Alþýðublaðið - 06.07.1993, Page 1
B
■
NAUÐGARAR
SLEPPA LÉTT
FRÁ GLÆPNUM
Fimm stúlkum í það minnsta var nauðgað á útimótinu í Þjórsárdal, fjórum af
„kunningjum“ - nauðgarar komast upp með glœpinn án þess aðþurfa að svara
til saka en reynt er að senda þá burtu af svæðinu
FIMM NAUÐGANIR í Þjórs-
árdal munu trúlega ekki verða
kærðar. Þolendur slíkra óhæfu-
verka, ungar stúlkur, telja að
„kunningjanauðganir“ sé erfitt
að kæra. Stígamót vita um fimm
nauðganir á Þjórsársdalsmótinu
sem haldið var um helgina af
tveim ungum framtaksmönnum í
Reykjavík. Þolendur glæpanna
leituðu til starfskvenna Stíga-
móta á svæðinu. En lítið virðist
úr málunum gert. Nauðgararnir
þurfa ekki að svara til saka.
„Það voru nauðganir, það er rétt,
til okkar leituðu fimm stúlkur sem
sögðu að þeim hefði verið nauðg-
að“, sagði Heiðveig Ragnarsdóttir,
starfsmaður Stígamóta, samtaka
kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi,
í samtali við Alþýðublaðið í gær.
„Því miður eru þessi tilvik aðeins
hluti af þeim nauðgunum sem
þama hafa átt sér stað“. Heiðveig
ásamt annarri starfskonu samtak-
anna voru á vakt nánast sólarhring-
um saman á útisamkomunni f
Þjórsárdal um helgina.
I umfjöllun DV um þessa sam-
komu segir svo í miðri frétt í gær.
eins og ekkert sé sjálfsagðara: „Það
var líka eitthvað um nauðganir",
sagði hún“, og er þar vitnað í orð
einhvetTar af þrem stúlkum, við-
mælendum blaðsins, sem voru á há-
tíðinni.
„Við förum á þessar útisamkom-
ur vegna þess að við vitum að þar
verða nauðganir. Þama vomm við
með heldur ófullkomna aðstöðu og
höfðum ærið að gera. Okkur fannst
ástandið almennt séð bæði gott og
vont, nauðgunarmálin eru auðvitað
hryllileg staðreynd og þama var sal-
emisaðstaðan mjög slæm“, sagði
Heiðveig.
En hvað er til ráða þegar ung
stúlka kemur í sálarangist til Stíga-
móta og segist hafa upplifað nauðg-
un?
„I fjórurn tilvikum reyndist
kunningi hafa nauðgað stúlku, í
einu tilviki var um að ræða mann
sem stúlkan þekkti ekki fyrir. Stúlk-
umar vilja ekki kæra til lögreglunn-
ar, þær kenna sjálfum sér um hvem-
ig fór, vegna ofneyslu áfengis.
Sumar þeirra vilja vera áfram á
svæðinu, aðrar hringja til aðstand-
enda sinna og láta sækja sig á svæð-
ið. Yfirleitt reynum við að fá
nauðgarann sendan burtu af svæð-
inu“, sagði Heiðveig.
H
n
•••
Helvítis helstefna
■ segir Gísli Jón hjá Ögurvík og vill ekki rœða við
minnsta blaðið né það stœrsta
„Þetta er ekkert annað en helvít-
is helstefna kratanna og Mogg-
ans“, sagði Gísli ,lón Hemianns-
son, forstjóri Ögurvíkur hf. þegar
Alþýðublaðið leitaði frétta hjá
honum í gær.
Gísli Jón sagðist ekki sjá fram á
annað en að hætta allri útgerð, eft-
ir að búið er að koma á þróunar-
sjóði sjávarútvegsins. Hann vill fá
að gramsa í auðlind þjóðarinnar
átölulaust og án þess að greiða eyri
fyrir.
Annað var ekki að frétta hjá
Gísla Jóni, þeim harða jaxli af
Vigurkyni. Hann sagðist ekki tala
við tvö blöð, - Alþýðublaðið og
Morgunblaðið.
Qamli minkabaninn
vaknar til lífsins
Sú var tíð að Sámur var einn mest-
ur minkabani á Ströndum. Nú cr
hann orðinn hrumur og heymarsljór
enda fullra 14 ára og grandar víst
ekki fleiri minkum héðan af. í seinni
tíð hefur Sámur vetursetu á Skaga-
strönd cn nær vorar fer hann á forn-
ar slóðir í Djúpuvík í Arneshreppi.
Og þá er cinsog gamli minkabaninn
vakni til lífsins: cldur minninganna
fer um æðarnar þegar hann þcfar
uppí vindinn eftir lykt erkióvinarins.
Sámur kemst kannski ekki langt af
bæjarhellunni, cn hann stendur að
minnsta kosti vaktina hjá þorskinum
væna. Alþýðublaðið segir meira af
Djúpuvík og lífinu þar í blaðinu á
morgun. (A-mynd: Hrafn Jökulsson)
Innbrofskettir herja ó ísfirðinga
Sómakœrir heimiliskettir breytast í óargadýr í ókunnum húsum
Bæjarins besta, fréttablað Vest-
firðinga, skýrir frá því í stórri frétt
að „innbrotskettir" herji nú mjög á
íbúa í Holtahverfi á Isafirði.
Hápunkti náði „kattamálið" í
síðustu viku, að sögn blaðsins,
„þegar íbúi einn í Holtahverfi
vaknaði klukkan fimm að morgni
við þrusk í húsinu. Þegar að var
gáð reyndust það vera tveir kettir
sem komist höfðu inn um smáop á
einum glugganum. Þeir voru að
slást uppi á eldhúsborði þegar
húseigandinn kom að þeim og
höfðu þegar brotið lítinn hluta
leirtausins. Fyrir nokkrum árum
varð einn meðlimur sömu fjöl-
skyldu fyrir árás kattar sem skað-
aði viðkomandi með þeim hætti
að hann bíður þess aldrei bætur.“
Kunnugir segja að í raun sé ekki
um villiketti að ræða, „heldur fyrr-
verandi heimilisketti sem breytast
í óargadýr í ókunnum húsum,“
einsog sagt er í frétt Bæjarins
besta. Blaðið segir ennfremur að
málið sé komið í „blindgötu“ eftir
að þriggja manna sveit kattabana
var leyst upp.
Flug og bíll á Írlandi
á mann miðað við 4 í bíl og
32.200 kr. á mann miðað við tvo í bíl.
Innifalið í verði: Flug, bíll í A flokki í eina viku, ótakmarkaður kílómetrafjöldi,
kaskótrygging, flugvallaskattur, forfallagjald og innritunargjald í Keflavík.
Barnaafsláttur 2-11 ára 4000 kr.
Samvininiferúir
Lantisj/n
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Reykjavíkurvegur 72 • S. 91 - 511 55
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Slmbréf 92-13 490 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 -1 10 35
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 - 1 12 71 • Símbréf 98 -1 27 92 QATtAS/*