Alþýðublaðið - 25.05.1993, Qupperneq 5
Þriðjudagur 25. maí 1993
Söluátak Landssambands kúabænda (LK):
5
„LÆGRA VERÐ OG AUKIN GÆÐI“
LK: 6 kíló með ströngu gœðaeftirliti fyrir 30% lægra verð. Jóhannes Gunnarsson (Neytendasamtökin): Virðast vera góð kaup.
s
Jón Asbergsson (Hagkaup): Ekki spennandi kostur. Jóhannes íBónus: Borga ekki 1300 krónum meira fyrir pappakassa.
Nautaveisla, nefnist nýjung frá naut-
gripabændum og er hún afrakstur sölu-
og gæðaátaks á þeirra vegum. „Lægra
verð og aukin gæði“, eru einkunnarorð
átaksins og að sögn aðstandenda þess er
með því verið að koma til móts við neyt-
endur um gott nautakjöt á sérstöku til-
boðsverði. Atakið mun standa fram í lok
júlímánaðar (eða skemur ef allt selst
upp). Það kom fram í máli talsmanna
Landssambands kúabænda á blaða-
mannafundi í gærdag að Nautaveislan
væri allt að 30% ódýrari en sambærilegt
kjöt á markaðnum. Einnig tóku þeir það
fram að með ströngu gæðaeftirliti verður
tryggt að aðeins úrvalsnautakjöt verður
á boðstólum í þessari magnpakkningu.
Sérstakt gæðaeftirlit verður í höndum
Fæðudeildar Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins. ALÞÝÐUBLAÐIÐ fór að-
eins ofan í saumana á þessari veislu og
talaði einnig við tvo kaupmenn sem ekki
hafa hana á boðstólum.
INNIHALD NAUTAVEISLUNNAR
í Nautaveislunni eru 6 kíló af nautakjöti,
sem hefur verið pakkað í handhægar neyt-
endapakkningar ofan í þartilgerðan kassa.
Fyrirhugað er að setja um 15 þúsund kassa á
markaðinn eða um 90 tonn (150 tonn í heil-
um skrokkum). I pakkanum eru fjórir 625
gramma bakkar af nautahakki, tveir 550
gramma pakkar af nautagúllasi og þrír 10
stykkja bakkar af nautahamborgurum.
30% LÆGRA VERÐ
Um þrjátíu 200 gramma máltíðir eru í
hverjum kassa og kostar hver máltíð tæpar
140 krónur hver. Að sögn Guðmundar
Lárussonar formanns Landssambands
kúabænda og Valdimars Leifssonar
framkvæmdastjóra LA eru það einkum
fjögur atriði sem gerðu þeim kleift að bjóða
neytendum svo lágt verð. í fyrsta lagi lækk-
uðu tiltekin sláturhús sláturkostnaðinn um-
talsvert á umræddu kjöti. I öðm lagi náðust
hagstæðir samningar við kjötvinnsluaðila
um kostnað við úrbeiningu, pökkun og
dreifingu. I þriðja lagi er smásöluálagningu
verslana stillt í hóf og er miðað við hámarks
14% smásöluálagningu. í fjórða og síðasta
lagi leggja nautgripabændur fram ákveðna
fjánnuni til að unnt sé að vera með sérstak-
an kynningarafslátt á þessari Nautaveislu.
Þeir tveir, forsvarsmenn Landssambands
bænda sögðu aðspurðir á blaðamannafund-
inum að þeim þætti það afar miður að ýmsir
kaupmenn hafa ekki viljað hafa kjötið á
boðstólum. Það væm viss vonbrigði. Þeir
sögðust ekki vita um ástæðuna fyrir þvf og
bentu á kaupmennina sjálfa með svör, nánar
um það hér neðar í greininni.
SÉRSTAKT GÆÐAEFTIRLIT
í þessu söluátaki nautgripabænda verður
einungis um að ræða sérvalda skrokka sem
eru yfir 190 kfló að þyngd og úr hæstu
gæðaflokkum UNI og UNI*. Eins fram
kom hér á undan verður gæðaeftirlitið í
höndum Fæðudeildar Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins (RALA). Að sögn Óla Þórs
hjá RALA felst eftirlitið nteðal annars í því
að stofnunin mun gera úttektir í sláturhús-
um, kjötvinnslum og verslunum til að at-
huga hvort hinum sjö meginkröfum átaksins
er ekki fylgt út í ystu æsar. Rröfumar em
miklar: 1. Vel verkað kjöt úr bestu gæða-
flokkum með ákveðinni lágmarksþyngd. 2.
Að kæling eftir slátmn og á öllum stigum
eftir það sé í lagi þannig að kælikeðjan hald-
ist órofm. 3. Að streitukjöt sé útilokað frá
sölu. 4. Urbeining, frágangur, pökkun og
merkingar séu samkvæmt settum leiðbein-
ingum. 5. Að þyngd kjöts í neytendaumbúð-
um sé rétt, það er í samræmi við innihalds-
lýsinguna, sem sjá má hér að ofan. 6. Að
uppsett geymsluþol standist, sem em fjórir
dagar eftir pökkunardag. 7. Að innihalds-
kröfur standist.
VINNSLA OG SALA
Samningar um vinnslu Nautaveislunnar
náðust við Kjötbankann hf. í Hafnarfirði
og munu þeir jafnframt annast dreifmgu á
höfuðborgarsvæðinu. Áætluð framleiðslu-
geta Kjötbankans er eitt til tvö þúsund kass-
ar á viku. Uti á landsbyggðinni verður
vinnsla og dreifing í höndum KEA á Akur-
eyri og KB í Borgarnesi. Gert er ráð fyrir
að eitthvað af því sem selt verður á höfuð-
borgarsvæðinu verði selt sem kælivara, en
úti á landsbyggðinni verður stærstur hlutinn
settur frystur á markað.
NAUTAVEISLAN
ER FERSKVARA
Að sögn talsmanna Nautaveislwmar er
þessi vara um margt merkileg vömnýjung á
kjötmarkaðnum þar sem um er að ræða
magntilboð á fersku kjöti. Kannski er varan
þó athyglisverðust vegna þess hve strangt
gæðaeftirlit er haft með henni. Að sögn
þeirra munu neytendur einnig gera góð kaup
vegna þess að allt kjötið er úrbeinað og því
um 100% kjötnýtingu að ræða.
HVAR ER KJÖTIÐ SELT?
Á landsbyggðinni hafa náðst samningar
við eftirtalda aðila: Netto, verslanir KEA á
Akureyri og útibú KEA annars staðar,
Verslun Einars Ólafssonar og Skagaver á
Akranesi, Verslun Jóns og Stefáns og mat-
vörumarkað KB í Borgamesi, Kassann,
Hvamm og Virkið í Ólafsvík og Kjörbúðina
Hellissandi. Á höfuðborgarsvæðinu hafa
náðst samningar við þessa aðila: Sunnukjör
í Skaftahlíð, 10-11 verslanimar, matvöru-
verslunina Grímsbæ og Straumnes, 10-10
Hraunbæ, verslanir Kjöt og ftsks og Mið-
vang í Hafnarfirði. Inn í þessa upptalningu
vantar, einhverra hluta vegna, nokkra stóra
aðila og stingur það kannski helst í augun að
hvorki Hagkaup né Bónus em með í hópn-
um. ALÞYÐUBLAÐIÐ kannaði málið.
JÓHANNES JÓNSS,ON-
KAUPMAÐURIBONUS
Jóhannes f Bónus, eins og hann er oftast
kallaður, er að margra mati langbesti vinur
litla mannsins. Sennilega hefur enginn mað-
ur, að Pálma í Hagkaupi undanskildum,
haft eins mikil og bein áhrif á lífskjör fólks í
dag. ALÞÝÐUBLAÐIÐ hafði samband við
Jóhannes og forvitnaðist um afhverju hann
væri ekki einn af þeim sem selja Nautaveisl-
una í búðum sínum. Jóhannes: „Okkur var
kynnt þetta tilboð fyrir stutlu síðan en leist
ekki á það. Kjötið í pakkanum er um 1300
krónum dýrara
heldur en sama
kjöt hjá okkur í
lausasölu. Við
getum ekki boðið
neytendum upp á
1300 króna hærri
verð. Eg, sem
neytandi, myndi
aldrei borga 1300
krónum hærra
verð fyrir kjöt
bara vegna þess
að það er í ein-
hverjum fínum
pappakassa.“
JÓN ÁSBERGSSON-
FORSTJORIHAGKAUPS
ALÞÝÐU-
BLAÐIÐ spjall-
aði einnig stutt-
lega við Jón Ás-
bergsson for-
stjóra Hag-
kaups og spurði
hann um ástæð-
una fyrir því að
þeir í Hagkaupi
byðu ekki upp á
Nautaveisluna.
Jón: „Við skoð-
uðum þennan
kost vandlega
þegar okkur var kynntur hann, en fannst
þetta ekki spennandi dæmi. Þetta mál er
annars auðvitað í höndum innkaupastjóra
kjöts hjá Hagkaupi og þeir mátu þetta
svona. Við erum auk þess að sigla inn t grill-
tímabilið og þá eru það hamborgarar og
steikur sem seljast best, ekki nautahakk og
gúllas. Einnig getum við, „prinsippsins"
vegna, alls ekki sætt okkur við það að ein-
hver aðili út í bæ ákveði hvaða álagningu
við höfum á vörum í búðum okkar.“
HELGA GUÐRÚN
JONASDOTTIR - UPPLYSINGA-
ÞJONUSTA LANDBUNAÐARINS
ALÞÝÐU-
BLAÐIÐ bar
þessi ummæli Jó-
hannesar í Bónus
og Jóns Ásbergs-
sonar í Hagkaupi
undir Helgu
Guðrúnu Jónas-
dóttur hjá upplýs-
ingaþjónustu
Landbúnaðarins.
Helga Guðrún:
„Mér finnst þessi
afstaða Hag-
kaups skrýtin.
Þetta er einskon-
ar forval hjá þeim. Þeir eru þama að velja
fyrir neytendur fyrirfram með því að neita
selja vöruna í verslunum sínum, í stað þess
að leyfa neytendunum sjálfum að velja.
Varðandi orð Jóhannesar í Bónus þá má
nefna það að þetta er fyrsta flokks kjöt hjá
okkur undir ströngu gæðaeftirliti. Ef hann
getur boðið upp á sambíerilegt kjöt í versl-
unum sínum fyrir 1300 króna lægra verð, þá
er það bara gott.“
JÓHANNES GUNNARSSON -
FORMAÐUR NEYTENDA-
SAMTAKANNA
Einn áf þeim
sem viðstaddir
voru blaða-
mannafundinn í
gærdag var höf-
uðpaur neytenda,
Jóhannes Gunn-
arsson formaður
Neytendasam-
takanna. AL-
ÞÝÐUBLAÐIÐ
tók hann tali. Jó-
hannes: „Mér líst
ágætlega á þessa
Nautaveislu og
þetta virðast við fyrstu sýn vera góð kaup.
Þetta tilboð setur væntanlega einhvem
skurk í samkeppnismálin og mér sýnist
pakkinn nokkuð sambærilegur við Lamba-
kjöt á lágmarksverði. Þetta hefur ekki að-
eins áhrif á nautakjötsmarkaðinn heldur á
Nautaveislan vonandi einnig eftir að hafa
áhrif á annað kjöt á markaðnum. Ég hlýt að
fagna aukinni samkeppni. Þó er það miður
að ákveðnar verslanir skuli ekki vera með
því það takmarkar möguleika neytenda á
aðgangi að vömnni.“
j| ‘
Stoltir aðstandendur Nautaveislunnar (frá vinstri); Valdimar Einarsson framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda, Guðmundur Lárusson formaður sambandsins ásamt Óla Þór hjá
Fæðudeild Rannsóknastofu landbúnaðarins.
KVEÐJUTONLEIKAR
Páú P. 'Pál&iMan
Háskólabíói
fimmtudaginn 27. maí, kl. 20.00
Hljómsveitarstjórí: Páll Pampichler Pálsson
Einleikarí: Markus Schirmer
Einsöngvarí: Rannveig Bragadóttir
EFNISSKRA:
Johann&s Brohms:
Píanókonsert nr. 2
RóH R. Rólsson:
Ljáöu mér vœngi
Markus Schlrmer Rannvelg Bragadóttir
+ + 4
Páll Pampichler Pálsson
SINF0NIUHU0MSVEITISLANDS
Háskólabíói viö Hagatorg. Sími 622255. Greiðslukortaþjónusta.