Alþýðublaðið - 17.06.1993, Side 1
Ráðherrajundur EFTA
Kjartan aðalfram-
kvæmdastjóri EFTA
Bjöm Friðfinnsson í Eftiriitsstofiiunina og Þór Vilhjálmsson í dómstólinn
„Þetta verða sjálfsagt spenn-
andi tímar“, sagði Kjartan Jó-
hannsson sendiherra, núverandi
fastafulltrúi í Genf, við Alþýðu-
blaðið í gær eftir að ákveðið hafði
verið að hann skyldi taka við af
Georg Reisch sem aðalfram-
kvæmdastjóri EFTA þann 1.
september á næsta ári. Kjartan
Jóhannsson mun vera fyrsti Is-
lendingurinn sem gegnir slíkri
ábyrgðarstöðu hjá ijölþjóða-
stofnun.
Það eru utanríkisviðskiptaráð-
herrar EFTA-landanna sem tóku
samhljóða ákvörðun um að ráða
Kjartan sem aðalframkvæmdastjóra
EFTA á fundi í gær. Um starfsvið
framkvæmdastjórans sagði Kjartan
Kjartan Jóhannsson fastafulltrúi
íslands hjá EFTA valinn til forystu í
samtökunum.
það vera „fólgið í því að vera yfir-
maður stofnunar EFTA héma í
Genf og stýra 200 manna starfsliði
hennar. Þessi stofnun þjónar svo
aftur aðildarríkjunum um hvaðeina
sem varðar samningana annars veg-
ar við Evrópubandalagið og hins
vegar við þriðju lönd eins og Aust-
ur-Evrópulöndin.“
„Eg geri ráð fyrir að þetta verði
nokkuð sérstakt verkefni að þvf
leytinu til“, sagði Kjartan, „að það
ríkir svo mikil óvissa urn hvemig
hlutimir munu verða í nánustu
ffamtíð. Það em svo og svo mörg
EFTA-landanna búin að sækja um
aðild um EB en enginn veit hvort
og þá hvenær þau munu verða aðil-
ar að bandalaginu. EFTA-stofnunin
mun þurfa að geta sinnt öllum
þeirra verkefnum meðan þau em
aðilar að EFTA. Hins vegar þurfum
við að geta aðlagað okkur nýjum
aðstæðum eftir að þau em farin.“
EFTA-ríkin em með marga
samninga í gangi. Auk EES samn-
ingsins hafa þau gert fríverslunar-
samning við átta ríki í A-Evrópu og
við Miðjarðarhaf og svo em 11 svo-
kallaðir efnahags- og viðskiptasam-
starfssamningar við önnur ríki.
A fundinum skipuðu ráðherramir
einnig í sæti dómara og stjómarsæti
í Eftirlitsstofnunina. Þór Vilhjálms-
son hæstaréttardómari var skipaður
í dómstólinn en Bjöm Friðfmnsson
ráðuneytisstjóri mun sitja í stjóm
Eftirlitsstofnunarinnar.
Jökull i röðherrastól
I gær óskuðu þrír röggsamir strákar úr Vesturbænuni eftir viðtali við umhverf-
isráðherra til þess að ræða hávaðamengun við Hringbrautina. Auk þess komu
þeir með ýmsar prýðilegar hugmyndir aðrar í umhverfísmálum. Þeir vilja
hjólabrautir, flciri tré og hreinsun á landi og sjó, og síðast en ekki síst að barist
verði gegn mengun vegna tóbaksreykinga. Jökull I. Elísabetarson er ábúðarfull-
ur á svip þarsem hann situr í stól umhverfisráðherra. Að baki hans standa
Garpur, bróðir hans, og Þorstcinn Máni, frændi þeirra, með Össuri Skarphéð-
inssyni umhverfísráðherra. SJÁ BLS. 3.
Borgamesbær býður ykkur velkomin
» —1
I -1-
Borgarnes hefur margt að bjóða
feróamönnum sem leggja leið
sína í eitt fegursta hérað lanðsins.
Gott tialdsvœöi - Safnahús Borgarfjarðar
____________________________________________________________l
St«tt ad fara - gotf að vera
Borgarnesbær