Alþýðublaðið - 11.05.1993, Side 7
Þriðjudagur 11. maí 1993
7
„ATVINNULAUSIR Á ÍSLANDI1993 “ - 5. hluti
Samantekt: Stefán Hrafn Hagalín
ATVINNULEIT -
NÚVERANDI MARKMIÐ
leita að vinnu segjast geta byrjað að vinna
innan tveggja vikna. Þeir sem skráðir voru
atvinnulausir um áramótin voru spurðir
hvort þeir hefðu áhuga á að fara í einhvers-
konar starfsnám til að auka möguleika sína
á að fá starf. Um tveir af hverjum þremur
sögðust hafa áhuga á slíku en um 4% sögð-
ust nú þegar hafa hafið starfsnám. Áhugi á
starfsnámi er mjög tengdur aldri atvinnu-
lausra. Þannig eru um 80% þeirra sem eru
undir 40 ára aldri áhugasamir um starfsnám
af einhverju tagi en einungis tæp 30% fólks
á aldrinum 55-75 ára.
13% atvinnulausra um áramótin voru EKKI í atvinnuleit. 43% atvinnulausra um áramótin voru komin
aftur í vinnu í mars. 15% atvinnulausra hafa sótt um 20 eða fleiri störf.
80% þeirra sem eru undir 40 ára aldri áhuga-
samir um starfsnám
Hvernig er atvinnuleit fólks háttað og
hver eru markmið þeirra í því sam-
bandi? Það ætlum við að kanna í þessum
5. hluta samantektar á helstu atriðum úr
skýrslu Félagsvísindastofnunar Háskóla
íslands um könnun stofnunarinnar á
högum og aðstæðum atvinnulausra í Is-
landi 1993. Könnunin var unnin að
beiðni félagsmálaráðherra, Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Þegar gögnin um atvinnuleit em skoðuð
koma skammtímaeinkenni íslensks at-
vinnuleysis enn frekar f ljós. Rúmlega 43%
þeirra sem vom atvinnulausir um áramótin
vom aftur komin í vinnu f byrjun marsmán-
aðar. 52-53% sögðust vera enn atvinnu-
laus. Rúmlega 4% gefa aðrar lýsingar á
stöðu sinni, til dæmis segist helmingurinn
af þessum 4% vera komin aftur í nám. Þeg-
ar spurt var um hvort menn væru að leita sér
að vinnu (í byrjun mars) vom það alls um
45,6% af heildarhópnum sem sögðu já.
41,1% vom komin aftur í vinnu og eru þar
af leiðandi ekki að leita sér að vinnu. 2,1%
em hins vegar komin í vinnu en em engu að
síður að leita sér að öðm starfi. Sérstaka at-
hygli vekur að um 13% af heildarhópi at-
vinnulausra um áramótin eru ekki að vinna
í mars og þessi 13% segjast heldur ekki að
vera leita sér atvinnu.
Þeir sem EKKI sögðust vera í atvinnuleit
vom spurðir hverju það sætti. Flestir þeirra
sögðust vera að bíða eftir vinnu sem reikn-
að væri með að byrjaði síðar (4% af þessum
13%). Aðrir bám íyrir sig persónulegum
aðstæðum (2%), veikindum eða fötlun
(1%), námi sem hafið væri (tæp 2%),
nokkrir sögðust vera komnir á eftirlaun
(1 %) og tæp 2% sögðu einfaldlega að enga
vinnu væri að fá. Þeir sem sögðust vera að
leita vinnu vom spurðir um hvort þeir væm
að leita sér að fúllu starfi eða hlutastarfi. í
ljós kom að um 61% vom að leita sér að
fullu starfi, 14% leituðu að hlutastarfi og af-
gangurinn (25%) sögðust taka því sem byð-
ist, hvort sem þar væri um fullt starf eða
hlutastarf að ræða.
Þegar innt var eftir aðgerðum sem at-
vinnulausir hefðu beitt til atvinnuleitar kom
í ljós að flestir höfðu sótt beint um atvinnu
til atvinnurekanda, spurst fyrir hjá vinum
og kunningjum og svarað auglýsingum í
blöðum. Tæplega 30% sögðust hafa leitað
leiða til að starfa sjálfstætt. Tveir af hverj-
um þremur höfðu sótt um eitt til tíu störf og
um 15% þeirra sem leitað hafa vinnu hafa
sótt um tuttugu eða fleiri störf. í kringum
95% þeirra sem eru atvinnulausir og em að
RAÐAUGLÝSINGAR
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjór-
ans í Reykjavík, óskar eftir tilboöum í gerö malbikaöra
gangstétta ásamt ræktun víðsvegar um borgina.
Verkiö nefnist: Gangstígar, útboö B.
Heildarmagn gangstétta er u.þ.b. 15.000 m2
Heildarmagn ræktunar er u.þ.b. 8.000 m2
Skilatími verksins er 1. október 1993.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama staö miövikudaginn 19. maí
1993, kl. 15.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
RENNIBRAUTARKEPPNI
Fimmtudaginn 20. maí nk. fer fram keppni í, hver verður
fyrstur niöur hrööustu vatnsrennibraut landsins.
Keppt veröur í þremur aldursflokkum:
Kl. 13.00: Börn fædd 1982 og síðar (10 ára og yngri).
Kl. 14.00: Börn fædd 1978-1981 (11-14ára).
Kl. 15.00: Unglingar og fullorðnir fæddir 1977 og fyrr.
Verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum aldursflokki.
Komiö og takiö þátt í skemmtilegri keppni, þar sem allir í fjöl-
skyldunni geta veriö meö, líka mamma og pabbi. Engin þátt-
tökugjöld, aöeins aögangseyrir aö sundlauginni.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkur til náms á Ítalíu skólaárlð 1993-94
ítölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingum til náms á
Ítalíu á háskólaárinu 1993-94. Styrkurinn er einkum ætlaður til
framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi
eða til náms við listaháskóla. Styrkfjárhæðin nemur 1.000.000 lír-
um á mánuði.
Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Sölvhóls-
götu 4, 150 Reykjavík, fyrir 24. þ.m. á sérstökum eyðublöðum
sem þar fást. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt
meðmælum.
Menntamálaráöuneytiö,
7. maí 1993.
o * a mta n r h a
fiHJEflGGBR
BIEIEREIEl
mmm
m e h «nkrs:ann.
Iftl.BSlUBBB&B
taaillBBBBEBBBK
mk
FRÁ HÁSKÓLA (SLANDS
SKRÁSETNING NÝRRA STÚDENTA
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Háskóla íslands há-
skólaárið 1993-1994 fer fram í Nemendaskrá Háskólans
dagana 1.-15. júní 1993. Umsóknareyöublöö fást í Nem-
endaskrá sem opin er kl. 10.00-15.00 hvern virkan dag á
skráningartímabilinu.
Einnig veröur tekiö viö beiðnum um skrásetningu nýrra
stúdenta dagana 6.-17. janúar 1994.
Viö nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnframt í námskeiö
á komandi haust- og vormisseri.
Umsóknum um skrásetningu skal fylgja:
1) Ljósrit eöa staðfest eftirrit af stúdentsprófsskírteini.
2) Skrásetningargjald: kr. 22.500,-
Skráning fer fram í afgreiðslu Sundlaugar Kópavogs frá og
meö 19. maí nk. (ekki í síma).
Sundlaug Kópavogs
„Skemmtileg sundlaug"
Ljósmyndun vegna nemendaskírteina fer fram í skólanum
í september 1993.
Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrásetningu eftir að
auglýstu skráningartímabili lýkur.
Frá grunnskólum
Hafnarfjaröar
Innritun í vorskóla
Boðið er upp á vorskóla fyrir börn fædd 1987 í öllum grunn-
skólum Hafnarfjaröar. Innritun fer fram í viökomandi skól-
um mánudaginn 17. maí kl. 15.00.
Skólafulltrúinn í Hafnarfiröi.
HAFNAMÁLASTOFNUN ...
ríkisins
Utboð - Suðurbakki IV
Þekja og lagnir
Hafnarstjórn Hafnarfjaröar óskar eftir tilboöum í 4.000 m2
malbikun og 2.800 m2 þekjusteypu. Einnig smíöi á tveimur
Ijósamasturs- og vatnshúsum, frágangi á ídráttarrörum fyr-
ir raflagnir, vatns- og frárennslislögnum.
Verki skal lokið fyrir 15. sept. 1993.
Útboðsgögn verða afhent á Hafnamálastofnun ríkisins,
Vesturvör 2, Kópavogi, frá og meö þriðjudeginum 11. maí,
gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð veröa opnuö á Hafnarskrifstofunni í Hafnarfirði,
Strandgötu 4, þriðjudaginn 1. júní 1993, kl. 14.00.
Hafnarstjórn Hafnarfjaröar.