Alþýðublaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 4
Föstudagur 28. maí 1993
í sól og sumaryl
\ /
\" BARCELONA:
COSTA BRAVA í EINA VIKU. BROTTFÖR12. JÚNÍ.
Flug og gisting á Lloret de Mar,
íbúðahótel Fanals Park
Flug og gisting á Alcober,
íbúðahótel Arcos II
Flug og gisting á Playa de Pals,
íbúðahótel Golf Mar
32.900,-*
32.900,-*
37.900,-*
\i
/N
MÍLANÓ:
Flug og bíll, flogið til Mílanó 29. júni og til baka
t.d. um Vínarborg
\ / .
39.700,-* *
/ \
Flug og gisting í
brottför 11. júní
VINARBORG:
eina viku.
48.540,-
* Miðaö við mann og tveir verði saman í íbúð. Innifalið er flug, gisting og flugvallask.
* * Miðað við mann og 2 ferðist saman í bíl í A-flokki. Innifaliö er flug, bíll í 10 daga,
ótakmarkaður akstur og kaskótrygging ásamt flugvallask. Ekki innifalið skilagjald á Vínar-
flugv. 6.000.
* * * Miðaö við mann í tveggja manna herbergi á Hót-
el Regina. Innifaliö er flug, gisting m/morgunveröi og
flugvallask.
Feröaskrifstofan
S. 652266
SUMARFERÐ
Muniö sumarferð
Alþýðuflokksfé/ags
Reykjavíkur
3. jú/í 1993
Stjórnln
Bændaskólinn á Hvanneyri
Atvinnutæklfærum mun f|ölga l sveitum landsins á komandi árum. I
landbúnaðarstörf sem og önnur störf f sveitunum þarf menntaö fólk.
Ný námsskrá felur I sér þrjú sviö;
* Búfjárræktarsviö; menntun bænda framtíðarinnar sem staöist geta hina
beinu og óbeinu samkeppnl sem framundan er f landbúnaöinum...
* Landnýtingarsviö; menntun til starfa er varöa landvörslu og nýtingu lands
s.s. til útivistar, uppgræöslu eöa undir mannvirki...
* Rekstrarsvlö; sem varöar rekstur fyrirtækja (I sveitum), hvort sem þaö er
búrekstur eöa rekstur smáfyrlrtækls...
Auk þess er fjöldi valgreina s.s. hrossarækt, feröaþjónusta; skógrækt, vinnuvélar,
svfnarækt, sláturhúsastörf, kanfnurækt, garörækt, ullariön o.fl.
Ein önn af fjórum er verknámsdvöl á einu af bestu búum landsins.
Námiö er tveggja ára starfsnám.
Stúdentar geta lokið náml á elnu árl.
Umsókn um skólavist næsta skólaár sendlst skólanum fyrlr 10.júnf n.k.
Viö veitum nánari upplýsingar I sima 93 - 7 00 00.
Skólastjóri
PALLBORÐIÐ
Stjórnarskráin,
búvörulögin og
EES samningurinn
eftir Magnús Inga Erlingsson, lögfræðing
Súfullyrðing utanríkisráðherra að landslög víkifyrir
þjóðréttarlegum skuldbindingum samkvæmt EES
samningnum erþvífyllilega í samrœmi við réttarfram-
kvœmdina á Islandi.
Eftir að Alþingi lauk störfum hefur verið
nokkur umræða um búvörulög í Ijósi EES
samningsins. Því hefur verið haldið fram af
utanríkisráðherra að ný lög sem eru studd
þjóðréttarlegum skuldbindingum við önn-
ur ríki hafi forgang umfram eldri lög ef
þetta tvennt rekst á. í þessu tilviki á því tví-
hliða samningur íslands og EB um land-
búnaðarmál að ganga framar íslenskum
búvörulögum.
Lögskýring eða lagasetning
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir heldur því fram
í Mbl. þann 18. maí 1993, að það sé fráleitt að
slík skuldbinding taki af íslensk lög. Vísar hún
til lagaálits þjóðréttarfræðingsins Guðmundar
Alfreðssonar sem telur að slíkt gangi ekki þar
sem stjómarskráin heimili aðeins Alþingi og
forseta að setja lögin og aðrir geti ekki haft
áhrif á löggjöfina samkvæmt orðum stjómar-
skrárinnar. Guðmundur telur að túlkunarregla
3. gr. laganna um EES þrengi svo að löggjafar-
valdinu og að stjómarskráin heimili slíkt ekki.
í 3. gr. laganna um EES segir að skýra skuli
lög til samræmis við EES reglur og þær gildi ef
kemur upp misræmi milli EES reglna sem hafa
verið lögfestar og annarra ákvæða í lögum.
Túlkun Guðmundar á ákvæðum stjómarskrár-
innar er að rnínu mati bæði of þröng og að
sumu leyti röng.
Lögskýringarregla íslensks réttar
Það hefur verið talið ömgg lögskýringar-
regla í fslenskum rétti að skýra bæri þjóðréttar-
samninga til samræmis við ákvæði landsréttar.
Lögskýring er ekki eiginleg lagasetning eins
og talað er um í stjómarskránni. Að Alþingi og
forseti fari einir með löggjafarvaldið. Hér er
um að ræða leiðbeiningarreglu um það hvem-
ig skýra skuli lög þegar óvissa t.d. vegna
áreksturs þjóðréttarsamnings og lagaákvæðis
skapar réttaróvissu. Þessi lögskýringarregla
helgast væntanlega af því að ríkið hefur að
þjóðarrétti skuldbundið sig til að hafa réttar-
ástandið með ákveðnum hætti.
Að vera með eða vera ekki með
Handhafar dómsvaldsins sem einn þáttur
ríkisvaldsins geta ekki brotið gegn ákvæðum
þjóðréttarsamninga og bakað ríkinu þar með
þjóðréttarlega ábyrgð. Alþingi og stjómvöld
verða að segja upp þjóðréttarlegum samningi
ef ekki er vilji til að standa við slíkan samning.
Ekki verður bæði sleppt og haldið í því efni.
Dómur Hæstaréttar
Skýrt dæmi um það að dómstólar skýri
ákvæði landsréttar til samræmis við ákvæði í
þjóðarréttar er dómur Hæstaréttar, Hrd, 1990,
bls. 2, þar sem mál Jóns Kristinssonar gegn Is-
landi fyrir Mannréttindanefndinni hafði þau
áhrif að Hæstiréttur tók upp nýja skýringu á
ákvæði einkamálalaganna um sérstakt hæft
dómara. Dómari sem áður hafði komið nálægt
sakamáli sem fulltrúi lögreglunnar var ekki
talið heimilt að dæma í því sama máli en slíkt
hafði verið tíðkað mjög lengi út á landsbyggð-
inni. Hæstiréttur hafði fram að þessum dómi
talið slíkt í samræmi við landslög. Sagði m.a. í
dóminum að ísland hafi að þjóðarrétti skuld-
bundið sig til að virða mannréttindasáttmála
Evrópu. Túlka má dóminn sem svo að ákvæði
2. gr. stjómarskrárinnar um þrískiptingu ríkis-
valdsins hafi verið skýrð til samræmis við
ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Lögskýring er dómsathöfn
Fyrr var minnst á það að lögskýring er ekki
eiginleg lagasetning og tilheyrir þar með laga-
setningarvaldinu heldur miklu fremur í ætt við
dómsathöfn og þar með hluti dómsvaldsins.
Lögskýringin er eitt af þeim tækjum sem dóm-
stólar nota til að komast að niðurstöðum. Sú
fullyrðing Guðmundar Alfreðsson um að lög-
festing túlkunarreglu um að skýra skuli þjóðar-
rétt til samræmis við landsrétt þrengi að lög-
gjafarvaldinu er því röng þar sem slíkt tilheyr-
ir ekki eiginlegu löggjafarstarfi.
Skýring stjórnarskrárinnar
Stjómarskráin hefur ekki verið skilin eftir
orðanna hljóðan. Túlkun ákvæða stjómar-
skrárinnar hefur sætt breytingum í gegnum tíð-
ina. Þar sem ákvæðum stjómarskrárinnar
sleppir hefur stundum myndast stjómskipun-
arvenja þ.e. í raun nýtt óskráð ákvæði í stjóm-
arskrá sem myndast hefur fyrir venju. Dæmi
um þetta er þingræðisreglan. í henni felst að
þeir einir geta setið í ríkisstjóm sem meirihluti
þjóðþingsins vill styðja eða a.m.k. þola í emb-
ætti. Þessi regla kemur ekki beint fram í stjóm-
arskránni en hún er einn af homsteinum stjóm-
skipaninnar.
Ný stjórnskipunarvenja?
Það má færa rök fyrir því skuldbinding ís-
lands samkvæmt Mannréttindasáttmálanum
hafi skapað þá stjómskipunarvenju að framsal
dómsvalds sé heimilt þegar það er vel afmark-
að, það gildir á afmörkuðu sviði og að það er
ekki verulega íþyngjandi fyrir íslenska aðila
sbr. fyrrgreint mál Jóns Kristinssonar og dóm
Hæstaréttar. Framsal dómsvalds samkvæmt
EES samningnum hefur verið talið einkennast
af þessu þrennu. Sú þrönga túlkun á stjómar-
skránni sem andstæðingar EES samningsins
hafa haldið fram stenst ekki.
Forsendur sem ekki standast
Fyrir utan að misskilja hugtakið löggjafar-
vald að því er best verður séð em rökin fyrir
því að EES samningurinn feli í sér framsal
allra þriggja þátta ríkisvaldsins byggð á for-
sendum sem ekki standast. Þær forsendur eru
þær að stjómarskrána eigi skýra eftir orðanna
hljóðan. Islenskir dómarar fari með dómsvald-
ið, Alþingi og forseti íslands fari með löggjaf-
arvaldið og ráðherrar íslensku ríkisstjómarinn-
ar fari með framkvæmdavaldið og öll frávik
frá því séu óhugsanleg þar sem stjómarskráin
gerir ekki ráð fyrir því. Stjómarskráin hefur
aldrei verið túlkuð með þeim hætti og inntak
hennar hefur allt frá upphafi einkennst.af því
að taka mið af ríkjandi réttarhugmyndum á
hvetjum tíma.
Stjórnarskrá íslands er evrópsk
Fyrirmynd stjómarskrárinnar okkar er evr-
ópsk. Helsta fyrirmynd íslensku stjómarskrár-
innar frá 1944 er danska stjómarskráin. Fyrir-
mynd dönsku stjómarskrárinnar frá 1849 er
belgíska stjómarskráin frá 1831 en fyrirmynd
hennar er franska mannréttindayfirlýsingin
sem hefur mótað um margt evrópska lýðræðis-
hefð og almenn mannréttindi. Rætur íslensku
stjómarskrárinnar eru evrópskar og sú þróun
sem þar er hefur orðið stendur því íslensku
stjómarskránni næst þegar hún er skýrð. Það er
mín skoðun að EES samningurinn brjóti á eng-
an hátt gegn íslensku stjómarskránni heldur sé
þvert á móti í anda hennar og í samræmi við
fyrri þjóðréttarlegar skuldbindingar íslendinga
í samfélagi þjóðanna.
Búvörulögin og réttaróvissan
Sú fullyrðing utanríkisráðherra að landslög
víki fyrir þjóðréttarlegum skuldbindingum
samkvæmt EES samningnum er því fyllilega í
samræmi við réttarframkvæmdina á Íslandi.
Æskilegra væri að búvörulögunum yrði breytt
til samræmis við EES samninginn. Slíkt
myndi eyða réttaróvissu. Hinsvegar er það
kannski eins bagalegt og ella því að þeir sem
eru í réttaróvissu öðrum fremur em sérfræð-
ingar landbúnaðarráðuneytisins sem hafa sér-
menntun til að leysa lagaárekstra sem búvöm-
lögin og EES samningurinn skapa að öllu
óbreyttu.