Alþýðublaðið - 28.05.1993, Side 6
6
Ferðablað
Föstudagur 28. maí 1993
VEROLD DISNEYS:
GAMAN, GÖNGUR
OG GLÓANÐI GULL
Disneyland: Þrír skemmtigarðar
Skemfntigarðamir í nágrenni Orlando
eru fleiri en Disney World. Þeir eru alls um
50, ólfkir að stærð og gerð. Það er því mik-
ilvægt að kynna sér hvað þessir garðar hafa
upp á að bjóða áður en haldið er af stað.
Disney World er auðvitað elsta og þekkt-
asta skemmtisvæðið í Flórída. Ferðamenn
hvaðanæva að úr heiminum, og ekki síst
Bandaríkjunum sjálfum, streyma til Flórída
til að sjá Disney World.
Það var í raun Disney samsteypan sem
gerði Flórída endanlega að því ferðamanna-
heimsveldi sem það er í dag. Fyrir rúmlega
20 árum var Flórída fyrst og fremst þekkt
fyrir Miami og strendumar á austurströnd-
inni. Þangað lá leið Bandaríkjamanna sem
komnir voru á eftirlaunaaldur og annarra
ferðamanna sem þráðu sól og eilíft sumar.
Þegar Disney - samsteypan ákvað að
byggja risaskemmtigarð rétt sunnan við
miðborg Orlando, tóku hjólin heldur betur
að snúast. Á skömmum tíma hefur Disney
Veröldin ekki aðeins orðin að heimsfrægu
fyrirbrigði, heldur hafa ótal skemmtigarðar
og leiksvæði fyrir aldna sem unga sprottið
upp allt í kringum Orlando. Það hafa því
margir notið þeirra elda sem Disney - sam-
steypan kynti fyrir aldarfjórðung.
Disney Veröldin er í raun þrír gríðarlega
stórir skemmtigarðar: Magic Kingdom sem
er þeirra elstur og er í huga margra hinn eini
sanni Disneygarður, Epcot Center sem er
skemmtigarður tækniframfara og heimur-
inn í hnotskum og nýjasti garðurinn: MGM
- kvikmyndaver Disneys. Á landssvæði
Disney Veraldar sem alls er um 130 ferkfló-
metrar, er einnig að finna Disney - hótel og
gististaði ýmis konar, Disney - veitinga-
staði og útivistarsvæði.
Miðaverðið er það sama í garðana þrjá:
34 dollara fyrir fullorðna og 27 dollara fyr-
ir böm upp að níu ára aldri. ÞAð er hægt að
fá afsláttarmiða ef keyptir eru miðar í alla
garða Disneys í einu eða nokkra daga mið-
ar. Fyrir bamstóra fjölskyldu getur þetta
verið talsverð útgjöld en á móti kemur að
ókeypis er í öll tæki og uppákomur þegar
inn er komið.
Og hér verða menn að gera sér grein fyr-
ir að sérhver skemmtigarður tekur að
minnsta kosti einn heilan dag og það er
áríðandi að mæta snemma og nýta daginn.
Stundum þarf tvo daga að skoða aðeins
einn garð!
Töfrandi konungdæmi með biðröð-
um
Magic Kingdom er sá skemmtigarður
sem mest er í anda Disney og teiknimynda-
fígúra hans en einnig er ýmislegt annað að
fínna í skemmtigarðinum. Magic Kingdom
er fyrst og fremst fyrir yngstu ferðamennina
í hópnum og mesta gleði fullorðinna er eig-
inlega að horfa á yngstu bömin skemmta
sér.
Magic Kingdom er ævintýraheimur út af
fyrir sig þar sem vegfarendur ganga í gegn-
um gömul stræti, í gegnum ævintýrahöll og
í ýmis húsakynni sem bæði eru þekkt og
óþekkt í teiknimyndum Disneys. Hér er að
finna höll Öskubusku, hringekjur úr þekkt-
um ævintýrum, framtíðarland, draugahús í
breskum óðalsstfl, ævintýraeyju Tuma litla
(Tom Sawyer) úr samnefndri sögu Mark
Twain, hús Mikka Músar að ógleymdum
bflnum hans, leikhús þar sem teiknimynda-
persónur Disney skemmta á sviði. Og það
er meira að segja hægt að fara baksviðs og
taka í hendina á Mikka mús að lokinni sýn-
ingu og ljósmynda hann bak og fyrir.
Ýmis leiktæki eru einnig í garðinum.
Þannig er hægt að fara í rússíbanaferð gegn-
um Villta vestrið og sigla á timburstokkum
(reyndar vatnabátar úr plasti) í gegnum
heilt Disney ævintýri uns þátttakendur
steypast niður 18 metra foss! Undirritaður
reyndi þá ferð og ráðleggur mönnum að bú-
ast við blautri skemmtan.
Garðurinn býr einnig yfir ótal svæðum
þar sem ólíklegustu hluti er að sjá, svo sem
sjóræningja í Karabíska haftnu, dularfulla
atburði frá Pólinesíu, hús efst í risastórri (-
plast)eik samkvæmt ævintýrinu um Grant
skipstjóra og markaðstorg frá Marokkó.
Álltaf má búast við óvæntum uppákom-
um; Mikki mús, Andrés, Guffi eða aðrir
heimsþekktir borgarar Andabæjar birtast
skyndilega, veita eiginhandaráritanir og
stilla sér upp með fólki, einkum bömum til
myndatöku. Skrúðgöngur og hljómsveitir
marséra með jöfnu millibili um garðinn og
vekja kátínu.
Ferðamenn skulu búa sig undir mikla
göngu í Magic Kingdom sem í öðrum
skemmtigörðum. Það er því eins gott að
vera í góðu formi, góðum skóm, og vera vel
úthvfldur, áður en lagt er af stað. Það er af-
ar mikilvægt að mæta snemma á morgnana
þegar opnað er, eða um níuleytið. Garðam-
ir loka yfírleitt um sjöleytið, stundum síðar,
ef fram fara flugeldasýningar en það er
einkum yfir háannatímann á sumrin og yfir
hátíðar, jól og páska.
Hitinn og göngumar, að ógleymdum bið-
tímanum í öllum röðunum, gerir það að
Greinarhöfundur hitti Mikka mús baksviös en
þar tekur heimsstjarna teiknimyndanna viö
gestum í förðunarherbergi sínu. Stjarnan ncit-
aöi hins vegar aö svara spurningum blaða-
manns enda heyrist hvorki hósti né stunda frá
hinni þöglu stjörnu.
verkum að ferðalangurinn verður þreyttur,
svangur og þyrstur. Það er að fínna veit-
ingastaði, smáa og stóra, um allt svæðið.
Yfirleitt er dýrt á þessum stöðum, nánast
tvöfalt hærra verð en gengur og gerist. Á ís-
lenskan mælikvarða er matur og drykkur
samt tiltölulega ódýr í Disney görðunum.
Epcot miðstöðin: Siáið veröldina á
einum aegi!
Epcot Center er eins konar tæknigarður
Disney - samsteypunnar og kannski sá
garður sem minnst minnir á Walt Disney og
heim hans - nánast ekki neitt. Epcot - mið-
stöðin var reist á sínum tíma sem eins kon-
ar helgihof tækniframþróunar. Síðan hefur
þróunin sjálf tekið völdin en Epcot mið-
stöðin vart þróast með þróuninni.
Það fyrsta sem blasir við ferðalangnum í
Epcot miðstöðinni er gríðarlega stór kúla;
feikilegt mannvirki sem vekur athygli fyrir
hönnun og byggingu. Vagnar draga gesti
staðarins upp og niður um ganga inni í kúl-
unni; ferðalag í gegnum sögu mannkyns allt
frá steinöld til tölvualdar. Epcot - kúlan er
eins konar tákn fyrir þennan skemmtigarð
sem spannar um heiminn og þróun manns-
ins á jörðunni.
Garðurinn er tvískiptur. Annars vegar
eru byggingar yfir tækniþróun og vistkerfi
og hins vegar er stórum hluta svæðisins
varið í einingar þjóðlanda þar sem gestum
gefst kostur á að kynnast því helsta úr
menningu og sögu helstu þjóðlanda heims-
ins. Alþjóðleg fyrirtæki eru steiklega til
staðar í Epcot Center. Byggingamar sem
sýna tækniþróun, nýjungar á sviði vísinda
og tækni eða vistkerfí eru öll í eigu og
rekstri stórfyrirtækja, í raun gífurlegir aug-
lýsingasalir fyrir stórfyrirtækin. Það rýrir
ekki skemmtunina, en vekur ef til vill auka-
bragð í munni þeirra sem greitt hafa háar
upphæðir fyrir fjölskylduna til að komast
inn í garðinn.
Pýramídarnir í Mexíkó virðast sannfærandi en eru aöeins leikmvnd í
þjóölandinu Mexíkó í Epcot Center.
Þetta er ekki mynd frá Feneyjum, heldur sýnir ftalíu í hnotskurn í Epcot
Center.
Þjóðlöndin f hnotskum em saga út af fyr-
ir sig. Þau em staðsett hringinn í kringum
stóra tjöm, (u.þ.b. tvöföld Reykjavíkur-
tjöm) og það er erfitt að verjast brosi þegar
slagorð þeirra er lesið: „Sjáið heiminn á
einum degi!“
Hlið við hlið standa Bretland, Kína,
Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Japan, Mexí-
kó, Bandaríkin og jafnvel frændþjóð okkar
Noregur er einnig á sínum stað. I viðkom-
andi löndum er að finna helstu minnisvarða
viðkomandi þjóðar: Þama er Eiffeltuminn í
París, norsk stafkirkja, kínversk borgarhlið,
kirkjutumar Feneyja og Big Ben í London.
Að vísu allt í minnkaðri mynd.
Innbyggjendur þjóðlandanna em þó ekta.
Það er talað á frönsku, þýsku, ensku, kín-
versku og svo framvegis í viðkomandi
þjóðlöndum. Og á öllum stöðum er boðið
upp á vagnferðir eða álíka til að kynna gest-
um sögu og menningu landamta. Fyrir
B andarfkj amann
er þetta praktísk
lausn á þeim
vanda að sjá allan
heiminn: Hann
gerir það einfald-
lega í Epcot Cent-
er á einum degi.
Fyrir Evrópubú-
ann er þetta hins
vegár áfall: Leik-
tjöld heimsins í
miðju Disney-
landi!
Hugur fslend-
ings spyr ósjálfr-
átt hvort þetta sé
ekki sniðug land-
kynning: Hefði
ekki verið upp-
lagt að setja eitt
stykki ísland ein-
hvers staðar við
hliðina á Japan
eða Mexíkó?
Láta gestina aka f
vögnum gegnum
íslandssöguna
þar sem Ingólfur
Amarson, Njáll
og Grettir sterki
hefðu verið í
hreyfanlegu
dúkkulíki, inæl-
andi fram gull-
kom íslendingasagnanna? Og eftir á hefðu
ferðamenn getað keypt hertan fisk, lamba-
læri og gærur í túristabúðunum eins og hin
þjóðlöndin buðu uppá? Því allt er þetta
ferðamannabisness? Eftir að hafa heimsótt
Noreg í Epcot Center verður svarið fremur
neikvætt. Þetta er yfirborðsleg landkynn-
ing.
Norsku stúlkumar segja mér að um 150
Norðmerm vinni í Noregi Epcot miðstöðv-
arinnar. Eg spyr: Við hvað? Og svarið er:
Við þjónustu, þjóðdansa, kringlu - og köku-
bakstur, sölumennsku og aðra tilfallandi
vinnu sem nauðsynleg þykir í Noregi í Epc-
ot Center. Noregur er í eigu Disney - sam-
steypunnar líkt og hin þjóðlöndin, launin
em fimm og hálfur dalur á tímann og starfs-
menn allra þjóðlandanna búa í gríðarstómm
búðum á landsvæði Disney Veraldarinnar.
„Það er gaman og mikið um að vera,“ segir
norska stúlkan. „En við vitum ekki lengur
hvaða dagur eða mánuður er. Maður verður
bara að tannhjóli í risavaxinni vél Disney -
samsteypunnar. Tilvera okkar er veröld
Disneys."
Og það er tilfinning sem læðist að manni
í allri gleðinni og uppákomunum: Stundum
er engu líkara en maður sé staddur inni í
tröllaukinni peningavél sem malar jafnt og
þétt og innheimtir gróða af ferðamönnum,
fyrirtækjum og þjóðlöndum.
MGM kvikmyndaverið: Skemmti-
garður um myndir Disneys
Þriðji skemmtigarðurinn í Disney Veröld
er Disney - MGM - kvikmyndaverið. Þótt
skemmtigarðurinn sé titlaður sem „kvik-
myndaver" hefur að sjálfsögðu aldrei verið
tekin nein kvikmynd í kvikmyndaverinu.
Verið er skemmtigarður en settur upp sem
samfelld ganga í kvikmyndaveri þar sem
ýmislegt áhugavert ber fyrir augu.
Þama er fyrst og fremst að sjá ýmsar
framsetningar á kvikmyndum Disneys. Sú
nýjasta og kannski sú besta frá Disney -
samsteypunni, „Fríða og dýrið,“ er eitt að-
alsegulstálið á gesti garðsins. Aðalpersón-
umar úr myndinni sýna lislir sínar á sviði í
stórfenglegum búningum. En það er margt
annað að sjá: Prúðuleikarar Jim Hensons í
þrívfdd, Stjömustríð, áhættuleikur úr Indi-
ana Jones, Skrímslaskemmtun, auk ýmissa
ferða gegnum stjömuheiminn. Og síðast en
ekki síst gefst gestum tækifæri til að leika í
frægum sjónvarpsmyndum með aðstoð
tæknibrellna.
Margt annað er að skoða í Disney -
MGM kvikmyndaverinu sem einkum höfð-
ar til eldri krakka og fullorðinna en hefur
einnig mikið að gefa yngstu gestunum.
Það vekur einnig athygli í kvikmynda-
verinu sem og öðmm stöðum í hinum
miklu skemmtigörðum að stórfyrirtækin
taka að fullu þátt í uppbyggingu þeirra. All-
ir skálar eða byggingar eru í eigu eða boði
einhvers heimsfrægs stórfyrirtækis og
óneitanlega gefur þessi staðreynd auglýs-
ingabragð í munninn. Enda hafa höfundar
Simpson fjölskyldunnar oft gert stólpagrín
af þessu samkrulli skemmtana og auglýs-
ingaskrums í bandarískum skemmtigörð-
um. En það em aðeins fullorðnir sem hugsa
svo: Bömin em alltof upptekin af skemmt-
uninni til þess að leiða hugann að stórfyrir-
tækjunum og auglýsingum þeirra, beinum
sem óbeinum.