Alþýðublaðið - 19.03.1991, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 19. mars 1991
Kosningastefna Sjálfstœöisflokksins
MÖTA SKAL SJÁVAR
ÚTVEGSSTEFNU
Formannskjör Sjálfstæðisflokksins og úrslit i þvi
hafa borið háft í þjóðmálaumræðunni að undan-
förnu. í f jölmiðlum hafa spámenn og spekingar velt
vöngum yfir Davíð og hvert formennska hans muni
leiða flokkinn. Skoðanakannanir fyrir landsfund
sýndu geysimikið fylgi Sjálfstæðisflokksins og hon-
um var spáð meirihluta á þingi. Á f undinum var sam-
þykkt stjórnmálaályktun sem er jafnframt kosn-
ingayfirlýsing flokksins vegna komandi þingkosn-
inga. Við skulum lita á helstu atriðin i kosninga-
stefnu stærsta flokks þjóðarinnar sem stefnir á for-
ystu i næstu rikisst jórn ef hann nær þá ekki hreinum
meirihluta i kosningunum eftir mánuð.
SÆMUNDUR GUÐVINSSON SKRIFAR
FROÐUSNAKK EÐA KOSNINGAYFIRLÝSING?
Yfirskrift landsfundar Sjálfstæö-
isflokksins var FRELSIOG MANN-
ÚÐ og undir þeirri fyrirsögn var
kosningayfirlýsing flokksins birt í
Morgunblaðinu á dögunum. Yfir-
lýsingin rúmaðist á einni síðu í
blaðinu. Þar segir að Sjálfstæðis-
flokkurinn bjóði skýran kost í ís-
lenskum stjórnmálum. En við lest-
ur yfirlýsingarinnar kemur í Ijós
að kosturinn er ekki skýrari en svo
að fólk úr öllum flokkum getur ef-
laust tekið heilshugar undir flest
það sem þar stendur.
Gegn sósialisma_____________
og kommúnisma_______________
Því er lýst yfir að sjálfstæðis-
stefnan sé andstæða sósíalisma og
kommúnisma. Enginn átti von á
því að flokkurinn færi að taka upp
á því að aðhyllast þessa isma nú
frekar en áður, en kannski að það
þyki öruggara að taka af allan vafa
í þeim efnum. Að öðru leyti er
flokkurinn yfirleitt ekki á móti
neinu í stefnuyfirlýsingu sinni.
Enda segir að hann sé „sáttaafl í ís-
lenskum stjórnmálum." Það er
hlutverk sáttasemjara að láta helst
ekki opinberlega í ljós sjálfstæða
skoðun á nokkrum sköpuðum hlut
sem kynni að valda deilum manna
á millum. Það verður sennilega að
lesa stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðis-
flokksins í þessu ljósi því loðmulla
flokksins er með hreinum ólíkind-
um og hafa kosningastefnur flokk-
anna þó sjaldan þótt taka af skarið
í einu né neinu. En Sjálfstæðis-
flokkurinn átti þó hér áður til önn-
ur hörð stefnumál í kosningum en
lýsa yfir andstöðu við kommún-
isma. Eitt sinn var lagt upp með
kjörorðið „Leiftursókn gegn verð-
bólgu“. Það bar þó keim af bar-
áttuhug og krafti þótt svo óheppi-
lega vildi til að erkifjendur flokks-
ins hentu það á lofti og sneru upp
í „Leiftursókn gegn lífskjörum",
svo sem frægt er orðið. En nú virð-
ist ekki eiga að taka neina sjensa
heldur vera á mjúku línunni í öll-
um málum.
Blóm i hverjum hagu
Nú er það ekki svo að ég sé að
krefjast þess að sjálfstæðismenn
ryðjist fram grenjandi af heift og
hóti þeim dauða og djöfli sem ekki
krossa við D á kjördag. En það má
nú milli vera og setningar eins og
þessarar: „Flokkurinn berst gegn
ríg milli byggðarlaga og vill stuðla
að blómlegri byggð um land allt".
Hvað þýðir þessi setning? Hvað
merkir að „stuðla að blómlegri
byggð um land allt“ þegar það er
vitað mál að ef takast á að bæta
lífskjörin verður að þjappa saman
byggð í landínu? Hvað kemur það
til með að kosta að hafa blómlega
byggð um „land allt“ og í hvers
þágu er það? Spyr sá sem ekki
veit. Sjálfsagt vill enginn flokkur
styggja atkvæði fyrir kosningar og
þarna er Sjálfstæðisflokkurinn að
fiska á atkvæðamiðum dreifbýlis-
ins. En að sjálfsögðu er það út í
hött að fjasa um blómlega byggð
um land allt þegar öllum væri fyrir
bestu að hokur leggðist af á ör-
reytiskotum hér og þar um landið
og einnig yrði fólk aðstoðað við að
yfirgefa gjaldþrota krummaskuð
sem ekki eiga sér viðreisnar von
með gjörbreytingum í útgerð og
fiskvinnslu. Þetta vita foringjar
Sjálfstæðisflokksins eins og odd-
vitar annarra flokka en kjósa þó
að röfla út í bláinn um blóm í haga
um land allt.
Skálarnar sautján
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á atriði sem hann setur
fram í sautján atriðum. Það ætti
kannski betur við að segja að
kosningaagnið væri framreitt í
sautján skálum. Má tína fram eftir-
irtalin dæmi úr stefnuskránni til
að sýna hversu allt er þarna slétt
og fellt.
Atvinnugreinar verði reknar á
heilbrigðum og traustum grunni
og geti af eigin rammleik byggt sig
upp og staðist kröfur tímans og
samanburð við atvinnuvegi ann-
arra þjóða.
Móta skal sjávarútvegsstefnu er
nái til veiða og vinnslu. Landbún-
aðinum verði gert kleift að mæta
nýjum aðstæðum sem fylgja
auknu samstarfi við Evrópulöndin
og innan GATT.
Fjármál ríkisins verði tekin nýj-
um tökum. Þensla í umsvifum rík-
iskerfisins verði stöðvuð og raun-
verulegum sparnaði náð.
Fjölskyldan njóti þeirrar virð-
ingar sem henni ber.
Við undirbúning ungs fólks und-
ir lífið eins og endranær á vegferð
mannsins skiptir kristinn boð-
skapur miklu.
Gildi skólastarfs verður ekki of-
metið.
I umhverfismálum blasa við
brýn úrlausnarefni, bæði að því er
varðar uppgræðslu landsins og
mengunarvarnir.
Óhikað verði gengið til sam-
starfs við erlenda aðila um iðn-
væðingu landsins með orku frá
fallvötnum og jarðhita.
Markvisst verði unnið að sam-
göngubótum á landi, í lofti og á
legi.
Atak verði gert til að bæta opin-
bera stjórnsýslu og leitað fyrir-
mynda í einkarekstri.
Þingmönnum verði fækkað og
kosningalög tryggi jafnræði kjós-
enda.
Stuðlað verði að hófsemi og
heilbrigðum lifnaðarháttum.
Áhersla skal lögð á gæði og hag-
kvæmni öldrunarþjónustu og að
nýta kosti einkareksturs.
Aðstaða í sjónvarps- og útvarps-
rekstri milli ríkisins og einkaaðila
verði jöfnuð.
Örlar ekki á hörku
Eftir að Davíð Oddsson tók við
formennsku í flokknum hafa pólit-
ískir andstæðingar hans reynt að
koma því inn hjá fólki að nú megi
búast við aukinni hörku af hálfu
flokksins. Harðasti kjarni frjáls-
hyggjunnar hafi náð flokknum
undir sig og þar fram eftir götun-
um. Með tilvísun til stefnuyfirlýs-
ingarinnar ættu þetta að vera
óþarfaáhyggjur því stefnan ein-
kennist af sáttfýsi, mildi og um-
hyggju fyrir þeim er minna mega
sín. Að vísu verður ekki hægt að
líkna lítilmagnanum nema gróss-
erarnir fái fyrst að taka til sín það
sem þeir kjósa af þjóðarkökunni.
Eða eins og Davíð segir í viðtali
við Moggann á sunnudaginn var:
„Við verðum að gefa einka-
rekstrinum sem allra best færi til
að skapa sem mestar tekjur, til að
við getum tryggt kjör þeirra, stöðu
og öryggi sem lakast kunna að
vera settir á hverjum tíma. Mark-
mið Sjálfstæðisflokksins er auðvit-
að að hjálpa slíku fólki eins og
kostur er, til þess að nýta sér kosti
frjáls hagkerfis þar sem einka-
reksturinn fær notið sín“.
Síðari setningin er að vísu dálít-
ið ruglingsleg en þó fer ekki miili
mála að hið frjálsa hagkerfi einka-
rekstursins er bjarghringur hinna
fátæku og smáu. Hitt er svo annað
mál að ekki fara alltaf saman orð
og gerðir hjá Sjálfstæðisflokknum
frekar en öðrum flokkum. Ellert B.
Schram, ritstjóri DV, segir í blaði
sínu á laugardaginn að flokkurinn
hafi grundvallarstefnu sem sé fólg-
in í einstaklingsfrelsi og frjáls-
lyndi. En ritstjórinn og fyrrver-
andi þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins bætir síðan við:
„Því miður hefur gengið á ýmsu
við framkvæmd þeirrar lífssýnar
þegar Sjálfstæðisflokkurinn á í
hlut og læt ég öðrum það eftir að
útskýra þá kollhnísa . . .“.