Alþýðublaðið - 12.03.1991, Síða 12

Alþýðublaðið - 12.03.1991, Síða 12
12 Helgi Skúli Kjartansson Síðustu áratugir hafa að mörgu leyti verið sviptingaskeið í sögu Alþýðuflokksins. Gengi hans hefur verið mjög breytilegt, mannaskipti tíð í flokksforustu og áherslu- breytingar miklar í starfsháttum og málflutningi. Lengst af hefur flokkurinn verið í stjórnarandstöðu. Enn einu sinni varð hann fyrir því óhappi að klofna vegna ágrein- ings í forustuliði, en einnig hafa nýir hópar gengið til samstarfs við hann. Um 1970 varð veruleg eðlisbreyt- ing á íslenskum stjórnmálum, þann- ig að síðastliðin 20 ára hafa stjórn- málaflokkarnir starfað í öðru um- hverfi en fyrsta aldarfjórðung lýð- veldisins. Breytingin er ekki síst sú að fylgi flokkanna er orðið miklu hreyfan- legra en verið hafði. Minna er um að ungir kjósendur taki (eða erfi) tryggð við stjórnmálaflokk fyrir lífs- tíð, en meira um að fólk geri upp ‘ hug sinn til flokkanna að nýju fyrir hverjar kosningar. Að þessu leyti er lýðræðið orðið virkara. Einnig hafa prófkjör verið miklu meira notuð á þessu tímabili en hinu fyrra, jafnvel meira og minna opin prófkjör, og hefur það á sinn hátt víkkað vett- vang lýðræðisins í starfi stjórnmála- flokka. Enn má nefna skoðanakann- anir, sem mjög hafa aukið við- bragðsflýti almenningsálitsins hvað varðar aðhald að stjórnmálamönn- um og flokkum, og miklu gagnrýnni fjölmiðlun en áður þekktist. Mótmælahreyfing ungu kynslóð- arinnar — sem oft er kennd við árið 1968, ár stúdentauppreisna í Banda- ríkjunum og Vestur-Evrópu — átti sinn þátt í að ryðja braut nýjum við- horfum í íslenskum stjórnmálum. Hugmyndir þessarar hreyfingar tengdust almennri vinstri sveiflu, svo og pólitískri kvennavakningu. Þótt róttækni áttunda áratugarins hafi á ýmsum sviðum fjarað út á hin- um níunda, hafa breytingarnar á eðli stjórnmálanna reynst varanleg- ar. Gagnrýni á flokkana og sjálft flokkakerfið hefur einkennt stjórn- mál tímabilsins. Stjórnmálaforingj- ar hafa reynst valtir í sessi, starfs- hættir flokkanna oft umdeildir, og tilraunir hafa verið gerðar til breyt- inga á flokkakerfinu. M.a. hefur hugmyndin um sameiningu vinstri manna eða vinstri flokka verið líf- seig á þessum áratugum, þótt í reynd hafi ekki síður borið á klofn- ingi flokka, bæði til vinstri og hægri. Aherslur stjórnmálanna hafa á þessum 20 árum færst töluvert milli málaflokka. Afstaðan til NATO-að- ildar og bandarískrar herverndar hafði lengi verið skýrasta ágrein- ingsmál íslenskra stjórnmála (and- staða við herinn afmarkaði t.d. löng- um „vinstri arm“ Alþýðuflokksins), en upp úr 1970 fór mikilvægi þess í flokkapólitík að dala. Áhrif komm- únismans sem alþjóðlegrar hug- myndastefnu dvínuðu einnig á tíma- bilinu. Hvort tveggja gerðist löngu fyrir þá stórviðburði allra síðustu ára sem e.t.v. má kenna við „hrun kommúnismans" og „endalok kalda stríðsins". Formannaskipti hafa verio or a siðustu tveimur aratugum. Her osk- ar Benedikt Gröndal Kjartani Jóhannessyni til hamingju eftir að sá síðarnefndi felldi hinn fvrrnefnda í formannskiöri á flokksbinainu siðarnefndi felldi hinn fyrrnefnda í formannskjöri á flokksþinginu 1980. filmundur Gylfason: Einn svip- mesti stjórnmálamaður jafnaðar- manna á áttunda áratugnum og í upphafi hins níunda. Hinn mikla kosningasigur Alþýðutlokksins 1978 má beint rekja til vinsælda Vilmundar meðal kjósenda. Hann var málsvari uppstokkunar flokka- kerfis, stjórnhátta og atvinnulífs og talsmaður siðbótar í íslensku þjóðlífi. Ágreiningur um stefnumál Vilmundar og persónu leiddi til þess að hann klauf sig úr flokkn- um fyrir kosningarnar 1983 og stofnaði Bandalag jafnaðarmanna. BJ sameinaðist að stærsta hluta aftur Alþýðuflokknum á flokks- þinginu 1986. Hins vegar hafa ýmsar hliðar efnahagsmála færst mjög í sviðsljós- ið, t.d. byggðastefna, stóriðja, frjáls- ræði í viðskiptum og viðskiptasam- vinna Evrópu, og ekki síst baráttan við verðbólguna. Island hafði að vísu búið við verðbólguvanda allt lýðveldistímabilið, en með olíu- kreppunni fyrri 1973 færðist hann á nýtt og alvarlegra stig, og er það varla fyrr en nú á þessum misserum að sá vandi virðist að nokkru marki yfirstiginn. Sfðasta viðreisnarstjórnin, ráðuneyti Jóhanns Hafsteins 1970 - 71. Frá vinstri: Auður Auðuns dóms- og kirkjumálaráðherra, Magnús Jónsson fjármálaráðherra, Ingólfur Jónsson landbúnaðar- og samgöngumála- ráðherra, Jóhann Hafstein forsætis- og iðnaðarráðherra, dr. Kristján Eld- járn forseti íslands, Emil Jónsson utanríkis- og félagsmálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason menntamála- og viðskiptaráðherra og Eggert G. Þor- steinsson sjávarútvegs- heilbrigðis- og tryggingamálaraðherra. Að baki til vinstri situr Guðmundur Benediktsson rikisráðsritari. Kosningoófföll Gengið var til kosninga 1971, eftir tólf ára setu viðreisnarstjórnarinnar. Þá gerðist það í fyrsta sinn síðan 1927 að ríkisstjórn missti meirihluta sinn í kosningum og stjórnarand- staðan tók við völdum. (Það hefur raunar ekki heldur gerst síðan. Missi rikisstjórnir þingmeirihluta gerist það fyrir kosningar, og við stjórnar- skipti situr a.m.k. Framsóknarflokk- urinn áfram í næstu samsteypu- stjórn.) Fylgistap viðreisnarstjórnarinnar kom einkum niður á Alþýðuflokkn- um. I honum gætti þreytu og óþols eftir hið langa samstarf þar sem sumum flokksmönnum fannst eðli flokksins sem verkalýðsflokks ekki njóta sín. Þá var staðan í landhelgis- málinu erfið fyrir Alþýðuflokkinn, sem farið hafði með utanríkismál á viðreisnartímanum. Endi var bund- inn á þorskastríðið með samningum við Breta 1961, sem m.a. fólu í sér lögsögu Alþjóðadómstólsins ef deila risi um frekari útfærslu fiskveiðilög- sögu. Þróun hafréttarmála varð síð- an stirðari en íslendingar höfðu gert ráð fyrir, svo að einhliða útfærsla fiskveiðilögsögu þoldi náumast bið, og þá gat samningurinn við Breta orðið málstað Islands fjötur um fót. um fót. Skæðasti keppinautur Alþýðu- flokksins 1971 var nýr stjórnmála- flokkur, Samtök frjálslyndra og vinstri manna, undir forustu einsk- is annars en Hannibals Valdimars- sonar, sem orðið hafði viðskila við Alþýðubandalagið í kosningunum 1967. Þá bauð hann sig fram á sér- stökum lista, þó undir nafni Alþýðu- bandalagsins, og fékk verulegt fylgi. Samtökin kynntu sig sem jafnaðar- mannaflokk. Þau voru andstæð við- reisnarstjórninni og á öndverðum meiði við Alþýðuflokkinn hvað varðaði hervernd, landhelgismál o.fl., en höfðu það þó að megin- markmiði að sameinast Alþýðu- flokknum og sameina um leið alla lýðræðissinnaða vinstri menn, einnig úr Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki. Samtökin urðu til við klofning Alþýðubandalagsins, en þau sóttu fylgi sitt mest til Al- þýðuflokksins. Eftir kosningar var mynduð ný vinstri stjórn af Framsóknar- flokki, Alþýðubandalagi og Samtök- unum. Alþýðuflokknum var boðin stjórnaraðiíd sem hann var, eftir kosningaútreiðina, ekki í aðstöðu til að þiggja. Að sjálfsögðu var torvelt að vinna að sam- einingu jafnaðar- flokkanna tveggja þegar annar var innan stjórnar og hinn utan. Þó var á ýmsan hátt unn- ið að málinu og tilraun gerð með sameiginlegt framboð til borg- arstjórnar í Reykjavík 1974, en árangur þess lofaði ekki góðu. Vandinn var raunar sá að Samtökin voru að liðast i sund- ur. Þess vegna hafði líka ríkis- stjórnin misst starfhæfan meirihluta og flýtti þingkosn- ingum til 1974. Samtökin höfðu þá misst fylgi sitt að mestu, enda höfðu margir for- göngumenn þeirra yfirgefið flokkinn og sumir tekið upp sam- starf við Alþýðuflokkinn. Þótt hann væri þannig laus við sinn skæðasta keppinaut, og hefði fengið liösstyrk sem um ætti að muna, hélt hann áfram að tapa, fékk 9% atkvæða sem var hans langminnsta fylgi síð- an 1919. Framtíð flokksins var bersýnilega í hættu. Staða hans var sú að eiga engan vísan bakhjarl, ekki í fjöl- mennu fastafylgi, ekki í stuðningi gróinna afla atvinnulífs eða fjölda- hreyfinga. En að sama skapi var hann tiltölulega óbundinn af sér- hagsmunum og frjáls að taka upp málefni sem aðrir sniðgengu. Skyndisókn og ný kloffning____________________ Alþýðuflokkurinn gekk nú í end- urnýjun lífdaganna á róttækari hátt en títt er um stjórnmálaflokka. Ný kynslóð lét til sín taka í flokknum, og kvað þar mest að Vilmundi Gylfasyni sem áður var kunnur úr fjölmiðlum sem óvæginn gagnrýn- andi margra hluta í stjórnkerfi og embættisfærslu. Starfsháttum flokksins var breytt, m.a. með því að gera opin prófkjör að reglu. Þau greiddu fyrir mannaskiptum í for- vígissveit flokksins og gerðu um leið þingmenn sjálfstæðari gagnvart flokksaga. Flokkurinn varð að vissu Hannibal Vald- imarsson sýndi að hann var ekki dauð- ur úr öllum pólitískum æð- um þegar hann óvænt gerðist leiðtogi nýs flokks, Sam- taka frjáls- lyndra og vinstri manna 1971 og varð félagsmála- og samgöngu málaráðherra eftir kosningar í stjórn Ólafs Jóhannes- sonar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.