Alþýðublaðið - 31.05.1991, Side 3
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ
3
Fréttir í hnotskurn
MOTMÆLA GERRÆÐI: Stjórn Náttúrulækningafélags ís-
lands hélt stjórnarfund á Akureyri í fyrradag. Þar var mótmælt „því
gerræöi sem felst í samþykkt Læknafélags íslands" frá deginum áður,
en þá var nýjum yfirlækni beinlínis stillt upp við vegg. Stjórn NLFI
segir að Læknafélagið hafi aldrei kynnt sér deilurnar í Hveragerði
nema frá annarri hliðinni, en láti sér þó sæma að hóta starfandi yfir-
lækni heilsuhælisins brottrekstri úr félaginu fyrir það eitt að vilja
halda áfram störfum sínum fyrir NLFI.
HANDAVINNA OG KAFFI: Á sjómannadaginn á sunnudaginn
verður sýning og sala á handavinnu vistfólks Hrafnistu í Reykjavík
og Hafnarfirði frá kl. 13.30 til 17. Meðal annars verður sýnd tóvinna.
Á báðum heimilunum verður kaffisala frá 14.30 til 17 og rennur
ágóðinn til velferðarmála vistfólksins.
LISTIN 0G VIRÐISAUKINN: Á myndlistarþingi Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna voru samþykkt mótmæli til stjórnvalda
vegna innheimtu á virðisaukaskatti við sölu listaverka í sýningarsöl-
um og galleríum. Formaður sambandsins er Þór Vigfússon.
RÁÐIN SAFNSTJÓRI: uija
Árnadóttir, þjóðhátta- og fornleifa-
fræðingur, hefur verið ráðin í nýja
stöðu við Þjóðminjasafn Islands til
næstu fimm ára, hún verður safn-
stjóri. Mun Lilja hafa með höndum
stjórn og umsjón með daglegri starf-
semi safnsins, m.a. sýningagerð, rann-
sóknum, söfnun, forvörslu og skrán-
ingu. Þjóðminjavörður mun nú ann-
ast um alla þjóðminjavörslu í landinu.
Lilja verður staðgengill Þórs Magn-
ússonar, jrjóðminjavarðar.
BREIÐABLIK Á SANDGRASI: Fyrstu deildar lið Breiðabliks
leikur heimaleiki sína í knattspyrnu á nýja sandgrasvellinum í Kópa-
vogsdal, við suðurenda leikvangs bæjarins, en gras hans er nú verið
að endurnýja. Á nýja vellinum eru stæði fyrir 800 manns. Aðkeyrsla
sú sama og að Kópavogsvelli.
SFR MÓTMÆLIR VAXTAHÆKKUN: Starfsmannafélag rík-
isstofnana hefur harðlega mótmælt vaxtahækkun þeirri sem
ákveðin hefur verið af ríkisstjórninni. Sérstaklega er mótmælt aftur-
virkum vaxtahækkunum á húsnæðislánum frá 1984. „SFR telur það
algert siðleysi að koma þannig aftan að húseigendum, sem gert hafa
greiðsluáætlanir gerðar út frá öðrum forsendum," segir í ályktun
stjórnar SFR.
FRAMKVÆMD BYGGINGAREGLUGERÐAR: Á undanförn-
um árum hefur byggingareglugerö fyrir landið allt verið í endurskoð-
un og framkvæmd hennar með ýmsum hætti. Bygginganefnd Ak-
ureyrar hefur ákveðið að efna til ráðstefnu um þetta málefni föstu-
daginn 7. júní og hefst hún kl. 8.30 um morguninn og stendur til 9.
júní. Fyrirlesarar verða átta talsins. Jón Geir Ágústsson, bygginga-
fulltrúi Akureyrar gefur allar nánari upplýsingar, en þátttöku þarf að
tilkynna til Byggingaþjónustunnar í Reykjavik fyrir 5. júní.
FRAMTIÐ SKALH0LTS: Dóms-og kirkjumálaráðherra hefur skipað
nefnd í samráði við biskup Islands og menntamálaráðherra til að huga
að málefnum Skálholtsstaðar og gera tillögur þar að lútandi, þar á meðal
framtíðar skólarekstur og rekstur sumarbúða, skipulagsmál og hvernig
heppilegast sé að nýta land Skálholts til landbúnaðar. Lára Margrét
Ragnarsdóttir. alþingismaður, er formaður nefndarinnar.
ÓMAR Á „YFIR STRIKIÐ": ómar
Stefánsson, mvndlistarmaður. opnar
sýningu á verkum sínum á veitinga-
húsinu Yfir strikið, á laugardaginn.
Ómar hefur vakið verðskuldaða at-
hygli fvrir verk sín hér heima og er-
lendis og er einhver umdeildasti lista-
maður sinnar kynslóðar.
Ný lög um þingsköp vœntanlega samþykkt í dag
Reyna á þroska
þingmanna
— segir Eiður Guðnason um breytingu á þingsköpum
Væntanlega munu alþingis-
menn afgreiða endanlega í dag
lög sem breyta þingsköpum
verulega. Með þeim er meðal
annars opnuð leið til þess að
kalla Alþingi saman hvenær
sem er og þá er gert ráð fyrir
því að fastanefndir þingsins
starfi allan ársins hring. Þing-
menn hafa verið einhuga um
breytingarnar.
Umræður drógust mjög á lang-
inn í gær. Utandagskrárumræða
um tvíhliða viðræður Islands við
EB, sem Halldór Ásgrímsson hafð-
is óskað eftir, var frestað — og
mun fara fram klukkan hálf níu
fyrir hádegi í dag. Það var álit
margra þingmanna í gær að vor-
þingið nú hefði ekki lent í þeim
farvegi sem til stóð — þ.e. að ræða
fyrst og fremst breytingar á þing-
sköpum og ganga frá stjórnar-
skrárbreytingum. Með nýju þing-
skaparlögunum stæðu vonir til
þess að starf á Alþingi yrði mark-
vissara.
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra sagði við umræðurnar í gær
að nauðsynlegt kynni að reynast
að kalla þing saman utan venju-
legs þingtíma, en að þá yrði að
vera gott samkomulag um starfs-
aðferðir. Til dæmis um að ræður
yrðu ekki of langar. Það, vsgri
freistandi fyrir þingmenn ,,að
halda flugeldasýningar af ýmsu
tagi,“ en væri þing kvatt sérstak-
lega saman reyndi á þroska
manna við þinghaldið. Svavar
Gestsson þingmaður hafði fyrr í
umræðunni tekið í svipaða strengi
og talið þingheim á þroskabraut
með samþykktinni um breytt
þingskaparlög.
Þorlákshöfn — myndin tekin fyrir nokkrum árum. Götur bæjarins eru löngu komnar í betra horf.
Þorlákshöfn fagnar 40 ára afmæli
Ný björgunarstöð
og heilsugæslustöð
Fyrir 40 árum voru reist fyrstu
þrjú húsin í núverandi myndar-
legu þorpi, Þorlákshöfn. Fyrsta
húsið á staðnum var reyndar fyr-
ir og á manntali Þorlákshafnar
árið 1950 voru skráðir 4 karl-
menn — en engin kona né barn.
Það hlýtur að hafa verið tómlegt
á staðnum í þann tíð.
Árið 1951 var Meitillinn eini aðil-
inn sem veitti atvinnu á staðnum, en
núna eru á firmaskrá Þorlákshafnar
á sjötta tug fyrirtækja. Þetta ár voru
gerðir út frá staðnum 5 litlir bátar,
samtals 104 tonn, en á nýliðinni ver-
tíð var gert út 31 skip, samtlas 4647
tonn. Þetta segir þá sögu að Þorláks-
höfn hefur byggst af miklum hraða.
„Útvarp Alþingi,
góðan daginn"
þingnefnd vill kanna mögu-
leika á að útvarpa stöðugt
frá Alþingi á sérstakri rás
Svo kann að fara að ný út-
varpsrás sérhæf i sig í að útvarpa
öllum umræðum á Alþingi. Þing-
nefnd vill að forsætisnefnd AI-
þingis kanni möguleikana á því
að umræður á þingi berist stöð-
ugt inn á heimili landsmanna og
vinnustaði.
I umræðum um fyrirhugaöar
breytingar á þinghaidi hefur stjórn-
skipunar- og þingskapanefnd lagt til
að sem fyrst verði kannað hvort
hægt verði að útvarpa stöðugt frá
umræðum á Alþingi. Bendir nefnd-
in á að það verði auðveldara þegar
þing verður komið saman í eina
málstofu. Leggur hún til að færsæt-
isnefnd Alþingis skoði tæknilega
möguleika á að útvarpa á sérstakri
rás.
Þar bjuggu um áramótin 1229
manns og hafði þá fjölgað um rúm-
lega sjö hundruð manns á 20 árum.
I Þorlákshöfn verður sjómanna-
dagsins minnst tilhlýðilega, og til-
efnið tvöfalt, afmæíi staðarins og
hátíðisdagur sjómanna, sem kemur
reyndar öllum bæjarbúum við. Há-
tíðahöldin hefjast á morgun, laugar-
dag, með samkomuhaldi og sýning-
um. Hátíðin stendur síðan fram á
aðfaranótt mánudagsins.
Forseti íslands heiðrar Þorláks-
höfn með nærveru sinni og margir
góðir kraftar munu leggja lið.
í næstu viku lieldur hátíðin áfram
með lúðrasveitartónleikum. Vígt
verður nýtt hús björgunarsveitar-
innar og ný heilsugæslustöð verður
tekin í notkun. Fjölmargt annað
verður á dagskrá í Þorlákshöfn
þessa afmælis- og sjómannaviku.
Varnarmúr gegn hljóðmengun
Hvers konar mengunarvarnir eru nú ofarlega á baugi og þá er ekki aðö-
eins átt við varnir gegn sýnilegri mengun. Hávaði telst vera heilsu-
spillandi þegar hann er kominn yfir ákveðin mörk og hávaðamengun er
allt í kringum okkur. Fyrst er gerð glœsileg hraðbraut í Breiðholtin. Síð-
an byggð glœsileg hús við hraðbrautina og þá uppgötvast að hávaði frá
umferðinni er meiri en œskilegt er heilsu manna. Þa er byggður hljóðmúr
milli hraðbrautarinnar og húsanna fyrir nokkrar milljónir króna og
verður þá vœntanlega hljótt og kyrrt bak við múrinn. A-mynd. E. Ol.