Alþýðublaðið - 08.09.1993, Side 1
MNMUIIig
Miðvikudagur S.september 1993
135.TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Borgarráð: Hœtt við yyrefsingarugagnvart hafnfirskum fyrirtœkjum
BORGARSTJÓRI KASTAR
GRJÓTI ÚR GLERHÚSI
Reykjavíkurborg hefur - líkt
og Hafnarfjörður, hyglað fyrir-
tækjum síns byggðarlags í
verktakageiranum. Olína Þor-
varðardóttir, borgarfulltrúi
Nýs vettvangs, benti á þessa
snöggu bletti á starfsemi Inn-
kaupastofnunar og borgarinn-
ar á fundi borgarráðs í gær.
Borgarstjóri bar í borgarráði
fram tillögu þess efnis að „ef önnur
bæjarfélög hafa þá stefnu að útiloka
utanbæjarfyrirtæki frá þátttöku í út-
boðum eða aðild að verksamning-
um“ þá telji borgarráð ekki rétt að
leitað verði til fyrirtækja þar í bæ
(hér er átt við Hafnarijörð) í lokuð-
um útboðum á vegum Reykjavíkur-
borgar. Afgreiðslu tillögunnar var
frestað, en ekki fékkst þorgarstjóri
til að draga tillöguna til baka.
Hinsvegar voru borgarfulltrúar
sammála um tillögu þar sem sam-
þykkt er að efna til fundar með for-
svarsmönnum sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu með það að
markmiði að móta stefnu sem
tryggir að búseta ráði ekki vali á
verktökum en hagkvæmustu leiða
leitað fyrir sveitarfélögin.
Olína Þorvarðardóttir bókaði við
þessa umræðu að borgaryfirvöldum
sæmdi síst að kasta grjóti úr gler-
húsi að öðrum sveitarfélögum.
Skattsvik tryggingalœknanna jjögurra
Ríkissaksóknari bíður
eftir Yfirskattanefnd
- formaðurinn segist ekkert vita um málið
Mál fjögurra trygginga-
lækna við Tryggingastofnun
ríkisins, sem taldir eru hafa
svikið milljónatugi undan
skatti, er á hægferð gegnum
kerfið. ALÞYÐUBLAÐH)
kannaði í gær hvar málið er
statt.
Hjá Ríkissaksóknara var blaðinu
' tjáð að rannsóknar skýrsla RLR íægi
vissulega fyrir hjá embættinu. En
ekkert yrði aðhafst fyrr' en Ýfir-
,, skattanefnd heftir afgreitt málið fyr-
ir sitt leyti.
Hjá Yfirskattanefnd fengust þau
svör hjá formanni nefndarinnar að
málið hefði ekki komið til hennar
kasta, og ekki vissi formaðurinn til
að skýrsla RLR um málið hefði bor-
ist skrifstofu nefndarinnar. Nefndin
hefur þijá mánuði tíl að afgreiða frá
sér mál. Enn mun máiið því dragast
á langinn. Margir vilja álíta að mál-
ið eigi að softia:í kedinu. Því neitar
fulltrúi Ríkissaksóknara einarðlega.
('» / "* > 1 *V . ; ‘ '
‘- Sjá fréttaskýringu "
1 á bláðs iðu 5
Borgarstjóri hefði lýst því yfir í
sumar, fyrstur forsvarsmanna sveit-
arfélaga, að Reykvíkingar mundu
öðrum fremur sitja að atvinnutæki-
færum innan borgarmarkanna.
„Þá eru þess mörg dæmi í
Reykjavík að stór verkefni séu af-
hent verktökum án útboða.
Skemmst er að minnast mikilla
ffamkvæmda vegna hitalagna í
Kvosinni, sem Istak fékk í sinn hlut
án undangengins útboðs. Fáeinum
mánuðum áður var Armannsfelli
afhentur síðasti áfangi öldmnar-
íbúða við Lindargötu. Hvort
tveggja verkefni upp á mörg hundr-
uð milljónir króna“, bókaði Olína.
Hvatti Ólína til að forsvarsmenn
borgarinnar og Innkaupastofnunar
Reykjavíkur segðu sem minnst í
þessu máli, en reyndu frentur að
halda uppi friðsamlegum samskipt-
um við nágrannasveitaifélögin með
eðlilegu samráði á borð við það sem
samþykkt hafði verið í borgarráði.
ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR:
Bókaði í borgarráði að borgarjfir-
völdum sæmdi síst að kasta grjóti úr
glerhúsi að öðrum sveitarfclögum.
Borgarstjóri hefði lýst því yfir í sum-
ar, fyrstur forsvarsmanna sveitarfc-
laga, að Reykvíkingar mundu öðrum
fremur sitja að atvinnutækifærum
innan borgarmarkanna.
Alþýdublaösmynd / Einar Ólason.
GEGGJAÐ KERFI
Hverjir vilja þá þetta geggjaða kerfi? Svarið er það sama og
fékkst í fyrrum Sovétríkjunum: Kerfið sjálft. Það eru kerfiskali-
arnir, þeir sem hafa hag af því að viðhalda lönguvitleysunni:
Menn eins og formaður Stéttarsambands bænda, menn eins og
allir embættismenn landbúnaðarkerfisins.
Viðskiptaráðherra þarf ekki að biðjast afsökunar á ummælum sín-
um. Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja sannleikann.
Þeir sem þurfa að biðja þjóðina afsökunar eru menn eins og Haukur
Halldórsson og aðrir keríiskallar landbúnaðarins.
- Sjá leiðara á blaðsíðu 2
SKÍTKAST ALDARINNAR
Búist er við miklum og heiftugum átökum milli stuðnings-
manna Jeltsíns og íhaldsmanna í þingbyrjun nú í haust. Undir-
búningur orustunnar er þegar hafinn og það er ljóst hver verða
vinsælustu skotvopnin: skítur, og nóg af honum.
I skítkastskeppni sem ekki hefur átt sína líka í sögu Rússlands, hafa
embættismenn úr báðum íylkingum rembst við að saka hvom annan
u;n glæpi, allt frá fjárdrætti og landráðum til morðtilrauna. Ekki líður
sá dagur án þess að einhver sé sakaður um leynileg símtöl eða um að
eiga hulinn bankareikning t Sviss,
- Sjáfréttaskýringu á blaðsíðu 4
Samkeppnisstofnun gerði
könnun á verðlagi í fjölda
stórmarkaða og hverfaversl-
ana í síðasta mánuði. Sams-
konar könnun var gerð í apr-
flmánuði og miðað við hana
hefur lösbjörgin hækkað að
meðaltali um 3,7 % á þessum
fjórum mánuðum. Kannanir
þessar náðu til 170 vöruteg-
unda í 30 matvöruverslunum,
stórmörkuðum og hverfa-
verslunum á höfuðborgar-
svæðinu. Kannaðar voru
ýmsar nýlenduvörur, land-
búnaðarafurðir, drykkjar-
föng og hreinlætis- og snyrti-
vörur. Ekki aðeins var kann-
að verð á merkjavörum svo-
kölluðum, heldur einnig vör-
um sem einstaka verslanir
flytja inn sjálfar.
Samkeppnisstoftiun bendir á að
frá því aprílkönnunin var gerð, var
gengi íslensku krónunnar fellt um
7,5% og hefur það augljós áhrif til
verðhækkunar, að meðaltali 3,7%
svo sem fyrr segir. f einstaka búð-
um var hækkunin á tímabilinu frá
0,3% og upp í 6,5%. Kjötvörur
lækkuðu að jafnaði um 0,2% upp í
6.8% á þessu tímabili, nema kjúk-
lingar og kjötfars, sem hækkaði í
verði um rúmlega 3% að meðaltali.
Sem dæmi um verðbreytingar
nefnir stofnunin hveití, sykur, mjöl,
gtjón og pastavörur sem hækkuðu
að jafnaði um 2,6%; kex hækkaði
um 4,8%; morgunverðarkom um
hvorki meira né minna en 7,5%,
niðursuðuvara um 3,7%; kaffi um
5,4%; þvottalögur og hreingem-
ingalögur um 8,3% og bleiur um
5,1%.
IVIÁ BJÓÐA ÞÉR í DAIUS?
• KEMIUSLA HEFST PRIÐJUDAGINN 14. SEPT.
• KENNSLUSTAÐIR
• Reykjavík Brautarholt 4, Ársel,
Gerðuberg, Fjörgyn
og Hólmasel.
• Mosfellsbær
• Hafnarfjörður
• Innritun í síma 91-20345 frá
kl. 15 til 22 að Brautarholti 4.
• Suðurnes Keflavík, Sandgerði
Grindavík og Garður.
• Innritun í sima 92-67680 frá
kl. 21.30 til 22.30.
• Kennum alla dansa
Samkvcemisdansa, gömlu dansana,
rock 'n 'roll, tjútt og nýjustu
freestyle dansana.
• Aukatimar fyrirþá sem vilja taka
þátt í íslandsmeistarakeppni.
• Einkatimar Sértímarfyrir "prívathópa".
• Börn 3 - 4 ára
Léttar hreyfingar og leikir
sem örva hreyfiþroska.
• Barnahópar - Unglingar - Fullorðnir ■ Hjón ■ Pör
Gjaldskrá óbreytt
frá liðnum vetri
Systkinaafsláttur -fyrsta bamfullt gjald,
annað barn hálft gjald, þriðja barn og þar yfir
frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig í
dansnámi.
Þrautþjálfaðir kennarar með mikla reynslu og þekkingu á dansi