Alþýðublaðið - 31.05.1991, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ
LANGIR OG STRANGIR TÚRAR
— segir Viktor Tsjevtsjenko háseti á sovéska verksmiöjutogaranum Salva
Þeir eru sex til sjö mónuði á sjónum i einu, enginn is-
lenskur sjómaður myndi sœtta sig við oðbúnaðinn.
Vistarverurnar lykta af sagga og slagvatnsfýlu, klef-
arnir eru þröngir, dimmir og loftlausir. Ekld er hægt að
komast i kaffisopa nema ó motmólstimum og borðsal-
urinn er kuldalegur og ón allra þæginda. Á milli túra f á
þeir þriggja til fjögurra vikna fri. Þeir geta ekki hætt
og farið i land þvi þá biður þeirra ekkert annað en at-
vinnuleysi og örbirgð.
Rússneskar sigarettur
og aflógq lödur_____________
í síðustu viku lá sovéskur verk-
smiðjutogari við bryggju í Reykjavík
vegna bilunar. Á kvöldin hímdu sjó-
mennirnir á bryggjunni og reyndu
að selja landanum rússneskar sígar-
ettur og ýmsa smámuni sem þeir
höfðu í farteski sínu. Þeir voru að
safna sér fyrir Lada-bílum sem Is-
lendingar þóttust of góðir til að
nota. Þeir sem höfðu komist yfir að
kaupa sér bíl sátu hugfangnir í dýrð-
inni og hlustuðu á ameríska popp-
músík í útvarpinu.
Erfið og slitandi vinna
og miklar f jqrverur__________
fró heimili___________________
Fæstir sjómannanna gátu tjáð sig
á öðru máli en sínu eigin. Einn
þeirra Viktor Tsjevtsjenko talaði
ágæta ensku. Hann sagðist vera bú-
inn að vera fimmtán ár til sjós og
það væri erfið og slítandi vinna að
vera á sjónum. ,,Verstar eru þó þess-
ar fjarverur frá konu og börnum. Ég
á fjögur ung börn og stundum líða
margar vikur án þess að ég frétti
nokkuð af þeim, það getur oft verið
erfitt."
Viktor sagði að það væri líka mik-
ið andlegt álag að vera í svona lok-
uðu litlu samfélagi mánuðum sam-
an. ,,Ef maður vill vera út af fyrir sig
er erfitt að finna athvarf á svona
vinnustað. Um borð eru 75 menn,
undirmenn eru í þriggja og fjögurra
manna klefum og það er varla til sá
staður um borð sem maður getur
verið einn eina einustu stund."
Fiskiriið tregf,______________
ew það skiptir engu___________
launalegg séð_________________
Á síðustu mánuðum hafa þeir ver-
ið á djúpkarfaveiðum langt suð-vest-
ur af landinu, þeir eru óhressir með
fiskiriið. ,,Það skiptir ekki svo miklu
fyrir okkur hvað mikið fiskast, við
erum á föstum launum hvort sem
veiðist vel eða illa. Auðvitað erum
við óánægðir með kaupið, það dug-
ir varla til að framfleyta fjölskyld-
unni. Við þurfum að vinna 12 til 16
tíma á dag og fyrir þannig vinnu
eiga menn að hafa meira en rétt
dugir til að lifa."
Viktor sagði að léleg vinnuað-
staða, frumstæður tækjabúnaður og
úrelt skip yllu því að svo margir
væru í áhöfninni. ,,Þeir sem hafa
farið um borð í íslensku skipin eru
heillaðir af því hve þau eru nýtísku-
leg, þrifaleg og hvað þeim er vel við
haldið." Honum þótt vænt um að
heyra að það til væri sérstakur há-
tíðisdagur fyrir sjómenn og bað fyr-
ir bestu kveðjur til allra íslenskra
sjómanna.
Viðhald á rússneska verksmiðjuskipinu virtist litið og lélegt, eöa þætti það á islenska fiskiskipa
flotanum.
Áhöfn á leið um borö í „heimili" sitt, ryðgaöan verksmiðjutogara, þar sem mannskapurinn hírist
mánuöum saman við hið bágasta atlæti.
aFSKORNAR
rósir
Allar afskornar rósir á
Aðeins
Ajjf / kr. stk.
á meðan birgðir endast.
a ^ Mikil uppskera
wL A-lítið verð
\i—^ 1 nnn cn
y\jrxr~i~y TV/'-y Arivr;-miv-
Stór flauelsblóm í potti
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sírni 689070