Alþýðublaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 30. apríl 1991
DAN$I n f|
— ávarp í tilefni alþjódadansdagsins, sem
haldinn var í gœr
Dansinn er elsta tjáningar-
form mannsins. Hann dansaði í
takt vid hljómfall náttúrunnar,
þytinn í trjánum og öldunið hafs-
ins. Þörfin til að tjá sorg og gleði,
ást og athafnir í dansi hefur fylgt
manninum frá upphafi. Hann
dansaði á vorin til dýrðar nýju
lífi, hann dansaði þakkardans á
haustin fyrir góða uppskeru. Frá
fæðingu til dauða átti hver merk-
isatburður í lífi mannsins sér
dans.
Dansinn hefur ávallt verið ríkur
þáttur í lífi mannsins og menningu
þjóða. En hvernig hlúum við að
þessari eðlislægu hvöt mannsins. Er
dansinn ekki jafn nauðsynlegur nú-
tímamanninum sem skapandi afl og
hann var í bernsku mannkyns?
Hver er staða dansins í okkar list-
menningu? Um þessar mundir
stendur yfir Listahátíð æskunnar,
dagana 20. til 28. apríl, og það er
mikið ánægjuefni að daglega er
framin danslist með börnum á ýms-
an hátt á mörgum stöðum í Reykja-
vik.
Hreyfing og dans er heillandi tján-
ingarmáti, sem á sér ótakmarkaða
túlkunarmöguleika í formi og
myndum. Hann á sér engin landa-
mæri og segir meira en orð fá lýst.
Á síðari árum hefur athygli manna
sem láta sig varða uppeldi barna
beinst í æ ríkara mæli að þörf barna
til að sameina hreyfingar og tilfinn-
ingar til samskipta við umhverfi sitt.
En því miður hafa ekki öll börn jöfn
tækifæri til dansupplifunar og að
þroska með sér skapandi hæfileika í
dansi. Hingað til hafa einungis þau
börn sem hafa félagslegan og sið-
ferðislegan stuðning í sínu nánasta
umhverfi slík tækifæri og þá í sér-
skólum.
Nú hefur menntamálaráðuneytið
með sinni menningarstefnu gefið
okkur nýja framtíðarsýn í uppeldi
barna með eflingu listkennslu í skól-
um. Vonandi fáum við möguleika til
að varðveita og þroska þá náttúru-
legu hreyfigleði, sem í barninu býr
en umhverfið heftir oftast í uppvexti
þess. Barnið verður að fá hvatningu
og þjálfun í að skapa og tjá sig um
það sem á vegi þess verður, og sá
vettvangur sem gæti gefið öllum
börnum jafnan möguleika til þroska
á sviði dansins í tengslum við raun-
veruleika þeirra, samfélagið og aðra
listsköpun, eru grunnskólarnir.
Nanna Ólafsdóttir,
formaður Félags
íslenskra listdansara.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR - ]H INNLAUSNARTIMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.05.91-01.11.91 / 12.05.91-12.11.91 kr. 50.769,42 kr. 53.974,66
*)lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, aprfl 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
1. maí-kaffi
Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks
íslands
verður á Hótel Borg.
Húsið opnað kl. 14.30.
Fjölbreytt dagskrá. Allir velkomnir
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Raðauglýsingar
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Ríkisspítala óskar eftir
tilboðum í gagngerar endurbætur, klæðningu og
viðgerðir á þvotthúsi Ríkisspítala, Tunguhálsi 2.
Helstu magntölur:
Stálklæðning 230 m2
Múreiningakerfi 90 m2
Endurnýjun glers 170 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstof u vorri að Borg-
artúni 7, 105 Reykjavík, gegn 15.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstúdaginn 10.
maí 1991 kl. 11.00.
IPJNKAUPASTOFNUN RlKISINS
_______BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_
Aðalfundur
Aðalfundur Kvenfélags Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Strandgötu,
fimmtudaginn 2. maí nk. kl. 20.30, stundvíslega.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tískusýning í umsjón Báru.
Kaffiveitingar.
Fundarstjóri: Guðfinna Vigfúsdóttir.
Allir velkomnir. — Takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
RAUTT
mÍUMFFROAR ^
RAUTT
UÓS