Alþýðublaðið - 28.05.1993, Qupperneq 2
2
Föstudagur 28. maí 1993
n wiinmmin
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóöur Sigurösson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuöi. Verö í lausasölu kr. 90
Siðlausar uppsagnir
Uppsagnir 76 starfsmanna Landsbanka íslands bar að með svo forkastanleg-
um hætti að sú spuming hlýtur að vakna hvort ekki sé rétt að senda stjómend-
ur bankans á námskeið í mannasiðum.
Landsbankinn, sem á að heita stærsti og öflugasti banki landsins, er að breyt-
ast í rekald. Efasemdir hljóta að vakna um hæfni stjómenda bankastofnunar
sem þurfti að afskrifa 4.200 milljónir á síðasta ári. Þegar stofnunin var síðan
komin á gjörgæsludeild þurfti ríkissjóður að bjarga málunum með stórkostleg-
um fjárframlögum. Ekkert hefur bólað á uppstokkun á stefnu eða rekstri bank-
ans í kjölfar björgunaraðgerðanna. Ekki fyrren nú - þegar 76 starfsmönnum er
fyrirvaralaust sagt upp störfum.
Yfirstjóm Landsbankans hafði ekkert samráð við starfsmenn og hefur komið
fram af ótrúlegu virðingarleysi við þá. Starfsmenn höfðu beðið um að haft yrði
samráð við þá um aðgerðir sem snertu niðurskurð í starfsmannahaldi. Það var
sjálfsögð og eðlileg ósk. Við henni var ekki orðið. Með fruntalegri framkomu
hafa stjómendur Landsbankans skaðað mjög álit og ímynd stofnunarinnar.
Helga Jónsdóttir, formaður Starfsmannafélags Landsbanka íslands, hitti nagl-
ann á höfuðið þegar hún sagði í ræðu sinni á útifundinum í gær að Landsbank-
inn væri „banki allra landsmanna - nema starfsmanna“.
/
I Alþýðublaðinu í gær sagði Baldur Óskarsson framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra bankamanna að spamaður Landsbankans vegna uppsagnanna yrði
enginn á þessu ári og 40 milljónir á því næsta. Hann benti jafnframt á að það
væri 1 % þeirrar upphæðar sem bankinn afskrifaði í fyrra. Sýnt hefur verið fram
á, að á tveimur ámm hefði verið hægt að fækka starfsmönnum á eðlilegan og
sársaukalausan hátt. En það var ekki stjómendum bankans að skapi. Þeir efndu
til mestu fjöldauppsagna í sögu íslenska bankakerfisins. „Hvemig eigum við
nú að trúa stjómendum bankans?“ spurði Helga Jónsdóttir.
Bolli Valgarðsson formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík krefst
þess í grein í Alþýðublaðinu í dag að yfirstjóm Landsbankans víki. Þeir hafi
sýnt að þeir séu ekki hæfír til að stjóma bankanum. Það er í öllu falli deginum
ljósara að vandamál Landsbankans leysast ekki þótt bankastjóramir segi upp
76 manns sem höfðu flestir milli 80 og 90 þúsund krónur í laun á mánuði. Þeirri
kröfu hlýtur að verða fylgt eftir af einurð að stokkað verði upp í fjölmennum
hópi stjómenda bankans.
Eftir að ríkisstjómin kom Landsbankanum til bjargar í vetur kom fram sú hóg-
væra tillaga að stjómendur bankans neituðu sér um laxveiðiferðir í sumar og
ýmsan annan flottræfílshátt. Þetta fannst stjómendunum í fflabeinstuminum
fráleit hugmynd. Þeir bentu á, að hreinir smámunir spömðust með því að skera
niður risnuna. Þeir völdu fremur að svipta 76 manns atvinnunni.
Eflum ferðamannaiðnaðinn
Ferðaþjónusta er ein af þeim atvinnugreinum sem hefur farið hér vaxandi á
undanfömum ámm og miklar væntingar er bundnar við í framtíðinni.
Það hefur verið unnið markvisst að því á undanfömum ámm að efla ferða-
þjónustu hér á landi. ísland þykir að vísu nokkuð dýrt land en engu að síður
hefur það sýnt sig að það em margir sem vilja leggja leið sína hingað til að
kynnast landi og þjóð. Sífellt er verið að auka og bæta þá þjónustu sem erlend-
um ferðamönnum er boðið upp á. Þá hefur einnig verið reynt að lengja þann
tíma sem ferðamenn koma hingað til lands og þá sérstaklega yfír vetrartímann.
Það má hverjum manni vera ljóst að það er erfitt að reka hér hótel og aðra
ferðamannatengda þjónustu sem aðeins tekur til þriggja mánaða yfír hásumar-
ið.
Pað er því eðlilegt að höfuðáherslan varðandi vöxt á þessu sviði verði að
lengja ferðamannatímabilið og nýta þannig betur þær fjárfestingar sem þegar
em til staðar. Liður í því er að efla hér alþjóðlegt ráðstefnuhald utan aðal ferða-
mannatímans. Þá em ferðaskrifstofur þegar famar að bjóða upp á sérstakar
vetrarferðir hingað til lands.
Það er ekki síður nauðsynlegt að íslendingar átti sig á því að það er vel hægt
að ferðast um eigið land og njóta þess engu að síður en ferðalaga erlendis.
Mönnum hættir stundum til að leita langt yfir skammt í þessu sem öðm. Með-
an að fólki fækkar í mörgum atvinnugreinum hefur aukning orðið á starfsfólki
í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan er ein þeirra atvinnugreina sem hefur upp á
nást óþrjótandi möguleika að bjóða og nauðsynlegt er að virkja.
Atvinnulausir fá
lyfin endurgreidd
Sighvatur Björgvinsson áfundi íMiðstöð atvinnulausra: „Mörg göt á keif-
inu. Oryggisnet sem menn héldu að þyifti aldrei að nota. “
Sighvatur í Miöstöð atvinnulausra: Ef við værum enn að veiða 350 tonn af þorski ættum við ekki
í neinum erfiðleikum. Getum ekki haldið uppi þeim lífskjörum sem við höfum búið við að und-
anförnu. (A-mynd: E-ÓI.)
„Við búum við kerfi sem var miðað við
að hér væri lítið eða ekkert atvinnuleysi.
Þetta var einskonar öryggisnet sem
menn héldu í raun að þyrfti aldrei að
nota,“ sagði Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisrúðherra á fundi í gærdag í
Miðstöð atvinnulausra í Vonarstræti í
Reykjavík.
Sighvatur gerði grein fyrir nýlegum
breytingum á lögum um atvinnuleysis-
tryggingasjóð og sagði að þær veittu tíu
þúsund manns rétt til atvinnuieysisbóta sem
ekki hefðu notið neinna réttinda áður. Hér
er um að ræða sjálfstæða atvinnurekendur
og sagði Sighvatur þetta stórt spor í rétta átt.
Þetta væru þó ekki lok málsins, enn væru
ýmsir hópar utan kerfisins, til dæmis náms-
menn, sjúklingar og húsmæður sem vildu
fara út á vinnumarkaðinn.
„Kerfið var smíðað á öðrum tíma og við
önnur skilyrði,“ sagði Sighvatur og nefndi
sem dæmi að framlög til Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs hefðu verið miðuð við 2%
atvinnuleysi, en það stefndi nú í 4-5%.
Hann sagði að fé sem rann til sjóðsins hefði
ekki verið notað til að byggja hann upp,
enda hefðu ríkisstjómir löngum seilst í
sjóðinn meðan lítið þurfti að greiða úr hon-
um til atvinnulausra. „Það eru mörg göt á
kerfinu. Menn höfðu ekki einu sinni fyrir
því að hugsa: Hvað gerist ef atvinnuleysi
skellur á?“
Fjölmörgum fyrirspumum var beint til
ráðherrans og aðspurður kvaðst Sighvatur
ekki eiga von á því að atvinnuleysi minnk-
aði verulega á allra næstu árum: „Málin eru
einföld. Ef við væmm enn að veiða 350
þúsund tonn ættum við ekki í neinum erfið-
Íeikum. Þá stæðum við ekki frammi fyrir
þessu atvinnuleysi og þá væri ekki halli á
ríkissjóði. Við emm að veiða álíka mikið
núna og á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Vitaskuld nægir það ekki til þess að halda
uppi þeim lífskjömm sem við höfum búið
við.“
í svömm ráðherrans við fyrirspumum
kom meðal annars fram að bráðlega gengur
í gildi reglugerð sem gerir ráð fyrir endur-
greiðslu lil tekjulágra og atvinnulausra
vegna kostnaðar við lyf og heilsugæslu.
Þorskurinn
Biksvörl skýrsla frá Hafró
Hafrannsóknastofnun lagði í gær fram
hina árlegu skýrslu sína um nytjastofna
sjávar og aflahorfur fyrir næsta veiðiár.
Lagt er til að einungis verði veidd 150
þúsund tonn af þorski. Verði farið að til-
lögum fiskifræðinga verður þetta
minnsti þorskafli í áratugi. Astand ann-
arra fiskistofna en þorsksins er hinsveg-
ar með betra móti.
Á síðasta ári lögðu fiskifræðingar til að
einungis yrðu veidd 175 þúsund tonn en eft-
ir harðar sviptingar á stjómarheimilinu,
einkum meðal sjálfstæðismanna, var heim-
ilað að veiða 205 tonn. Heildaraflinn stefn-
ir hinsvegar í 235 tonn, - 60 tonn umfram
tillögur fiskifræðinga í fyrra.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
hefur ekki tjáð sig um hvort hann vilji fylgja
tillögum Hafrannsóknastofnunar um þorsk-
kvótann. 1 kjarasamningunum var hinsveg-
ar gert ráð fyrir því að aflaheimildir yrðu
ekki skertar.
Grátt ofan í svart. Jakob Jakobsson kynnir tillögur Hafrannsöknastofnunar. Lagt til að einung-
is verði veidd 150 þúsund tonn af þorski. A-mynd E.ÓI.
föitudáýM 16. Htðl' '9?
Atburðir dagsins
1805 Snillingurinn Luigi Boccherini deyr. Hann var ítalskur selló-
leikari og tónskáld.
1891 Fyrsta heimsmeistarakeppnin í kraftlyftingum er haldin á
kaffihúsinu Monico við Piccadilly t London.
1937 Austurríski sálffæðingurinn Alfred Adler deyr. Ein af hinum
stórmerku kenningum hans var kenningin um minnimáttarkennd-
ina/komplexinn.
1940 Belgíski herinn lýsir yfir uppgjöf sinni við nasistana.
1967 Hinn 65 ára gamli Francis Chichester fær móttökur sem hetja
í heimalandi sínu Bretlandi, þegar hann snýr úr ferð sinni á skútu
umhverfis hnöttinn eftir 119 daga siglingu og leggur að hafnar-
bakkanum í Plymouth.
1972 Hertoginn af Windsor, Edward, deyr í París. Hann neyddist til
að afsala sér konungstigninni eftir að hafa gifst hinni áður fráskildu
Wallis Simpson, sem reyndar var bandarísk ofan á allt saman.
1982 Knattspymufélagið Barcelona festir kaup á argentfnska knatt-
spymumanninum Diego Maradona. Barcelona keypti piltinn frá
Árgentinos Juniors fyrir metfé, 500 milljónir íslenskra króna á nú-
virði. Þess má geta að þegar AC Milan festi sér ítalska leikmanninn
Lentini fyrir nokkmm mánuðum þá kostaði það félagið um millj-
arð.
1985 Þúsundir dmkkna þegar fellibylur skellur á Bangladesh.
TÁNINGUR LENDIR Á RAUÐA TORGINU
1987 Hrekkjarbragð vestur-þýsks tánings olli í dag miklu upp-
námi um allan heim og varð sovéskum stjórnvöldum til mikill-
ar háðungar. Hinn 19 ára gamli Matthias Rust fiaug á lítilli
rellu af Cessna-gerð beinustu leið frá Helsinki til Moskvu. Þeg-
ar þangað var komið flaug hann lágflug yfir borgina og lenti
fagmannlega á Rauða torginu. Til að takast þessi ferð varð
Rust að smjúga í gegnum sovéska loftvarnakerfið eins og það
lagði sig og það tókst. Áður en Rust var handtekinn var hann
upptekinn þarna á torginu í dágóða stund við að gefa eigin-
handaráritanir. Ráðamönnum innan Kremlin-múra er ein-
staklega óskemmt og þykir líklegt að þeir nái að stöðva allar
greiðslur á vasapeningum til Rust. Oknyttastrákurinn er í al-
varlegum vandræðum.
Afmœlisdagar
Joseph Guillotin - 1738 Franskur læknir og byltingarsinni sem
þróaði fallöxina, hina mjög svo öflugu aftökumaskínu sem notuð
var óspart á tímum Ógnarstjómarinnar.
William Pitt (yngri) -1759 Enskur þingmaður sem varð forsætis-
ráðherra ótrúlega ungur eða aðeins 24 ára gamall, nokkuð sem
aldrei hafði gerst fyrr og mun sjálfsagt aldrei endurtaka sig.
Thomas Moore - 1779 írskt skáld sem hlaut miklar vinsældir með
verkum sínum Irish Melodies og Lalla Rookh. Moore deildi
ábyrgðinni á því að brenna endurminningar Byron lávarðar eftir
dauðdaga hans með útgefandanum John Murray.
Ian Flemming - 1908 Breskur skáldsagnahöfundur sem skapaði
James Bond.