Alþýðublaðið - 08.09.1993, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ERLENÐ MALEFNI
Miðvikudagur 8. september 1993
Deilur umbótasinna og íhaldsmanna í Rússlandi
Með skít að vopni
Búist við miklum og heiftugum átökum milli stuðningsmanna
Jeltsíns og íhaldsmanna íþingbyrjun núí haust
Undanfamar þrjár vikur hefur Boris Jelt-
sín lofað gagngerri orrustu þegar stjórn-
málamennirnir snúa aftur úr sumarfríum
sínum nú í septemberbyrjun. Undirbún-
ingur orustunnar er þegar hafinn og það
er Ijóst hver verða vinsælustu skotvopnin:
skítur, og nóg af honum. í skítkastskeppni
sem ekki hefur átt sína líka í sögu Rúss-
lands, hafa embættismenn úr báðum fylk-
ingum rembst við að saka hvorn annan
um glæpi, allt frá fjárdrætti og landráðum
til morðtilrauna. Ekki líður sá dagur án
þess að einhver sé sakaður um leynileg
símtöl eða um að eiga hulinn bankareikn-
ing í Sviss. Svo mikið hefur borið á ásök-
unum um spillingu æðstu manna í stjórn-
kerfinu að jafnvel helstu andófsmönnum
þykir nóg um.
Spillim* er
vaxandi iðngrein
Svindl og sukk var alltaf
landlægt í rússneska embætt-
ismannakerfinu. En nú á tím-
um breytinga í átta að frjálsu
markaðshagkerfi er hægt að
tala um spillingu sem vaxandi
iðngrein. Rannsakendur í
Kreml tala um pýramída
spillingar, þar sem hundruðir
einkafyrirtækja á grunni pýr-
amídans hafa um skeið staðið
í ólöglegum viðskiptum með
olíu og dýrmæta málma,
vernduð af örfáum embættis-
mönnum á toppnum. Sumir
valdamestu stjómmálamann-
anna eru sagðir draga sér stór-
fé úr sjóðum ríkissjóðs og
koma þeim fyrir í erlendum
bönkum.
En herferðimar gegn spillt-
um embættismönnum em oft
á tíðum illa duldar pólitiskar
nornaveiðar. Ihaldssamir
andstæðingar Jeltsíns hafa
beint spjótum sínum að um-
bótasinnum, sem hafa vísvit-
andi misnotað vald sitt í eigin
þágu. Stuðningsmenn Jeltsíns
vísa allri gagnrýni á forsetann
á bug og telja að gagnrýnend-
ur séu aðeins í þessu stríði við
ríkisstjómina til að hindra
umbótastefnu hennar.
„Alvarlegt brot af
siðferðislegum toga“
Hingað til hefur Jeltsín
staðið utan víglínunnar og lát-
ið öðmm eftir skítverkin.
Hann lýsti yfir, þó ekki í smá-
atriðum, að hann hefði sett
saman aðra áætlun um að
binda enda á óútkljáða stjóm-
arskrárbaráttu milli Kremlar
og hins íhaldssama þings.
Þrátt fyrir að hann hafi hótað
að efna til kosninga - með
eða án samþykkis íhalds-
samra þingmanna - gætu til-
raunir til að losna út úr sjálf-
heldunni sem valdataflið er í
verið komið af sporinu vegna
vaxandi spillingar. Rússneski
forsetinn hefur líkt þessu við
„krabbameinsæxli" étandi sig
inn í „efsta þrep stjómkerfis-
ins.“
Sá fyrsti til að fjúka var ör-
yggismálaráðherrann, Victor
Barannikov, sem Jeltsín rak
fyrir „alvarlegt brot af sið-
ferðilegum toga,“ og olli það
foráttuhneykslan stuðnings-
manna Barannikovs á þing-
inu. Jafnvel sumir umbóta-
sinnar eins og utanríkisvið-
skiptaráðherrann, Sergei
Glazyev, em reiðir yfir því
hvemig staðið hefur verið að
rannsóknum. Hann sagði af
sér á þeim forsendum að hon-
um hefði verið ýtt út úr emb-
ætti af mafíugengi sem hafði
staðið gegn tilraunum hans til
að hafa stjóm á gróða fárra
aðila af eftirlitslausum út-
flutningi á hráefnum. Ríkis-
stjómin hafnaði afsagnar-
beiðni hans, en Jeltsín og hans
menn vom greinilega hund-
óánægðir með það að hinum
unga umbótasinna hafði færst
of mikið kapp í kinn í barátt-
unni við spillingarvandann.
Andrei Kozyrev, utanríkis-
ráðherra, viðraði áhyggjur
sínar af því að innbyrðisátök
stjómarmeðlima skyggðu á
mál er vörðuðu afglöp í starfi.
Rutskoi í
vondum málum
I sigtinu hjá rannsóknar-
mönnunum frá Kreml er and-
stæðingur forsetans til langs
tíma, varaforsetinn Alexander
Rutskoi. I síðustu viku sýndi
nefnd á vegum forsetans það
sem hún kallaði undirskrift
hans á samningi sem fól í sér
óútskýrða millifærslu á ríkis-
fé, þremur milljónum dollara.
Peningunum hafði að því er
virtist verið beint úr féhirslum
Jeltsín berst við að verja stöðu
sína mitt í öllu skítkastinu í
Rússlandi. Kasbúaltov þingfor-
seti og einn helsti andstæðing-
ur Jcltsíns hangir vinstra meg-
in og hinn kappinn er vand-
ræðagepillinn Rutskoi, vara-
forseti Rússlands.
ríkisins, upphaflega eyma-
merktu kaupum á bamamat,
inn á erlendan bankareikning
fyrirtækjakeðju Seabego, sem
sakað hefur verið um að flytja
fé Kommúnistaflokksins inn
á reikninga á Vesturlöndum.
Einn nefndarmeðlima,
Andrei Makarov, lagaráðgjafi
Jeltsíns, hefur einnig elst við
annan fyrrum bandamann
forsetans, Valentin Step-
ankov, æðsta saksóknara
Rússlands. Makarov heldur
því fram að Stepankov hafi
bmggað honum launráð til að
ónýta rannsóknir manna Jelt-
síns á spillingarmálum. Sönn-
unargögn í málinu vom seg-
ulbandsupptökur af meintu
símtali Makarovs, en flestum
Rússa finnst þetta segulband
óskiljanlegt.
Rutskoi og Stepankov hafa
neitað öllum sakargiftum.
Varaforsetinn sakaði nefnd-
ina fyrir að reyna að gera
hann að „æðsta guðföður
landsins", en hann er varla í
stöðu til að kasta steinum.
Aður en Jeltsi'n vék hinum
uppreisnarsinnaða Rutskoi úr
stöðu sinni sem yfirmaður
þeirrar sömu nefndar sem nú
leitar uppi glæpamenn hafði
hann reynt að tjömbera menn
Jeltsíns. Hann ásakaði um-
bótasinna úr röðum Jeltsíns
opinberlega um að ráðskast
með eignir ríkisins og sagðist
hafa fulla „tösku“ af sönnun-
argögnum. I kjölfarið lét hann
fara fram rannsókn á meint-
um fjárdrætti aðstoðarforsæt-
isráðherra Jeltsíns, Vladimir
Shumeiko, sem neitaði þess-
um ásökunum. Hingað til
hafa engin af þessum spilling-
armálum farið fyrir
rétt.
Sleppur einhver með
ófTekkaö mannorð?
Margir Rússar velta því
fyrir sér hvort einhver muni
koma út úr þessu skftkasti
með óflekkað mannorð. Ekki
þó vegna þess að Rússar séu
sérstaklega gáttaðir á því að
heyra spillingarsögur af
mönnum á hæstu stöðum.
Spilling er svo landlæg að
borgarar eru vissir um einn
hlut: allt tilfinningaríkt tal um
upprætingu á spillingu í
stjómkerfmu er og verður
innantómt. Þeir hafa að mestu
leyti leitt hjá sér hneykslis-
málin með þreytulegum
axlaypptingum og haldið
áfram að bisast við að láta
þeirra eigin enda ná saman.
- GB / Byggl á TIME