Alþýðublaðið - 12.03.1991, Síða 13

Alþýðublaðið - 12.03.1991, Síða 13
13 A Iþýð uflokku rinn Alþýðublaðið í dacj: Endur- speglar fjölbreytm og at- burðarhraða í íslensku nú- tímaþjóðfélagi jafnt sem á erlendum vettvangi; stuttar og samþjappaðar fréttir f bland við vandaðar og ítarlegar fréttaskýringar. Og blaðið er sem fyrr málsvari lýðræðislegrar jafnaðarstefnu. Þrír farsælir ráðherrar Alþýðuflokksins á yfirstandandi kjörtímabili: Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir féiags- malaráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. f ríkisstjorn Þorsteins Pálssonar 1987 — 88 var Jón Sigurðsson ennfremur dóms- og kirkjumálaráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar: Svavar Gestsson menntamála- ráðherra, Oli Þ. Guðbjartsson dóms- og kirkjumálaráðherra, Júlíus Sólnes umhverfisráðherra, JóhannaSigurðardóttir félagsmálaráðherra, Guð- mundur Bjarnason landbúnðarráðherra, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra, Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra, Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra, Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgönguráðherra. leyti „bandalag prófkjörssigurveg- ara“ (eins og haft var eftir einum þeirra), og leiðir opnuðust fyrir fólk sem hafði getið sér orðstír á öðrum vettvangi þótt það ætti ekki langt starf að baki í flokknum. Við næstu kosningar, 1978, voru svo skjót umskipti orðin á gengi Al- þýðuflokksins að hann vann mesta kosningasigur sögu sinnar og þing- flokkurinn stækkaði úr fimm mönn- um í fjórtán. Alþýðubandalagið hlaut einnig góða kosningu, og nutu ,,A-flokkarnir“ þess í sameiningu að hafa verið í stjórnarandsföðu á tím- um óvinsælla efnahagsráðstafana sem beindust að skerðingu umsam- inna launakjara. „Samningana í gildi" var vígorð kosningabarátt- unnar, og úrslitin má kalla vinstri sveiflu. (Hún hafði einnig komið fram í sveifarstjórparkosningum sama ár þar sem Sjálfstæðisflokkur- inn missti meirihluta sinn í Reykja- vík). Jafnframt hafði Alþýðuflokk- urinn náð til kjósenda með breytt- um vinnubrögðum og með róttæk- um breytingakröfum á ýmsum svið- um. Mynduð var ný vinstri stjórn, hin þriðja, undir forsæti Framsóknar- flokksins eins og þær fyrri. Hafði hann þó beðið afhroð í kosningun- um, enda sætt mjög hörðum ádeil- um, einkum frá Alþýðuflokknum. Stjórnin kom ýmsum breytingum til vegar, og má einkum minnast þess að hún heimilaði að verulegu leyti verðtryggingu lánsfjár, en verðbólgugróði af lánum hafði ein- mitt verlð eitt helsta gagnrýnisatriði Alþýðuflokksins. En í heild gekk stjórnarsamstarfið að mati Alþýðu- flokksmanna illa, svo að þeir rufu það eftir rúmt ár og mynduðu minnihlutastjórn sem Sjálfstæðis- flokkurinn varði falli fram yfir kosn- ingar. Við vetrarkosningar síðla árs Alþýðuflokkinn á þessum tveimur áratugum, og önnur mannaskipti hafa einnig verið ör í forustu flokks- ins. Gylfi Þ. Gíslason, aðaltalsmaður flokksins í viðreisnarsamstarfinu, hafði tekið við formennsku af Emil Jónssyni og stýrði flokknum á erfið- leikaskeiðinu eftir 1970. Þá vék hann fyrir Benedikt Gröndal, yngri manni og þó gamalreyndum á þingi, sem var í forsvari í sigurkosningun- um 1978 og hinni skammvinnu stjórnarsamvinnu sem á eftir fylgdi. Hann var forsætisráðherra minni- hlutastjórnarinnar 1979—80. Vara- formaður hans var Kjartan Jó- hannsson, ungur maður sem var að hefja stjórnmálaferil sinn. Hann tók við formennsku eftir mótframboð Jón Baldvin Hannibalsson og Jóhanna Sigurðardóttir fagna formanns- og varaformannskjöri á flokksþinginu 1984. Þessi forysta hefur þrívegis ver- ið endurkjörin. 1979 kom í ljós að fylgi Alþýðu- flokksins var strax farið að dvína, og á næsta kjörtímabili var hann aftur utan stjórnar. A þeim árum magn- aðist ágreiningur í flokknum, sem mjög snerist um persónu og stefnu- mál Vilmundar Gylfasonar. Hann náði ekki kjöri sem varaformaður flokksins, og fyrir kosningarnar 1983 stofnaði hann nýjan flokk^ Bandalag jafnaðarmanna. f þriðja sinn hafði Alþýðuflokkurinn klofnað við brotthvarf áhrifamikils forustumanns, en ólíkt flokksbrot- um Héðins og Hannibals tengdist fyJking Vilmundar ekki öðrum flokkum. Til samans héldu Alþýðuflokkur- inn og Bandalagið nokkurn veginn fylgi Alþýðuflokksins frá 1979. Ár- angur Bandalagsins mátti kallast góður af nýjum flokki, en dugði þó ekki til að það yrði varanlegt afl. Báðir flokkarnir lentu utan stjórnar, og rann Bandalagið að hluta inn í Alþýðuflokkinn síðar á kjörtímabil- inu. Siðustu timar Tíð formannaskipti hafa einkennt I formennskutíð Jóns Baldvins Hannlbalssonar hafa jafnaðar- menn sameinast meir en fyrr í Al- þýðuflokknum. 1986 gekk obbinn af fylgismönnum Bandalags jafn- aðarmanna til liðs við flokkinn. Eft- ir endanlegt hrun kommúnismans í Austur — Evrópu og fjörbrot hans í Sovétríkjunum, hafa æ fleiri lýð- ræðissinnnaðir jafnaðarmenn gengið til liðs við Alþýðuflokksinn, ekki síst úr Alþýðubandalaginu. Hér óskar formaður Alþýðuflokks- ins Ossuri Skarphéðinssyni fyrrum ritstjóra Þjóðviljans og eiginkonu hans Arnýju Sveinbjörnsdóttur til hamingju með 3. sætið í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík í febrúar 1991. gegn Benedikt og var formaður á því skeiði sem einkenndist af deil- um um Vilmund Gylfason og af klofningi flokksins við stofnun Bandalags jafnaðarmanna. Kjartan féll síðan í formannskjöri 1984 fyrir Jóni Baldvin Hannibals- syni, ritstjóra Alþýðublaðsins, en hann var einn þeirra manna úr for- ustusveit Samtaka frjálslyndra og vinstri manna sem gengið höfðu til liðs við Alþýðuflokkinn. Raunar hefur ein gömul hugsjón Samtakanna sett nokkurn svip á Al- þýðuflokkinn undir forustu Jóns Baldvins, þ.e. sú stefna að sameina sem mest lýðræðissinnaða vinstri menn — og þá utan um Alþýðu- flokkinn sem kjarna — til að mynda pólitískt meginafl ,,á vinstri væng“ íslenskra stjórnmála, hliðstætt og jafnaðarflokkarnir hafa verið í flest- um nálægum löndum, en Alþýðu- flokknum auðnaðist ekki að verða, sem e.t.v. má kenna hinum örlaga- ríku klofningum hans, einkum 1938. í þessum anda gekk hluti af Bandalagi jafnaðarmanna í Alþýðu- flokkinn og síðan hafa hópar úr Al- þýðubandalagi tekið upp samstarf við hann (m.a. um borgarstjórnar- framboð í Reykjavík 1990) og jafn- vel gengið í hann. Fyrir Alþingiskosningar 1987 taldi Alþýðuflokkurinn stöðu sína sterka, jafnvel í átt við það sem ver- ið hafði 1978. Árangur hans í sveit- arstjórnarkosningum árið áður hafði verið góður, í sumum kaup- stöðum glæsilegur. Nýtt fólk var tal- ið styrkja framboðslista flokksins, og skoðanakannanir sýndu mikið fylgi hans. Sviptingar kosningabar- áttunnar, einkum stofnun Borgara- flokksins, urðu hins vegar til þess að Alþýðuflokkurinn féll nokkuð í skuggann og sigur hans varð smærri en vonir stóðu til. Þó má segja að það ynnist til baka sem tap- ast hafði við klofninginn 1983. Alþýðuflokksmönnum fannst nú tími til kominn að standa að stjórn- armyndun, eftir að hafa aðeins ver- ið í stjórn hálft annað ár af síðast- liðnum sextán árum. Niðurstaðan varð samstjórn með Sjálfstæðis- flokki og Framsóknarflokki (eins og 1946—49), þar sem Alþýðuflokkur- inn stóð að því leyti veikt að stjórn- armeirihlutinn valt ekki á honum. Meginveikleiki stjórnarinnar reynd- ist þó sá, að stjórnarforusta Sjálf- stæðisflokksins var ekki trúverðug í augum samstarfsflokkanna. Þeir rufu því samstarfið og sneru sér til Alþýðubandalagsins (ásamt fleiri einingum stjórnarandstöðunnar) til að mynda núverandi ríkisstjórn. Og svo er enn komið að kosning- um. En um þær er eins og annað í sögunni: Það er ábyrgðarminna að tala um þær eftir á.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.