Alþýðublaðið - 11.12.1992, Blaðsíða 6
6
Föstudaqur 11. desember 1992
Islenskir fossar - glœsileg bók
Verðmæti sem mælast
í unaðstundum
- ekki gígavattstundum
Líklega má segja um l'ossa á ís-
landi að þeir séu óteljandi, ekki síður
en eyjarnar á Breiðafírði eða vötnin
á Arnarvatnsheiði, segir Jón Kr.
Gunnarsson, höfundur vandaðrar
og fallegrar bókar, sem Skuggsjá
hefur gefið út, Islenskir fossar.
Jón segirerfitt í mörgum tilfellum að
meta hvað em fossar og hvað flúðir.
Hann bendir á að Island hafi af mörgu
að státa sem telst til náttúmprýði. Eitt
af því sé hinn mikli fjölbreytileiki foss-
anna. Vart muni nokkurt annað land
komast þar til jafns.
Jón Kr. Gunnarsson hélt af stað um-
hverfís landið með myndavél sína, og
verður ekki annað sagt en að hann hafi
aflað sér góðs myndefnis. Myndimar
eru hreint afbragð. Jón er ennfremur
maður pennafær í besta lagi, og ritar
skemmtilega með myndunum, textar
em auk þess á ensku líka.
„Eg er líklega nokkuð sérvitur mað-
ur“, sagði Jón Kr. Gunnarsson í samtali
Þorsteinn Marelsson
skrifnr á Milli vila
s
- Utgefandi Mál og menning
Út er komin hjá Máli og tnenn-
ingu unglingabókin, Milli vita, eft-
ir Þorstein Marelsson. Hann er
þrautreyndur í barna- og ung-
lingabransanum, enda fengist
lengi við dagskrágerð fyrir þenn-
an aldurshóp og skrifað nokkrar
bækur fyrir hann.
Söguhetjan er 15 ára strákur sem
fínnst veröldin stundum standa á
haus og allt ganga sér í óliag. En
þrátt fyrir allt er spennandi að vera
unglingur og aldrei er nokkur logn-
molla í félagahópnum,
Gamansemi og bjartsýni einkenn-
ir söguna sem sýnir heim unglinga
og foreldra þeirra frá raunsæu sjón-
arhorni.
Ekkert sextán-ára-í-sambúð-sull
hér á ferðinni, heldur raunsæispólitík
rithöfundar sem veit hvað krakkam-
ir vilja lesa, og kærir sig kollóttan
um hvað fimmtán-ára-á-föstu-
frænkunum finnst. Ætli Þorsteinn
veili kollega sínum Þorgrími ein-
hverja samkeppni?
Bókin er sú fyrsta sem Mái og
menning gefur út eftir Þorstein Mar-
elsson. (154 blaðsíður. - Prentuð í
Odda.)
við Alþýðublaðið. „Ég hóf hringinn í
Borgarfirði, og greini frá fossum þess
héraðs fyrst, og held síðan umhverfis
landið".
I siðmenningu sem mest virðist huga
að aukinni þjóðarframleiðslu, beinast
augu manna æ meira að því að virkja
sem flesta fossa landsins, og kreista út
úr þeim sem flestar gígawattstundir
raforku. En Jón Kr. Gunnarsson bendir
á að í fossunum liggja meiri verðmæti
og allt önnur, verðmæti sem mælast í
unaðsstundum, og vitnar hann þar í dr.
Sigurð Þórarinsson.
Bókin íslenskir fossar er 352 bls. að
lengd, prentuð á úrvals myndapappír
og hin veglegasta í allri gerð.
JCELANDIC
Rússar fú öflugra símkerfi
- Motorola gerir tilraunir með þráðlaus keifi í St. Pétursborg
Rússar munu á næstunni kvnnast
nýjungum Motorola- fyrirtækisins í
fjarskiptatækni, en gerð verður til-
raun ineð þráðlaust, svæðisbundið
símkerfi sem Motorola framleiðir í
Bretlandi. Kerfi þessu er ætlað að
vera viðbót við eldri kerfi af hefð-
bundinni gerð, en símakcrfi Rúss-
lands mun ckki beinlínis gott.
Búnaðurinn er nú á leið til St. Péturs-
borgar, áður Leningrad. Slfk kerfi
koma að góðum notum víða unt heim
þar sem ekki er hægt að anna eftirspum
eftir símaþjónustu af hefðbundinni
gerð vegna þess hve kostnaðarsamt
það er að tengja alla notendur með kop-
arvírum, sem er ömggasta símatæknin
sem völ er á.
Þráðlaus svæðistenging Motorola
byggist á því að hliðræn farsímagmnn-
stöð tengist beint næstu símstöð innan
þráðbunda kerfisins. Síðan tengjast
venjuleg símtæki, faxtæki eða mótöld
kerfinu gegnurn staðbundið sendivið-
tæki, sem nýtir þá farsímatækni sem
fyrir hendi er. Að öðru leyti er kerfið
hliðstætt almenna kerfinu í notkun.
Starfsmenn Motorola segja að ekki
þurfi að líða nema 3-6 mánuðir frá
fyrstu áætlanagerð þar til unnt sé að
taka kerfið í notkun. Tilraunakerfið í
St. Pétursborg ætti að vera komið í
notkun innan viku frá því að búnaður-
inn kemur til borgarinnar.
„Tilraunin í St. Pétursborg ntun sýna
hvemig símafyrirtæki geta notfært sér
farsímatækni til þess að stækka kerfi
sín á fljótlegan og hagkvæman hátt.
Þráðlaus, svæðisbundin tenging færir
þau félagslegu og efnahagslegu þæg-
indi sem fylgja símanum örlítið nær
milljónum manna unt allan heim“, seg-
ir David Hughes, aðstoðarforstjóri hjá
Motorola.
BÆKUR
Þorgeir Ibsen
Hreint
og foeint
HREINT OG JSEIISIT
LJOÐ OG LJOÐLIKI
Hér ýtir nýr ljóðahöfundur úr vör með
ljóðabók, sem hann kallar Hreirtt og
beint. Þar eru farnar troðnar slóðir í
hefðbundnum stíl, en nýstárlegum þó
um sumt. Höfundur á það til að víkja af
alfaraleið í ljóðum sínum, einkum í þeim
Ijóðum sem hann nefnir ljóðlíki en ekki
ljóð. En Ijóðlíki hans eru þó allrar athygli
verð og standa vel fyrir sínu. Þar ber
kvæðið Minning greinilega hæst -
Ijóðlíki eins og höfundur nefnir það - um
Stein Steinarr, um atvik úr lífi hans sem
er á fárra vitorði, atvik sem aldrei hefur
verið lýst áður eða frásögn um það á
þrykk komist.
w
w
VKINGS
LBqAMITVI
NIOJATAL GUORÍÐÁR ÉYJÓÍFSDÓITUR
OG 3JARNAHALLOÓRSSONAF.
HREPPSTJÖRA A VIKINGSI.ÆK
PÉTUR
ZOPHONÍASSON
* ______________SKUGGSJA
LITLAR SÖGUR
czvesi/U'i. PciU
Litlar sögur eru safn sextán sagna um
fólk og fyrirbæri og óvenjulegar hliðar
hversdagsleikans. Meðal annarra koma
við sögu Þórunn Sveinsdóttir fyrir-
myndarhúsmóðir, Herjólfur skósmiður,
Jóhanna af Örk, unglingurinn Gunnar og
ég. Farið er á tónleika á gulum Renault,
í leikhús, fylgst með kosningadegi, hlýtt
á söng fiskanna og horft á húsið málað
svart.
Höfundurinn Sverrir Páll hefur áður
gefið út ljóðabókina Þú og heima og þýtt
bækurnar Kæri herra Guð, þetta er hún
Anna og Önnubók. Litlarsögur eru fyrstu
frumsamdar sögur hans sem dregnar eru
upp úr skúffu og koma fyrir augu
manna.
VIKINGSLÆKJARÆTT VI
Péiu/L £o{iJvo*UgAAio*l
í þessu sjötta bindi Víkingslœkjarœttar er
2. hluti h-liðar ættarinnar, niðjar Stefáns
Bjarnasonar. Þar sem ákveðið var að
rekja niðja hans fram á þetta ár, en miða
ekki eins og í fjórum fyrstu bindunum
við þau mörk, er æviskeið Péturs
Zophoníassonar setti verkinu, verður að
skipta niðjum Stefáns Bjarnasonar í
nokkur bindi, slíkur sem vöxtur ættar-
innar hefur verið. Rúmur helmingur
þessa bindis eru myndir.
Allsherjarnafnaskrá bíður lokabindis
útgáfunnar.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OLIVERS STEINS SF.