Alþýðublaðið - 06.08.1993, Page 1
Stefnir í metfjölda erlendra ferðamanna á þessu ári
Skila 13,5 milliörðum
í gjaldeyristekjur
-segir Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri sem vonast til að unt 150 þúsund erlendir ferðamenn komi til landsins á árinu
„Þessar tölur um aukin tjölda er-
lendra ferðamanna eru mjög ánæguleg-
ar fyrir þessa at vinnugrein á tímum erf-
iðleika á mörgum sviðum. í upphafi
ársins spáði ég 3% aukingu á komum
erlendra ferðamanna og sú spá ætti að
ganga eftir sem þýðir að nálægt 150
þúsund ferðamenn sækja okkur heim.
Þetta eykur gjaldeyristekjur um millj-
arð frá í fyrra og þær ættu því að nenia
um 13,5 milljörðum króna á árinu,“
sagði Birgir Þorgilsson ferðamálast jóri í
samtali við blaðið.
Frá áramótum til síðustu mánaðamóta
komu samtals 97.360 erlendir ferðamenn
til landsins. Þetta er fjölgun um 6,9% frá
sama tíma í fyrra, cn þá komu 91.098 út-
lendingar. Samtals komu nær 143 þúsund
erlendir ferðamenn til landsins á síðasta
ári. Kontum lslendinga hefur hins vegar
fækkað lítið eitt það sem af er ári eða um
tvö þúsund manns. Af erlendum ferða-
mönnum eru Þjóðverjar langflestir eða
nær 11 þúsund fyrstu sjö mánuði ársins.
Frá Frakklandi kontu liðlega þrjú þúsund
manns og nær 2.600 frá Sviss.
Ekki liggja fyrir tölur unt (jölda gisti-
nátta ferðamanna á árinu og því erfitt að
segja til um hve lengi þeir dvelja á landinu.
Lengd dvalarinnar hefur áhrif á tekjuhlið
ferðaþjónustunnar. Flagstofan á að safna
þessum tölum saman en Birgir sagði að
enn lægju ekki fyrir endanlegar tölur fyrir
tvö síðustu ár og engar tölur það sem af
væri þessu ári. Birgir Þorgilsson sagði að
um næstu áramót legðist virðisaukaskattur
á verð á gistingu og sú skattlagning væri
ferðaþjónustunni nokkuð áhyggjuefni.
Erlendir tjaldferöalangar sitja að málsverði
á tjaldstæði.
Ljósmynd: Arí
Umhverfisráðherra um fosfórhylkin á Ströndum
STÓRHÆTTULEG
-óskar eftir viðrœðum við Varnarliðið og Landhelgisgœsluna um takmörkuð svœði
Jyrir œfingar þar sem hylkin eru notuð og villfá íslensk aðvörunarorð á hylkin
Aflaverðmæti
mó auka um
500-600
milljðnir
Islenskur búnaður við fiskvinnslu-
línu elsta frystitogara landsins, Sigl-
firðing, hefur reynst með miklum
ágætum. í Iðnaðinum, blaði Lands-
sambands iðnaðarmanna, segir að
fyrstu vísbendingar gefi til kynna
10% betri nýtingu hráefnisins. Með
sams konar árangri um borð f öllum
frystiskipum landsins sé hægt að auka
aflaverðmæti um 5-600 milljónir
króna, segir blaðið.
Unnið hefur verið undanfarið að gerð
nýrrar vinnslulínu fyrir fiskiskip innan
samstarfsverkefnisins Halios, sem ís-
lendingar, Frakkar, Spánverjar og Eng-
lendingar vinna að saman, en verkefni er
hluti af Eureka-áætluninni, samstarfs-
verkefni Evrópuþjóða á sviði tækniþró-
unar.
Meðal verkefna í Halios er hönnun á
vinnsludekki frystitogara. Hannaði fyrir-
tækið VSO-lðntækni nýtt vinnsluferli
sem kallað er Vinnslubót og nú er um
borð í Siglfirðingi. Komið var fyrir nýj-
um hausara sem gefur, betri nýtingu,
ásamt tveimur íslenskum aðgerðarvélum
frá fyrirtækinu Kvikk hf. Vélamar
blóðga og slægja fiskinn án þess að eyði-
leggja hrogn, lifur eða svil og auka
möguleika á meiri nýtingu aflans. Þá var
sett um borð nýlingareftirlitskerfi frá
Marel hf.
Að sögn Ásgeirs Matthíassonar hjá
VSO-Fisktækni er nýtingin 10% beU'i en
fyrr, verðmætaaukning fyrir þá á Sigl-
firðingi um 20 milljónir frá áramótum
þegar tilraunin hófst. Ásgeir segir ekkert
til fyrirstöðu að setja samskonar vinnslu-
lfnur í alla frystitogara landsins.
Auk verðmætaaukningar opnast
möguleikar fyrir frekari fullvinnslu um
borð, nokkuð sem menn íhuga nú gaum-
gæfilega þegar aflaheimildir dragast
saman. Með nýju vinnslulínunni minnk-
ar álag á áhöfn og tími gefst til að vinna
úr hrognum, lifur og svilum sem koma
óskemmd úr nýju aðgerðarvélinni.
„Við munum leita eftir viðræðunt við þá
aðila sem nota fosfórhylki þessi, það er
Vamarliðið og Landhelgisgæsluna, og
freista þess að fá þau til að takmarka notkun
hylkja þessara", sagði Össur Skarphéðins-
son, umhverfisráðherra, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Ráðherrann sagði að eftir
þeim upplýsingum sem hann hefði aflað
sér, væri hér um að ræða stórhættuleg efni,
sem ekki eiga heima úti í náttúmnni.
Alþýðublaðið greindi frá því í frétt á
miðvikudaginn að fundist hefðu tvö hylki á
fjörum við Hrútaíjörð um síðustu helgi, en
þau innihéldu hættulegan fosfór. Ráðherra
sagði að hylkin væm notuð til að gefa flug-
mönnum vísbendingu um vindstyrk, vind-
átt og hæð. Aðallega væri það Vamarliðið
sem notaði hylki þessi, mest við æfingar, en
einnig Landhelgisgæslan notar samskonar
fosfórhylki.
Össur Skarphéðinsson sagði að það væri
ljóst að tæki þessi væm nauðsynleg. Hins-
vegar sagðist hann telja að ræða mætti um
takmörkuð svæði fyrir æfingar af þessu
tagi. Þannig mætti með nokkmm líkindum
áætla hvar hylkin rækju á fjömr og starfs-
menn viðkomandi stofnana þá annast um
að hreinsa til eftir sig.
Umhverfisráðherra sagði ennfremur að
hann mundi leggja til að komið yrði fyrir
áberandi viðvömnarorðum á móðurmáli
okkar, en eins og Alþýðublaðið greindi frá,
fundu böm annað hylkið á íjömm Skál-
holtsvíkur í Hrútafirði, en þau að sjálfsögðu
ólæs á enska tungu.
„Eg lít á þetta sem stórt mál, eitt af mörg-
um sem að okkur snýr hér í ráðuneytinu.
Fosfórinn getur valdið miklum meiðslum á
mönnum og skepnum ef illa tekst til. Þetta
vandamál verður því að leysa og hér verður
unnið að því á næstu dögum“, sagði Össur
Skarphéðinsson í gær.
FOSFÓRHYLKI sem fannst á fjörum SkálholLsvíkur í Bæjarhrcppi í Hrútafirði í höndum lög-
reglunnar á Hólmavík.
Loðnuveiðin
GÓÐUR AFLI
Loðnuvertíð gengur að óskum. Frá
mánaðamótum hafa bræðslumar tekið
við um 25 þúsund tonnum og í gærdag
vom á íjórða þúsund tonn á leiðinni til
lands, samkvæmt upplýsingum frá Félagi
íslenskra fiskmjölsfrantleiðenda. Sá
skuggi er yfir veiðunum að verð fyrir af-
urðimar er enn í lægra kantinum.
Sumar- og haustvertíð í loðnu, sem
hófst snemrna þetta árið, hefúr fært með
sér nærri 150 þúsund tonna afla, - heildar-
loðnukvótinn er 702 þúsund tonn og em
menn bjartsýnir á að ná öllum kvótanum,
enda búast þeir við mun meiri veiði á
vetrarvertíð að venju.
m
J DAG!
LEIÐARINN
í leiðara dagsins er fjallað um
óeðlileg hagsmunatengsl
lækna og apótekara og sú krafa
sett fram að rannsókn verði
gerð sem fyrst á óeðlilegum
hagsmunatengslum þessara
aðila.
- Bls. 2
ONNUR SJONARMIÐ
Önnur sjón-
armið taka í
dag fyrir grein
Hrafns Jökuls-
sonar í síðustu
Pressu þar
sem hann
heldur áfram
að eida sitt gráa silfur við Mark-
ús Örn Antonsson borgar-
stjóra.
- Bls. 2
BRÚÐKAUP Á RIFI
Á Rifi var um
helgina haldið
heljarmikið
brúðkaup þar
sem gift voru
Árni Her-
mannsson frá
Akureyri og
Hildigunnur Smáradóttir frá
Rifi. Alþýðublaðið var á staðn-
um.
- Bls. 4
FLATEYJARFERÐ
Hefurðu ein-
hvern tímann
prófað að stíga
inn í tímavél og
koma út í
kringum 1940?
Auðvitað ekki,
nema þú hafir
komið út í Flatey á Breiðafirði
þar sem tíminn stendur í stað.
- Bls. 4
SÆNSK STJÓRNMÁL
í fréttaskýr-
ingu er fjailað
um sviptingar í
s æ n s k u m
stjórnmálum.
Ýmsar spár
hafa gefið það
sterklega til
kynna að jafnaðarmenn nái þar
hreinum meirihluta í næstu
kosningum.
- Bls. 5
KVIKMYNDIR
Barði Jó-
hannsson
Bkvikmynda-
gagnrýnandi
ins segir okkur
frá Last Action
Hero með Arn-
old Schwarzenegger, Hot
Shots! Part Deux og þeim fé-
lögum Amos & Andrew.
- Bls. 7