Alþýðublaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 16
16 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HMIIIIIilffllfl
Samningurinn um Evrópska efnahagssvœðið að taka gildi
Föstudagur 31. desember 1993
Aukin samkeppni á
öllum sviöum í staö
fákeppni og einokunar
EES—samningurinn tryggir rétt einstaklinga og Jyrirtœkja í viðskiptum
og niðurfelling tolla skapar ný tœkifœri fyrir íslenskan matvœlaiðnað
Umbylting verður í
hagstjórn hér á landi
með gildistöku
EES-samningsins um
þessi áramót. Sameig-
inlegur markaður nær
380 milljóna manna
mun tryggja tollfrjáls
viðskipti án hindrana
með vörur og þjón-
ustu. Samningurinn
tryggir öllum
" EFTA-ríkjunum að-
gang að þessu stærsta
og öflugasta markaðs-
svæði heims á jafnrétt-
isgrundvelli án þess að
þau glati rétti sínum til
að ráða viðskipta- og
tollastefnu sinni gagn-
vart ríkjum utan EES.
Þessi samningur
tryggir að sjávarút-
vegur okkar stendur í
^-fyrsta sinn jafnfætis
keppinautum sínum
ásamt annarri iðnað-
arframleiðslu á mark-
aði sem tekur við 4/5 af
útflutningi sjávaraf-
urða.
Þegar EES-samning-
urinn verður kominn til
framkvæmda að fullu
hefur hann í för með sér
lækkun tolla fyrir sjáv-
arútveginn sem nemur
96% miðað við þá tolla
sem nú eru í gildi og
þann útflutning sem er
héðan. Strax um þessi
áramót falla niður 3/4
hlutar tolla af þeim sjáv-
arafurðum sem mestu
máli skiptir. Þar er um
að ræða tolla af saltfiski
og saltfiskflökum og
niðurfelling 18% tolla á
ferskum þorskflökum
sem og ýsu-, ufsa, og
'***þrá!úðuflökum. Þessir
tollar hafa verið veruleg
hindmn varðandi út-
flutning.
Fullunnar
neytendavörur
Þó að lækkun og nið-
urfelling tolla þýði bætt-
an hag sjávarútvegsins
sem nemur einum. til
tveimur milljörðum
króna segir það ekki
nema hálfa söguna. Með
EES-samningnum gef-
ast ný tækifæri fyrir ís-
lensk matvælafyrirtæki
til að koma neytenda-
vömm beint á markað.
Þetta hefur mjög jákvæð
áhrif varðandi aukna at-
vinnu og stóreykur
verðmæti framleiðsl-
unnar.
Vegna aflasamdráttar-
ins að undanfömu hefur
atvinnulíf á landsbyggð-
inni ekki síst átt undir
högg að sækja.
EES-samningurinn er
því kærkomið tækifæri
til að skapa ftskvinnsl-
unni um allt land nýja
möguleika. Nú verður
hægt að skapa meiri
verðmæti úr minni afla
og þetta ætti að verða
landsbyggðinni mikil
lyftistöng. Rétt er að
minna á að það tókst að
koma í veg fyrir að sú
krafa Evrópubandalags-
ins að fá einhliða veiði-
heimildir í íslenskri lög-
sögu jafngildar tofla-
lækkunum næði fram að
ganga.
Tryggir
samkeppnisstöðuna
Þátttaka íslands í EES
er forsenda þess að hægt
sé að tryggja samkeppn-
isstöðu okkar á lang-
mikilvægasta markaðs-
svæði þjóðarinnar. Um
75% af vöruútflutningi
okkar fer á þetta mark-
aðssvæði og án aðildar
að EES væri samkeppn-
isstaðan vonlaus. Þá
hefðum við þurft að
horfa upp á helstu
keppinauta okkar svo
sem Norðmenn, Dani og
Færeyinga ná þar yfir-
burðastöðu. Þetta á líka
við þegar komið er að
sköpun nýiðnaðar og
stóriðju þar sem erlent
áhættufjármagn þarf að
koma til.
í EES-samningnum
eru sameiginlegar reglur
um fjármagns- og
vinnumarkað og þær
lúta samræmdum sam-
kepppnisreglum. Þessi
sameiginlegi markaður
mun þvf ryðja burtu við-
skiptahindrunum og
koma í veg fyrir mis-
munun. Þetta mun örva
vömþróun og hagvöxt,
bæta lífskjör og draga úr
atvinnuleysi.
Með samræmdum
samkeppnisreglum og
gæðastöðfum ásamt
banni við ríkisstyrkjum
og undirboðum sem og
eftirliti með fram-
kvæmd milliríkjasamn-
inga eru hagsmunir
smáríkja á borð við Is-
land tryggðir.
Nauðsynlegt
aðhald
Með samningnum um
evrópska efnahags-
svæðið er réttur einstak-
linga og fyrirtækja
tryggður í viðskiptum
um leið og réttur stjóm-
valda til mismununar í
skjóli pólitísks valds er
skertur. Þetta þýðir með-
al annars það að fá-
keppnismarkaður hér
innanlands fær nauð-
synlegt aðhafd erlendis
frá. Með því móti ætti til
dæmis að verða auð-
veldara að lækka vexti
og ná jafnvægi á fjár-
magnsmarkaði. Einok-
un og fákeppni ásamt
vemdarstefnu hvers
konar hefur lengi bitnað
á neytendum og laun-
þegum í formi hærra
verðs á vöru og þjón-
ustu. Þetta breytist til
batnaðar með
EES-samningnum sem
felur í sér gagnkvæm
réttindi og skuldbind-
ingar um opnun þjóðfé-
lagsins ásamt aukinni
samkeppni á öllum svið-
um.