Alþýðublaðið - 20.05.1993, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 20. maí 1993
3
Gro Harlem Brundlland
kom til landsins í gær
Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra Noregs kom í opinbera heimsókn til íslands í gær. Hún verður hér í boði Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra og ntun dvelja á Islandi í fjóra daga. Gro Harlem mun meðal annars fara til Þingvalla, Reykholts og Nesjavalla. Um miðjan
dag á föstudag mun norski forsætisráðherrann, sem nýlega sagði af sér sem formaður Verkamannaflokksins, eiga fund með forustumönn-
um Alþýðuflokksins. Hún mun einnig funda með forsætis- og utanríkisráðherra og utanríkismálanefnd Alþingis. Ekki er ólíklegt að hval-
veiðar Norðmanna og Islendinga verði beri á góma á fundunum, en í fyrradag ákváðu Norðmenn að hefja herfnuveiðar að nýju þrátt fyrir
bann Alþjóða hvalveiðiráðsins.
„Yfirgengilegt“, segir biskup um orðpredik-
ara um sjálfsvíg, en predikarinn sagði fleira í
rœðu sinni, og fordœmdi meðal annars sund-
staði landsins
ÞAR SÝNA
KONUR
JÚGUR SÍN OG
NAKIN LÆRI!
„Við álítum að kirkjan eigi fremur
að hlúa að fólki en ekki auka sorg
þeirra. Dóniharkan sem í þessum orð-
um felast er ekki til þess fallin. Mér
fínnst þessi orð predikarans sannast
sagna yfirgengileg", sagði Ólafur
Skúlason, biskup Islands um þau um-
mæli sem Alþýðublaðið hafði í fyrra-
dag eftir Gunnari Þorsteinssyni, for-
stöðumanni trúfélagsins Krossins í
Kópavogi um kirkjulega meðferð
þeirra sem tekið hafa eigið líf.
Lesendur blaðsins sem höfðu sam-
band voru sama sinnis. Þeim fannst orð
predikarans með ólíkindum ósmekkleg
og taktlaus og fátt annað en hræsnin ein.
Það væri undarlegur guð sem predikar-
inn ætti, vondur guð, þegar flestir eiga
sér hinn góða og sanngjama guð, sem
þeir trúa á og treysta.
Kona sem hringdi benti á að pistill
predikarans hefði verið lengri, og þá
nánast bráðhlægilegur. Greinilega væri
maðurinn þessa stundina í skugga starfs-
bróður sfns í Vestmannaeyjum, sem náði
þjóðarathygli með því að fullyrða að
SAM-útgáfan væri handbendi djöfulsins
hér á landi. Nú þyrfti hann greinilega að
yfirbjóða hann í hræsnisfullum orðum.
Gunnar Þorsteinsson ntun hafa rætt
um sundlaugarferð sína nýverið og sagði
að á sundstöðum „sýndu kvenmenn júg-
ur sín og nakin læri“. Sundlaugaiðkun
væri einungis til þess fallin að auka á
gimd og losta fólks! Varaði hann hlust-
endur sína eindregið við að leggja á vana
sinn að sækja slíka staði.
Heimdollur harmor
framgöngu Halldórs
- ungir sjálfstœðismenn í Reykjavík vilja gefa innflutning á búvörum frjálsan
í tilefni af umræöum um landbúnaðar-
mál á síðustu dögum Alþingis hefur Heim-
dallur, félag ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, sent frá sér ályktun. Stjórnin
harmar þar framgöngu Halldórs Blöndals
landbúnaðarráðherra í innflutningsmálum
landbúnaðarafurða. Alyktunin hljóðar svo:
„Stjóm Heimdallar ítrekar þá kröfu félagsins
að innflutningur á landbúnaðarvöm verði gef-
inn frjáls. Þannig væri hægt að lækka matar-
reikning heimilanna í landinu og yrði það kær-
komin kjarabót fyrir alla alþýðu manna í hinum
mikla samdrætti er nú ríkir. Stjómin harmar
jafnframt að landbúnaðarráðherra skuli koma í
veg fyrir að það svigrúm sé nýtt, sem núverandi
lög gefa til innflutnings á kjöti sem skortur er á
í landinu, samanber synjun hans á leyfi til inn-
flutnings á kalkúnum.
Frjáls innflutningur landbúnaðarafurða nú
gæti einnig flýtt fyrir hagræðingu í landbúnaði,
sem yrði til hagsbóta fyrir framleiðendur jafnt
sem neytendur. Stjóm Heimdallar skorar á rík-
isstjóm og Alþingi að hefjast nú þegar handa
við að leysa landbúnaðinn úr fjötmm hafta og
miðstýringar með það að markmiði að hann
lúti markaðslögmálum að fullu fyrir aldamót.
Úr skýrslu OECD
Mörg hjúkrunarheimili
en lítil heimahjúkrun
- segir um öldrunarþjónustuna hér á landi í samanburði
við önnur Norðurlönd
í nýútkominni skýrslu OECD keniur m.a. fram að óvenju margir aldraðir langlegusjúk-
lingar búi á hjúkrunarheimilum eða stofnunum fvrir aldraða. Að sama skapi virðast fáir yf-
ir 65 ára aldri hafa notið heimahijúkrunar miðað við önnur Norðurlönd.
Þannig dveljast 12.8% 65 ára og eldri á ís-
landi á stofnunum fyrir aldraða, meðan hlut-
fallið er 8,7% í Danmörku, 7,5% í Finnlandi,
10,8% í Noregi og 8,6% í Svíþjóð. Þeir sem eru
65 ára og eldri á Islandi eru hins vegar hlutfalls-
lega umtalsvert færri sem hafa notið heima-
hjúkrunar en á hinum Norðurlöndunum eða að-
eins 12,6%. I Danmörku eru þeir hins vegar
hlutföllin 24,6%, í Finnlandi 21,4%, í Noregi
19,0% og í Svíþjóð 17,5%.
Það er ljóst að stofnanir fyrir aldraða eru
geysilega dýrar. Þannig mun algengt að hver
mánuður á dvalar- og hjúkrunarheimilum kosti
um 200-250 þúsund krónur á hvem mann. Það
er því Ijóst að það má veita umtalsverða heima-
hjúkrun og aðra heimilisþjónustu fyrir þá upp-
hæð.
Þá kemur það fram að hvergi í Evrópu eru
aldraðir færri en á íslandi að Tyrklandi undan-
skildu. Vegna þess hve stofnanavistin fyrir
aldraða er dýr hljóta íslendingar að leggja meiri
áherslu á
heimahjúkr-
un og þjón-
ustu í fram-
tíðinni. A
það er bent í
s k ý r s 1 u
OECD, að
það vanti
samræm-
ingu milli
þ e s s a r a
þátta hér á
landi.
VÖRUÞROUN
MARKAÐSSÓKN
Bók sem gefur leiðbeiningar um hvernig góðum hugmyndum
er komið í framkvæmd
Ný og endurbætt útgáfa
Haldgott yfirlit yfir undirbúning vöruþróunar og framkvæmd hennar.
Bókin er leiðarvísir fyrir þá sem vilja halda í við hina hröðu þróun
framleiðslu og markaðssetningar.
Verð: 2.300 kr.
löntæknistofnun 11
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950