Alþýðublaðið - 28.02.1991, Qupperneq 8
GEVAUA
I Það er kaffið 687510
• • • • • • •
• • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • • • •
• • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • •
OUUVERÐ A UPPLEIÐ: Hækkun varð á hráolíu á mörkuðum í
gær þegar fréttir bentu til þess að Persaflóastríði væri að ljúka. Töldu
menn að OPEC-ríki tækju ákvörðun um að draga úr framleiðslu á fundi
sem boðað er til í Vín þann 11. mars. Þetta gengur þvert á alla spádóma
um verðlækkun á olíu í kjölfar vopnahlés við Persaflóa.
GREENPEACE GEGN BRÚ MILLI DANMERKUR OG SVÍ-
ÞJOÐAR ! Umhverfissamtökin Greenpeace tilkynntu í gær að fyrir-
huguð bygging brúar milli Danmerkur og Svíþjóðar gæti valdið frekari
spjöllum í hinu mengaða Eystrasalti. Samtökin hvöttu til tafarlausra
umræðna um málið áður en lokaákvörðun um brúna yrði tekin. Brúin
á að ná yfir Eyrarsund milli Danmerkur og Malmö og verður 17 km
löng. Ef af verður á brúin að verða tilbúin árið 1998. Greenpeace telur
að brúarsmíðin verði til að draga úr straumi af söltum sjó inn í Eystra-
salt sem hafi hjálpað til að losa um mengun í hafinu.
ATVINNULEYSI MÓTMÆLT í AUSTURHLUTA ÞÝSKA-
LANDS ! Tugþúsundir manna fóru í mótmælagöngu í gær í þeim hluta
Þýskalands sem áður tilheyrði Austur-þýskalandi. Fólkið var að mót-
mæla atvinnuleysi og hruni ríkisrekinna fyrirtækja. Atvinnuleysi í
þessum landshluta hefur farið hraðvaxandi og eru nú liðlega 757 þús-
und manns án atvinnu, eða 8,6% af vinnuafli.
BORG SKIPTIR UM HEITI: B0rg í
Sovétríkjunum sem nefnd var eftir
Vladímír Lenín hefur fengið nýtt heiti
og er það í fyrsta sinn í sögu Sovétríkj-
anna sem slíkt á sér stað. Þing Mið-Asíu-
ríkisins Tadjikistan hefur samþykkt að
borgin Lenínbad skuli fá aftur sitt
forna heiti, sem er Khúdzhand.
M - 4
SKAUT/S^
___ SVELUÐ
■■^■1 laugardalI
OPNUNARTÍMI
BARNATÍMAR
m Mónud. I0-12 Þriðjud. 10-12 Miðvikud. 10-12 fimmtud. 10-12 Föstud. 10-12 Laugord. Sunnud.
A LMEh INIR' rÍMAR
m 13-22 13-18 13-22 13-18 13-22 13-18 13-18
Æ FING/ iR
3 18-22 18-22 10-13 18-20 10-13 18-20
NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 685533
*
Irakar bjóöa vopnahlé:
Bandamenn vilja
algjöra uppgjöf
Flestir írösku hermennirnir kusu frekar að gefast upp en að berjast.
írakar tilky nntu síðdegis í gær
að þeir hefðu fallist á kröfur Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um að láta af tilkalli sínu tii Kú-
veits og væru farnir þaðan með
her sinn. Þá væru þeir tilbúnir
til að greiða stríðsskaðabætur
gegn því að bandamenn sam-
þykktu vopnahlé við Persaflóa.
Irakar sögðust sleppa stríðs-
föngum í kjölfar vopnahlés. Út-
varpið í Bagdad sagði að Tareq
Aziz utanríkisráðherra hefði í
bréfi til framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, Perez de Cuell-
ar, fallist á kröfur Öryggisráðs-
ins númer 662 og 674. Talsmað-
ur Hvíta hússins í Washington,
Marlin Fitzwater, sagði að sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
Bandaríkjamenn hefðu fengið
hefðu Irakar aðeins samþykkt
þrjár af 12 kröfum Öryggisráðs-
ins.
Seint í gærdag var boðað til fund-
ar í Öryggisráðinu til að ræða bréf
íraka en það mun hafa verið samið
á þriðjudagskvöld. Bandaríkja-
menn sögðust ekki til viðtals um
vopnahlé fyrr en írakar hefðu lagt
niður vopn. Áður höfðu þeir lýst því
yfir að þótt írakar drægju sig út úr
Kúveit þyrfti það ekki að þýða enda-
lok stríðsins. Bandamenn vildu
draga mjög úr styrkleika íraska
hersins ef svo færi að Saddam Hus-
sein yrði áfram við völd að stríðinu
loknu.
Herir bandamanna umkringdu
flýjandi hersveitir íraka á leið frá
Kúveit í gærdag. Deild úr úrvals-
sveitum Husseins reyndi að veita
mótspyrnu en haldið var uppi stöð-
ugum árásum á hana úr lofti og af
láði. Lið bandamanna frá Bandaríkj-
unum, Saúdi-Arabíu, Bretlandi, Eg-
yptalandi, Frakklandi, Kúveit og
Sýrlandi hafði ígær yfirbugað 26 af
42 herdeildum Iraka sem voru í Kú-
veit og Suður-írak. Bandamenn
sögðust hafa náð um 60.000 stríðs-
föngum en gáfu engar upplýsingar
um mannfall í liði íraka. Banda-
menn tilkynntu um 75 fallna úr sín-
um röðum, þar af eru 28 bandarískir
hermenn sem féllu í eldflaugaárás
íraka á Saúdi-Arabíu.
Mitterrand forseti Frakklands
sagði í gærdag, að vopnahlé yrði að
koma á eftir að Saddam Hussein
hefði fallist á skilyrði Sameinuðu
þjóðanna en ekki áður. Loftárásum
var haldið áfram á Bagdad í gær.
Síðdegis nötraði borgin af þremur
kraftmiklum eldflaugasprenging-
um. Rashid hótelið, þar sem höfuð-
stöðvar vestrænna fréttamanna
eru, skalf og gestir þustu út. Þessi
árás var gerð tæpum tveim tímum
eftir að Irakar höfðu leitað eftir
vopnahléi.
Ljóst er að gífurleg eyðilegging
hefur orðið á þeim sex vikum sem
stríðið hefur staðið. Því er haldið
fram að það taki eitt ár að koma raf-
magnskerfi Bagdad í lag þar sem
raforkustöðvar séu meira og minna
ónýtar eftir linnulausar loftárásir.
Sendiherra Kúveits í Bretlandi
sagði í gær, að það kostaði allt að 50
milljarða dollara að byggja ríkið upp
að nýju því írakar hefðu skilið við
það sem rjúkandi rúst. Uppbygging-
in gæti tekið tíu ár.
Allharðir bardagar voru um flug-
völlinn við Kúveitborg og banda-
menn segja að þar hafi 100 skrið-
drekar íraka verið eyðilagðir. Allt
Kúveit hefur verið frelsað undan
Irökum og bandamenn segja að
styrjöldinni sjálfri sé að ljúka. Yfir-
maður hers Saúdi-Araba varaði
brottflúna Kúveita við að flýta sér
heim um of. Hann sagði að írakar
hefðu komið fyrir sprengjum innan
dyra og utan í borginni.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) ÁKR. 10.000,00
1982- 1.fl. 1983- 1 .fl. 1984- 2.fl. 1985- 2.fl.A 1985-2.fl.B 01.03.91-01.03.92 01.03.91-01.03.92 10.03.91-10.09.91 10.03.91-10.09.91 10.03.91-10.09.91 kr. 127.257,41 kr. 73.936,79 kr. 53.937,24 kr. 35.233,98 kr. 24.285,71**)
*)lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiöar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, febrúar 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS