Alþýðublaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 1
Fjöldauppsagnirnar í Landsbankanum:
„Bqnki gllra Iqndsmqnnq
- nema starfsmanna"
yy
s
- sagði Helga Jönsdóttir formaður SFLI á fjölmennum útifundi bankamanna í gœr.
Er það markviss stefna ríkisstjórnarinnar að veikja samkeppnisstöðu Landsbankans?
(í
Bankumenn fjölmenntu á Lækjartorg síðdegis í gær. Mikill samhugur ríkti og
t'undinum bárust baráttukveðjur víða að. (A-mynd: E.Ól.)
„Einu sinni þótti fínt að vinna í
banka. En nú er öldin önnur,“ sagði
Helga Jónsdóttir formaður Starfs-
mannafélags Landsbanka Islands í
ræðu sinni á fjölmennum útifundi
bankamanna á Lækjartorgi síðdegis
í gær. Helga sagði að vegið væri að
bankamönnum úr öllum áttum og
nú væri svo komið að Landsbank-
inn væri „banki allra landsmanna -
nema starfsmanna!*1
Helga gagnrýndi stjómendur
Landsbankans harkalega enda
hefðu uppsagnimar verið fyrirvara-
lausar og án nokkurs samráðs við
starfsmenn. Hún spurði: „Hvemig
eigum við nú að trúa stjórnendum
bankans?"
Hún benti á að 5% bankamanna
væru nú án atvinnu og kvaðst óttast
að aðrar bankastofnanir myndu
fylgja í kjölfar ríkisbankans og
segja upp starfslólki. Helga var
þungorð í garð stjómenda bank-
anna og sagði að þeir „reyndu að
tvístra samtökum bankamanna.“
Helga gagnrýndi ríkisstjórnina
harðlega fyrir að knýja Landsbank-
ann, sem er í ríkiseign, til að segja
upp starfsfólki á sama tíma og sam-
ið væri við verkalýðshreyfinguna
um að leggja ftmm milljarða í at-
yinnumál. Og Helga spurði: „Er
HEIMSFERÐIR, nýtt stórveldi í utarijandsferðum?
1000 MANNS FARA TIL CANCUN Í MEXÍKÓ
Andri Már Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri: „Við hjá HEIMS-
FERÐUM verðum með 1000
manns í Mexíkó á okkar vegurn í
sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem Is-
lendingar geta flogið beint héðan til
Karíbahafsins og á sama tíma til
Mexíkó. Við munum lljúga á
tveggja vikna fresti frá Islandi beint
til Cancun á Yucatan-skaganum í
Mexíkó. Þetta er vinsælasti áfanga-
staðurinn í Mexíkó og hefur verið
það mörg undanfarin ár. Auk þess
er þetta sennilega sá áfangastaður í
heiminum sem vaxið hefur mest
undanfarin ár. Ferðimar til Cancun
em tveggja vikna langar og kosta
frá 59 þúsund krónum, með hótel-
gistingu innifalinni. Við leggjum
metnað okkar í að bjóða ekki upp á
lakari gistingu en 4 stjömu, þannig
að gistiplássið er á heimsklassa."
SJÁ VIÐTAL Á BLAÐSÍÐU 13.
það markviss stefna ríkisstjómar-
innar að veikja samkeppnisstöðu
Landsbankans?“
Helga sagði að oft hefði verið gert
grín að henni og öðram starfsmönn-
um Landsbankans fyrir að ganga
með rautt L í hjartastað - og bætti
við: „Nú er mitt hjarta brostið."
Sjá forystúgrein, bls. 2:
Siðlausar uppsagnir og grein
Bolla Valgarðssonar, bls. 3.
MALLORKA - hersing sólþvrstra íslendinga á ferð í fjörunni og við bvggingu sandkastala.
Hvert fer landinn í sumar?
Islendingar munu sem fyrr sœkja til sólríkra landa í sumar, líklega í litlu minna mœli en áður. Og þaS
sem er að breytast er það a'ó úrval baðstranda er að aukast, nú er sótt vestur yfir haf, til Bandaríkjanna og
Mexíkó. Mallorka, sá ágœti sumarleyfisstaður, hefur fengið mikla samkeþfmi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ í dag
er helgað sumarferðum, - ekki síst Flórída, en einnig segjum við frá mörgum ágcetum ferðamöguleikum öðr-
um, sem menn œttu að kynna sér.
Orfá sæti laus vegna
FORFALLA 1. OG 8. JÚNÍ.
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 9J^é9ÍÓ 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótel Sögu við Hagatoj:9*"S’. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Reykjavlkurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55
Keflavik: Ha'nargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Slmbréf 92 - 13 490 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Slmbréf 96-1 10 35
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Slmbréf 98 - 1 27 92