Alþýðublaðið - 25.05.1993, Page 7
I-
Þriðjudagur 25. maí 1993
7
Heimsókn Gro Harlem Brundtland:
Einna mikilvægast
að rækta lýðræðið
- sagði forsœtisráðherra Noregs áfundi með félögum úr Alþýðuflokknum
Gro Harlem Brundtland forsætisráð-
herra Noregs og formaður Norska
Verkamannaflokksins til skamms tíma
var í opinberri heimsókn hér á landi í síð-
ustu viku. Hún gaf sér tíma til að hitta ís-
lensk flokkssystkin úr Alþýðuflokknum á
Kornhlöðuloftinu síðdegis á föstudaginn.
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Al-
þýðuflokksins og utanríkisráðherra bauð
Gro velkomna og færði henni listilega smíð-
aða rós að gjöf frá íslenskum jafnaðarmönn-
um. Hann gat þess að Gro væri sennilega
þekktasti núlifandi forystumaður jafnaðar-
manna í heiminum og hún gegndi ákveðnu
forystuhlutverki jafnaðarmanna á Norður-
löndum.
Meðal annarra á fundi Alþýðuflokksfólks
með Gro var Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi
ráðherra og formaður Alþýðuflokksins.
Hann rakti þar m.a. samskipti sín við for-
ystumenn jafnaðarmanna í Noregi á árum
áður og þau miklu og góðu tengsl sem
lengst af hafa einkennt samskipti þjóðanna,
enda fari hagsmunir Noregs og íslands mjög
saman.
Gro tók undir þau orð Gylfa Þ. og benti á
sameiginlega hagsmuni þjóðanna sem ftsk-
veiðiþjóða og þá ekki síst hvað varðar nýt-
ingu auðlinda hafsins. Báðar þjóðimar væru
smáar og byggðu afkomu sína að miklu
leyti á fiskveiðum og eins hefðu hagsmunir
þjóðanna í vamarmálum farið saman. Lagði
hún mikið upp úr góðum samskiptum þjóð-
anna og þar með nánum tengslum jafnaðar-
manna í Noregi og á Islandi.
Þá sagði Gro að henni fyndist hvað mikil-
vægast í starfi jafnaðarmanna nú á dögum
að rækta lýðræðið. Hún hefði áhyggjur af
því hve fólk væri orðið lítt þátttakandi f al-
mennu pólitísku starfi og sér fyndist að, m.a.
fyrir tilstilli fjölmiðla, væm stjómmálmenn
settir á stall og almenningur horfði til þeirra
með mótun pólitíkur og lausn þeirra við-
fangsefna sem við væri að glíma hverju
sinni. Það yrði að reyna að brúa þá gjá sem
myndast hefði og fá fólk til virkari þátttöku
í stjómmálum f stað þess að bíða eftir lausn-
um að ofan.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Alþýöuflokksins, færir Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, haglega smíðaöa rós frá flokksystkinum hennar á íslandi. A-myndir E. Ól.
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi formaöur Alþýðuflokksins og ráðhcrra, Eiður Guðnason um
hverfisráðherra og Jón Sigurösson iönaðar- og viðskiptaráðherra voru meðal þeirra Alþýðu-
flokksmanna sem áttu fund með Gro Harlem Brundtland.
14.000 sáu sýninguna
Karl Steinar Guðnason alþingismaður kannar hér snyrtivörur á sýningunni Vor íHafnar-
firði. Greinilegt er að það fer vel á með þcim Karli og stúlkunum sem kynntu snyrtivörurn-
ar. A-mynd E.ÓI.
ALLIR
ÞESSIR....
OPNUNAR-
TÓNLEIKAR
MANUEL
BARRUECO
THE
HAFNARFJORÐUR
INTERNATIONAL
ART FE5TIVAL
ICELANP
ALÞJOOLEC
LISTAHATIO
I HAFNARFIROI
4.-30. JÚNÍ
1993
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA HEFST í DAG
Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Hafnarborg
Myndlistaskóla Hafnarfjarðar
Kynningarbás Listahátíðar
á sýningunni Vor í Hafnarfirði
Verslunum Eymundssonar
í Borgarkringlunni og við Austurstræti
MANUELj
MENDIVE
VINIR DÓF
CHICAGO
BEAU OG
DEITRAFARR
VGAINST
THE MACHINE
OG JET BLACK
JOE
MARIANA
YAMPOLSKY
BRIAN
QUINTET
MIÐAR Á TÓNLEIKA RAGE AGAINST THE
MACHINE OG JET BLACK JOE
FÁST Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Myndlistaskóla Hafnarfjarðar
Verslunum Steinars
Versluninni Hljómalind Austurstræti
Kynningarbás á sýningunni
Vor í Hafnarfirði
MIÐAPANTANIR I SÍMA 65 49 86
wm WBS&Am ——— ■ ■ :: :.; .:.
LEIKFÉLAG '"' g f V; LEONIDAS LIPOVETSKY | PÉ H8'
HAFNAR- LEIKHÓPURINN
FJARÐAR
GHENA
DIMITROVA
Kfl
TREGASVEITIN
DANS-
FLOKKURINN
THE
KENNEDY
BAND
....OG
MARGIR
AÐRIR