Alþýðublaðið - 27.04.1991, Síða 3

Alþýðublaðið - 27.04.1991, Síða 3
Laugardagur 27. apríl 1991 INNLENDAR FRÉTTIR 3 FRÉTTtR i HNOTSKURN LANDSBANKISTÆKKAR Á SELFOSSI: Á Selfossi starfrækir Landsbanki íslands næststærsta útibú sitt utan Reykjavíkur. f síðustu viku var bætt við afgreiðslustað í bænum, þar sem áður var útibú Samvinnubankans, í húsi Kaupfélags Árnesinga. Útibússtjóri Landsbankans á Sel- fossi er Magnús Gíslason, en afgreiðslustjóri nýja útibús- ins þar er Svanhvít Hermannsdóttir og starfsfólk hið sama og var í Samvinnubankanum. Á myndinni er Eyjólf- ur K. Sigurjónsson, formaður bankaráðs Landsbankans, að afhenda Hafsteini Þorvaldssyni, forstöðumanni Sjúkrahúss Selfoss, 250 þúsund króna gjöf. COSSIGA VÆNTANLEGUR í HEIMSÓKN: Forseti Ítalíu, Francesco Cossiga, kemur hingað til lands í opin- bera heimsókn dagana 4. og 5. maí næstkomandi. ÓVIÐUNANDI LAUNAKJÖR: Lögreglumenn segja launakjör sín „óviðunandi og lítilsvirðandi fyrir fólk.sem gegnir áhættusömu og ábyrgðarmiklu starfi”. Á fundi for- manna aðildarfélaga Landssambands lögreglumanna var ályktað um þessi mál og segir þar að þróun í launamálum megi rekja bæði til launastefnu að undanförnu þar sem þjóðarsáttarsamningarnir hafi reynst haldlitlir og leitt til mikils samdráttar í löggæslu. Sé nú svo komið að launa- kjör lögreglumanna séu út úr öllu samhengi við launamál í landinu og til þess fallin að hrekja reynda og fullmennt- aða lögreglumenn úr starfi. HANDRITIN HEIM: Um þessar mundir eru 20 ár liðin síðan handritin fóru að koma heim til íslands aftur frá Dan- mörku. Þeim fyrstu var skilað til baka og send hingað með dönsku herskipi og við þeim tekið með mikilli viðhöfn. MEÐHÖNDLUN 0G SORPS: Sorp- hirða er mikið á dagskrá hér á landi um þessar mundir. Nágrannaþjóðir okkar eru talsvert á undan í þessum efnum. Per Berg, lektor við Chalmers-tækni- háskólann í Gautaborg mun halda fyrirlestur um aðferðir við að minnka magn sorps og um reynslu Svía af tilraunum í þá átt. Fyrirlestur- inn verður í Norræna húsinu á mánudagskvöld kl. 20.30. Og fyrst minnst er á sorp, má bæta því við að móttöku- og flokkunarstöð Sorpu var opnuð hátíðlega í gær. Hún er í eigu allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og þjón- ar nærri 150 þúsund manns. MENN BYGGJA MINNA EN FYRR: Svo virðist sem íslendingar séu hættir að byggja óhæfilega stórt yfir sig og sína. Meðalstærð íbúða sem lokið var við í Reykjavík á síð- asta ári var 24 rúmmetrum minni en árið á undan, eða 295 rúmmetrar. Lokið var við smíði 781 íbúðar í fyrra, sem er 68 íbúðum fleira en árið 1989. Metárið í íbúðabyggingum var 1986, þá var lokið við 1026 íbúðir í Reykjavík. ALFRÆÐIBÓKIN sta send- alfræði- Erni og Örlygi hefur selst vel. Send- ingin, 2400 bækur, er upp- seld. Segir forlagið að þetta sé meiri sala en búist hafði verið við. „Þessar góðu móttökur auka bjartsýni á að bókin komi til með að standa undir útgáfukostn- aði fyrr en__ráð var fyrir gert," segir Örlygur Hálf- danarson, bókaútgefandi. ATVINNUMIÐLUN IÐNNEMA: Iðnnemasamband íslands stendur fyrir atvinnumiðlun þar sem hagsmunir iðnnema og atvinnurekenda verða hafðir að leiðarljósi. Markmiðið á að vera að auka starfsreynslu iðnnema í þeirri iðngrein sem iðnneminn leggur stund á, en jafn- framt á að tryggja atvinnurekendum hæfari starfskrafta en ella. Atvinnumiðiunin heitir AMIN og er til húsa að Skóla- vörðustíg 19. SELSTVEL: Fyr ingin af Islensku orðabókinni hjá NÝTING Davíð œtlar ad mynda stjórn á fjórum dögum Velferð fólks Klukkan 18.03 í gær veitti forseti íslands Davíð Oddssyni, for- manni Sjálfstæðis- flokksins, umboð til að mynda ríkisstjórn, sem hefur meirihlutafylgi á Alþingi íslendinga. Dav- íð ætlar sér fjóra daga til að ganga frá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks en skila um- boðinu ella. Málefna- ágreiningur viröist lítill í þeim málaflokkum sem forystumenn beggja flokkanna Ieggja megin- áherslu á. ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðu- flokksins, kom á fund for- seta laust eftir klukkan fimm síðdegis í gær og benti á formann Sjálfstæð- isflokksins til að reyna stjórnarmyndun, en Jón Baldvin tilkynnti Stein- grími Hermannssyni í gær- morgun að Alþýðuflokkur- inn teldi líklegast að samn- ingar tækjust með Alþýðu- flokki og Sjálfstæðisflokki um landstjórnina. Steingrímur og Jón Bald- vin ræddust við í klukku- tíma í gærmorgun og stundarfjórðungi síðar birt- ist Ólafur Ragnar Grímsson i stjórnarráðinu. Fundur hans og forsætisráðherra stóð stutt yfir og var ljóst að honum loknum að ekki yrði reynt að koma á vinstri stjórn. Steingrímur til- kynnti þó forseta íslands að hann væri tilbúinn að reyna myndun vinstri stjórnar, og hugsanlega með Kvennalista. Ólafur Ragnar mun hafa lagt það sama til, en á fundi fulltrúa Kvennalista með forseta síðdegis bentu konurnar ekki á neinn sérstakan til að fara með umboðið, enda var þá ljóst að formaður Al- þýðuflokks og formaður Sjálfstæðisflokks höfðu orðið ásáttir um að meiri- — en ekki hlutastjórn flokkanna kæmist á. Steingrímur Hermanns- son hélt fréttamönnum eins konar kveðjukaffi klukkan 16.00 í gær. Kvað hann sér hefði verið vel kunnugt um að viðreisnar- stjórn hefði verið í burðar- liðnum síðastliðna tvo mánuði og nefndi sérstak- lega Jón Sigurðsson ráð- herra sem talsmann þeirrar stjórnar. Steingrímur sagði að það myndi marka þátta- skil, ef af viðreisn yrði. Hann óttaðist að með henni héldi frjálshyggjan innreið sína í þjóðfélagið. Reyndar vildi hann ekki kalla stjórnina viðreisn. „Ég veit ekki hvað þeir eiga að reisa við — kannski Sjálfstæðisflokkinn.” Á flokksstjórnarfundi Al- þýðuflokksins í fyrrakvöld þóttust ýmsir skynja að við- reisn lægi í loftinu. Á flokksstjórnarfundinum gerði Jón Baldvin, formað- ur Alþýðuflokksins, grein fyrir stöðunni í stjórnar- myndunarþreifingum og mátti skilja á honum að fyrirtækja fremur bæri að halla sér til hægri en vinstri. Forysta Alþýðuflokksins fundaði um nóttina að loknum flokksstjórnarfundi og þá voru línurnar dregnar. Að- spurður um það hvort hann óttaðist ekki að takmörkuð reynsla Davíðs í landsmál- um kæmi niður á störfum hans, kvaðst Jón Baldvin telja reynsluleysi Davíðs bæði kost og galla fyrir for- sætisráðherra. Á þingflokksfundi Al- þýðuflokksins í gær lýsti Gunnlaugur Stefánsson, þingmaður Austurlands, þeirri skoðun sinni að ekki væri fullreynt hvort takast mætti að mynda vinstri stjórn. Klukkan 18.03 í gær kom Davíð Oddsson í stjórnar- ráðið og fól forseti Islands honum þá umboð til að mynda meirihlutastjórn. Formlegar stjórnarmynd- unarviðræður flokkanna hefjast í dag klukkan tvö í Viðey og býst Davíð við að það taki fáa daga að ganga frá myndun stjórnar. Um- boð forseta væri ekki mið- Ólafur Ragnar Grímsson fjármalaraðherra er farinn að búa sig undir að yfirgefa Fjármálaráðuneytið. að við sérstakan flokk en Davíð sagðist skilja að sam- töl forystumanna í Sjálf- stæðisflokki og Alþýðu- flokki hefðu legið til grund- vallar þegar honum var fal- ið umboð til stjórnarmynd- unar. Davíð Oddsson sagði, er hann kom af fundi forseta íslands, að sérfræðingar á vegum Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks hefðu að undanförnu farið yfir mála- flokka, en hann gerði sér ekki grein fyrir hvaða mál kynnu að verða erfiðust í samningum flokkanna. Að- spurður sagðist Davíð ekki óttast það þó að Alþýðu- flokkur hefði lagt fram stíf- ar kröfur til grundvallar samningaviðræðum. Al- þýðuflokkurinn hefði mjög sterka stöðu í dag. Formaður Alþýðuflokks- ins segir að könnunarvið- ræður við forystu Sjálf- stæðisflokksins hafi aukið bjartsýni um að samstaða sé um veigamikil mál. Meg- inverkefni ríkisstjórnarinn- ar verði breytt stjórn fisk- veiða og uppstokkun í land- búnaði. Þá yrði haldið fast við stefnuna í félagsmálum sérstaklega hvað varðaði húsnæðiskerfið. Samræma yrði lífeyrisréttindi lands- manna og draga úr ríkisút- gjöldum. Jón Baldvin segir að stjórnin muni efla velferð fólks en ekki fyrirtækja. „Það er sjálfgert." Fyrir- tækin verði að standa undir sér sjálf — „og einnig land- búnaðurinn,” bætti Jón Baldvin við. Ljóst er af ummælum for- manna flokkanna að ekki er ágreiningur milli forystu Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks um nýja ríkis- stjórn. Davíð vill mynda viðreisn, en skila umboð- inu ella. Til þess ætlar hann sér fjóra daga. Gangi það ’áform eftir mun ný stjórn taka við 1. maí. Hvernig væri að kalla nýju stjórnina „Maístjörnuna?”. Island aðili að vinnuverndarári Ríkisstjórnin hefur fallist á tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur félags- málaráðherra um aö Is- land taki þátt í evrópsku ári 1992 um öryggi og hollustuhætti á vinnu- stöðum. Framkvæmd málsins verður í hönd- um Vinnueftirlits ríkis- ins í samráði við félags- málaráðuneyti og Holl- ustuvernd ríkisins. Ráðherraráð Evrópu- bandalagsins ákvað að gera tímabilið frá vori 1992 til vors 1993 að vinnu- verndarári og samþykkti markmið og drög að verk- Jóhanna Siguröardóttir, — félagsmál í evrópsku umhverfi. efnaskrá. EFTA-ríkjunum var boðin þáttaka og ákváðu Norðurlöndin að þiggja það. Einn hvati þess að í verk- efnið er ráðist er mikill kostnaður af vinnuslysum og atvinnusjúkdómum sem er talinn vera um 7% af út- gjöldum sjúkratrygginga í ríkjum Evrópubandalags- ins. Helstu markmið með verkefninu eru þau að auka vitund um hættu á slysum og heiisutjóni sem getur fylgt vinnu og hvetja til við- bragða við henni hjá at- vinnurekendum, starfs- mönnum og ungu fólki sér- staklega. Ennfremur að vekja athygli á gildi þess að leysa félagsleg og fjárhags- leg vandamál sem tengjast vinnuvernd og auðvelda framkvæmd ýmissa reglna og samþykkta um vinnu- vernd sem hafa tekið gildi innan Evrópubandalagsins. Ráðgjafarnefnd Evrópu- bandalagsins um vinnu- vernd hefur mælt með því að kröftunum verði sér- staklega beint að öryggi á vinnustöðum, aðbúnaði og líðan starfsmanna á vinnu- stöðum, hreinu ómenguðu lofti á vinnustöðum og vörnum gegn hávaða og titringi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.