Alþýðublaðið - 11.12.1992, Síða 18
18
Föstudagur 11. desember 1992
siór hiuti Sjómannabækur loksins
lausir leíðbeinendur kynnfar i réttu umhverfi
Af 168 lærifeörum barna og ung-
menna í grunnskólum Vestfjarða
eru í vetur 74 svokallaðir „leiðbein-
endur“, en það eru réttindalausir
kennarar, en 94 menntaðir kennar-
ar. Pessar upplýsingar komu fram í
svari menntamálaráðherra, Olafs G.
Einarssonar, við fyrirspurn Einars
Skútuvogi 10a - Sími 686700
K. Guðfinnsonar, alþingismanns.
Greinilegt er að á Vestfjörðurn fjölg-
ar kennurum nokkuð, en leiðbeinend-
um fækkar. Kennarar á síðasta skólaári
voru 78 en leiðbeinendur 85 með rúm-
lega helming stöðugildanna við skól-
ana.
Engu að síður er það staðreynd að á
Vestfjörðum hefur gengið verst að
manna kennarastöður með fólki sem
hefur hlotið kennaramenntun. Þar í
fjórðungi er að finna langhæstu hlut-
fallstölur leiðbeinenda. eða næstum
40%. Til samanburðar má nefna að f
Reykjavík eru 1,8% stöðugilda í hönd-
um leiðbeinendanna.
Víðar um landið er pottur brotinn í
þessum efnum, einkurn á Norðurlandi
vestra og á Austfjörðum, en ástandið
hefur lagast milli ára. í fyrra voru leið-
beinendur með 17% kennslunnar í
landinu, - í vetur 12%.
Sjóminjasafn íslands bryddar nú
um helgina upp á þeirri nýjung að
gefa höfundum og útgefendum bóka
um siglingar og sjómennsku kost á
að kynna bækur sínar í safninu.
Næsta sunnudag verða kynntar
bækurnar: í kröppum sjó, Þeir létu
ekki deigan síga og Stormur strýkur
vanga. Sjá dagskrá.
Sjóminjasafnið, sem er deild í Þjóð-
minjasafni Islands, er staðsett í Bryde-
pakkhúsinu að Vesturgötu 8 í Hafnar-
firði. Þetta 130 ára gamla timburhús
myndar afar viðeigandi umgjörð um
muni og minjar frá sjósókn fyrri tíma.
1 safninu er meðal annars að finna
líkön og ljósmyndir af skútum, togur-
um, farþegaskipum og varðskipum.
Einnig eru þar fallbyssa og klippur
Landhelgisgæslunnar frá Þorskastríðs-
árunum; sem og kortaklefi og loft-
skeytaklefi úr togara; gamlir árabátar,
sjóklæði úr skinni, síldarminjar og
veiðarfæri, auk fjölmargra annarra
stónoerkilegra muna.
Bókakynning Sjóminjasafnsins
verður haldin næstkomandi sunnu-
dag, 13. desember. Hún hefst klukk-
an 15:00 og inun Ijúka um klukkan
17:00. Veitingahúsið A. HANSEN,
sein er í næsta húsi við safnið, býður
upp á sjómannakaffi og harm-
onikkuspil. Dagskráin verður sem
hér segir:
Klukkan 15:00 - Helgi Hallvarðs-
son, skipherra Landhelgisgæslunnar,
og Atli Magnússon segja frá sægörpum
og svaðilförum og kynna bókina „í
KRÖPPUM SJÓ“ sem Öm og Örlygur
gefa út.
Klukkan 15:30 - Skjaldborg kynnir
„ÞEIR LÉTU EKKI DÉIGAN SÍGA“,
frásagnir af nokkmm forystumönnum í
síldarútvegi áranna 1880-1968 þegar
silfur hafsins setti svip á þjóðlífið.
Klukkan 16:00 - Ólafur Haukur
Símonarson kynnir endunninningar
afa síns, Guðjóns Símonarsonar,
„STORMUR STRÝKUR VANGA“,
sem var aflakló á fyrstu vélbátunum.
(Sjá nánar umfjöllun í Alþýðublaðinu í
dag.) Forlagið gefur út.
Menntamálaráöuneytiö
Laus staða
Staöa skólastjóra Listdansskólans er laus til umsóknar.
Samkvæmt 3. gr. reglna um Listdansskólann „ræöur mennta-
málaráöherra skólastjóra til fjögurra ára“. „Skólastjóri þarf aö
hafa menntun í listdansi og atvinnuferil viö viöurkennda list-
dansstofnun".
Ráöningartími skólastjóra miöast viö 1. júní.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um menntun og starfsreynslu, sendist
menntamálaráöuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
30. desember n.k.
Menntamálaráöuneytið,
9. desember 1992.
ÍSLANDSBANKI
SOKKAR
Sígild jólagjöf!
Ótal gerðir og stærðir.
Úr bómull, ull, angóraull og
fleiri efnum
VÍKURPRJÓN
Sími 98-71250
Hluthafafundur
Hluthafafundur í íslandsbanka h.f. verður
haldinn mánudaginn 21. desember n.k.
í Atthagasal Hótels Sögu og hefst kl. 16:00.
Fundarefni
1. Tillaga um sameiningu Eignar-
haldsfélagsins Iðnaðarbankinn
h.f. og Eignarhaldsfélags Versl-
unarbankans h.f. við íslands-
banka h.f.
2. Tillögur um breytingar á sam-
þykktum félagsins:
a) Að enginn hluthafi getifarið
með fleiri atkvœði á hluthafa-
fundum en sem sem nemur
20% af atkvœðum í bankanum.
b) Að ákvörðun um breytingu á
samþykktum bankans þurfi að
hljóta samþykki 2/3 hluta
greiddra atkvœða og samþykki
hluthafa sem ráða yfir minnst
2/3 hlutum þess hlutafjár sem
farið er með atkvœði fyrir á
hluthafafundi.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir í íslandsbanka h.f., Bankastræti 5
(4. hæð), Reykjavík,dagana 16., 17. og 18.desember
n.k. sem og á fundardegi.
Dagskrá fundarins og tillögur munu frá 14. des-
ember n.k. liggja frammi á sama stað.
Bankaráð Islandsbanka hf.
\