Alþýðublaðið - 28.02.1991, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 28. febrúar 1991
Könnun Verdlagsstofnunar á verði bankaþjónustu:
Laitdsbcmkiitit er ódýrastur
en sparisjóðir dýrastir
Heildarútgjöld einstaklings
vegna ímyndaðra bankavið-
skipta á einu ári eru lægst hjá
Landsbanka Islands en hæst hjá
sparisjóðunum. Þetta kom fram í
könnun sem Verðlagsstofnun
gerði með því að búa til dæmi um
viðskipti miðað við verðskrár
bankanna eins og þær voru 1.
janúar síðastliðinn.
Dæmin sem könnuð voru miðast
við ársútgjöld vegna tékkareikn-
ings, víxla- og skuldabréfaviðskipta
og gjaldeyriskaupa. Annars vegar
er dæmi um einstakling sem innir
allar greiðslur af hendi á gjalddaga
en hins vegar dæmi um einstakling
sem lendir í vanskilum með hluta af
sínum greiðslum.
í fyrra dæminu var kostnaður
sparisjóðanna 7,1% hærri en kostn-
aður Landsbankans og í hinu dæm-
inu var kostnaður sparisjóðanna
6,6% hærri en kostnaður Lands-
bankans. Fyrra dæmið kostaði
59.092 krónur í Landsbanka, 61.781
kr. í Búnaðarbanka og 62.545 í ís-
landsbanka en 63.271 krónu í spari-
sjóðunum samtals. í síðara dæminu
var heildarkostnaður samtals
m
I
Landsbankinn tekur lægri gjöld fyrir sina þjónustu en aðrir bankar og sparisjóðir.
70.648 í Landsbanka, í Búnaðar-
banka 71.540 og 75.009 í íslands-
banka en 75.340 í sparisjóðunum.
Þá kom fram að útlagður kostnað-
ur og fleira vegna skuldabréfa var
um 47% hærri hjá íslandsbanka en
Búnaðarbankanum. Gjald vegna
innheimtu á skuldabréfi var 43%
hærra hjá Búnaðarbankanum en
Landsbankanum og tékkhefti voru
14% dýrari hjá sparisjóðunum en
bönkunum.
Tjón vegna óvedursins:
Greiðslur allt
að 200 millj*
Starfsmenn tryggingafélaga
eru enn önnum kafnir við að
kanna og meta tjón sem varð í
óveðrinu sem gekk yfir landið
þann 3. febrúar. Enn er ekki ljóst
hve tjónagreiðslur verða háar,
en hjá Vátryggingafélagi Islands
einu saman er búist við að
greiðslur verði 150 til 200 millj-
ónir króna.
Hjá Vátryggingafélaginu er áætl-
að að þar séu milli átta hundruð og
eitt þúsund tjón til afgreiðslu, að því
er fram kemur í fréttabréfi félagsins.
Stærsta tjónið sem þá var til af-
greiðslu hjá félaginu var metið á
átta milljónir króna og vitað var um
mörg tjón á bilinu tvær til sex millj-
ónir króna.
Félagsstarf aldraðra
í Hafnarfirði
Kynnum fyrirhugaða sólarlandaferð á fundi
fimmtudaginn 28. febrúar 1991 í íþróttahúsinu við
Strandgötu kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Kosningaskrifstofa
Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi
Kosningaskrifstofan
Strandgötu 26—28, 3.
hæð, Hafnarfirði, verð-
ur opin fyrst um sinn
kl. 13—17 virka daga.
Símar 650075 og
650472. _. .. ..
Sigfus Jonsson,
kosningastjóri.
Vesturland
ísland í A-flokk
Ólafsvík — Hellissandur
Almennir stjórnmálafundir Alþýðuflokksins í Vest-
urlandskjördæmi hefjast sunnudaginn 3. mars.
í félagsheimilinu Röst, Hellissandi kl. 16.00.
í félagsheimilinu í Ólafsvík kl. 20.30.
Þrír efstu menn A-listans í Vesturlandskjördæmi
Eiður Guðnason, Gísli S. Einarsson og Sveinn Þór
Elínbergsson flytja stutt ávörp og svara fyrirspurn-
um.
Alþýðuflokkurinn.
Péiur á leiðinni
i
Hann er hress i bragöi smiðurinn sem stendur á dyraskyggni Þjóðleikhússins enda miöar uppbyggingu hússins
vel. Þess mun skammt að bíða að Þjóöleikhúsið verði opnað á nýjan leik meö sýningu á Pétri Gaut.
A-mynd: E. Ól.