Alþýðublaðið - 09.04.1991, Síða 3

Alþýðublaðið - 09.04.1991, Síða 3
Þriðjudagur 9. apríl 1991 iNNLENDAR FRÉTTIR 3 FRÉTTIR Í HNOTSKURN PÁLMI í HAGKAUP LATINN: Pálmi Jónsson, stofnandi Hagkaups hf., andaðist í Reykjavík á fimmtudag, 67 ára að aldri. Pálmi var lögfræðingur að mennt, fæddur að Hofi á Höfðaströnd. Hann fékkst við viðskiptastörf að loknu námis setti meðal annars á fót ísborg við Austur- stræti, síðar póstverslunina Hagkaup, sem þróaðist út í að verða stærsta verslana- keðja landsins og olli straumhvörfum í verðlagi á nauðsynjavörum heimilanna. Pálmi og eiginkona hans, Jónína Gísladóttir, eignuðust fjögur börn, sem öll eru uppkomin. Synir þeirra tveir starfa við Hagkaup hf. TAP A SEMENTINU: Sementsverksmiðja ríkisins tapaði 13,8 milljónum króna á rekstri sínum í fyrra. Hins vegar varð 9 milljóna hagnaður á reglulegri starfsemi. Eig- ið veltufé jókst um 9,2 milljónir, tekin voru langtímalán upp á 30,4 milljónir, en greiddar 60 milljónir af langtíma- lánum. Eigið fé er 77,2 milljónir króna og hafði aukist um 102,5 milljónir á árinu. Eiginfjárhlutfall er 62,7%. SLÁTURFÉLAGiÐ FÆR10 EIGNIR í STAÐ EINN- AR : Sláturfélag Suðurlands eignaðist 10 fasteignir í stað stórhýsisins á Kirkjusandi, sem nú verður Listaháskóli Is- lands, þegar umfangsmiklar breytingar á húsinu hafa verið gerðar. Eignirnar tíu eru Fannborg 6 í Kópavogi, Engjateig- ur 1 í Reykjavík, Funahöfði 7, Súðarvogur 6, Tunguháls 6, Síðumúli 24—26, Álfaskeið 50 í Hafnarfirði, Aratún 26 í Garðabæ, Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi (Kjarvalshús), og Hæðargata 15 í Njarðvík. Eignir þessar eru virtar 300 millj- ón króna virði, en auk þess greiðir ríkið SS 130 milljónir. HÚSBYGGJANDINN KEMUR ÚT AFTUR: Á ámn- um 1982—86 kom út vandað fræðslurit fyrir húsbyggjend- ur, Húsbyggjandinn, eins konar handbók húsbyggjend- anna. Nú er þetta tímarit að koma út að nýju. Hjörtur Gunnarsson, prentsmiður, hefur keypt blaðið af Gísla Gunnarssyni, byggingafræðingi, sem var einn stofnenda blaðsins. Hjörtur stefnir á að koma með næsta blað í maí- mánuði, en síðan aftur í haust. Blaðinu verður dreift til allra lóðarhafa án endurgjalds, ennfremur til þeirra sem starfa að byggingariðnaði. KÓK Á ÝMSU VERÐI: Kaupmenn í söluturnum kvört- uðu sáran yfir Vífilfelli hf. á aðalfundi Félags söluturna- eigenda á dögunum. Þeir telja að kókið sé selt á ýmsu verði til kaupmanna, allt eftir því hver í hlut á. Þannig sé kókið til stórmarkaða selt á mun lægra verði en til sölu- turna. Þessu vilja þeir ekki hlíta og mun nú rætt um að skrúfa fyrir viðskipti meðan jafnrétti er ekki náð. AUKIN FERÐAMENNSKA: Marsmánuður var hag- stæður flugfélögum og ferðaskrifstofum. Hingað til lands komu 6.327 útlendingar, eða rúmlega fjögur hundruð fleiri en í sama mánuði í fyrra. íslendingar voru líka mun meira á ferðinni. Um hlið útlendingaeftirlitsins komu 8.479 ís- lendingar, eða 900 fleiri en í mars í fyrra. Frá áramótum er ferðamannastraumurinn eilítið minni samanlagt en í fyrra, sérstaklega eru íslenskir ferðamenn færri. STÚDENTALEIKHÚSIÐ ENDURREIST: Stúdenta- leikhúsið hefur sofið Þyrnirósarsvefni undanfarin fimm ár. Vaskur hópur kvenna og karla hefur nú séð til þess að leik- húsið vaknar, líkt og Þyrnirós fyrrum. Á laugardaginn var frumsýndi leikhúsið í Tjarnarbæ þrjá einþáttunga eftir unga höíunda, þau Melkorku Teklu Ólafsdóttur, Sindra Freysson og Bergljótu Arnalds. Sýningin heitir menn menn menn. Leikstjóri er Ásgeir Sigurvaldason. Illa gengur að telja íslendinga Manntalið 1980 hefur ekki enn litið dagsins Ijós Illa gengur aö vinna úr manntali, sem Hagstofa ís- lands lét framkvæma fyrir áratug. Enn er verið að samræma gögn til þess að komast að endanlegri nið- urstöðu um mannvist ís- lendinga á ofanverðri tutt- ugustu öld. Þetta verður líklegast síð- asta reglulega manntalið sem fram mun fara á íslandi um ókomna tíð. Framvegis verð- ur stuðst við gögn sem unnin verða með hliðsjón af nýjum lögum um lögheimili. Nú- tímatölvur hafa ekki gert þeim á Hagstofunni lífið létt- ara. Ýmsar ástæður eru fyr- ir því að ekki hefur tekist að koma gögnum úr manntalinu 1980 á hreint. Það er flókið verk að samræma upplýsing- ar. Mikill fjöldi fólks aflaði upplýsinga og ekki er mann- margt á Hagstofunni. Kannski er ekki ástæða til að örvænta enn. Fyrri mann- töl hafa sum hver ekki verið gefin út fyrr en eftir dúk og disk. Elsta manntal í heimi, það sem Árni Magnússon stóð að 1703, var til dæmis gefið út af Hagstofu íslands tveimur öldum síðar, eða á árunum 1924—1931. Pósturinn i réttar hendur Ný lög um lögheimilis- skráningu munu líklega leysa af hólmi hefðbundin manntöl, sem fram hafa farið með áratuga milli- bili. Með nýja kerfinu verður meðal annars kom- ið í veg fyrir að pósturinn lendi á rangri hendi. Um áramót tóku gildi lög um lögheimilisskráningu. Ráðherra er þar gefin heimild til að taka upp sérstakar íbúð- armerkingar. Hagstofustjóri segir að ýmislegt vinnist með því. Sveitarfélög hafi óskað eftir því að hægt væri að greina fólk betur í sundur en nú er þar sem fólk býr t.d. í fjölbýlishúsi og illmögulegt að segja til um hverjir búi í hvaða íbúð. Fram að þessu hafi verið stuðst við þjóðskrá við alls kyns útsendingar á pósti. Það hafi komið fyrir að alnafnar eða alnöfnur hafi búið í sama fjölbýlishúsi og jafnvel peningasendingar hafi þannig lent á röngum stað. Þetta geti valdið óþæg- indum og hafi gert það í ein- staka tilviki. Með breyttri lög- skráningu megi einnig gera áætlanir með miklu skyn- samlegri hætti en áður. „Þetta þýðir þó alls ekki að Nýr þáttur hóf göngu sína á Aðalstöðinni í há- deginu í gær en í honum taka blaðamenn Alþýðu- blaðsins, Tímans, Þjóðvilj- ans og Flokksfrétta Sjálf- stæðisflokksins þekkta menn úr þjóðlífinu á bein- ið. Alþýðublaðið reið á vaðið í gær þar sem Ingólf- ur Margeirsson ritstjóri og Sæmundur Guðvinsson við ætlum að fara að njósna um fólk,“ sagði Hallgrímur Snorrason í samtali við Al- þýðublaðið. Tilgangurinn sé einungis að auka hagræð- blaðamaður höfðu Jón Baldvin Hannibalsson for- mann Alþýðuflokksins og Ossur Skarphéðinsson frambjóðanda á beininu. Nokkrar breytingar eiga sér nú stað á Aðalstöðinni og hefur Helgi Pétursson látið af störfum útvarpsstjóra. Sér- stakir fréttatímar verða fram- vegis tvisvar á dag, klukkan niu að morgni og klukkan 16. ingu í opinberum rekstri og byggja upplýsingar á áreiðan- legri gögnum en hægt hafi verið fram að þessu. Nýútskrifaður fjölmiðlafræð- ingur frá Austurríki, Hrafn- hildur Halldórsdóttir, hefur verið ráðin til að annast frétt- irnar auk þess sem hún vinn- ur að morgunútvarpi með Ól- afi Þórðarsyni. Þá verður spurningaleikur á dagskrá á Aðalstöðinni á sunnudögum klukkan 13—15 undir stjórn Kolbeins Gíslasonar. Breytingar á Aðalstöðinni Alþýðuflokkurinn á Vestfjörðum hefur gengið frá framboðslista sínum við komandi alþingiskosn- ingar. 1. Sighvatur Björgvinsson alþm., Reykjavíkr 2. Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, ísafirði. 3. Björn Ingi Bjarnason fiskverkandi, Hafnarfirði. 4. Kristján Jónasson fram- kvæmdastjóri, ísafirði. 5. Ásthildur Ágústsdóttir skrifstofumaður, Patreksfirði. 6. Hrafnhildur Þór Jóhann- esdóttir skrifstofumaður, Bíldudal. 7. Benedikt Bjarnason nemi, Suðureyri við Súganda- fjörð. 8. Björn Árnason, sjómað- ur Hólmavík. 9. Ágúst Garðarsson sjó- maður, Súðavík. 10. Karvel Pálmason alþm., Bolungarvík.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.