Alþýðublaðið - 03.09.1993, Blaðsíða 17

Alþýðublaðið - 03.09.1993, Blaðsíða 17
Föstudagur 3. september 1993 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 17 SKÓLAMÁL & SKItABOB Það er leikur að læra - á hvaða aldri sem er! Námskeið BSRB Aðildarfélög BSRB, einkum hin fjcM- mennari, halda úti námskeiðum af ýmsum toga, svo sem trúnaðarmannanámskeiðum fyrir félagsmenn sfna. Útgáfú- og fræðslunefnd heildarsamtak- anna stendur íyrir margvíslegu námskeiða- haldi. Öðrum þræði er markmiðið að gera BSRB-félaga betur í stakk búna til að sinna margvíslegum félagssstörfum og eru nám- skeið á borð við ræðumennsku og fundar- sköp og útgáfu og vinnslu fréttabréfa til marks um það. En að auki stendur nefndin fyrir námskeiðum sem hafa almenna skír- skotun. Hátt í þúsund manns fá árlega styrki úr Starfsmenntunarsjóði ríkisins innan BSRB. Sjóðurinn styrkir fólk til að afla sér marg- víslegrar þekkingar, en eitt af markmiðum hans er að sjá til þess að starfsmenn eigi kost á námskeiðum sem geri þeim mögu- legt að taka að sér vandasamari störf en þeir gegna og þar með sækja um nýjar stöður. Kvöldskóli Kópavogs Kvöldskóli Kópavogs býður upp á fjöl- breytt námskeið fyrir fólk á öllum aldri. I starfi skólans er lögð áhersla á fjölbreytt, fræðandi og skapandi námskeið við allra hæfi, góða kennslu og fámenna hópa til að kennslan nýtist sem best. Tungumál, verklegar greinar og tóm- stundanámskeið skipa stærstan sess, en einnig er boðið upp á námskeið í skrifstofu- störfum, tölvunámskeið, stafsemingu og ís- lensku fyrir útlendinga. Frjáls fatahönnun er nýtt námskeið við skólann. Kennsla fer fram á tveimur önnum, haus- tönn ffá lok september til desember og vor- önn frá lok janúar til maí. Lengd námskeiða er mismunandi en yfirleitt er kennt einu sinni í viku. Hjón, ellilífeyrisþegar og örorkuþegar fá afslátt á kennslustundum, einnig þeir sem sækja tvö eða fleiri námskeið. Starfs- menntasjóðir BSRB, BHMR, Sóknar og VR styrkja félagsmenn sína til náms f Kvöldskóla Kópavogs. Stjórnunarfélag íslands „Hvað skilur afreksfólk (peak perform- ers) frá fjöldanum? Það er ekkert leyndarmál. Afreksfólk hugsar og hegðar sér einfaldlega á árang- ursríkari hátt. Það streymir ffá þvf metnað- ur, persónutöfrar og sjálfstraust. Það afrek- armiklu! Nú býðst þér tækifæri til að tileinka þér þessa þróuðu hæfni, eiginleika og viðhorf sem allir afreksmenn og konur hafa.“ Svo segir meðal annars í bæklingi Stjóm- unarfélags íslands um svokallað Phoenix námskeið sem félagið býður upp á. Það samanstendur af myndbandsþáttum með vinnubókum, æfingum og hljóðsnældum til uppriljunar og eftirfylgni. Skýringartexti er á tslensku, íslensk handbók og íslenskur leiðbeinandi. Fullorðinsfræðsla Stjómunarfélagsins verður fjölbreytt í vetur. Þar má nefna nám- skeið varðandi viðskipti og rekstur fyrir- tækja, sérhæfð tungumálanámskeið, nám- skeið í árangursríkri sölu og markvissri fúndarþátttöku og stjómun. Námsflokkar Reykjavíkur Þeir em ófáir sem hafa stundað nám við Námsflokka Reykjavfkur enda er þar boðið upp á margvíslegt og Ijölbrcytt nám. Þar má nefna bóklegt tómstundanám og innfalið í því er nám í fjölmörgum tungumálum, verklegt tómstundanám, prófanám (öld- ungadeild) á fomámsstigi og ffamhalds- skólastigi, starfsnám fyrir ófaglært fólk, módelteikningu og einnig má nefna að boð- ið hefur verið upp á námskeið fyrir fólk í lestrarörðugleikum og námskeið fyrir at- vinnulausa. Hópar fólks sem æskja fræðslu um eitt- hvert tiltekið efni sem ekki er á námsskrá geta snúið sér til skólans og er þá reynt að koma til móts við óskir þess. Kennsla fer að mestu fram í Miðbæjar- skóla en einnig er kennt í Gerðubergi, Ár- bæjarskóla og Laugalækjarskóla. RAFIÐNAÐARSKOLINN YFIRLIT YFIR NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 1993 FAG N AMSKEIÐ HEFST ENDAR ÁHRIF TRUFLANA Á TÖLVUKERFI ....... 9.des kl. 08:30 U.des ÁKVÆÐISVINNUVERÐSKRÁIN ........... 21.okt kl. 08:30 22.okt CDSPILARAR ........................ 4.okt kl. 17:00 13.okt GAGNASENDITÆKNISKRÁAFLUTNINGUR ... 21.okt kl. 08:30 23,okt GERVIHNATTAMÓTTÖKUTÆKNI........... ll.nóv kl. 08:30 13.nóv GRUNNNÁMSKEIÐ / RAFMAGNSFR........ 13.sep kl. 09:00 ló.sep GRUNNNÁMSKEIÐ / RAFMAGNSFR........ 25.okt kl. 09:00 28.okt IÐNTÖLVUR PLC 1 .................. 23.sep kl. 10:00 25.sep IÐNTÖLVUR PLC 2.................... 7.okt kl. 10:00 9,okt IÐNTÖLVUR PLC 3................... 14.okt kl. 10:00 ló.okt ISDN/X400.......................... 2.des kl. 08:30 4,des LÁGSPENNUVEITUR................... ll.nóv kl. 10:00 13.nóv LJÓSLEIÐARATÆKNI.................. 18.okt kl. 17:00 27.okt LOFTNETS OG KAPALKERFI SMÁSPENNUVIRKI 2. 14.okt kl. 10:00 ló.okt LOFTSTÝRINGAR .................... lO.des kl. 08:30 ll.des MODEMTÆKNI 2 / X25................. 4.nóv kl. 08:30 ó.nóv MYNDBANDATÆKNI.................... 28.okt kl. 08:30 30.okt MYNDBANDSUPPTÖKUVÉLAR............. 25.nóv kl. 08:30 27.nóv MÆLITÆKI MÆLITÆKNI 1............... 8,nóv kl. 17:00 lO.nóv MÆLITÆKI MÆLITÆKNI 2.............. 15.nóv kl. 17:00 17.nóv RAFEINDATÆKNI 1................... 18.nóv kl. 10:00 20.nóv RAFEINDATÆKNI2..................... 2.des kl. 10:00 4.des SÍMTÆKNI 1......................... 7.okt kl. 08:30 9.okt SÍMTÆKNI 1........................ 29.nóv kl. 17:00 8.des SMÁSPENNUVIRKI 1................. 4,nóv kl. 10:00 ó.nóv SMÁSPENNUVIRKI 2 LOFTNETS OG KAPALKERFI. 25.nóv kl. 10:00 27.nóv STAFRÆN RAFEINDATÆKNI MODIKAM 1... 18.nóv kl. 08:30 20.nóv UPPSETNING Á TÖLVUKERFUM.......... 30.sep kl. 08:30 2.okt ÖRBYLGJUSJÓNVARP M.M.D.S........... l.nóv kl. 17:00 3.nóv ÖRBYLGJUSJÓNVARP M.M.D.S.......... 22.nóv kl. 17:00 24.nóv TÖLVUNÁMSKEIÐ AUTOCAD/TÖLVUTEIKNING 1........... lö.des kl. 8:30 18.des FORRITUN 1......................... 9.des kl. 8:30 ll.des MS-DOS TÖLVUTÆKNI................. Í8.okt kl. 8:30 30.okt PC-GRUNNN/WINDOWS.................. l.nóv kl. 17:00 lO.nóv PC-GRUNNN/WINDOWS.................. 2.des kl. 8:30 4.des PC-GRUNNNÁMSKEIÐ FYRRIHLUTI........ 4.okt kl. 8:30 7.okt PC-GRUNNNÁMSKEIÐ FYRRIHLUTI........ S.okt kl. 8:30 9.okt PC-GRUNNNÁMSKEIÐ SEINNI HLUTI..... 22.okt kl. 8:30 23.okt PC-NET............................ 18.nóv kl. 8:30 20.nóv RITVINNSLA WORD................... 15.nóv kl. 17:00 17.nóv TEIKNING MEÐ AUTOSKETCH 1 ....... 5.nóv kl. 8:30 ó.nóv TEIKNING MEÐ AUTOSKETCH 2......... 26.nóv kl. 8:30 27.nóv TÖFLUREIKNIRINN EXCEL............... 1 l.nóv kl. 8:30 13.nóv WINDOWS FJÖLNOTAFORRIT............ 15.okt kl. 8:30 ló.okt INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMA 91-685010

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.