Alþýðublaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 8
• • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • ••• • • • • • • • • • SÍBERÍUMAÐUR VILDITIL REYKJAVÍKUR: Sovéskir öryggis- verðir á Moskvuflugvelli afvopnuðu mann í gær sem reyndi að ræna flugvél og vildi fljúga til Reykjavíkur, samkvæmt fréttum Tass. Frétta- stofan segir að hér sé um að ræða 30 ára gamlan mann frá Barnaul í Síberíu. Flugvélin, sem er af gerðinni TU-154, var að koma til Moskvu frá Síberíu. Maðurinn krafðist þess að eldsneyti yrði sett á flugvélina og henni síðan flogið til höfuðborgar Islands með millilendingu í Ham- borg. Öryggisverðirnir réðust til atlögu þegar verið var að færa vélina til eldsneytistöku. Ekki er vitað hvað vakti fyrir manninum með kröf- unni um að fljúga til íslands, en flugræningjar hafa mjög látið að sér kveða í Sovétríkjunum að undanförnu. VEXTIR í PÓLLANDILÆKKA NIÐUR í 59%: Pólski Þjóðbank- inn hefur tilkynnt lækkun grunnvaxta úr 72% niður í 59%. Vaxtalækk- unin tekur gildi á morgun. Vextir voru hækkaðir úr 55% í 72% í janúar siðastliðnum og var það liður í baráttu ríkisstjórnarinnar gegn verð- bólgu, sem nam 250% miðað við 12 mánaða tímabil um síðustu ára- mót. Stjórnin telur nú að verðbólgan muni verða 55% á yfirstandandi ári og fylgir vaxtalækkunin í kjölfar spádóma um lækkun verðbólg- unnar. Ríkisstjórnin tók við 640% verðbólgu árið 1989 er kommúnista- stjórnin lét af völdum. SÍMASAMBAND VIÐ BAGDAD: Tilkynnt hefur verið í írak að takmarkað símasamband kæmist á í Bagdad í dag. Símasamband rofn- aði í Persaflóastríðinu. Hussein forseti fól fyrir nokkrum dögum tengdasyni sínum að koma lagi á símamálin, en hann er jafnframt varnarmálaráðherra landsins. FLÓTTAMENN í DANMÖRKU í HUNGURVERKFALLI: um 600 palestínskir flóttamenn í Danmörku eru í hungurverkfalli til að mótmæla ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að senda þá flótta- menn aftur til Líbanon sem ekki hafa fengið landvistarleyfi í Dan- mörku. Nokkrir flóttamenn byrjuðu hungurverkfall fyrir viku og það hefur síðan breiðst út. Flóttamennirnir óttast hefndaraðgerðir Sýr- lendinga ef þeir verða neyddir til að snúa aftur til Líbanon. Frá því í september hafa dönsk yfirvöld hafnað umsóknum frá um 300 ríkis- fangslausum Palestínumönnum sem sótt hafa um pólitískt hæli í Dan- mörku. Nú bíða um 900 eftir leyfi um hæli í landinu. Frá árinu 1985 hafa Danir veitt 6.275 ríkisfangslausum Palestínumönnum hæli. ÖFLUGUR JARÐSKJÁLFTI í S0VÉT: Jarðskjálfti, sem talinn er hafa verið að minnsta kosti sjö stig á Richter-kvarða, varð í Georgíu í Sovétríkjunum. Talið er að að minnsta kosti 24 hafi farist í jarðskjálftan- um og fjölmörg hús hrundu. Erfitt hefur verið að ná sambandi við svæðið og segja yfirvöld að tala látinna geti átt eftir að hækka. VIÐVÖRUNARFLAUTA BRÁST Fellibylur fór yfir bæinn Ando- ver í Kansas og fórust 14 íbúar í hamförunum, en vindhraðinn var 400 km á klukkustund. Flautur sem áttu að vara íbúana við yfirvofandi hættu fóru ekki í gang þegar til þeirra átti að grípa áður en fellibylurinn skall á bænum. Lögreglan ók um götur bæjarins og varaði bæjarbúa við um hátalara þegar ítrekaðar tilraunir til að gangsetja flauturnar báru ekki árangur. Fjögur hundruð heimili eyðilögðust í þessum fimm þúsund manna bæ sem er tæpa þúsund km suðvestur af Chicago. Fjöldi fellibylja gekk yfir sjö ríki Bandaríkjanna og ollu gífurlegu eigna- tjóni og yfirvöld segja að 23 hafi farist í Kansas og Oklahoma. GEGN HUNGURSNEYÐÍ AFRÍKU: Anna Bretaprinsessa vekur athygli landa sinna á því að 27 milIjónir Afrikubúa sjái fram á hungurs- neyð. Anna sleppti hádegisverðinum í gær og hvatti aðra til að gera það sama og láta andvirðið renna til hjálparstofnana. Hún sagði að andvirði hádegisverðar síns nægði til að fæða 450 Afríkubúa í einn dag. KÓKAÍNSMYGLARAR GÓMAÐIR: strandgæsian í Argentínu fann um 150 kíló af kókaini sem falin voru i farmi af þurrkuðum baun- um sem átti að fara til Spánar. Smyglið fannst í vöruhúsi í nágrannabæ Buenos Aires og voru fimm menn handteknir. Viðeyiarstiórnin Ný ríkisstjórn er að taka við völd- um, Viðeyjarstjórn virðist ætla að verða nafn hennar, enda hefur hornsteinn hennar verið lagður í eynni á síðustu dögum, enda þótt hún yrði endanlega til í Alþingishús- inu í gærdag. Fréttamenn hafa fylgst náið með fæðingu nýju stjórnarinnar, þar á meðal fréttamenn Alþýðublaðsins. Hér á síðunnj eru þrjár myndir úr safni Einars Ólasonar, Ijósmyndara okkar. I AÐ LOKNU „REIPTOGI": Leiðtogar flokkanna tveggja halda hér út i Viö- eyjarferjuna að loknu „reiptogi" sínu um helgina. Davíð Oddsson með allt sitt undir hendinni, Jón Baldvin með sín skjöl i tösku sinni. SKIPSTJÓRINN: Davíð Oddsson um borð í Viðeyjarferjunni hans Haf- steins. Síminn gefur engin grið, það er mikið um að vera. Davíð er óneit- anlega skipstjóralegur, enda bíður hans nú að stýra stjórnarskútunni, Viöeyjarstjórninni. VIÐREISNARMENN: Jón Baldvin á fundi með þingflokki sínum í gær- dag. Hann gengur nú til viöreisnar með flokk sinn. Málverkið fyrir aftan hann er af Gylfa Þ. Gíslasyni, sem sat í viðreisnarstjórn á árum áður sem leiðtogi Alþýðuflokksins. Vinningstölur laugardaginn 27. apríl 1991 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 2.694.968 2.4ÍTMí 3 155.838 3. 4 af 5 129 6.251 4. 3af 5 4.690 401 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.849.551 kr. l Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út á Lottó sölustööum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.