Alþýðublaðið - 19.03.1991, Side 12
12
Þriðjudagur 19. mars 1991
Pröstur Ólafsson
hagfrœdingur um breytingar á fiskútflutningi
Rýmkað
verður um
þetta
sölukerfi
„Við eigum að vinna að því öllum árum að fiskurinn
okkar verði það á erlendum fiskmörkuðum sem Merce-
des Benz er á bílamörkuðum. Við eigum ekki að selja
Trabanta heldur Bensa og gæta þess að fyrirkomulag
fisksölunnar sé með þeim hætti að það styrki afkomu
þjóðarinnar allrar en rýri hana ekki,“ sagði Þröstur Ólafs-
son hagfræðingur í samtali við Alþýðublaðið.
VIÐTAL: SÆMUNDUR GUÐVINSSON
Hjá utanríkisráðuneytinu fer nú
fram könnun á skipuiagi útflutnings
á þeim fiski sem ekki er frjáls út-
flutningur á, það er að segja saltfiski
og ferskum fiski. Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra vill aukið
frelsi í þessum útflutningsgreinum
en með þeim hætti að það sé þjóð-
hagslega hagkvæmt. Þröstur Olafs-
son vinnur að því að afla upplýsinga
og setja fram tillögur varðandi þessi
mái og við ræddum við Þröst um
það sem hæst ber varðandi þetta
verkefni.
Afnema einokun
og leyfakerfi
— Eins og nú standa sakir hafa
Sölusamtök íslenskra fiskframleið-
enda, SÍF, einkaleyfi á að selja og
flytja út saltfisk og hefur svo verið
allt frá því á fjórða áratugnum.
Þessu var komið á vegna slæmrar
reynslu af samkeppni í útflutningi
sem leiddi tii undirboða útflytjenda
og verðhruns á mörkuðum erlendis.
Svo er hins vegar um að ræða út-
flutning á ferskum fiski sem var
frjáls tii skamms tíma er reynt var að
takmarka þennan hráefnisútflutn-
ings tii vinnslu erlendis. Síðan hefur
Aflamiðlun annast úthlutun leyfa
fyrir tilflutning á ferskum fiski í um-
boði utanríkisráðuneytisins. Nú er-
um við að skoða hvort ekki sé hægt
að fara aðrar leiðir sem skili sama
árangri en eru ekki bundnar bönn-
um og leyfisveitingum, sagði Þröst-
ur Ólafsson.
Hann sagði að Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra hefði frá
því hann byrjaði að ræða rýmkun á
þessum útflutningi tengt það samn-
ingum EFTA við EB. Ráðherra hefði
jafnan undirstrikað að um leið og
sæist tii lands í þeim viðræðum
þyrftum við að gera ráðstafanir hér
heima til rýmkunar útflutningsleyfa
á saltfiski.
Effnahogsleg
skammsýni og heimska
Við ræddum fyrst um útflutning á
ferskum fiski. Þröstur Ólafsson
sagði að útflutningur á ferskum fiski
til neyslu væri sjálfsagður en útflutn-
ingur til vinnslu erlendis væri efna-
hagsleg skammsýni og heimska.
Það yrði að leita allra leiða til að
vinna gegn því að flytja út hráefni
með þeim hætti að það byggði upp
vinnslu og verðmætasköpun er-
lendis en ekki hér heima.
— Þessum útflutningi er nú stýrt
með handafli sem ekki er æskileg
Utflutningur á ferskum fiski til
vinnslu erlendis er skammsýni og
heimska, segir Þröstur Ólafsson.
stjórnunaraðferð til langframa. Við
verðum að leita annarra leiða sem
eru nær markaðsöflunum og byggj-
ast ekki á leyfisveitingum. Margir
vinnsluaðilar hafa búið við veruleg-
an skort á fiski vegna mikils útflutn-
ings sem jafnframt hefur valdið háu
verði hér. Gæti ekki verið rétt, að í
stað leyfisveitinga Aflamiðlunar
komi aimenn regla sem skyldi alla
er flytja út vilja ferskan fisk að
kaupa hann á markaði innanlands.
Þá yrði að landa öllum fiski hérlend-
is og kaupa hann hér eða bjóða í
hann á fjarskiptamörkuðum, sagði
Þröstur Ólafsson.
Fiskmarkaðir úti á landi
Það kom fram hjá Þresti að þetta
fyrirkomulag hefði margvíslegan
ávinning í för með sér. Siglingar
fiskiskipa myndu dragast verulega
saman en útlendir fiskkaupmenn
eða umboðsmenn þeirra kaupa hér
fisk og senda út með flugi eða skip-
um. Tímans vegna væri margt sem
ýtti undir það að fiskurinn yrði unn-
in hér og vinnslustöðvar hér myndu
því styrkjast í samkeppni við þær
erlendu.
Þröstur sagði að þetta fyrirkomu-
lag þýddi að koma þyrfti þpp fisk-
mörkuðum úti á landi svo fisk-
vinnslan þar gæti boðið í aflann.
Núna væri þetta þannig að annað
hvort færi ferskur fiskur á markað á
suðvesturhorninu eða erlendis.
Engu að síður væri þó skárra að
hann væri eingöngu boðinn upp á
einu landshorni hér heldur en hann
færi beint í breska fiskvinnslu. Á síð-
asta ári nam útflutningur á ferskum
þorski, ýsu, karfa og ufsa 76.600
tonnum og sagði Þröstur að þessi
tala sýndi best að hér væri um mjög
mikla hagsmuni að tefla.
— Erlendir fiskkaupmenn yrðu
að koma til okkar og spyrja hvort
við vildum seija þeim fisk í stað þess
íslenskur gæðasaltfiskur er seldur á helmingi hærra veröi en nautakjöt i verslunum á Spáni.
að við flytjum fiskinn til þeirra og
spyrjum hvort þeir vilji kaupa. Fisk-
framboð hér myndi aukast verulega
og með þessu fyrirkomulagi getur
hver sem er keypt ferskan fisk og
gert það við hann sem honum sýn-
ist. Við höfum verið að opna þetta
mál með viðræðum við hagsmuna-
aðila og fá fram viðbrögð þeirra.
Undirtektir hafa almennt verið góð-
ar en einnig komið fram aðvörunar-
raddir sem telja slíkar breytingar
ekki heppilegar. En það er á valdi
utanríkisráðherra að breyta núver-
andi fyrirkomulagi, sagði Þröstur
Ólafsson.
Gædasaltffiskur helmingi
dýrari en nautak|öt
Þá vorum við komnir að saitfisk-
inum þar sem SÍF hefur haft einka-
leyfi á útflutningi og sölu á erlend-
um mörkuðum áratugum saman.
Saltfiskmálið er öllu flóknara en
hitt, enda er til dæmis hár tollur á
innfluttum saltfiski í Evrópulöndum
umfram ákveðinn kvóta en ferskur
fiskur tollfrjáls. Sumir fiskframleið-
endur hér hafa gripið til þess ráðs að
senda ferskfiskflök til Englands eða
Hollands þar sem þau eru síðan sölt-
uð og komast þannig hjá tollgreiðsl-
um.
— Þessir tollar á saltfiski breyta og
skekkja okkar samkeppnisaðstöðu
á mörkuðum bæði gagnvart öðrum
fisktegundum og öðrum þjóðum, til
dæmis Norðmönnum sem hafa
fengið rýmri tollaheimildir gegn
sameiginlegri nýtingu vissra fiski-
miða með öðrum Evrópuþjóðum,
sagði Þröstur.
Hann sagði að sér sýndist að af
hálfu SÍF hefði verið unnið mark-
visst að því á undanförnum árum að
breyta almennum saltfiski i merkja-
vöru sem þýddi mun hærra verð.
Markaðsátak SÍF og innflytjenda á
Spáni hefði skilað sér mjög vel í
norðausturhéruðum Spánar þar
sem tekjur væru hvað hæstar í land-
inu.
— Saltfiskurinn okkar er ekki
lengur BAKKALAO heldur BAKK-
ALAO ISLANDIA í verslunum og
veitingahúsum þarna og er hátt
metinn. Þessi saltfiskur er seldur á
helmingi hærra verði í verslunum
en nautakjöt og því fer ekki milli