Alþýðublaðið - 11.12.1992, Síða 1
Frestun á samþykkt EES:
Hý störi i hættu
- Skipulögð markaðssókn íslenska fyrirtœkjanetsins Euronet rennur
út í sandinn verði ekki afEES. Svisslendingar úti í kuldanum
Dráttur á staðfestingu
EES-samkomulagsins getur
haft þær afleiðingar að mark-
viss sókn nokkurra íslenskra
matvælafyrirtækja inn á Evr-
ópumarkaðinn verði að engu.
Þetta kom fram í samtali Al-
þýðublaðsins við aðila, sem í
tengslum við Iðntæknistofnun
vinnur um þessar mundir að
því að afla nýrra markaða í
tengslum við EES.
Að sögn hans var stofnað til
fyrirtækjanetsins Euromat af
aðilum í fiskvinnslu og mjólk-
uriðnaði. Um er að ræða fram-
leiðslu og útflutning á sjávaraf-
urðum, súpum og sósum fyrir
veitingahúsakeðjur í Evrópu.
Mikið og skipulagt undirbún-
ingsstarf hefur verið unnið, og
samningar þegar langt komnir
við tvö frönsk og tvö bresk
dreifíngarfyrirtæki.
Samningar við svissneskt
dreifingarfyrirtæki voru enn-
fremur í burðarliðnum, en eftir
að úrslit þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar í Sviss urðu kunn runnu
þeir út í sandinn.
Nái EES-samningurinn ekki
fram að ganga lokast fyrirtækj-
unum þessar leiðir og fjöldi
nýrra atvinnutækifæra glatast.
Sjá nánar á blaðsíðu 11.
daqar tit jóta
s s
Mjög dregið úr niðurskurði til SAA:
„Vid erum af-
ar ánægðir"
- segir Theodór Halldórsson fram-
kvœmdastjóri SAA. Össur Skarphéð-
insson: „Fagnaðarefni.
Þingmenn Alþýðuflokks beittu sér
mjög í þessu máli“
„Við erum afar ánægðir
með þá ákviirðun að dregið
verði verulega úr niðurskurði
til SAA. Við áttum ítarlegar
viðræður við heilbrigðisráð-
herra og niðurstaðan var sú
að við mættumst á miðri leið,“
sagði Theodór Halldórsson,
framkvæmdastjóri SÁÁ, í
samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Fyrirhugað var að skerða
framlög til SÁÁ um 15%. Að
sögn Theodórs hefði þá orðið að
grípa til þess ráðs að loka með-
ferðarstöðinni að Staðarfelli í
Dölum. Nú er ljóst að ekki þarf
að koma til þess.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins verða framlög til
SÁÁ aðeins skert um 7%.
Theodór sagði að SÁÁ myndi
mæta því með margháttaðri
hagræðingu.
„Það er mikilvægt að sam-
komulag varð um að minnka
niðurskurðinn, sérstaklega í
Ijósi þess að frantlög til SÁÁ
voru skert um 15% í fyrra. Ef
við hefðum orðið fyrir sömu
skerðingu nú, hefði það í raun
þýtt breytta stefnu hins opinbera
í áfengisntálum. Sú er ekki
raunin,“ sagði Theodór.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður þingflokks jafnaðar-
manna, kvaðst mjög ánægður
með niðurstöðuna. „Við fögn-
um þessu, þingmenn Alþýðu-
flokksins, enda beittum við
okkur ntjög fyrir því að viðun-
andi lausn fyndist."
Össur sagði rnjög mikilvægt
að tryggja öflugt staif SÁÁ.
„Allir vita að SÁÁ hefur náð
gríðarlegum árangri með starfi
sínu. Nú eru vissulega erfiðir
tímar en við skulum hafa hug-
fast að stundum getur niður-
skurðurorðið okkurdýr. Hvergi
á það betur við en varðandi
starfsemi SÁÁ.“
Midbær
Hafnarfjarðar
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi í Hafnarfirði skrifar í dag
grein um bygginga- og skipulagsmál í miðbæ Hafnaifjarðar.
Þar eru halhar umfangsmiklar framkvæmdir og aðrar eru að
fara í gang. Allt um það á blaðsíðu 5.
VEL MÆLT
Mærri 2®0Ö innlendl og erlecftd spakma^i
og fíiirifnofiír fil íhtiganor og .dægrodwoicir
Sigurbjörn Einarsson tók saman
Þessi bók hefur að geyma íslenskar og erlendar tilvitnanir, - fleyg orð
úr ýmsum áttum. Bókinni er skipt í 40 efnisflokka. Dæmi: Líf og lífssýn
- Fjölskyldan - Ástin - Ættjörðin og móðurmálið - Reynsla og sorg
- Listir og menntun - Æskan - Ellin - Guð - Bænin - Hamingjan
- Satt og ósatt - Uppeldi - Gleði og gaman.
Orð til íhugunar og dægradvalar.
Verð: 2.450 kr.
SETBERG
Freyjugötu 14, sími 91 17667