Alþýðublaðið - 03.09.1993, Page 16
16 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
SKÓLAMÁL
Föstudagur 3. september 1993
Það er leikur að læra - á hvaða aldri sem er!
Menntaskólinn
á Egilsstöðum
Við öldungadeild Menntaskólans á Eg-
ilsstöðum er boðið upp á skilgreinda áfanga
úr áfangakerfmu. Mest er um byrjunar-
áfanga í kjamagreinum til dæmis í erlend-
um tungumálum og íslensku en einnig
verslunargreinar og raungreinar. Um sjö
áfangar em kenndir á hverri önn. Ekki hef-
ur verið unnt að ljúka stúdentsprófi frá öld-
ungadeild, heldur hafa nemendur lokið
náminu í dagskóla. Nám við öldungadeild-
ina er nú í endurskoðun.
Hlutur lista- og verkgreina hefur aukist
og hefur verið boðið upp á til dæmis skrif-
stofutækni, ljósmyndun og myndlist. Utibú
frá öidungadeildinni er á Vopnafirði. Einn-
ig hefur verið í gangi tilraunastarf með
áfangakennslu á Reyðarfírði. Við skólann
er í gangi tilraun með fjarkennslu í ýmsum
greinum.
Ferðamála-
skólar
Helsti vaxtarbroddur atvinnulífsins um
þessar mundir er talinn vera í ferðaþjón-
ustu. Svo einkennilegt sem það nú er þá eru
tveir skólar reknir undir heitinu Ferðamála-
skóli Islands. Annars vegar er Ferðamála-
skóli íslands í Menntaskólanum í Kópavogi
og hins vegar er Ferðamálaskóli Islands að
Höfðabakka 9 sem er rekinn af Félagi ís-
lenskra ferðaskrifstofa og Tölvuskóla ís-
lands og sérhæfir skólinn sig f starfsmennt-
un fyrir fólk í ferðaþjónustu.
Kópavogsskólinn hefur stafað í allnokk-
ur ár. Þar er annars vegar um að ræða sjálf-
stæð námskeið eða heilstætt tveggja anna
nám. A því námsári sem nú fer í hönd verð-
ur boðið upp á 16 námskeið og gefst nem-
endum kost á að taka próf að þeim loknum
þótt ekki sé prófskylda. Námskeiðin eru
fyrir fólk sem starfar við ferðaþjónustu og
þá sem ætla sér í slík störf. Reykjvíkurskól-
inn býður upp á ferðaþjónustunám sem er
alls 75 stundir og það nám verður einnig í
boði á nokkrum stöðum utan Reykjavíkur.
Einnig er skólinn með nám í ferðaráðgjöf
og útskrifar ferðaráðgjafa. Um er að ræða
600 kennslustundir ífá september til mars.
Leiðsögumannaskóli Islands hefúr það
að markmiði að þjálfa nemendur til að
verða leiðsögumenn með erlendum ferða-
mönnum um Island. Nemendur þurfa að
vera orðnir 21 árs og hafa gott vald á að
minnsta kosti tveimur erlendum tungumál-
um. Á haustönn er kenndur almennur fróð-
leikur um ísland en standast þarf ákveðin
próf til að komast að á vorönn. Á þeirri önn
er meðal annars fjallað um helstu ferða-
mannastaði og æfingar við að flytja fyrir-
lestra á ferðalögum yfir ferðalöngum.
Ferðaskóli Flugleiða hefst í október og
þar eru inntökuskilyrði góð almenn mennt-
un og góð enskukunnátta. í skólanum fer
ffam kennsla meðal annars í fjargjaldaút-
reikningi, farseðlaútgáfú og sölutækni.
Fullorðins-
fræðslan
Fullorðinsffæðslan í Reykjavík býður
upp á helstu námsgreinar grunn- og ffam-
haldsskóla og starfar allt árið. Um er að
ræða námskeið og námsaðstoð. Kennt er
bæði í litlum hópum og í einstakiings-
kennslu. Á sumrin eru kenndar helstu
námsgreinar framhaldsskólanáms til prófa
samsvarandi prófáföngum framhaldsskóla-
kerfisins.
Grunnnám: Hægt er að taka bæði ein-
stakar námsgreinar eða nokkrar samvaldar
grunneiningar og ljúka í áföngum prófum
samsvarandi prófúm grunnskólanna. I
grunni eiga allir að geta byijað þótt hefð-
bundið skólanám sé lítið. Námsefnið er
kennt á áþreifanlegan og skiljanlegan hátt
og tungumál kennd út frá móðurmálsþekk-
ingu fólks. Byggðir eru upp traustir þekk-
ingarkjamar sem hægt er að byggja ofan á.
Framhaldsnám: Helstu námsgreinar
framhaldsskólakerfisins eru kenndar í
námsaðstoð og á stuðningsnámskeiðum allt
árið, en kennt er til prófa á 12 vikna sumar-
önn samsvarandi áfangakerfi framhalds-
skólanna. Einnig eru haldin framhaldsnám-
skeið óháð skólakerfinu.
Tölvufræðsla: Nemendum skólans
stendur einnig til boða kennsla og þjálfun í
tölvuvinnslu. Bæði er hægt að sækja nám-
skeið eða einstaklingskennslu og hægt að
raða saman áföngum með öðru námsefni
þar til ritaraprófi eða skrifstofutækniprófi er
náð.
Félagsmálaskóli
alþýðu
Það er Menningar- og fræðslusamband
alþýðu, MFA, sem starfrækir Félagsmála-
skóla alþýðu. Hluti af starfi skólans eru
tveggja vikna annir, þar sem fólk fær tæki-
færi til að þjálfa sig til þátttöku í félagsstörf-
um um leið og það byggir upp sjálfstraust-
ið. Meðal námsgreina eru félags- og fund-
arstörf, ræðumennska, að starfa í hópum,
vinnuréttur, hagfræði og fleira. Möguleiki
er að halda náminu áfram og taka 2. og 3.
önn að lokinni þeirri fyrstu. Námið fer fram
í Ölfusborgum.
Félagsmálaskólinn býður líka upp á
margs konar námskeið. Má þar nefna löng
námskeið í sænsku og ensku, ritönn, sem er
námskeið í rituðu máli á íslensku, margs
konar tölvunámskeið, leiðbeinendanám-
skeið og námskeið um ýmis efni sem tengj-
ast félagsstarfi og verkalýðsmálum.
Félagsmálaskóli alþýðu er íyrst og
firemst ætlaður félagsmönnum stéttarfélaga
innan ASI, BSRB og félagsmönnum Sjálfs-
bjargar. Stéttarfélögin styrkja oftast félaga
sína til náms.
í samvinnu við stéttarfélög eru skipulögð
námskeið fyrir trúnaðarmenn á vinnustöð-
um. MFA skipuleggur kjamanámskeið,
sem eru starfstengd námskeið, en um þau er
kveðið á í kjarasamningum. Starfstengd
námskeið eru skipulögð ýmist í samvinnu
við stéttarfélög eða fyrirtæki. Jafnífamt eru
skipulögð námskeið íyrir stéttarfélög um
margvísleg efni til dæmis námskeiðið „Ár-
in okkar“ fyrir eldri borgara. Milliganga er
á um að koma námskeiðum Tómstunda-
skólans til félaga úti á landi.
Ættfræðiþjón-
ustan
Boðið er upp á ættfræðinámskeið hjá
Ættfræðiþjónustunni í Reykjavík. Um er að
ræða sjö vikna grunnnámskeið (7 mætingar
alls 20 klst.) í ættfræðilegum vinnubrögð-
um, með fræðslu um heimildir íslenskrar
ættffæði, rannsóknaraðferðum, uppsetn-
ingu og svo framvegis ásamt verklegri
þjálfun í þessum aðferðum. Námskeiðsm-
appa (60 bls.) með heimildaskrám, leiðar-
vísum og kortum fylgir með í þátttöku-
gjaldinu. Lífeyrisþegar fá 11% afslátt og
hópar allt að 26% afslátt af námsskeiðs-
gjöldum.
Tómstunda-
skólinn
Fullorðinsfræðsla Tómstundaskólans í
Reykjavík fer fram á námskeiðum, sem eru
mislöng, allt ffá þremur kennslustundum á
einum degi upp í 40 kennslustundir yfir 10
vikna tímabil. Kennt er á kvöldin á mánu-
dögum til fimmtudags, fyrir hádegi laugar-
daga og á einstaka helgamámskeiðum.
Nokkur námskeið eru haldin að degi til fyr-
ir eldri borgara og eru þau einnig öðrum op-
in. Kennt er á haustönn, okt. - des, og á vor-
önn, febr. - apr. Einnig á vomámskeiðum í
maí.
Námskeiðaframboð skólans spannar yfir
mjög vítt svið, en meginflokkar em mynd-
list og handmennt ýmis konar, aðrar list-
greinar, tungumál, fjölmiðlun, starfstengd
námskeið, námskeið í tengslum við heimili,
garð og bíl, ýmsar greinar til upplyffingar
og uppbyggingar fyrir sál og líkama.
Nokkur stéttarfélög í Reykjavík styrkja
skólann með fjárframlagi á haustin og fá fé-
lagsmenn þeirra 10% afslátt á námsgjöld-
um. Nokkur félög veita félagsmönnum að
auki sérstaka námsstyrki.
Handmennta-
skóli
✓
Islands
Handmenntaskóli íslands er bréfaskóli.
Hann leitast við að veita fólki á lands-
byggðinni kennslu í handmennt, þar sem
aðrir skólar ná ekki til. Skólinn hefitr starf-
að óslitið á annan áratug. Helstu greinar
em:
Teiknun og málun I:
undirstaða teiknikennslu
Teiknun og málun II: líkamsteikning
Teiknun og málun III: litameðferð
Teiknun og málun IV: listmálun
Garðgróðurhúsagerð
Skrautskrift
Innanhússarkitektúr (undirbúningur
undir inntökupróf erlendis)
Hýbýlaffæði: verkefni tengd eigin
heimili
Teikning og föndur: bamanámskeið
Hæfileikapróf: útdráttur úr ýmsum
greinum til prófs
Öll þessi námskeið em í formi verkefna
sem nemandinn leysir heima og fær síðan
leiðréttingu á þeim eftir að hafa sent þau til
skólans. Auk þess kennir skólinn bútasaum
(óleiðrétt), bamaleikhús, bíorþyma (líftakt)
og skutlugerð.
Starfsþjálfun
fatlaðra
Starfsþjálfun fatlaðra í Reykjavík starfar
á gmndvelli laga um málefni fatlaðra.
Starfsþjálfunin er ætluð fólki 17 ára og
eldra sem fatlast hefur vegna sjúkdóma eða
slysa og sem hafa þörf á og geta nýtt sér
endurhæfingu af þessu tagi.
Megináhersla er lögð á greinar sem að
gagni koma á vinnumarkaði, ekki síst fyrir
fatlaða sem eiga erfitt með að stunda líkam-
lega vinnu. I tölvunámi er megináhersla
lögð á ritvinnslu og kennt á PC samhæfðar
tölvur. Auk þess er kenndur verslunarreikn-
ingur, bókfærsla og almennar stuðnings-
greinar svo sem íslenska, enska og samfé-
lagsfræði.
Á hverri önn er boðið upp á einhveija til-
breytingu, leik-eða myndlistamámskeið,
fundasköp, ræðulist og fleira.
Kennt er í 12 -14 manna hópum. í tölvu-
tímum er helmingur hóps í einu. Kennslu-
stundir em 4 - 6 á dag. Reiknað er með að
námið taki þijár annir. Skólagjöld em engin
og helstu námsgögn em lögð til nemendum
að kostnaðarlausu.
Meiriháttar
STOR-IHSAU
Bjóðum ný HANKOOK sumardekk
fyrír fólksbíla með 40% afslætti.
Frábærir hjólbardar - einstakt tækifæri
Fjölmargar aðrar stærðir
145R12
145R13
155R13
165R13
175/70R13
185/70R13
Kr. -3200- Kr. 1960
Kr. -3486- Kr. 1990
Kr. -37-70- Kr. 2260
Kr. -3950- Kr. 2370
Kr. -4296- Kr. 2570
Kr, -4800 Kr. 2790
175R14
185/70R14
205/70R14
165R15
185/65R15
185/60R14
Kr.-4960— Kr. 2970
Kr -St66- Kr. 2990
Kr.-8356-Kr. 3790
Kr. "4696— Kr. 2690
Kr.-6290—Kr. 3770
Kr.-5860- Kr. 3490
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080