Alþýðublaðið - 18.04.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. apríl 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
ÍHNOTSKURN
VILJA KAUPA GAMLA SKÚTU: Sjóminjasafni ís-
lands býóst nú til kaups gömul og nýlega uppgerö segl-
skúta. sem áður hét FríðaRE 13. Kaupveröið er ÍS.8 millj-
ónir króna. Fríöa var við fiskveiðar frá Reykjavík og Hafn-
arfirði á árunum 1897 til 1913. Kannar safnið nú leiðir til
að fjármagna kaupin á þessu gamla og glæsilega fiskiskipi.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast haffært
seglskip. sem minnir á liöna tíð i sjávarútvegi. Færeyingar
eiga þrjú slík gömul seglskip í haffæru ástandi, við ekkert.
SKAUTASVELLI BRÁTT LOKAÐ: Skautasvellið i
Laugardal hefur verið vinsælt í vetur. Nú er skammt í að
þar veröi lokaö. enda hlýnar nú í veðri. Síðasti möguleiki
til að renna sér á skautum þar er á sunnudaginn. en á
mánudaginn verður lokaö og ekki gert ráð fyrir að svelliö
verði opnað aftur fyrr en 1. október í haust.
NORDAL VILL EINKA-
VÆÐINGU BANKA: Dr.
Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri. hélt fram
þeirri skoðun sinni að
einkavæðing bankanna sé
mikilvægasta verkefnið í ís-
lenskum bankamálum á
n;estu árum. betta kom
fram á þingi Sambands ísl.
bankamanna á dögunum.
Anna G. ívarsdóttir frá
Búnaðarbanka íslands var
kjörin forinaöur Sambands
ísl. bankamanna. en Yngvi
Örn Kristinsson, sem veriö hefur formaöur undanfarin
tvö ár. gaf ekki kost á sér. Varaformaður er Friðbert
Traustason, Reiknistofu bankanna. 2. varaformaður er
Sigurjón Gunnarsson, Landsbanka lslands.
IHALDSMANNUÐ Hagyrðingar eru í essinu sínu núna
rétt fyrir kosningarnar. Þessi ferskeytla kom inn á faxtæki
Alþýöublaðsins í gær:
Ihaldsmannúö. einskært hjóm
sem úlfsins sauöakraginn.
Þeirra' eru orðin innantóm
eins og fyrri daginn.
Höfundurinn segir að frelsi og mannúð íhaldsins eigi við
um frelsi peningafurstanna. en hitt orðið. mannúðin. fari
þeim álíka vel og úlfi sauðargæran.
SIGURVEGARAR MA: Akureyringar gerðu það gott í
spurningakeppni framhaldsskólanna og unnu frækilegan
sigur yfir liði Flensborgar í úrslitasennunni með 23 stigum
gegn 13. A mvndinni er sigurliðið með sín góðu verölaun.
farandbikar og íslensku alfræðiorðabókina frá Krni og Ör-
lygi. Frá vinstri: Jón Pálmi Óskarsson, Magnús feits-
son og Finnur Friðriksson. Nánasti aðstoðarmaður
þeirra í undirbúningi var Sverrir Páll Eriendsson ís-
íenskukennari. Til hamingju. Akureyringar!
NORRÆN TONLIST: Á tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar i kviild verða verk eftir norræn tónskáld á dagskrá.
|).e. |)á Leif Þórarinsson, Carl Nielsen og Jean Sibelius.
Kinleikari verður rúmenski fiðluleikarinn Eugene Sarbu.
Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari.
RÍKISSTARFSMENN UNDIR í LAUNUM: Lögð
hefur verið fram skýrsla Gallups um samanburð á launum
háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og þeirra sem starfa
hjá einkafyrirtækjum. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunn-
ar hafa þeir sem starfa hjá einkafyirtækjum að jafnaði um
74% hærri föst laun en þeir sem starfa hjá ríkinu.
FÍB ÁLYKTAR UM MINNISLEYSISTEINGRÍMS:
Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur sent frá sér frétt þar
sem segir að það sé lágmarks krafa að landsfeðurnir viti
hvaða skatta þeir leggja á þegnana og til hvers eigi að nota
þá. FIB segir tilefnið vera ummæli Steingríms Hermanns-
sonar í Þjóðarsál Rásar 2 þegar hann svaraði spurningu um
svonefnt bifreiðagjald. Fyrirspyrjanda hafi misminnt um
upphaflegan tilgang skattsins en svör ráðherrans byggst á
ennþá meira minnisleysi. Sannleikurinn sé sá að þetta
gjald, sem á að skila einum milljarði á þessu ári, hafi aldrei
runnið til vegagerðar.
Viötal uid Jón Balduin Hannibalsson utanríkisrádherra
Upplognar sakir
forsætisráðherra
„Ég sá ástæðu til að
birta þessar staðreyndir
úr fundargerð þar sem
skýrt er frá viðræðum
sjávarútvegsráðherra við
sjávarútvegs-„kommiss-
ar“ Evrópubandalagsins
vegna framkomu Fram-
sóknarflokksins í Evrópu-
málunum," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson utanrík-
isráðherra í samtali við Al-
þýðublaðið í gær aðspurð-
ur um hvort Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegs-
ráðherra hefði Ijáð máls á
veiðum EB-ríkja á ísland-
'smiðum.
.lón Baldvin sagði jafn-
framt: ..Framsóknarmenn
liafa gert sig seka um það í
þessari kosningabaráttu að
beita aðferðum sem Stein-
grímur Hermannsson hefur
sjálfur kennt við Rikka
bragöaref. eða Richard Nix-
on. og eru i því fólgnar að
bera ekki aðeins andstæð-
inga sína, heldur samstarfs-
menn í einu þýðingarmesta
máll sem að þjóðin fæst við,
upplognum sökum. Þeir
skeyta engu um að í leiðinni
eru þeir að sá fræjum úlfúöar
og sundurlyndis um þetta
mál. Það hefur verið mér sem
ráðherra í ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar sér-
stakt keppikefli að skapa og
halda utan um samstöðu
þjóöarinnar um þetta mál
enda er það hafið yfir, og á að
vera hafiö yfir, pólitískar erj-
ur flokka á lokaspretti kosn-
ingabaráttu.
Staöreyndir málsins verða
ekkert umdeildar. Já. það er
rétt að Halldór Ásgrímsson er
eini stjórnmálamaðurinn
sem mér er kunnugt um að
bafi átt í formlegum viðræð-
um við forsvarsmenn sjávar-
útvegsmála í KB opnað á
spurninguna um veiðiheim-
ildir Kvrópubandalagsflotans
í íslenskri fiskveiðilögsögu.
Aðalatriði málsins er í sjálfu
j.sér ekki hvaða skoðun menn
jhafa á því, og ég legg á það
áherslu. að hann var að ræða
um gagnkvæmar veiðiheim-
ildir.
Þessar tillögur hafa hins
vegar legið mestan part í
þagnargildi. Kn af því að
þetta eru formlegar tillögur
þá hefði framsóknarmönn-
um verið nær að reifa þær við
þjóðina. hugsanlega leggja
þær undir þjóöaratkvæöa-
greiðslu fremur en að Ijúga
upp á andstæöinga sína að
þeir stefni á inngöngu í KB.
vegna þess að Framsóknar-
menn þekkja allar staðreynd-
ir þess máls. Kg hef svarað því
svo rækilega hvers konar
firra það er hjá forsætisráö-
herra aö kosningarnar núna
geti snúist um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um inngöngu
í KB sem engin flokkur hefur
á stefnuskrá, sem ekki hefur
veriö svo mikið sem rætt í rík-
isstjórn. sem utanríkismála-
nefnd og Alþingi hefur ekki
fjallað um af þeirri einföldu
ástæðu að enginn stjórn-
málaflokkur, ég endurtek,
enginn stjórnmálaflokkur.
hefur þetta mál á sinni stefnu-
skrá.
Þegar þar við bætist að það
liggur Ijóst fyrir að ríkisstjórn
á næsta kjörtímabili getur
ekki, þótt hún vildi, lagt mál-
ið fyrir í þjóðaratkvæöa-
greiðslu. Ástæðan er sú að frá
því að uinsókn yröi lögð fram
tekur það 4—(i ár að Ijúka
samningum og menn leggja
ekki hugmyndir um óorðna
hluti fyrir þjóöaratkvæða-
greiöslu heldur samninga. KB
tekur ekki við nýjum um-
sóknum fyrr en árið 1993.
Það er þekkt staðreynd.
Það tekur langan tíma af
hálfu KB að leita eftir umboöi
til samninga og skilgreina
það. Þaö tók t.d. Austurríkis-
menn hálft annaö til tvö ár.
Það veröur komið fram á árið
1997 áöur en nokkur fræði-
legur möguleiki væri á því að
samningsdrög lægju fyrir og
þangaö til eru sex ár. Þangaö
til eigum við eftir að hafa
tvennar alþingiskosningar
a.m.k., eða reyndar þrennar
kosningar. vegna þess að
samningur um inngöngu í KB
fæli í sér breytingar á stjórn-
arskrá íslenska lýðveldisins
sem eru þess eðlis að þær
þarf að leggja fyrir í tvennum
þingkosningum.
Það er alveg sama hvernig
á máliö er litið, þetta er þvílík
fjarstæða ogstenst engin rök.
Þar að auki hefur forsætisráö-
herra opinberað vanþekk-
ingu sína á málinu þegar
hann heldur því fram að sam-
eiginleg fiskveiðistefna KB
eigi sér stoð í tiltekinni grein
„Rómarsáttmálans" og sé þar
af leiðandi óumbreytanleg
nema með því að breyta
Rómarsáttmálanum. Mis-
skilningur haiis er fólginn í
tiltekinni grein Rómarsátt-
málans, sem kveður á um að
af hálfu bandalagsins skuli
móta samræmda stefnu i
landbúnaðarmálum og fisk-
veiðum. Kn hin sameiginlega
fiskveiöistefna á sér stoð í
tveimur reglugerðum sem
framkvæmdastjórn og ráð-
herraráö hafa staðfest og
þeim er hægt aö breyta með
einfaldri meirihlutasamþykkt
í ráöherraráöinu.
Það er vitaö að meðan KB
heldur til streitu kröfum um
veiðiheimildir í íslenskri fisk-
veiðilögsögu í staðinn fyrir
tollfrjálsan aðgang að
KB-mörkuðum þá hafa allir
stjórnmálaflokkar sagt nei.
Þ.e.a.s., nema með þessari
undantekningu að Fram-
sóknarflokkurinn hefur einn
flokka gert það með formleg-
um hætti. Ráðherra í ríkis-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, yfirmaður
sjávarútvegsmála. hefur að
vísu í þéssum viöræöum KB
sagt: jú. ef til vill.
Það er þá eins gott að þjóð-
in viti það áður en lengra er
gengiö í því að spila á tilfinn-
ingar og ala á tortryggni og
fjandskap í garð flokka á
grundvelli aðférða sem eru
langt, langt fyrir neðan virð-
ingu manns sem gegnir starli
forsætisráðherra. Sér í lagi í
Ijósi þess að ég hef sem utan-
ríkisviöskiptaráöherra þess-
arar ríkisstjórnar mótað
stefnu og haft á hendi verk-
stjórn í viöræöum okkar við
KB án þess að nokkurn tím-
ann hafi komiö upp ágrein-
ingsmál viö Steingrím Her-
mannsson. Hann býr sér að
tilefnislausu til ágreining.
gerir sér leik að því að ala á
tilfinningum annars vegar
þjóðrækni og hins vegar ill-
viija í garð útlendinga í von
um að krækja sér í atkvæði á
kostnað annarra. gersamlega
að tilefnislausu.
Það er ómerkilegt, svo að
ekki sé meira sagt, að forsæt-
isráðherrann sjálfur og aðrir
ráðherrar Framsóknarflokks-
ins og frambjóöendur hans
um allt land skuli fara til
funda þar sem þeir vísvitandi
falsa ummæli og slíta úr sam-
hengi þaö sem fram kemur í
stefnuskrá Alþýðuflokksins.
Þar segir skýrum stöfum að
algjört skilyröi fyrir nánari
samskipti viö KB sé að íslend-
ingar haldi forræði sínu yfir
bæöi fiskimiöunum og orku-
lindunum.
Þetta skilyrði þýðir að mál-
ið er ekki að óbreyttu á dag-
skrá af hálfu okkar. Þeim var
fullkunnugt um það að á
flokksþingi Alþýðuflokksins
kom fram tillaga um það aö
sækja um aöild að KB sem
fékk þá útreið að hún var
felld með öllum atkvæöum
gegn einu. Samt sem áður
gera þeir sér að leik að fara
vísvitandí tneö rangt mál.
Þetta atferli þeirra hefur
óneitanlega valdið trúnaðar-
bresti i Samskiþtum við þá.
Maður spy.r sjálfan sig, er
þessum mönnum að treysta?
Kr þeim ekkert heilagt? Þeir
virða ekki einu sinni það þýð-
ingarmikla markmiö að
stuöla aö samheldni þjóðar-
innar í samskiptum við ríkja-
bandalag af þessu tagi. Þeir
hafa gert sér leik að því í full-
komnu ábyrgöarleysi að
kveikja hér elda úlfúöar. Kld-
ar af því tagi geta breiöst út
fyrr en varir," sagði Jón Bald-
vin að lokum.
Veisla ársins á
Nesinu
Ráðherm-
hjónhgna
áfanga
Trúlega hafa fá fimmtugs-
afmæli verið haldin hér á
landi, sem fjölmennari hafa
verið en hjá þeim ráðherra-
hjónum, Jóni Sigurðssyni
og Laufeyju Þorbjarnar-
dóttur. Bæði urðu fimmtug
í þessari viku, Laufey á
sunnudag og Jón maöur
liennar i gær. Þrátt fyrir
annir við kosningaundir-
búning gafst tóm til að
halda myndarlega upp á af-
mælið í Félagsheimili Sel-
tjarnarness. Þangað mættu
mörg hundruö manna, pöl-
itískir samherjar jafnt sem
andstæðingar, vinir. ætt-
ingjar, kunningjar og sam-
starfsfólk. Ræður voru
margar og góðar. 1 einni
þeirra var Jóni hrósað fyrir
skipulagshæfileika sína og
bent á að fá hjón geta sam-
einaö afmæli sín eins og
þau Laufey og Jón nú, —
auk þess sem fáir hafa get-
að skipulagt fimmtugsaf-
mæli sitt þrem dögum fyrir
alþingiskosningar! Hvað
um þaö, þetta var veisla árs-
ins á Nesinu. A-mynd: K.OI.