Alþýðublaðið - 03.09.1993, Page 8

Alþýðublaðið - 03.09.1993, Page 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ____________________________SKOLAMAL________________________________ ____________Föstudagur 3. september 1993 Það er 1 leikur að 1 læra - á hvaða aldri sem er! Fjölbrautaskól- inn í Breiðholti Kvöldskóli FB er opinn öllum þeim sem eru eða verða 20 ára á fyrstu námsönninni. Boðið er upp á bæði bóklegt og verklegt nám á öllum sjö námssviðum skólans. Nemendur geta annað hvort stefnt að ákveðnum námslokum eða valið sér ein- staka námsáfanga. Ætlast er til að nemend- ur taki námsáfanga í réttri röð, undanfara á undan framhaldsáföngum. Fjölbrautaskól- inn er afar fjölmennur og um 900 manns voru þar við nám á síðustu önn. Kvuldskóli FB býður upp á eftirfarandi starfsréttindanám: Húsasmíði, matartækna- nám, pípulagnir, rafvirkjun, rennismíði, sjúkraliðanám, verslunarpróf og vélvirkjun. Stúdentspróf geta nemendur kvöldskól- ans lokið af eftirfarandi sviðum: Bóknáms- sviði, félagsgreinasviði. listasviði, tækni- sviði og viðskiptasviði. Auk þess eru af og til endurmenntun- arnámskeið fyrir einstakar starfsgrein- ar, tii dæmis sjúkraliða. Námsframboð kvöldskólans er þó allt- af háð eftirspurn þannig að mjög fá- mennir námsáfangar eru felldir niður. Fjölbrautaskól- inn á Sauðár- króki Fullorðinsfræðsla á Norðurlandi vestra er samvinnuverkefni Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og grunnskóla í kjördæminu. Þar er jöfnum höndum boðið upp á nám í -jjK W': i f “ 1 1 I í & ■ * Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Námsmenn sem vilja gera eitthvað skemmtilegt og um leið eitthvað skynsamlegt, fara í NÁMUNA. Hún er sniðin að þörfum skólafólks. Þú finnur yfir 60 " á 43 stöðum hringinn í Landsbanka Islands landið. ----L ------ N • Á - M - A • N í NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, bíður þín m.a. eftirfarandi: * Einkareikningur, tékkareikningur með dagvöxtum. * Hagkvæmar sparnaðarleiðir með Reglubundnum sparnaði. * Námureikningslán á hagstæðum kjörum. * Spariveltulán. * Sveigjanlegar afborganir lána. * 7 námsstyrkir árlega. * Námslokalán. * Ráðgjöf og upplýsingaþjónusta. * Þjónustufulltrúi sem aðstoðarvið gerð fjárhagsáætlana. * Greiðslukort, Euro eða VISA. * Minnisbók, án endurgjalds, við upphaf viðskipta. * Hressilegar tómstundir.... - ' ' * Ýmis fyrirgreiðsla við námsmenn erlendis. öldungadeild samkvæmt námskrá fram- haldsskóla og styttri námskeið sem lýkur án prófa. Meðal námsefnis má nefna tölvufræði, tungumál, myndmennt, málmsuðu, bóklega hluta ökunámsins og fleira. Námskeiðin em haldin vítt og breytt í fjórðungnum. Meðal staða utan Sauðár- króks, sem haldið hafa námskeið á vegum fullorðinsfræðslunnar em Siglufjörður, Varmahlíð, Skagaströnd, Blönduós, Húna- vellir, Hvammstangi og Laugarbakki. Framvegis er ætlunin að bjóða félagasam- tökum og aðilum vinnumarkaðarins upp á samvinnu um margs konar námskeiðahald líkt og gert er í farskólum. Flensborgar- skólinn I öldungadeild Flensborgarskólans í Hafnarfirði er boðið upp á sömu náms- áfanga og kenndir em í dagskóla, en náms- framboð á hverri önn er miklu takmarkaðra. I öldungadeildinni er hægt að stunda nám á öllum námsbrautum skólans, stúdentsprófs- brautum og styttri námsbrautum. Kennsla fer fram íjóra daga vikunnar klukkan 17.20 - 21.40 og er hver kennslustund 60 mínútur. Kennslutímar em helmingi færri en í dag- skóla. Kennsla er nú að hefjast í öldunga- deildinni og þeir sem ætla að vera með þurfa að hafa snör handtök. Námsgjöld em 10 þúsund krónur fyrir 1 - 2 námsáfanga og 15 þúsund fyrir þrjá námsáfanga eða fleiri. Nemendur öldungadeildar hafa aðgang að námsáföngum dagskóla eftir því sem rúm leyfir. Talsvert er um að nemendur í öldungadeild stundi nám í einstökum náms- áföngum sér til ánægju án þess að stefna að ákveðnum námsíokum. Aldurstakmark er 20 ár. Framhaldsskóli Vestfjarða Við Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði er boðið upp á framhaldsnám í öldunga- deild samkvæmt Námskrá handa fram- haldsskólutn sem menntamálaráðuneytið gefur út, sé nemendaijöldi nægur. Á ísafirði er almennt bóknám, eitt ár framhaldsnám til stúdentsprófs á mála- og samfélagsbraut. Ennfremur viðskiptabraut sem tekur tvö ár og er framhaldsnám til stúdentsprófs á hagfræðibraut. Á Patreksfirði er í boði tveggja ára nám við viðskiptabraut. Einnig býður ffamhaldsskólinn upp á al- mennt meistaranám iðnaðarmanna. I fjarnámi er boðið upp á einstaka nánts- áfanga, einkum upphafsáfanga til dæmis í ensku og stærðfræði. ^lfjýðuíttaðéíið íim 6Z&66 6Z9ZU

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.