raungildi um 2,5 milljarðar
króna miðað við árið 1989.
Atvinnutekjur jukust meira
á landinu í fyrra en gert hafði
verið ráð fyrir. Milli áranna
1989 og 1990 jukust þær um
11% og um 8—9% yfir árið
1990. Þar sem verðbólgan
var um 7% á árinu 1990 hefur
heildarkaupmáttur aukist lít-
illega. Upplýsingar eru þó
ekki einhlítar. Kaupmáttur
tímakaups er að öllum líkind-
um óbreyttur. Magnús L.
Sveinsson, formaður Verslun-
armannafélags Reykjavíkur,
telur að yfirborganir hafi ver-
ið nokkrar í fyrra hjá sínum
félögum.
Álver í
undirbúninei:
600
millj.
hafa
farið i
kostnað
Heildarkostnaður við
undirbúning álvers á Is-
landi er um 600 milljónir
króna það sem af er.
Landsvirkjun á stærstan
hlut vegna undirbúnings
virkjana og stofnlína. Einu
verki er þegar lokið, en
það er vegalagning á
Fljótsdalsheiði.
Samningar um hag-
kvæmniathugun voru undir-
ritaðir 4. júlí 1988. Frá þeim
tíma hefur Landsvirkjun var-
ið 517 milljónum króna, en
markaðsskrifstofa iðnaðar-
ráðuneytis og Landsvirkjun-
ar 78 milljónum. Fjöldi út-
boða hefur farið fram, en
með útboðsgögnum er vænt-
anlegum bjóðendum gert
Ijóst að framkvæmdir eru
háðar endanlegu samkomu-
lagi og heimildum Alþingis
og stjórnvalda.
Einu verki er þegar lokið.
Það er vinnuvegur á Fljóts-
dalsheiði, en samningsupp-
hæðin var 47,7 milljónir kr.
Þá á gerð 100 metra aðkomu-
ganga að stöðvarhúsi að vera
lokið í vor. Kostnaður við þau
er 44,8 milljónir kr.
Um hádegisbilið í gær kom upp eldur í húsinu við Njáisgötu 21. Talið er að útigangsmenn hafi
haft afdrep í húsinu, en óvíst er hvort rekja má eldsupptök til ferða þeirra. Engin slys urðu á
fólki en slökkviliðsmaður fékk í sig rafstraum en sakaði ekki aö öðru leyti.
A-mynd E.ÓI.