Alþýðublaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 7
Föstudagur 31. desember 1993
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÁRAMÓTASAGAN - ÓLAFUR GUNNARSSON SKRIFAR
SAGAN AF PER HUGGER
III. kapftuli
Per Hugger dvaldi langdvölum á Det Lille Apó-
tek. Það haustaði í Danmörku og þeir ávextir sem
fólk nennti ekki að tína af trjánum urðu fæða brodd-
galta. Skaðamir, þessir svarthvítu fegurðarkóngar
fuglanna léku sér að því að lenda breiðum vængjum
í hæstu tijátoppum og vaga þar. Odýrt kirsuberjavín
kom í búðir eins og ávallt á haustin en Per Hugger
mátti ekki vera að því að drekka það. Hann var að
vinna. Honum þótti gott að vera í góðri fjarlægð frá
íslendingunum. Þá töfðu þeir hann ekki með gegnd-
arlausu drabbi sínu.
Þegar hann byijaði að vinna fyrir alvöru varð
hann þess meðvitaður í hamingju að lífið hafði lagt
honum eitt og annað í hendur sem hentaði vel í þetta
sannsögulega skáldverk. Hann, Per Hugger, hafði
komið til íslands. Vel mátti brúka þá reynslu þegar
Jónas Hallgrímsson hugsaði heim. Per Hugger hafði
slarkað drjúgt með listamönnum. Ekki var komið að
tómum kofunum þar hjá Jónasi. Islendingurinn hafði
elskað stúlku en ekki fengið hennar. Við þeirri
reynslu gat skáldið frá Hirtshals kinkaði kolli marg-
sinnis. Það flóði að honum meiri efniviður en hann
fékk moðað úr. Hann skrifaði og skrifaði og fyllti
margar stflabækur. Já, penninn rann fyrirhafnarlaust
eftir síðunum. Á Apótekinu uppvartaði blondína og
gaf honum auga. Á öðrum degi var hún áhugalaus
um þessa ritræpu. Þegar Per Hugger hafði unnið í
þrjár vikur fór hann að fínna Eika og Grím að spyij-
ast fyrir um dauða Jónasar og þeir sýndu honum hús-
ið þar sem skáldið hafði dottið í stiga.
Stúlkan á Det Lille Apótek átti sér mann. Sá var
enskur og kom á kvöldin með gítarkassa og sat á stól
upp við barinn þungur á brún, þéttvaxinn og krull-
hærður. Reisn konunnar við skenkinn virtist fara eft-
ir hvemig lá á þessum manni.
Bekkurinn þar sem Hugger hafði samastað við
vinnu sína var öndvert bamum. Hann óskaði sér þess
heitt að hann ætti svona konu. Hann hafði meira að
segja borið við að reyna að brosa þegar hún leit til
hans en úr því varð ömurleg gretta.
Eftir mánaðartöm tók hann sér hvfld og skvetti í
sig eins og skáldi bar og tók gítarleikarann tali. Per
Hugger frétti að tónlistarinnar framabraut er ekki
síður þymum stráð en bókmenntanna. Gítarleikarinn
sem hét Sean var málkunnugur Paul Simon úr Sim-
on & Garfunkel. Þeir höfðu spilað saman á Strikinu
endur fyrir löngu. Dag einn heyrði Paul Simon í
sjálfum sér í útvarpi. Hann var orðinn frægur. Sean
hafði spilað með Pretty Things en verið rekinn þeg-
ar Pretty Things fékk plötusamning.
Kvöld eitt var stúlkan með glóðarauga. Hún fægði
glös með ofurreisn hins særða. Per Hugger sat hníp-
inn yfir stflabókinni sinni og þorði tæpast að líta upp.
Honum leið eins og hann hefði lamið hana. Hann
bað um sér yrði færður diskur af lauksúpu. Þegar
hún setti súpudiskinn fyrir hann yrti hún á hann og
sagði: - Det gör ikke noget du. Hann heyrði að hún
var útlendingur.
Sagan af Jónasi fór í handaskolum þennan dag,
Per Hugger var orðinn morrandi fullur þegar Sean
lét loks sjá sig. Unglingar á kránni vom með læti.
Einn þeirra myndaði kíki til að skoða glóðaraugað.
Per Hugger hafði frá fyrstu stundu fundist stúlkan
koma kunnuglega fyrir og nú mundi hann hvar þau
höfðu sést. Augað sem sloppið hafði við högg var
matt og sígið af depurð í andlitinu. Það var útlitið
sem Per Hugger þekkti. Þetta var sammannlegt yfir-
bragð á óhamingjusömu fólki.
Per Hugger fann sig knúinn til að sitja þar til allir
væru famir af kránni. Hún færði honum óbeðin öl og
snaps. Sean sat á stólnum sínum til alls vís.
I nokkra stund var stúlkan hitt og þetta að dedúa.
- Við emm búin að loka, sagði hún snögglega hátt
við ástmann sinn. - Þú átt að fara. Eg vil ekki sjá þig,
æpti hún. - Þessu er lokið. Skilurðu það? Englend-
ingurinn sinnti þessu engu.
Hún slökkti í innra herberginu. Per Hugger vonaði
að kokkurinn kæmi, að einhver kæmi og tæki hana
með sér heim. Hann drakk í flýti snapsinn og bjórinn
en var samt sem allsgáður. Hún setti Elefant fyrir
hann og sagði ákveðin: - Þú ferð ekki.
Per Hugger, skáld frá Hirtshals fann til glímu-
skjálfta.
Hún lét bjórflösku fy rir Per Hugger og stökk til og
greip með ótrúlegri snerpu í gítarleikarann að aftan-
verðunni og snaraði honum af barstólnum. Sean
burðaðist við að rísa á fætur en hún sparkaði í rass-
inn á honum áður en hann kom fótunum fyrir sig,
hann hrökklaðist til dyranna með spaugilegu göngu-
lagi. Sean slæmdi til stúlkunnar án þess að hitta.
Hann náði taki á peysu hennar og þeytti henni í gólf-
ið og sparkaði fast í læri hennar og hún öskraði af
bræði með hárið í flækju fyrir andlitinu. Nú reis Per
Hugger, skáld frá Hirtshals á fætur.
Englendingurinn bandaði hendi til skáldsins og
sagði á hörmulegri dönsku: - „Bland dig udenom,
hun er en luder." Hugger settist. Hún rak gítarkass-
ann í fang Sean. Hann klofaði til útidyranna gapandi
af drykkju. Hún varð að sækja lykla til að hleypa
honum út.
Per Hugger var sorgmæddur að hafa ekki þorað að
hjálpa. Hún lét kerti í stjaka á borðið hans og sótti sér
snapsflösku og sígarettur og stakk við. Hárið var
blautt af svita og klesst við kinnamar. Þau sátu og
dmkku. Hún haltraði af og til að gá á gluggann. Loks
taldi hún óhætt að fara af kránni. Þau skimuðu bæði
um þrönga götuna. Enginn beið þeirra. Per Hugger
hélt yfir um hana en hún hélt á snapsflöskunni. Hún
skalf þótt hlýtt væri í veðri. - Eg get ekki farið heim.
Hann drepur mig.
- Kondu með mér, sagði Per Hugger og ekki laust
við að gætti skjálfta í röddinni.
Þau lögðu af stað. Hún haltraði. Hann bjóst við að
mæta Sean á hveiju homi. Þau settust á bekk á Ráð-
hústorginu og létu flöskuna ganga. I stiganum á
Stampesgade fékk hún sáran verk í lærið og varð að
fara eina tröppu í einu og styðja sig við handriðið.
Stíginn var bæði brattur og háll.
Per Hugger opnaði dymar á risherberginu. Eitt-
hvað hvítt og flangt lá á gólfinu og Ijómaði dauflega
í myrkrinu. Það var umslag. Hann tók það upp. Hún
settist stynjandi á rúmið hans. Hann reif upp umslag-
ið og las bréfið í birtu frá tungli: Skáldið Per Hugger
frá Hirtshals til heimilis að Stampesgade 6 hefur
fengið styrkveitingu ffá Dansk Islands Fond að upp-
hæð kr. 25.000 til að vinna að skáldverki um den is-
landske digter Hallgrímsson og hans venner Fjölnis-
mænd.
Stúlkan var sest á rúmið og néri á sér lærið. - Mik-
ið er ég feginn að fá að vera. Ég heiti Taida. Ég er
Pólsk.
- Ég heiti Per Hugger, svaraði skáldið. - Og ég er
rithöfundur.
IV. kapítuli
Per Hugger vaknaði í birtingu. Þau höfðu kúldrast
á bekknum þar til hann flutti sig á gólfið undir morg-
un. Hann hafði sofið hjá stúlku í fyrsta sinn. Ekkert
hafði gerst nema einmitt það: Þau höfðu sofið.
Hún vaknaði æst á taugum og þorði ekki heim.
Þau fóm á morgunbúllu. I stiganum mættu þau
gamla manninum, hann var árla á fótum til að missa
ekki af góðgætinu sem til féll í öskutunnumar. Hann
horfði á eftir þeim gapandi. Per Hugger fann til gleði
að láta þennan sóðalega durg sjá að nú var hann með
kvennmann á sínum snæmm. Þau dmkku gammel-
dansk og Guldöl á Jæmebanekránni. Taida sagði
skáldinu sögu sína.
Hún átti móður á lífi í Krakov. Hún átti átján ára
dóttur í Póllandi sem hún hafði ekki séð í fimmtán
ár. Hún átti tólf ára son í Svíþjóð. Hann bjó hjá föð-
ur sínum. Ég setti auglýsingu í blað. Ef þið viljið
kynnast faguixi Pólskri stúlku sendið þá bréf ásamt
mynd. Flestir sem sendu mynd vom of gamlir. Jan
var lögfræðingur. Það var ást við fyrstu sín. Hvaða
karlmaður getur staðist svona ljóshærða gálu eins og
mig?
- Ekki nokkur maður, samsinnti Per Hugger.
- Það var engin framtíð í Póllandi. Ég svaf hjá út-
lending þegar ég var fimmtán ára og fékk rússkins-
jakka fyrir. Finnst þér ég agaleg? Við Jan áttum
stærðar hús í Svíþjóð. Það var á tveim hæðum. Þama
var ágætt að vera en til lengdar fannst mér einangr-
unin þreytandi. Ég var ekki skotin í manninum mín-
um lengur. Ég þarf að vera skotin í manni til að vera
með honum. Sjáðu til, innst inni er ég hóra í eðli
mínu og ég hef alltaf vitað það. Þess vegna get ég
ekki verið mjög lengi með sama kallinum. Nú verð
ég að losna við Sean, hann hangir utan á mér eins og
ógeðsleg hvelja. En hann var dásamlega brjálaður
þegar ég hitti hann fyrst. Þá spilaði hann með Pretty
Things sem vom á síðasta snúning. Skrítið hvað
venjulegir karlar geta orðið sætir þegar þeir em í
hljómsveit. Þú verður að konta með mér heim, ég
þori ekki ein. En segðu mér nú frá sjálfum þér. Ég
hef aldrei áður verið með listamanni.
Hér verð ég, höfundur þessarar sögu, Ólafur
Guwmrsson að stöðva frásögnina. Lesendum mín-
um, ef einhverjir eru, get ég sagt að nú heJUr það
gerst sem ekki heflir áður hent á aldaifjórðungs
skáldskaparferli mínum. (Eg byrjaði að yrkja 23.
apríl 1967) Ég kemst ekki lengra. Éghef setið íþrjá
daga yflr tölvunni og hárreitt mig. Ég er kominn í
þrot með þennan bölvaðan asnakjálka Per Hugger
og þennan heldur vafasama kvenmann Taidu sem
hann erað eltast við. Rithöfundur ríkir yfir söguper-
sónum sínum eins og Guð og mér er skapi nœst að
láta loftsteinfalla í höfuðið á þessu heimska pari þar
sem það situr á vertshúsi einn sumardagsmorgun
1987. Man einhver lesandi eftir klámblaðinu sem
gamli karlfauskuriim var að hampa? Það átti eftir
að snerta sögiilietju vora með þunga. Einnig átti gít-
arleikarinn enski eftiraðfá uppreisn œru. Ray Davis
í Kinks bauð honum í Kinks. Þau Taida byrjuðu aft-
ur saman. Grímur og Eiríkur? Ekkert fékk haggað
þeim forstokkuðu mönnum. Ég hafði hugsað mér að
kíta Per Hugger missa sveindóminn og skrifa skikk-
anlegt skáldverk. Ég tek það afhonum. Ég tek það
allt af honum. Því málið er: Ég er sammála föður
Per Hugger, kaupmohninum jóska, sonurinn er asni
og œtti að drífa sig heim til Hirtshals og þiggja vinn-
una og herbergið semfaðir hans vill borga. En sjáið
nú til lesendur góðir, mikið er vald höfundarins. Ég
er að hugsa um að stinga Per Hugger undir strœtis-
vagn. Förum aftur á krána.
- Mig langar í rettu, sagði Taida.
- Þjónn sígarettu, kallaði Per Hugger.
Þjóninn kom að borðinu með pakka af Prins.
- Ég reyki ekki Prins, sagði Taida og gretti sig. -
Bara Vinston.
- Ég skal sækja handa þér einn pakka af Vinston,
ástin mín. Per Hugger
reis á fætur og hljóp út
en rétt í því sveigði
gulur strætisvagn, leið
fjögur fyrir hom,
skáldið rann á banana-
híði, vagnstjóranum
tókst ekki að hemla
nægilega snöggt, bfl-
inn rann yfir Per
Hugger skáldfífl ffá
Hirtshalds sem lá eftir
á götunni eins og
dauður háhymingur.
Bflstjórinn bakkaði of-
an af honum, hljóp út
og sagði skjálfraddað-
ur: - Ma- ma-maður-
inn er látinn.
Taida grét. Svartur
maskarinn lak í taum-
um niður andlit henn-
ar. - Ég elskaði þetta
skáld sagði hún við
þjóninn. - Samband
okkar var það eina
góða sem hefur skeð
fyrir mig.
Nú fer gœsahúð um
mig, höfundinn. Újf,
hvað helvítis merin er
fölsk. Og að lokum:
Hinn raunverulegi
endir sögunnar, eins
og ég hafði hugsað
mér hann, og þar leik-
ur sjálfur Jónas Hall-
grímsson aðalhlut-
verkið:
Kaupmannahöfn.
Hlý vomótt þann 25
maí árið 1845. Jónas
Hallgrímsson hefur
setið á Hvvids Vinstue
og hugsað heim. Glas
er í hönd skáldsins.
Vínið logar í kverk.
Jónas Hallgrímsson er
dmkkinn. Innra ólga
kvæði. Allir em horfn-
ir af kránni nema þjón-
ustustúlkan og ástvin-
ur hennar. Sá er
mæddur finnskur
maður. Hann hefur
flutt sig á borðið til
Jónasar. Ástkona hans
sér um að uppvarta á
Hvít. Kertaljós stendur
á borðinu. Andlit
Finnans er ömm sett.
Helst mætti halda að
einhver hefði gamnað
sér við að rista vang-
ana lóðrétt með hníf.
- Du skal ud, kallar
konan að skáldinu.
Hún er þreytt og sorg-
mædd enda vinnudag-
urinn langur og ástvin-
urinn duglítill líru-
kassaleikari. - Ut með
þig, það er búið að
loka. Skilurðu það ís-
lendingur. Er det sa
forstaaet? Vi har lukk-
et nu.
Jónas Hallgrímsson
tekur að hafa yfir
hendingar úr ástarljóð-
inu mikla. Hann mælir
yfir glas sitt tómt. -
Greiddi ég þér lokka
við Galtará. Vel og
vandlega.
- Jeg gider ikke
höre pa det islandske
piss, hrópai' stúlkan. -
Er det sa forstaaet? Vi
har lukket.
En nú reis Jónas
Hallgrímsson á fætur
þéttur á velli og brá við
það hart að stóll hans
hraut um koll. Nú er
skáldi þessu nóg boðið
þótt dmkkið sé og
snautt. Hann greip þétt
með báðum höndum
um vanga stúlkunni og
horfði í andlitið. Hún
leit á móti. Annað augað var sigið af raunum. Svo
mælti skáldið á sínu ástkæra ylhýra máli. - Ég var
bara að hafa yfir gamalt kvæði. Vertu nú góð.
FLUGVIRKJAFÉLAG ÍSLANDS
Almennur félagsfundur
F.V.F.Í.
Almennur félagsfundur F.V.F.Í. verður haldinn að Borgartúni 22
þriðjudaginn 4. janúar 1994 klukkan 17.00.
Dagskrá:
1. Staða F.V.F.Í. innan ASÍ. Gestur fundarins
Benedikt Davíðsson.
2. Málefni AEI.
3. Orlofshúsamál.
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega!
Stjórnin.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þegar
eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 688500.
Umhverfisráðuneytið
LAUS STAÐA
Umhverfisráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu
skrifstofustjóra umhverfisskrifstofu ráðuneytisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi, hlotið haldgóða
stjórnunarreynslu og hafa gott vald á íslensku og
erlendum tungumálum, þ.á.m. ensku.
Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu úr opinberri
stjórnsýslu, þekki til alþjóðasamstarfs eða hafi
menntun/starfsreynslu á sviði umhverfismála.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf,
sendist umhverfisráðuneytinu fyrir 22. janúar 1994.