Alþýðublaðið - 19.03.1991, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.03.1991, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 1991 Sendiherraherra snýr aftur Sendiherra Sovétríkjanna á íslandi, ígor S. Krasavín, er væntanlegur aftur til íslands á næstunni. Þetta kemur fram í viðtali Alþýðublaðsins við Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sem birtist í blaðinu í dag. Eins og kunnugt er var Krasavín sendiherra kallaður heim til Moskvu eftir för Jóns Baldvins Hannibalssonar ut- anríkisráðherra til Eystrasaltsríkjanna í janúar sl. Sovét- menn mótmæltu þeirri för með þeim orðum að íslending- ar hefðu gert íhlutun í innri málefni Sovétríkjanna. I viðtalinu við Jón Baldvin kemur fram, að íslensk yfir- völd hafi óskað eftir fundi með utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna til að skýra málstað íslendinga gagnvart Eystra- saltsríkjunum og gefið kost á þremur dagsetningum í þess- um mánuði til þeirra funda. „Sovétmenn hafa hins vegar ekki gefið kost á því þar til nú nýlega er þeir boðuðu að sendiherrann sneri aftur á sinn póst." segir utanríkisráð- herra við Alþýðublaðið. NÆTURFUNDUR UM ÁL: Seint í gærkvöldi hafði ekki samist við stjórnarandstöðu um lyktir álmálsins á Al- þingi. Búist var við umræðum yrði haldið áfram um álmál- ið undir miðnætti og síðla nætur kæmust lánsfjárlög á dag- skrá í neðri deild. Breytingartillögur lágu fyrir fundi i neðri deild og verður því að fjalla um lánsfjárlögin að nýju í efri deild. Fyrir hádegi í dag verður væntanlega fjallað um mál, sem talið er að náist að afgreiða að fullu fyrir hádegi, og að þingi verði slitið síðdegis. Mikil óvissa ríkti í allan gærdag og höfðu þingmenn enga hugmynd um hvaða máli næðu í gegn. í gærkvöldi skýrðust mál lítið og virtust þing- menn hafa gefist upp á því að reyna að spá í framvinduna. JAPANIR LÁNA FLUGLEIÐUM: Flugleiðir hf. hafa tekið að láni 1,7 milljarða króna vegna kaupa Boeing 737-400 þotu sem afhent verður félaginu eftir rúman mán- uð. Það eru tveir japanskir bankar sem lána féð, þeir hinir sömu og fjármögnuðu kaup á samskonar þotu á síðasta ári. Lýkur þar með endurnýjun á flugflota félagsins í milli- landaflugi, sem verður hinn yngsti hjá nokkru flugfélagi i Evrópu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ UM UTANRÍKISMÁL: Alþýðu- blaðið er í dag 20 síður og helgað að mestu utanríkismál- um. Blaðið birtir ítarlegt og opinskátt viðtal vð Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra um sjálfstætt frum- kvæði í íslenskum utanríkismálum, ræðir við Þröst Ólafs- son um nýjar áherslur í utanríkisviðskiptum, Árni Gunn- arsson alþingismaður segir skoðanir sínar á afstöðu Vest- urvelda til Eystrasaltsríkja og fjallað er um ógnarríki Sadd- ams Husseins sem nú riðar til falls, auk erlendra frétta og fréttaskýringa. Alþýðublaðið í dag er prentað og dreift í 20 þúsund eintökum. LEIDARINN I DAG Spurt er í leiðara blaðsins í dag hvort nýkjörinn for- maður Sjálfstæðisflokksins muni skila auðu í kosn- ingunum í vor. Einnig segir að ekki verði séð af kosn- ingayfirlýsingu landsfundar flokksins né af viðtali við formanninn í Morgunblaðinu um helgina að Sjálfstæðisflokkurinn hafi yfirleitt nokkra stefnu í þjóðmálum. „Flokkurinn er með öllum og á móti kommúnisma og sósíalisma." í lokin segir: „Það er aumt að stærsti flokkur þjóðarinnar geti ekki boðið upp á stefnu til að kjósa um. Þjóðin á að skila auðu. Það er boðskapur Sjálfstæðismanna." Autt í sautján skálum Sjálfstæðismenn eru á móti kommúnisma (og kemur ekki á óvart) en ekki öðru, segir í fréttaskýringu Sæmundar Guðvinssonar. Allt er slétt og fellt í sautján skálum. Á við tvöfaldan búvörusamning Ávinningur íslands af efna- hagssamrunum í Evrópu jafn- gildir 4% aukningu þjóðar- tekna. Það er um það bil tvö- faldur búvörusamningur. Við eigum ekki að selja Trabanta Mercedez Benz er betri kost- ur en Traband, segir Þröstur Ól- afssin í viðtali. Fiskurinn okkar á að vera það sem Benzinn er á bílamarkaði er álit hagfræð- ingsins. Jón Baldvin Hannibalsson um útflutning á saltfiski Einkaleyfi SÍF verður afnumið „Ég hef tilkynnt for- svarsmönnum SÍF að ég stefni að afnámi á einka- leyfi þeirra til útflutn- ings á saltfiski í tengsl- um við samningana um aðild okkar að hinu Evr- ópska efnahagssvæði. Þeim beri að líta svo á að þeir séu nú á aðlögunar- tíma,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra í viðtali við Al- þýðublaðið í dag. I þeim kafla viðtalsins þar sem ráðherrann fjallar um þessi mál segir hann að í millitíðinni hafi framleið- endum og aðilum utan SÍF verið veitt nokkur leyfi í undantekningartilvikum. Það hafi verið gert til að veita SÍF aðhald og hafi eitt út af fyrir sig borið mikinn árangur og bætt hag ein- stakra framleiðenda innan SÍF, til dæmis með því að greiðslum fyrir útflutnings- afurðir hafi verið hraðað mjög. Greiðslufresturinn hafi styst úr mörgum mán- uðum niður í fáeina daga. Síðan segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra: „Það er mikill misskiln- ingur að afnám einkaleyfis SÍF sé einhver ævintýra- mennska sem muni veikja stórlega samningsstöðu ís- lenskra aðila til þess að halda góðum verðum á grundvelli góðra gæða. SÍF hefur notið einokunarað- stöðunnar áratugum sam- an. Það hefur því mikið for- skot umfram alla aðra að- ila. Að sjálfsögðu mun SÍF halda áfram sem langsam- lega öflugasta útflutnings- fyrirtækið í þessari grein. Aðrir aðilar, sem vilja fá að spreyta sig, munu verða að uppfylla ströng skilyrði um reynslu, fjárhagslega getu, verð, gæði og svo framveg- is. Það stendur með öðrum orðum ekki til að hleypa neinum ævintýramönnum ALÞÝÐUFLOKKURINN 75 ÁRA Jóhanna Sigurðardóttir, varaformaður Alþýðuflokksins, er hér að skera væna sneiða handa Jóni Baldvin Hannibalssyni, formanni Alþýðuflokksins, af afmælistertunni á afmælishátíð Alþýðuflokksins á Hótel Sögu á sunnudaginn. Svipmyndir afhátíðinni getur að líta á bls. 14 og 15 i blaðinu i dag. A-mynd: E.ÓI. lausum er geti orðið til að spilla áliti og gæðum eða samkeppnisstöðu íslensks útflutnings." Sjá viðtal á bls. 5. Fram- bodið í Reykja- vík — Sjá baksídu RITSTJÓRN (D 625566 - 625538 • FAX 627019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.