Alþýðublaðið - 27.04.1991, Síða 2

Alþýðublaðið - 27.04.1991, Síða 2
2 FRÉTTASKÝRINGl Laugardagur 27. apríl 1991 Fólk / Arnar Jónsson fær lof fyrír Péfur Gaut Norsk og sænsk blöð hafa skrif- aö ritdóma um uppfærslu Þjóð- leikhússins á Pétri Gaut, en sýn- ingum á því verki er nú senn að ljúka í leikhúsinu. Arnar Jóns- son fær góða dóma fyrir túlkun sína á Pétri Gaut. Meðal annars segir svo í ritdómum í norræn- um blöðum: „Arnar Jónsson sem Pétur Gautur endurskapar af aðdáunarverðri snilld fall per- sónunnar frá herramanni með valdsmannslega rödd að gráð- ugu villidýri”. Þórhildur Þor- leifsdóttir og Sigurjón Jó- hannsson fá einnig góða dóma fyrir sitt tillag til sýningarinnar. Afhenti Lech Walesa trúnaðarbréf Einar Benediktsson afhenti forseta Póllands, Lech Walesa, trúnaðarbréf sitt í síðustu viku í Belweder-höll í Varsjá. Starfsmenn Sorpu eru tilbúnir að hefja vinnu. Störf þeirra sem þar starfa eru mjög þýðingarmikil í umhverfisvernd höfuðborgarsvæðisins. A-mynd E.OI. Fílharmonía með stórverkefni Söngsveitin Fílharmonía heldur Hayden tónleika í Krists- kirkju Landakoti laugardaginn 27. apríl kl. 17:00 og á sunnudag 28. kl. 20:30. Á efnisskrá tónleik- anna eru m.a. sinfónía nr. 26 i d- moll og Nelson messan. Auk 80 manna kórs Fílharmoníu koma fram á tónleikunum einsöngvar- arnir Olöf Kolbrún Haröar- dóttir, Þuríöur Baldursdóttir, Þorgeir J. Andrésson og Tóm- as Tómasson og er þetta í fyrsta sinn sem þeir Þorgeir og Tómas koma fram með Fílharmoníu. Einnig leikur 24 manna hljóm- sveit og er Szymon Kuran kons- ertmeistari. Þrífalegur vinnu- staður Magnús Helgason, rafvirki hjá ísal, dvaldi fyrir skömmu hjá systurfyrirtæki ísals í Essen. Magnús segir að það hafi vakið sérstaka athygli hans hve verk- smiðjusvæöið allt var þrifalegt. Magnús segir að þarna úti sé ekki allt þetta rusl hingað og þangað eins og sé svo algengt hér á landi. Magnús segist hall- ast að því að umgengni hvers og eins ráði mestu um þaö hvernig umhverfið sé. Hrafnavinafélag Islands Hrafnavinafélag Islands á efiaust eftir að gleðja alla hrafnavini segir í frétt frá hinu nýstofnaða félagi. Tilgangur félagsins er aö standa fyrir margs konar kynn- ingarstarfsemi sem stuðlað geti að verndun fugla almennt, en þó sérstaklega smáfugla. Hrafna- vinafélagið stefnir að því að af- hjúpa það æði mannsins að vinna skynlausri græðgi og sí- vaxandi neyslufikn á öllum sviö- um segir ennfremur í fréttinni. Forystumenn hins nýja félags- skapar eru þeir Hrafn Harðar- son, Hrafn Pálsson og Hrafn Sæmundsson. Stórt skref til umhverfisverndar — segir Ögmundur Einarsson, framkvœmdastjóri nýju sorpeyðingarstöðvarinnar Ný öflug og fullkomin sorpeyðingarstöð fyrir höf- uðborgarsvæðið var formlega tekin i notkun i gær. Stöðinni hefur verið gefið heitið SORPA. Stofnkostn- aður við móttöku- og flokkunarstöð i Gufunesi og urðunarsvæði i Álfsnesi er um 600 milljónir króna ó verðlagi órsins 1991. Árlegur rekstrarkostnaður er óætlaður 325 milljónir eða rúmlega þrefallt hærri upphæð en rekstrarkostnaður sorphauganna i Gufunesi. Samstarf sveitarfélaganna Stofnun Sorpeyðingar höfuð- borgarsvæöisins er stærsta verk- efniö sem sveitafélögin á svæðinu hafa í sameiningu hrint í fram- kvæmd, en undirbúningur verks- ins hófst formlega áriö 1988. Á undanförnum misserum hefur samruni fyrirtækja mjög verið á dagskrá hjá íslensku atvinnulífi. í þessu sambandi má nefna að sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu, að undanskilinni Reykjavík og Seltjarnarnesi, hafa stofnað með sér samtök um rekstur al- menningsvagna. Ibúar sem standa að sorpeyð- ingarstöðinni eru um 145 þúsund, eða tæp 57% landsmanna. Helstu markmið Sorpu Á vegum Sorpu mun verða rek- in móttöku- og flokkunarstöð úr- gangs á höfuðborgarsvæðinu á sem hagkvæmastan hátt fyrir eig- endur sína þ.e. sveitafélögin átta á höfuðborgarsvæðinu. Að reka urðunarsvæði sorps þannig að umhverfisvernd sitji í öndvegi, samhliða því sem hag- kvæmni verði gætt. Að stuðla að söfnun og hættulausri eyðingu eit- ur- og umhverfisspillandi efna. Aö fylgjast meö tækniframför- um á sviði endurvinnslu hérlendis og erlendis með tilliti til hag- kvæmnimöguleika móttöku- og flokkunarstöðvarinnar. Að stuöla að því þjóðfélagslega mikilvæga máli að ibúarnir verði meðvitaðir um ábyrgð sína í umhverfisvernd og geri sér jafnframt grein fyrir að litín kostar fé, sem með einum eða öðrum hætti kemur frá þeim sjálf- um. Opnir sorphaugar_____________ úr sögunni___________________ Þessar breytingar munu m.a. hafa það í för með sér að opnir sorphaugar á höfuðborgarsvæð- inu eiga að heyra sögunni til. Ög- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri stöðvarinnar, segir að þessar breytingar kalli á gjörbreytt hug- artar þar sem allir verði að taka saman höndum eigi þetta átak að takast. í stöðinni á Gufunesi verður húsasorp pressað og vírbundið í bagga, en iðnaðarúrgangur flokk- aður í samræmi við endurnýting- armöguleika og hagkvæmni. Sorpbaggarnir verða síðan urðað- ir í landi Álfsness á Kjalarnesi. Sér- stök móttökustöð verður einnig í Gufunesi fyrir alls kyns umhverfis- spillandi efni. Horf* til framtíðar____________ Samhliða starfrækslu móttöku- og flokkunarstöðvar verður rusla- gámaþjónusta sett upp á átta stöð- um á á höfuðborgarsvæðinu. Þangað eiga íbúar að geta komið með margskonar úrgang sem ekki flokkast undir húsasorp. Ögmundur segir að með þess- um framkvæmdum sé horft til framtíðar og kappkostað verði að fylgjast með nýjungum, t.d. á sviði endurvinnslu, sem búast megi við að eigi eftir að stóraukast á næstu árum. Losun sorps á heimilum verður með sama hætti og verið hefur, en almenningur verður hvattur til að taka frá hættuleg efni, eins og t.d. rafhlöður. Einnig verður húsráð- endum bent á að safna saman öll- um pappír því gera á tilraun með að nota hann á einhvern hátt til endurvinnslu. Um 60% af úrgangi kemur frá atvinnulífinu. Fyrirtækin koma til með að borga sjálf gjald vegna sorplosunar í samræmi við það magn sem frá þeim kemur. Allt x timbur sem kemur til SORPU, verður kurlað niður og selt til Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga þar sem það verður notað sem kolvetnisgjafi. Einnig verður komið á laggirnar móttökustað fyrir eiturefni sem síðan verða flutt til Danmerkur til eyðingar. Fyrirtækjum verður boðið upp á þjónustu þar sem hægt verður að eyða trúnaðar- skjölum. Ilrðun sorps___________________ Með flokkun sorps og vírbögg- un er stigið ótvírætt framfara- skref. Með þessu móti mun rúm- mál sorps sem fer til urðunar ein- göngu nema 8—10% alls þess magns sem til fellur á höfuðborg- arsvæðinu. Urðunarsvæðið verður á Álfs- nesi í Kjalarneshreppi og er svæð- ið sem skipulagt hefur verið til 25 ára, samtals um 40 hektarar að stærð. Fast á hæla urðunar fylgir upp- græðsla og trjáplöntur í stórum stíl munu prýða svæðið. ítarlegar rannsóknir á berglögum í Álfsnesi sýna að bergið þar er með því þéttasta sem finnst á höfuðborgar- svæðinu. Undir svæðinu verða frárennslislagnir sem leiddar verða í sérstakan hreinsibúnað. Mengað vatnsrennsli til sjávar er því ekki fyrirsjáanlegt.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.